17.04.1974
Neðri deild: 107. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3620 í B-deild Alþingistíðinda. (3261)

9. mál, grunnskóli

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Eftir mikla gagnrýni, sem þetta frv. hefur hlotið hér í hv. d., bæði við fyrri umr. þess og einnig hér í dag, er ég alls ekki vonlaus um, að svo fari, að frv. verði ekki afgreitt sem lög frá þessu Alþingi. Með hliðsjón af því og í framhaldi af þeirri sterku gagnrýni, sem ég hef haldið uppi á þetta frv., hef ég ásamt þremur öðrum hv. þm. lagt hér fram dagskrártill., sem mun vera verið að útbýta þessa stundina. Þessi dagskrártill. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Með tilliti til þess, að:

a) hagkvæm vinnubrögð séu að láta endanlega afgreiðslu grunnskólafrv. bíða, þar til fyrir liggur, á hvaða grundvelli verði byggt eftir fyrirhugaðar lagabreyt. varðandi verkefna- og tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga;

b) algjörlega ófullnægjandi grg. fylgir frv. um kostnað við framkvæmd málsins og engar upplýsingar hafa verið gefnar um það efni við umr.;

c) frv. felur í sér lengingu skólaskyldu;

d) samþykktar voru við 2. umr. málsins brtt. við frv. um ákvæði varðandi byggingu skólahúsnæðis, sem leggja byrðar á ríkissjóð í mjög ríkum mæli, án þess þó að nokkuð sé vitað, hvernig verði staðið undir;

e) á frv. eru stórfelld missmíði, svo sem að fela landshlutasamtökum sveitarfélaga sérstök verkefni og völd, án þess að þessi samtök hafi nokkra stöðu að lögum;

f) meðferð málsins í hv. d. hefur verið reikul og stefnulaus eins og atkvgr, við 2. umr. sýndi í mörgum tilfellum; og í trausti þess, að skipuð verði 7 manna þingmannanefnd til að endurskoða frv. og það verði lagt fram endurskoðað fyrir Alþingi næsta haust, samþ. deildin að taka fyrir næsta mál á dagskrá.“

Þessa till. flytja auk mín hv. 3. þm. Norðurl. v., Björn Pálsson, hv. 3. landsk. þm., Bjarni Guðnason, og hv. 4. þm. Austf., Sverrir Hermannsson.

Ég hef rætt þetta frv. allitarlega fyrr hér á hv. Alþ. og ekki ástæða til þess að flytja nú mjög ítarlega ræðu. Ég vil þó fara nokkrum orðum um meginatriði þess, hvað liggur að baki því, að þessi frávísunar- eða dagskrártill. er komin fram.

Eins og greinir í 1. lið, er það kunnugt, að nú er verið að endurskoða verkefna- og tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Sveitarstjórnarlögin eru í endurskoðun. Í framhaldi af því vil ég minna á það, að till. okkar sjálfstæðismanna um þessi mál hafa í heild hnigið að því, að sveitarfélögin í landinu tækju í sínar hendur það, sem hér er kallað grunnskólanám. Hvort svo fer við þá endurskoðun, sem nú stendur yfir um verkefna- og tekjuskiptingu ríkis op sveitarfélaga, að sveitarfélögunum verði fengið þetta verkefni í hendur, skal ég ekki um segja. Hitt er þó ljóst, að þess má vænta, að sjálfstæðismenn hér á hv. Alþ. geri a.m.k. tilraun til þess að koma fram okkar till. og okkar sjónarmiðum í sambandi við þá endurskoðun. Meðan þessi mál eru ekki útkljáð, sýnist mér, að það væri hyggilegt og æskilegt að fresta afgreiðslu þessa frv., til þess að ekki þyrfti að gerbylta þeim lögum kannske að einum til tveimur árum liðnum, ef svo færi, að sjónarmið og till. okkar sjálfstæðismanna næðu fram að ganga um þetta efni.

