18.10.1973
Sameinað þing: 4. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í B-deild Alþingistíðinda. (32)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. (Góðir hlustendur. Það er ekki auðvelt að ræða almennt um stefnu og störf ríkisstj. í stuttri ræðu. Ég tek því þann kostinn að tala hér um tvo mikilvæga málaflokka, sem ríkisstj. hefur unnið að þann tíma, sem hún hefur verið við völd. Þessir málaflokkar eru í fyrsta lagi atvinnumálin, þ. e. a. s. endurnýjun atvinnutækja og efling atvinnulífsins, og í öðru lagi mun ég svo ræða um landhelgismálið.
Þegar núv. ríkisstj. tók við stjórn landsins á miðju ári 1971, var staða atvinnuveganna bágborin. Erfiðleikar höfðu gengið yfir í sjávarútvegi á árunum 1967 og 1968 vegna stórminnkandi síldarafla og lækkandi verðs á útfluttum s,jávarafurðum. Gripið var til tveggja gengislækkana á þessum árum og kaup launþega almennt lækkað um 20%. Á síðasta stjórnarári viðreisnarstjórnarinnar, á árinu 1970, batnaði rekstrarafkoma margra atvinnufyrirtækja þó nokkuð, og stafaði það jöfnum höndum af því, að kaup verkafólks og sjómanna hafði verið lækkað mikið, og af því, að verðlag erlendis var framleiðslunni hagstætt. En þrátt fyrir nokkuð bætta rekstrarafkomu atvinnuveganna á árinu 1970 var staða þeirra þó mjög veik. Fiskiskipaflotinn hafði staðnað, fiskiðnaðurinn dregist aftur úr í mörgum greinum og iðnaður landsmanna og landbúnaðurinn höfðu engum teljandi breytingum tekið í langan tíma.
Þegar núv. ríkisstj. tók við stjórnartaumunum, var togarafloti landsmanna kominn niður í 20 gömul skip, en hafði verið 46 skip í upphafi viðreisnartímans. Mikill hluti bátaflotans, sem byggður var á síldarárunum 1964–67 átti í rekstrarerfiðleikum, og var þá reynt að taka upp togveiðar á þessum gömlu síldarbátum. Á öllum viðreisnartímanum höfðu nær engar framfarir orðið í frystihúsaiðnaði landsmanna, engar teljandi nýbyggingar frystihúsa höfðu átt sér stað, en hins vegar lá fyrir, að gera yrði stórfelldar umbætur í svo að segja öllum frystihúsum landsins, ef þau ættu að fá viðurkenningu til áframhaldandi rekstrar vegna nýrra krafna um hollustuhætti í matvælaframleiðslu.
Atvinnulíf landsmanna var vægast sagt mjög veikt í lok viðreisnartímabilsins, enda var stöðugt atvinnuleysi á ýmsum stöðum á landinu á þessum árum, þó að verst væri ástandið í þeim efnum á árunum 1968 og 1969, þegar fjöldi manna beinlínis flúði land vegna atvinnuleysis.
Fyrir forgöngu núv. ríkisstj. hefur tekist að gjörbreyta ástandi atvinnulífsins frá því, sem áður var. Um 50 nýtísku skuttogarar og stór fiskiskip hafa verið keypt til landsins og smíðuð í innlendum skipasmiðastöðvum, auk fjölmargra smærri fiskibáta. Sérstök áherzla hefur verið lögð á það, að hinir nýju skuttogarar yrðu einnig gerðir út frá útgerðarbæjum úti á landi, jafnvel einnig frá hinum fámennari útgerðarbæjum, en færu ekki allir til Faxaflóasvæðisins, eins og reynslan hafði áður verið um togaraútgerðina, en segja má, að hún hafi eingöngu verið bundin við Faxaflóasvæðið og Akureyri. Vegna hinna nýju skipakaupa hefur blátt áfram orðið bylting í atvinnumálum margra staða úti á landsbyggðinni. Á Norðurlandi var t. d. ástandið í atvinnumálum oft mjög bágborið á viðreisnartímanum. Þar var tilfinnanlegt atvinnuleysi flest þau árin. Og þó var ástandið verst í Norðurlandskjördæmi vestra eða á svæðinu frá Siglufirði að Ströndum. Á þessu svæði verða innan skamms gerðir út 7 skuttogarar, og framkvæmdir í fiskvinnslu á þessu svæði hafa verið mjög miklar. Nú er ekki hægt að tala um atvinnuleysi á þessu svæði. Miklu fremur vantar nú fólk til margvíslegra starfa í þorpum og kaupstöðum í þessum landshlutum. Hinir nýju skuttogarar, sem þegar eru komnir til Austurlands og til Vestfjarða, hafa gjörbreytt atvinnulífinu í þessum landsfjórðungum. Fiskaflinn hefur aukist, vinnan í frystihúsunum hefur gjörbreyst og orðið samfelldari og afkoma sjómanna og verkafólks er miklu betri en áður.
