05.04.1974
Sameinað þing: 74. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3575 í B-deild Alþingistíðinda. (3187)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það er sýnilegt, að form. Sjálfstfl. hefur orðið alvarlega hræddur við það, sem gerðist í þessum efnum. Hann hugsar til beiðni Þjóðverja á Hitlerstímanum, rétt áður en styrjöldin skall á, enda leyndi það sér ekki á málflutningi hans, að það, sem hefur hreyft við honum, er það, að hann þóttist sjá í þessu almenna undanlátssemi íslenskra stjórnvalda fyrir þeim austantjaldsmönnum. Fyrst hefði verið látið undan Rússum, þeim heimilaðar lendingar hér á landi, og nú Austur-Þjóðverjum, og þá auðvitað ósköp eðlilegt, að maðurinn færi að verða hræddur.

En það, sem sérstaklega hefur vakið athygli mína, er það, sem hér hefur verið sagt um þessa leyfisveitingu og fiskveiðar í Norðurhöfum og okkar almennu stefnu í þeim efnum, og öll sú fjarstæða, sem hv. 7. þm. Reykv. sagði hér í sambandi við það. Hér hefur ekki verið gerð nein stefnubreyting frá þeirri almennu stefnu, sem gilt hefur hjá okkur varðandi það að reyna að halda þannig á málum, að við greiddum sem minnst fyrir fiskveiðum útlendinga hér við land, á þeim miðum, sem við stundum okkar veiðar. Á því hefur engin breyting orðið.

Það sem hér var um að ræða, var það, að þegar þessi beiðni kom fram, var gerð athugun á því, um hvað hér væri í rauninni að ræða. Hér var ekki um beiðni að ræða fyrir alveg sérstök ryksuguskip, eins og hv. 7. þm. Reykv. talaði hér um. Hér voru á ferðinni venjulegir verksmiðjutogarar síst stærri en þeir, sem hafa stundað og stunda veiðar hér við land á vegum Vestur-Þjóðverja og margra annarra. En þessi skip stunduðu ekki veiðar við Ísland, og hér var ekki heldur um að ræða veiðar, sem átti að stunda við Noreg, heldur var hér um að ræða veiðar, sem fram áttu að fara á Nýfundnalandsmiðum og Kanadamiðum, þar sem svo stendur á, að allar þær þjóðir, sem veiðar hafa stundað á þeim miðum, hafa þegar komið sér saman um ákveðinn kvóta, sem þau megi fiska á þessum slóðum, þar sem búið er að gera samkomulag um tiltekið magn, sem hver þ,jóð má veiða, bæði af þorski, ýsu, karfa og öðrum aðalfisktegundum, Austur-Þjóðverjar eiga hlutdeild í þessu að tilteknu magni og sækja sinn kvóta eins og margir fleiri á þessi mið. Hér gat því ekki verið um það að ræða, að við gætum haft nokkur minnstu áhrif á það, hvort þeir veiddu meira eða minna á þessum miðum, sem við stundum ekki veiðar á, enda hefur það farið svo við þessar kvótasetningar, sem þarna hafa verið gerðar, að þá hefur ekki komið í okkar hlut neinn teljandi hlutur og svo lítið, að við höfum ekki talið ómaksins vert að senda skip eftir slíku. Við vissum, að Austur-Þjóðverjar mundu veiða á þessum slóðum eftir þessu samkomulagi, þeir mundu senda sín skip þangað, eins og þeir hafa gert, og þeir gátu að sjálfsögðu, eins og hér hefur komið fram í umr., sent menn hingað til Íslands með farþegaflugvélum og skipt hér og notið hér nákvæmlega sömu réttinda og aðrir að mega koma með skip sin í íslenska höfn og láta sína menn ganga um borð í skipin. Þeir hefðu eflaust einnig getað komið því fram að skipta um skipshafnir sínar í þessum tilfellum annars staðar. Hér var beiðni í þremur tilfellum, þar sem gert var ráð fyrir því að skipta um allverulegan hluta af skipshöfn skipa. Þegar það lá fyrir, að hér var alls ekki um það að ræða, að veiðarnar yrðu stundaðar á okkar slóðum, við Ísland, eða á þeim slóðum, sem við stunduðum veiðar á, heldur væru þetta veiðar upp í tiltekinn kvóta á fjarlægum miðum frá okkur, gátum við vitanlega ekki séð, að það væri nokkur einasta ástæða til frá okkar hálfu að meina þeim að fá lendingar hér með þessum hætti.