Í annan stað er að því vikið í þessari frávísunartill., að algerlega ófullnægjandi upplýsingar fylgi frv. um þann kostnaðarauka, sem það hefur í för með sér, verði það samþykkt. Ég hef harðlega gagnrýnt þetta fyrr við umr. í þessari hv. d., bæði á yfirstandandi Alþ. og eins á síðasta ári. Það er svo, að í grg. þessa frv. segir, að vænta megi þess, að kostnaðaraukning, sem mundi stafa af samþykkt þess, verði 289 millj. kr. Þessi tala var í grg. frv., þegar það var fyrst lagt fram, að ég hygg fyrir 2 eða 3 árum. Augljóst er, að þessi tala er mjög úrelt orðin, hæði vegna verðlagsbreytinga og eins hins, að fjöldi nemenda fer vaxandi, og það mundi hafa áhrif á, hver þessi tala yrði í raun. Hitt er svo annað mál, að engin tilraun hefur verið gerð til þess að gera nokkra grein fyrir því, hver kostnaðarauki mundi af hljótast í sambandi við stofnkostnað skólamannvirkja. Við 2. umr. þessa máls var samþ. brtt. þess efnis að fella inn í 25. gr. frv., að það skyldi skylt að reisa mötuneytisaðstöðu við alla nýja skóla og við alla skóla, sem teknir væru til endurbyggingar og einhverra endurbóta. Er augljóst, að það fylgir slíkum ákvæðum gífurlegur kostnaðarauki í stofnkostnaði við skólamannvirki, og ég held, að engin tilraun hafi verið gerð til þess að gera Alþ. grein fyrir því, hvað sá kostnaðarauki yrði mikill. Kunnugir menn hafa þó giskað á, að sá útgjaldaauki ríkissjóðs, sem samþykkt þessarar brtt. mundi valda, mundi nema milljörðum. Það er einnig ljóst, að miðað við það, að í þessu frv. er gert ráð fyrir því að flytja skólastarfið í stórum meira mæli inn í skólana sjálfa heldur en nú er, þá mundi því einnig fylgja stórkostlegur útgjaldaauki fyrir ríkissjóð. Það er svo annað mál, að það kann að vera góðra gjalda vert, ef tekst með sæmilegu móti að flytja skólastarfið í meira mæli inn í skólana, þannig að þar væri vettvangur fyrir börn og unglinga til þess að lesa undir tíma og stunda þar nám að fullu. En ég hygg, að það verði harla dýrt fyrir þjóðfélagið að losa heimilin við börn og unglinga þann tíma, sem þau annars nota til lestrar og nota húsnæði á sínum heimilum.

Hvað sem því liður, er ákaflega óviðeigandi, svo að ekki sé meira sagt, að þrátt fyrir margítrekaðar áskoranir til hæstv. ráðh. og til hv. n., sem um þetta mál hefur fjallað, skuli hv. Alþingi ekki gerð grein fyrir því, hver kostnaðarauki muni af samþykkt þessa frv. hljótast. Þrátt fyrir allar þessar ítrekuðu áskoranir hefur ekki heyrst hósti eða stuna frá þeim aðilum, sem áskorunum hefur verið beint til um upplýsingar um þetta efni. Slík vinnubrögð eru að mínu mati óviðunandi, og ég tek fyllilega undir það, sem hv. síðasti ræðumaður, hv. þm. Björn Pálsson, sagði um þetta efni, að það sé í rauninni lágmarksskylda að hv. Alþingi sé gerð nokkur grein fyrir hvað þessi kostnaðarauki verði mikill. á þeim tímum, sem við nú stöndum á, þegar talað er um, að fjárhagur ríkissjóðs sé þröngur og e.t.v. kunni að þurfa að skera niður fjármagn til annarra framkvæmda, sem ekki væru síður nauðsynlegar.