Ég veit, að ýmsum þykir meira en nóg að gert með kaupum þessara nýju fiskiskipa og telja, að við hefðum átt að kaupa færri skip, því betra væri minna og jafnara. Athugasemdir af þessu tagi eru að mínum dómi byggðar á misskilningi. Í rauninni áttum við ekki þann kost til að kaupa aðeins fá skip eða nokkur skip á ári. Við stóðum frammi fyrir því, að togaraútgerð landsmanna var að lognast úf af. Skipastólnum hafði beinlínis verið eytt upp án endurnýjunar. Við urðum því að gera stórt átak til endurreisnar togaraútgerð. Reynslan hafði líka sýnt okkur, að gömlu síldarbátarnir hæfðu ekki sem togveiðiskip. Þeir voru óhagkvæmir, og engin leið var að koma við á þeim nýtízku vinnubrögðum. Þessar aðstæður ásamt með atvinnustöðu byggðalaganna úti á landi gerðu það að verkum, að átakið þurfti að verða stórt. En jafnhliða hinum miklu skipakaupum hefur svo þurft að gera stórfelldar umbætur í frystiiðnaði landsmanna. Nú hefur verið hafist handa um byggingu margra nýrra frystihúsa. Í ljós kom við athugun, að mörg hinna gömlu frystihúsa voru ónothæf til frambúðarrekstrar. Unnið er nú að miklum umbótum í flestum frystihúsum í landinu, og gerð hefur verið framkvæmdaáætlun um þessar umbætur. Framkvæmdir þessar kosta að sjálfsögðu mikið fé, og hefur ríkisstj. aflað fjár í því skyni.
Fiskiðnaðurinn er stóriðnaður okkar Íslendinga. Langsamlega stærsti hluti okkar útflutnings er hraðfrystur fiskur. Við verðum því að gæta vel að uppbyggingu fiskiðnaðarins og sjá um, að hann uppfylli kröfur tímans og sé að öðru leyti svo hagkvæmur, að hann skili okkur hámarksarði á hverjum tíma. Sú uppbygging, sem nú á sér stað í fiskiðnaði landsmanna um allt land í byggingu nýrra frystihúsa og endurnýjun annarra og í byggingu annarra fiskvinnslustöðva í ýmsum greinum, jafnhliða endurnýjun og stóreflingu fiskiskipaflotans, er stærsta átakið, sem gert hefur verið í atvinnumálum landsins um langt árabil.
Auk þessa mikla átaks hefur svo verið unnið að alhliða uppbyggingu iðnaðar á vegum landsmanna sjálfra, m. a. með meiri framkvæmdum í raforkumálum en áður hefur þekkst. Og landbúnaðurinn hefur verið studdur með auknum lánum og mikilli uppbyggingu vinnslustöðva landbúnaðarafurða. Nú er svo komið, að vinnuafl skortir víða í byggðarlögum úti á landi, og nú verður að gera sérstakt átak í íbúðarhúsamálum landsbyggðarinnar, enda er nú ákveðið að byggja þar 1000 íbúðir með hliðstæðri fyrirgreiðslu og byggt hefur verið áður í Breiðholti í Reykjavík.
Stefnan í atvinnumálum þau tvö ár, sem núv. ríkisstj. hefur verið við völd, sem byggð hefur verið á því að treysta á hefðbundna atvinnuvegi þjóðarinnar og atvinnurekstur í höndum landsmanna sjálfra, en hafna forsjá útlendinga í atvinnulífinu, hefur á þessum stutta tíma sannað gildi sitt og réttmæti og haft margfalt meiri áhrif á æskilega þróun byggðar í landinu en margra ára nefndarskipanir áður og sífelldar orðræður um jafnvægi í byggð landsins eða — eins og það heitir — byggðastefnu.
