05.04.1974
Sameinað þing: 74. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3580 í B-deild Alþingistíðinda. (3189)

Umræður utan dagskrár

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Þeir hv. 7. þm. Reykv. og hv. 2. þm. Reykv. hafa komið fram hér með þá gagnrýni, sem við stjórnarandstæðingar höfðum við þær leyfisveitingar, sem upplýst var um á utanrmn.- fundi í morgun. Ég sé því ekki ástæðu til að endurtaka það hér.

Ég vil mjög undirstrika þau orð, sem hv. 8. landsk. þm. viðhafði hér áðan í sambandi við ræðu hæstv. sjútvrh., og gera örlítinn samanburð á því, sem hæstv. forsrh. sagði í sinni ræðu, og þeim orðum, sem hæstv. sjútvrh. lét falla um þessa leyfisveitingu.

Það kom skýrt fram hjá hæstv. forsrh., að hér væri um að ræða undantekningartilfelli. Í ræðu sinni sagði hæstv. sjútvrh. hins vegar, að hér væri ekki um nein undantekningartilfelli að ræða, hér væri alls ekkert verið að breyta um stefnu, hér væri verið að gera mjög eðlilegan hlut. En ég vil þá leyfa mér að spyrja hæstv. sjútvrh.: Hvenær hafa þau leyfi verið veitt, sem hann telur vera fordæmi fyrir þeim leyfum, sem hann er að veita núna? — Og um leið og hann segir, að það, sem hv. 7. þm. Reykv. sé að segja hér, sé bull, í sambandi við fullyrðingar hans um breytta stefnu, þá kemur hann og svarar því, að hér sé um að ræða 2–3 þús. tonna skip, það séu ekki stærri skip, og meira að segja, eins og hann orðaði það: Við höfum séð þau. — Hann hefur sjálfsagt séð þau á einhverri sinni ferð austur fyrir tjald. Þá hafa honum sjálfsagt verið sýnd þessi skip, sem meiningin væri, að fengju að koma hér inn í hafnir til þess að fá að skipta um áhafnir. Hér er hins vegar um að ræða, að talið er, allt upp í 10 þús. tonna skip. Og þau voru ekki kölluð ryksugur í hans ræðu. Nei, þetta voru bara 2r-3 þús. tonna skip, sem meira að segja við höfum séð.

Honum fannst í ræðu sinni ekki ástæða til þess að neita um þessi leyfi, og það var ekki að heyra á hans ræðu annað en það yrði sjálfsagt að veita slík leyfi aftur, þegar um þau væri beðið. Það var rétt, sem hv. 8. landsk. þm. sagði, hér var haldin varnarræða fyrir hagsmuni erlendrar þjóðar á Alþingi Íslendinga.

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., enda ekki ætlunin að tefja þingstörf þeirra vegna. Ég vil endurtaka þakkir mínar til hæstv. forsrh. fyrir það, að hann skyldi koma hér og gera þingheimi grein fyrir því, sem hann gerði utanrmn. grein fyrir í morgun. En eins og fram kom í ræðu hans, er hér um að ræða breytt viðhorf. En hann gat þess réttilega, eins og komið hefur fram, að hér væri um undantekningartilfelli að ræða, og er þess að vænta, að á því verði ekki endurtekning.