06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 391 í B-deild Alþingistíðinda. (319)
356. mál, sala Birningsstaða í Laxárdal
Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):
— Herra forseti. Fsp. sú, sem ég ber hér fram, er til landbrh. og fjallar um sölu ríkisjarðarinnar Birningsstaða í Laxárdal. Ástæðan til þess, að þessi fsp. er borin fram, er fyrst og fremst sú, að eins og Alþ. veit, þá fer yfirleitt ekki fram sala á ríkisjörðum, nema það komi fyrir Alþ. En nú er mér kunnugt um, þó að ég spyrjist svona fyrir, að þessi sala hefur þegar farið fram. Og nú langar mig að vita hjá hæstv. landbrh., um hvaða bakdyr þessi sala hefur farið fram, fyrir hvaða verð og hvernig það verð hefur verið fundið.
Birningsstaðir hafa mjög komið við sögu svokallaðrar Laxárdeilu. Þeir eru neðsta jörð í Laxárdal, hafa lengi verið í ríkiseign og eru sú jörð, sem kynni að hafa spillst, hefði stíflan verið gerð í Laxárgljúfrum, sem lengi var fyrirhuguð og kannske verður enn gerð. Þess vegna er það ekkert smámál að vera að selja þessa jörð undan ríkinu, meðan enn er óvíst nema ríkið þurfi á þessari jörð að halda í sambandi við virkjun þar norður frá.
Mig langar að spyrja, eins og ég hef gert, um verðið, því að hér kom einmitt einhvern tíma fram í sambandi við Laxárdeiluna, þegar verið var að áætla, hvílíkt tjón væri að setja Laxárdal að einhverju leyti undir vatn, að hver bújörð í Laxárdal var metin samkvæmt áætlun þeirra, sem töldu sig á móti virkjuninni, á ca. 60 millj. kr. Nú hefði verið gaman að vita, fyrir hvað ríkið seldi þessa jörð, og væri þá gott að bera saman verðið, sem þá var nefnt, og verðið, sem nú var notað.
Einnig kom fram á þinginu fyrir fáum dögum, að einn fyrirspyrjandinn spurði um það, hvort satt væri, að sumir bændur gætu átt ½ millj. kr. hjá ríkinu í skaðabætur fyrir vegagerðir gegnum lönd sín. Til gamans vil ég upplýsa það, að ef einhvern tíma verður lagður vegur niður um allan Laxárdal, sem ekki er ólíklegt, þá liggur vegarstæðið auðvitað eftir endilöngu Birningsstaðalandi, og kannske verður ríkið þá að borga það dýrum dómum, þegar búið verður að leggja þennan veg, til þess að alþýða manna hér á landi geti ferðast um þennan fræga dal og séð svart á hvítu stórfelldasta minnismerki um andlega kreppu og heimsku á 20. öldinni.