Ég vík þá að landhelgismálinu. Landhelgismálið er tvímælalaust stærsta og þýðingarmesta mál þjóðarinnar, sem unnið hefur verið að á tímabili núv. ríkisstj., og er það enn í dag. Samkvæmt opinberum skýrslum Alþjóðahafrannsóknaráðsins hefur heildarfiskaflinn af botnlægum fiski, þ. e. a. s. þorski og skyldum tegundum, numið 900–800 þús. tonnum á ári á fiskimiðunum við Ísland um alllangt árabil. Af þessu heildaraflamagni höfum við Íslendingar veitt um helming, en fiskimenn annarra þjóða álíka mikið. Það er álit okkar, að með skynsamlegri nýtingu þessara fiskistofna megi tryggja talsverða aukningu á þessu meðaltalsaflamagni. Sennilega mætti áætla, að meðalaflamagnið gæti orðið um 1 milljón tonn á ári. Auk þess afla er svo síldarafli og loðnuafli og afli annarra uppsjávarfiska. Með útfærslu fiskveiðilandhelginnar í 50 mílur og síðar í 200 mílur ætlum við Íslendingar að taka í okkar hendur yfirstjórn á nýtingu þessara fiskistofna, allra þessara miklu auðlinda. Nú í svipinn er barátta okkar í landhelgismálinu fyrst og fremst miðuð við það að koma í veg fyrir, að þessum fiskistofnum verði spillt með ofveiði, en takmark okkar er það, að við höfum einir í okkar höndum fullkomið vald til þess að stjórna hagnýtingu þessara miklu auðlinda, sem að eðlilegum hætti tilheyra okkar landi.
Nú er liðið rúmlega eitt ár, síðan útfærslan í 50 mílur tók gildi 1. sept. 1972. Það er því full ástæða til að reyna að átta sig á því, hvaða árangri við höfum náð í baráttu okkar. Á almennum borgarafundi, sem haldinn var hér í Reykjavík nýlega um landhelgismálið, gerði ég grein fyrir mati mínu á því, hvað áunnist hefði á þessu rúmlega eina ári. Um það sagði ég m. a. þetta :
Séu nokkur þýðingarmestu atriði málsins dregin saman, er staðan þessi:
Í fyrsta lagi: Þrjár þjóðir hafa samið við okkur um fiskveiðar innan 50 mílna markanna: Belgir, Færeyingar og Norðmenn, og viðurkenna þar með yfirráðarétt okkar á svæðinu og skuldbinda sig til að fylgja okkar lögum og reglum um veiðarnar.
Í öðru lagi: Allar aðrar þjóðir, sem fiskveiðar stunduðu á fiskimiðunum við landið, að undanteknum Bretum og Vestur-Þjóðverjum, hafa í reynd virt okkar 50 mílna fiskveiðilandhelgi og horfið með skip sín af Íslandsmiðum. Hér er um mjög mikilvægan árangur að ræða, miklu meiri en menn gera sér almennt grein fyrir. Fiskiskip margra þjóða sóttu í sívaxandi mæli á okkar fiskimið á árunum 1971 og 1972, allt fram að því að stækkun fiskveiðilandhelginnar tók gildi. Hér var oft um mjög stór og afkastamikil skip að ræða, skip, sem voru að færa sig frá fiskimiðunum á vestanverðu Norður-Atlantshafi, þar sem fiskafli fór minnkandi. Við þessum tilfærslum hinna nýju og stóru skipa höfðu einmitt fiskifræðingar margra landa varað sérstaklega. Sem dæmi um þennan veiðiflota vil ég nefna, að samkvæmt talningu íslensku landhelgisgæslunnar voru t. d. að veiðum hér við land 27. og 28. maí 1971 11 pólskir skuttogarar, 18 rússneskir skuttogarar og 1 móðurskip, 11 austur-þýskir skuttogarar, 6 óþekktir, sennilega franskir og spánskir. 13. og 14. maí 1971 voru samkvæmt talningu landhelgisgæslunnar 8 pólskir skuttogarar, 8 rússneskir, 13 austur-þýskir, 3 franskir skuttogarar, 2 hollenskir og 1 spánskur. 31. maí 1972, eða þremur mánuðum fyrir útfærslu landhelgismarkanna, taldi landhelgisgæslan 11 austurþýska skuttogara, 8 pólska, 1 rússneskan og 19 óþekkta, sem taldir voru pólskir og austurþýskir. Þessi erlendi fiskiskipafloti, t. d. frá þessum 6 þjóðlöndum: Póllandi, Austur-Þýskalandi, Rússlandi, Frakklandi, Hollandi og Spáni, var yfirleitt af fullkomnustu gerð. Skipin voru mjög stór, oft 2–3 þús. rúmlestir að stærð, og búin öllum nýtízku vélum til fiskvinnslu um borð. Þessi fiskiskipafloti og veiðiskip margra annarra þjóða eru gjörsamlega horfin af okkar miðum.
