05.04.1974
Neðri deild: 102. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3554 í B-deild Alþingistíðinda. (3166)
255. mál, lántökuheimildir erlendis
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Frv. á þskj. 573 er komið frá hv. Ed. og var gerð þar ein breyt. á því, en frv. þetta er flutt til þess að staðfesta lántökuheimildir ríkissjóðs erlendis, vegna þess að breytt er nú frá þeirri gerð, sem áður hefur verið, að setja sérstök lög um framkvæmda- og fjáröflunaráætlun ríkisins, og var það mál afgr. með fjárl. síðustu, þeim sem gilda fyrir árið 1974. Það, sem hér er á ferðinni, er heimild vegna erlendrar lántöku á þeim liðum, sem upp eru taldir í fjárl. þessa árs, en talið er, að það sé hæpið, að erlend lántaka styðjist eingöngu við fjárl., heldur þurfi að vera sérstök löggjöf þar að lútandi, bæði vegna þess að eðlilegt sé, að það sé í einni löggjöf, og í öðru lagi sé einnig um það að ræða, að það sé hæpið, að fjárlagaheimild ein nægi til þess að taka erlendu lánin. Því er nú lagt fram sérstakt frv. um þetta efni, eins og boðað var í aths. með fjárlagafrv., svo og annað frv. um skattalega meðferð, sem hefur verið afgr. frá hv. Alþingi.
Sú breyt., sem gerð var í hv. Ed., var að taka inn virkjun Siglufjarðarkaupstaðar við Skeiðsfoss í Fljótum, en það er mál, sem nú er á dagskrá og er mikill áhugi fyrir að komist í framkvæmd á þessu ári.
Ég treysti því, að þetta mál fái fljóta afgreiðslu hér í hv. d., m.a. vegna þess, að margar þær framkvæmdir við verkefni, eins og t.d. Mjólkárvirkjun o.fl., bíða eftir því, að þetta verði afgreitt. Málið var nokkuð lengi á ferðinni í hv. Ed., en ég vona, að það verði hægt að afgreiða það fljótlega eftir páskahlé hér í þessari hv. deild.
Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.