06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (322)

356. mál, sala Birningsstaða í Laxárdal

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég vil taka það fram út af upplýsingum frá hv. þm. Braga Sigurjónssyni, að varðandi þær fáu jarðir, sem ég hef selt, — sem því miður eru of margar, og þess vegna höfum við lagt fram frv. til jarðalaga til þess að draga úr þessum sölum, — hef ég ekki haft þá reglu að spyrjast fyrir um það, hvað marga afkomendur viðkomandi bóndi kynni að eiga. Hann er nú ekki það gamall, að hann gæti ekki bætt ráð sitt. Ef jarðasalan eða jarðakaupin frá hans hendi hefðu þau ágætu áhrif, mundi ég nú verða ánægður með að standa að henni.

Um það, að hann hafi fengið lán úr veðdeild Búnaðarbankans, þarf ég engu til að svara, því að það hefur verið gert eftir reglum þess banka.