Í þriðja lagi um okkar árangur er svo rétt að ræða um veiðar vestur-þýskra og breskra skipa hér við land. Mjög er erfitt að segja með nokkurri nákvæmni, hver afli þeirra hefur verið eftir útfærsluna. Afli Vestur-Þjóðverja var hér um 120 þús. tonn árið 1971, en féll niður í 93 þús. tonn árið 1972, og var þessi minnkun skýrð af þeim sjálfum með landhelgisútfærslu okkar. Svo virðist sem afli Vestur-Þjóðverja á Íslandsmiðum hafi orðið um 70 þús. tonn á 12 mánuðunum eftir útfærsluna. Heildarafli Vestur-Þjóðverja hefur því greinilega minnkað mikið. Enn verra er þó að átta sig á raunverulegum afla bresku logaranna hér við land eftir útfærsluna. Heildarafli Breta hér við land árið 1971 var 210 þús. tonn og árið 1972 186 þús. tonn. Opinberar skýrslur liggja fyrir um aflamagn breskra togara fyrstu 8 mánuðina eftir útfærsluna eða til aprílloka 1973. Á þeim tíma var heildaraflamagnið samkvæmt skýrslum Breta sjálfra 84.300 tonn sem landaður fiskur. Ef aflamagnið næstu fjóra mánuði hefði verið svipað og 8 mánuðina áður, hefði landað aflamagn átt að vera um 124 þús. tonn, en það jafngildir um 146 þús. tonnum upp úr sjó. Áróðursmenn brezkra togaraeigenda segja hins vegar, að aflinn á íslandsmiðum hafi orðið 164 þús. tonn, en slíkt fær með engu móti staðist. Fiskafli bresku skipanna hefur óumdeilanlega minnkað verulega þrátt fyrir aukna sókn og gífurlegan tilkostnað.
Þessi atriði, sem hér hafa verið talin, sýna á óvefengjanlegan hátt, að við höfum þegar á fyrsta árinu eftir útfærsluna náð miklum beinum árangri. En árangur okkar er þó í rauninni miklu meiri. Bresku skipstjórarnir höfðu gefist upp við veiðarnar hér 18. maí í vor, og nú hefur breska ríkisstj, orðið að láta undan síga vegna einarðrar framkomu okkar og þrýstings frá mörgum þjóðum. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur gert samþykkt, sem styður okkar málsstað. Og fleiri og fleiri þjóðir taka undir meginatriðin í stefnu okkar í fiskveiðilandhelgismálum. Staða okkar í landhelgismálinu er því vissulega sterk í dag.
Nýtt viðhorf hefur nú komið upp í deilu okkar við Breta, með því að þeir fóru með herskip sín og dráttarbáta út úr fiskveiðilandhelginni. Forsrh. landanna hafa átt með sér fund, og enn einu sinni var eftir því leitað, hvort Bretar vildu fallast á sanngjarna bráðabirgðalausn í deilunni. Í tilefni af því, sem Geir Hallgrímsson, form. Sjálfstfl., sagði hér í kvöld, að nú lægi fyrir ríkisstj. og stjórnmálaflokkunum samkomulagsgrundvöllur forsrh., vil ég taka það skýrt fram, að ekkert slíkt samkomulagsatriði hefur verið lagt fyrir ríkisstj. eða stjórnmálaflokkana, því að ekki er um neitt slíkt samkomulagsatriði að ræða, heldur er hér um að ræða till. Breta til lausnar á málinu. Við Íslendingar höfum margsinnis áður boðið Bretum bráðabirgðalausn, en þá sett fram nokkur grundvallarskilyrði, sem það samkomulag yrði að byggjast á. Tilboðum okkar öllum hafa Bretar neitað og svarað síðan með hervaldsbeitingu.
