17.04.1974
Efri deild: 103. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3593 í B-deild Alþingistíðinda. (3244)

310. mál, Lífeyrissjóður bænda

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 685 er 310. mál þingsins, sem er frv. til l. um breyt. á l. um Lífeyrissjóð bænda. Eins og fram kemur í aths. með frv. þessu, var stjórn Lífeyrissjóðs bænda falið af fjmrh. að endurskoða l. um sjóðinn. Í bréfi því, sem fylgdi, var tekið fram, að í bráðabirgðaákvæðum laga nr. 101 frá 28. des. 1970 var kveðið svo á, að l. skyldu endurskoðuð fyrir árslok 1972. Á árinu 1973 voru gerðar nokkrar breytingar á þessum l., en þá þótti ekki rétt að mati stjórnar sjóðsins að endurskoða lögin í heild. Var því dregið að gera það þar til nú.

Á aðalfundi Stéttarsambands bænda, sem haldinn var á s.l. hausti, var samþ. svo hljóðandi ályktun, með leyfi hæstv. forseta:

„Aðalfundur Stéttarsambands bænda 1973 felur stjórn Stéttarsambandsins að beita sér fyrir endurskoðun á l. um Lífeyrissjóð bænda til að lagfæra m.a. ákvæði um ekknabætur, réttindi systur, þar sem systkini hafa búið saman o.fl.“

Það var tekið fram í bréfi því, sem sent var stjórn lífeyrissjóðsins, að eðlilegt væri, að inn í þessa endurskoðun væru tekin ýmis ákvæði í l., sem reynslan hefði sýnt, að nauðsyn væri til að endurskoða.

Í grg. stjórnar Lífeyrissjóðs bænda með lagafrv. því til breyt. á l. nr. 101 1970, sem samþ. var á Alþingi í maímánuði 1972, var tekið fram, eins og áður segir, að ekki væri tímabært að endurskoða lögin í heild, svo að það var ekki gert þá.

Það hefur valdið erfiðleikum um framkvæmd laganna, að ófullkomnar upplýsingar eru að jafnaði tiltækar um félagsbú, hverjir teljast aðilar að þeim, hvernig arður af þeim skiptist o.s.frv. Stjórnin treystir sér ekki til að leggja fram till. til breyt. á lögum lífeyrissjóðsins, er að gagni mættu verða í þessu efni, en treystir því, að betri skipan komi fljótlega á þessi mál, sbr. 17. gr. frv. til jarðalaga, sem nú liggur fyrir Alþingi.

Þeir aðilar, sem skipa stjórn lífeyrissjóðs bænda, eru Gunnar Guðbjartsson bóndi á Hjarðarfelli, form. Stéttarsambands bænda, Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor og Pétur Sigurðsson, sem er starfsmaður hjá framleiðsluráði og lífeyrissjóðnum.

Helstu atriði þessa frv. eru þessi:

1. Réttur til makalífeyris samkv. 11. gr. l. er rýmkaður nokkuð.

2. gert er ráð fyrir rétti til makalífeyris samkv. II. kafla l. eftir aldraða bændur, sem látist hafa á árunum 1965 til 1969, en samkv. núgildandi ákvæðum er það skilyrði, að fráfall hafi átt sér stað eftir árslok 1969.

3. Gert er ráð fyrir möguleika á greiðslu makalífeyris til systur, sem gegnt hefur húsfreyjustarfi, bæði samkv. I. og II. kafla laganna.

4. Kveðið er á um hækkun lífeyrisgreiðslna, sem þegar hafa verið úrskurðaðar, þannig að þær miðist við grundvallarlaun 1969–1973.

5. Gert er ráð fyrir heimild fyrir sjóðsstjórnina til að veita bændum utan lögbýla aðild að sjóðnum að uppfylltum tilteknum skilyrðum.

6. Sett er ákvæði um forgangsrétt iðgjaldskrafna við gjaldþrotaskipti hjá innheimtuaðila. Samþykkt frv. hefur ekki í för með sér teljandi aukningu skuldbindinga lífeyrissjóðsins, enda ekki gert ráð fyrir breytingum á tekjugrundvelli hans. Hins vegar er áætlað, að bráðabirgðaákvæði frv. um hækkun eftirlaunagreiðslna hafi í för með sér aukningu útgjalda, sem nemi 9.1 millj. kr. fyrir ríkissjóð og 5.4 millj. kr. fyrir Stofnlánadeild landbúnaðarins á árinu 1974, miðað við að frv. gilti það ár, en síðan fara áhrif þessara ákvæða minnkandi. Þá munu breyt. á ákvæðum II. kafla laganna um makalífeyri valda nokkurri aukningu útgjalda. Athygli skal vakin á því, að fyrir ríkissjóð verður hér ekki um hreina útgjaldaaukningu að ræða, og er þá miðað við, að það dragi úr tryggingagreiðslum almannatrygginga.

Þessi atriði eru meginatriði í breyt. þeim, sem felast í þessu frv. Það var gert ráð fyrir því, að þetta frv. tæki gildi að nokkru leyti 1. jan. s.l. Hins vegar var frv. síðbúnara en ráð hafði verið fyrir gert og er því svo seint á ferðinni sem raun ber vitni um. Ég mun á síðara stigi málsins hafa samband við hv. n. um gildistöku laganna.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þær breytingar, sem hér eru gerðar á l. þeim um Lífeyrissjóð bænda, sem nú eru í gildi, enda hafa þau ákvæði verið skýrð, sem máli skipta. Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh: og viðskn.