Hér hefur mikið verið rætt um lengingu skólaskyldunnar, og ég hef oft talað um það atriði þessa máls áður. Ég skal ekki bæta við það mörgum orðum. Það hefur verið gerð allítarleg grein fyrir svipuðum viðhorfum og ég hef í huga af fyrri ræðumönnum við þessa umr. Ég vil þó taka fram til viðbótar við það, sem þeir hafa greint frá, að ég tel, að það sé engin þörf á því að lengja skólaskylduna, til þess að því marki verði náð að brúa það bil, sem nú er á milli skyldunáms og framhaldsskólanáms. Ég tel, að það sé algerlega fullnægjandi, að fræðsluskylda sé á í efstu bekkjum grunnskólastigs og að nemendum sé frjálst að sækja skóla og að úr slíkum grunnskóla brautskráist nemendur, sem hafi rétt til þess að ganga inn í framhaldsskóla, þ.e. menntaskóla og sérskóla. Ég held, að það sé engin nauðsyn að leggja skyldukvöð á nemendur, til þess að þeir verði hæfir til að ganga inn í framhaldsskóla- og sérskólastigið. Það er einnig rétt að leggja nokkra áherslu á það, sem fram hefur komið við þessa umr., að þau ákvæði þessa frv. og frv. um skólakerfi, sem að þessu lúta, eru sniðin eftir svipuðum lögum hjá frændum okkar á Norðurlöndum, sem hafa tekið upp langa skólaskyldu. Þar hefur reynslan orðið a.m.k. á sumum sviðum allmiklu neikvæðari en ætlað var í fyrstu, og þeir eru með till. að setja upp jafnvel sérstaka ríkisstofnun, eins og er í Noregi, til þess að vinna gegn hinum óæskilegu áhrifum hinnar löngu skólaskyldu. Ég rakti þær hugmyndir við 1. umr. þessa máls á Alþingi í vetur og ekki sérstök ástæða til að endurtaka það. En það er gert ráð fyrir því í till. frá 5 námsstjórum í Noregi, sem gerst þekkja framkvæmd hinnar nýju og löngu skólaskyldu þar, að það þurfi að setja á fót sérstaka ríkisstofnun, sem starfi í tengslum við menntmrn. og hafi það verkefni að efla tengsl atvinnulífs og skóla og ákvarða, hvernig megi koma því við, að nemendur á síðasta ári grunnskóla starfi að atvinnulífinu og þau störf séu metin til jafns við nám. Ég álít, að heppilegra sé að taka mið af reynslu annarra þjóða um þetta efni, sem reynt hafa hina löngu skólaskyldu, áður en farið er að lögfesta hana sér, svo augljósir sem gallar hennar eru bæði að þessu leyti og þá ekki síður því leyti, sem snýr að skólastarfinu sjálfu, þ.e. hinni uppeldislegu hlið þeirra mála, sem ég hef rakið fyrr í þessum ræðustól.

Í e-lið dagskrártill. er sagt, að á frv. séu stórfelld missmíði. Þar er einungis bent á eitt atriði úr þeim missmíðum, sem á þessu frv. eru, en það er að fela stofnunum í þjóðfélaginu, sem ekki eiga sér stoð í lögum, að fara með ákveðna þætti þessara mála. Það eru landshlutasamtökin. Það má raunar heita undravert, hvað erfitt hefur reynst að fá afgreitt hér á hv. Alþingi frv. um landshlutasamtök sveitarfélaga. Það frv. var fyrst lagt fram á síðasta Alþingi, og var lögð á það rík áhersla af ýmsum þm. og aðilum utan þings að fá frv. afgreitt. Það tókst þó ekki, m.a. vegna þess, að tveir hæstv. ráðh. lögðust gegn afgreiðslu frv. Annar þeirra ráðh. var einmitt sá, sem nú er hv. 3. þm. Vestf., hv. frsm. menntmn. þessarar hv. d., og gengur nú í salinn. Þessi hv. þm., sem þá var hæstv. ráðh., lýsti yfir andstöðu sinni á síðasta Alþingi við að afgreiða frv. um landshlutasamtökin, og samt er það svo, að þetta frv., sem hér er til umr., kemur frá þessari hv. n. og úr höndum þessa hv. þm. með þeim ósköpum, að þar er gert ráð fyrir, að þessum sömu samtökum séu falin allmikil verkefni eða a.m.k. að á vegum þeirra starfi stofnanir, sem hafi með að gera umsagnir um tiltekna þætti í meðferð skólamála.