— En í þessu sambandi er auðvitað rétt að rifja upp, hver er aðstaða erlendra fiskiskipa hér við land og hvaða þjónustu þau hafa fengið og fá hér. Það, sem hv. 7. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, sagði í þeim efnum, var flest alrangt, því um þetta veit hann greinilega ekkert eða þá að hann vill ekki hafa það, sem rétt er. Þau fiskiskip, sem stundað hafa veiðar hér við Ísland og stunda veiðar enn við Ísland og eru virkilegir keppinautar okkar hér á miðunum, hafa fengið hér margvíslega og mikla þjónustu og fá hana enn. Þau leita hér hafna, ekki aðeins stöku sinnum. Komur þeirra til íslenskra hafna, t.d. breskra togara, skipta mörgum hundruðum á hverju ári. Þau fá hér viðgerðarþjónustu og hvers konar þjónustu. Við höfum ekki talið okkur fært, — þótt við værum að greiða fyrir veiðum þessara aðila með þessu móti á okkar fiskimiðum, — að neita þeim um þessa þjónustu, vegna þess að við eigum líka fiskiskip og fiskimenn, sem þurfa að leita til hafna annars staðar og sækja um sams konar þjónustu. Það er líka rangt, að það hafi almennt gilt þær reglur hér hjá okkur, að skip hafi ekki getað fengið nema tiltekinn eða litinn skammt af olíu, ís eða öðru slíku. Það er eintómt bull. Það hafa verið settar nýjar reglur um þetta nú í olíukreppunni, og þá hefur þetta gilt um öll erlend skip, sem hingað hafa komið, að það má ekki afhenda þeim olíu nema að vissu marki, mjög takmörkuðu marki. Við gerum það þó að láta þau hafa nokkra olíu af okkar takmörkuðu birgðum og komi sérstakt samþykki til í hverju einstöku tilfelli. — M.ö.o. við erum að veita erlendum skipum, sem hér eru í harðri samkeppni við okkur, margvíslega þjónustu. En svo ættum við að segja í einstöku tilfelli, þar sem farið er fram á fyrirgreiðslu af þessu tagi, að hér megi koma flugvélar með hóp manna og þeir gangi um borð í skip, sem fara héðan á fjarlæg mið, sem lítið koma okkur við í þessu tilfelli, — við ættum að neita slíku og knýja það fram, að þeir keyptu sér farmiða með venjulegum farþegavélum og kæmu þannig. Ég sé ekki muninn á því, fiskifræðilega séð eða efnahagslega séð. Ég get ómögulega séð, að á því sé mikill munur. En ég skil það mætavel, að flugfélög okkar hefðu heldur kosið, að þessir menn hefðu ferðast með þeim og borgað þeim eitthvað fyrir flutninginn, það er allt annað mál.

Þegar okkur í sjútvrn, barst þetta mál til umsagnar, athuguðum við málið, fengum upplýsingar um, hvað hér væri á ferðinni, og eftir að við höfðum kynnt okkur það, komumst við að þeirri niðurstöðu, að það væri engin ástæða af okkar hálfu til þess að spyrna gegn því, að þessar lendingar yrðu leyfðar í þetta skipti. En að sjálfsögðu kemur það ekki til greina, að við Íslendingar höldum þannig á málinu, hvorki varðandi svona veiðar né aðrar, að við förum að gefa nokkurri þjóð aðstöðu til þess að hafa einhverja skiptistöð hér á Íslandi almennt séð, allra síst ef það væri nokkur hætta á því, að við værum að greiða fyrir veiðum hennar hér við land.

Hitt er svo auðvitað hreint bull, að ætla að mála hér skrattann á vegginn og telja, að ákveðnir togarar frá Austur-Þýskalandi séu einhverjar sérstakar ryksugur, en taka það svo fram í sömu setningunni, að hins vegar séu verksmiðjuskip frá Vestur-Þýskalandi bara venjuleg skip, sem veiði með sams konar veiðarfærum og okkar skip. Við þekkjum þessi skip, við höfum meira að segja séð þau, og það fer ekkert á milli mála, hvernig skip þetta eru. Hér er um sams konar skip að ræða, — skip, sem yfirleitt eru frá 1500 og upp í 3000 tonn. Hér er um að ræða skip af þessari gerð, sem ég greindi frá. Stóru skipin, 10 þús. tonna skipin, sem aðeins þekkjast, skipta yfirleitt ekki um áhafnir á þennan hátt. Þar eru áhafnirnar úti um miklu lengri tíma.

Hér hefur ekki verið af hálfu okkar breytt um stefnu á nokkurn hátt. Við erum ekki að greiða fyrir því, að útlendingar geti sótt meiri fisk á miðin hjá okkur. Við erum ekki að greiða fyrir því með þessu, að þeir geti veitt meiri fisk í Norðurhöfum. Við höfum kynnt okkur það. Þeir fengu ekki þá aðstöðu með þessu, og við gátum í rauninni ekki haft hér nema minni háttar áhrif á. Hitt var augljóst, að ef við hefðum neitað þessu, þá var a.m.k. mjög auðvelt að túlka það þannig af þessari ágætu viðskiptaþjóð okkar, að við værum að neita þeim um mjög eðlilegan hlut. En þegar það var tekið fram, bæði af okkur í sjútvrn. og eins í utanrrn., að hér væri aðeins um heimild fyrir þessi þrjú skip að ræða og það væri ekki hægt að líta á þetta sem fordæmi um neitt framhald, — við vildum hafa allan fyrirvara á um það, — þá einmitt vorum við að halda okkur við okkar meginstefnu, að við viljum hafa fulla gát á því, hvaða aðstöðu við veitum útlendingum yfirleitt til veiða hér í Norðurhöfum. Það er því alveg rangt, eins og var sagt af hv. 7. þm. Reykv., að við höfum verið að breyta um stefnu og veita útlendingum aðstöðu til að stunda hér veiðar í námunda við Ísland og við séum með þessu að stefna þeim fiskstofnum í hættu, sem við byggjum afkomu okkar á. Allt tal í þessa átt er hreinasta slúður.

Herra forseti. Ég þarf ekki að lengja mál mitt frekar en orðið er. Ég vil hins vegar benda á, að það er rétt, að við Íslendingar höfum notið þessarar sömu reglu annars staðar. Við höfum sent heilar skipshafnir til annarra landa og fengið þar að skipta um á eðlilegan hátt, og í einstökum tilfellum sé ég ekki neitt athugavert við slíkt. En ef ástæða þykir til þess, að við framkvæmum þessar almennu reglur okkar harðar en gert hefur verið, þá ættum við vitanlega að beita því gagnvart þeim útlendingum, sem fá þjónustu hér á landi og stunda fiskveiðar hér við land. En í þessu tilfelli var ekki um það að ræða.