Þau grundvallarskilyrði, sem við höfum sett fyrir bráðabirgðasamkomulagi, eru þessi:
1) Að samkomulagið stæði aðeins í stuttan tíma. Við höfum teygt okkur til þess, að samkomulagið stæði í lengsta lagi til 1. maí 1975.
2) Að samkomulagið tryggði allverulega minnkandi sókn Breta á miðin við landið og þannig raunverulega minnkun veiðanna.
3) Að enginn vafi léki á því, að Bretar viðurkenndu rétt okkar til að sjá um framkvæmd á því samkomulagi, sem gert yrði, þ. e. a. s. að við hefðum skýlausan rétt til að taka þau skip, sem brytu samkomulagið, og dæma þá seku, t. d. með því að svipta þá áframhaldandi veiðiheimildum.
Á ekkert þessara grundvallaratriða hafa Bretar viljað fallast. Þeir hafa brotið lög okkar um útfærsluna í rúmlega eitt ár, en krefjast þó samninga til tveggja ára. Þannig ætla þeir fyrst með ofbeldi og síðan með samningum að ná fram öllu því, sem þeir kröfðust í upphafi. Bretar hafa aldrei viljað ganga að skilyrðum okkar um minnkandi sókn á miðin, og enn ætlast þeir til, að við gefum eftir frá okkar kröfum um friðunarsvæði og fjölda skipa. Og það, sem þó sýnir átakanlegast skilningsleysi Breta á aðstöðu okkar, er, að þeir vilja ekki fallast á neinar reglur, sem hægt er að treysta á, um framkvæmd samkomulags. Það hefur verið og er væntanlega enn samdóma álit allra Íslendinga, að ekki komi til mála að semja við Breta eða neina aðra um bráðabirgðasamkomulag í landhelgismálinu, nema ljóst sé, að eftirlit og framkvæmdavald sé í okkar höndum.
Sá árangur, sem við höfum þegar náð í landhelgismálinu, er vissulega mikill og staða okkar í málinu miklu sterkari í dag en hún var fyrir ári. Þjóðin hefur staðið saman í deilunum við Breta og Vestur-Þjóðverja, þegar undan eru skildir örfáir áhrifalausir nöldrarar, sem aðallega hafa skrifað í Morgunblaðið. Nokkrar deilur hafa verið við suma af forustumönnum stjórnarandstöðunnar um málsmeðferð, en þó ekki um meginstefnuna í málinu.
Reynslan hefur nú sannað okkur, að sú ákvörðun ríkisstj. að segja upp landhelgissamningunum frá 1961 var rétt og algerlega óhjákvæmileg. Reynslan hefur líka sýnt, að það hefði verið mikil skyssa að setja málið í hendur dómstólsins í Haag, sem úrskurðað hefur Bretum rétt til veiða á okkar miðum.
Starf ríkisstj. í landhelgismálinu á erlendum vettvangi hefur vissulega borið mikinn árangur, og einarðleg framkoma okkar í samskiptum við aðrar þjóðir og í samningaviðræðum okkar um málið hefur fært okkur þá sterku stöðu í málinu, sem við höfum í dag. Nudd og nag þeirra, sem skrifa Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins og leiðara þess og virðast vera á móti öllu, sem gert hefur verið í landhelgismálinu, breyta engu um þessa sterku stöðu Íslendinga í málinu. Og yfirboðstillögur, sem fram hafa komið á Alþingi um, að færa hefði átt lengra út en í 50 mílur, og nú síðast um útfærslu í 200 mílur fyrir árslok 1974, breyta heldur engu um okkar sterku stöðu í málinu. Ríkisstj. mun flytja frv. á þessu þingi um rétt okkar til að lýsa yfir fiskveiðilögsögu á hafsvæði út í 200 mílur frá grunnlínum, og 200 mílurnar munu koma, þegar sigur hefur unnist í deilunni um 50 mílurnar, en sú deila stendur enn yfir, og það er sigur í þeirri deilu, sem við þurfum að vinna. En nú er aðalatriði landhelgismálsins það, að við glutrum ekki niður því, sem áunnist hefur, að við látum hvorki Breta né aðra setja okkur neina úrslitakosti, að við metum styrkleika okkar rétt og við höldum áfram óskertum þeim stóra hópi manna í landinu úr öllum flokkum og öllum stéttum, sem unnið hafa markvisst að því, að fullnaðarsigur okkar í landhelgismálinu náist. — Góða nótt.