Ég vænti þess, að hv. 3. þm. Vestf. hafi nú skipt um skoðun í sambandi við samtök sveitarfélaga og lögfestingu þeirra í sveitarstjórnarlögum. En ég tek þetta fram vegna þess, að það er auðvitað alger fásinna að afgreiða lög á hv. Alþingi, bæði þetta lagafrv. og önnur, þar sem gert er ráð fyrir því að fela samtökum eða stofnunum í þjóðfélaginu meðferð einstakra mála, –stofnunum, sem ekki eiga sér stoð í lögum íslenska ríkisins. Hér er um missmiði að ræða, — missmíði, sem ekki má þó túlka þannig, að ég sé að mæla gegn því, að samtök sveitarfélaganna hafi afskipti af málum á þessu sviði, enda er það út af fyrir sig í samræmi við till. okkar sjálfstæðismanna, að sveitarfélögin fái þessi mál í hendur, en það er þó með þeim ósköpum gert í þessu frv., að valdið er ekki flutt til sveitarfélaganna eða samtaka þeirra, heldur eru þangað fluttar selstöður ríkisvaldsins, eins og ég lýsti hér við 2. umr. þessa máls.

Ýmsa fleiri vankanta á smíði þessa frv. væri hægt að rekja, og þeir sumir hafa verið raktir hér af fyrri ræðumönnum við þessa umræðu. Það má segja með ódæmum, hvað þetta frv. er langt og ítarlegt. Eftir að frv. hefur verið afgr. við 2. umr. hér í hv. d., er það 41 vélrituð síða. Það er enda svo, að sums staðar gengur það svo langt, hvað frv. er ítarlegt, að það er ekki einasta hlálegt, það er líka grátlegt. Það hefur verið á það bent af hv. 3. landsk. þm., að það er jafnvel kveðið á um það í einni grein þessa frv., að skólastjóri skuli hugsa. Það er líka kveðið á um það í a.m.k. einni grein þessa frv., að kennari skuli ræða við nemanda, og það er rætt um það í einni grein þessa frv., að ef viðræður kennara við nemanda beri ekki árangur, skuli skólastjóri tala við nemandann, og beri það ekki árangur, skuli vísa málinu til meðferðar fræðsluskrifstofu og fræðslustjóra.

Ég tel, að svona ákvæði í l. séu aldeilis ófær og niðurlægjandi fyrir Alþingi að samþykkja slíkt. Ég tel, að þeir menn, sem starfa að fræðslumálum meðal þjóðarinnar, séu yfirleitt svo af guði gerðir, að það þurfi ekki að setja í lög, að þeir ræði við nemendur um einhver vandkvæði, sem upp koma í skólastarfi. Það er eins og gert sé ráð fyrir því af höfundum þessa frv., að skólastjórar og kennarar séu næstum skynlausar skepnur. Ég segi það hiklaust, að ég tel það vanvirðu að setja slíkt í lög, eins og hér hefur verið vitnað til. (Forseti: Ég vil beina þeirri spurningu til hv. ræðumanns, hvort hann eigi mikið eftir af máli sínu. Það hefjast nú senn fundir þingflokka. Ég hafði að vísu gert mér nokkrar vonir um, að þessari umr. gæti orðið lokið, áður en þeir hæfust, en ég verð að sjálfsögðu reiðubúinn að halda fundi áfram eftir kvöldmat, ef þess gerist þörf. En ég vil aðeins beina því til hv. ræðumanns, hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni, og æski þess þá, að hann geri hlé á máli sínu þar til á kvöldfundi, sem verði óhjákvæmilega að halda.) Eru ekki fleiri á mælendaskrá? (Forseti: Það eru tveir aðrir á mælendaskrá.) Er ætlunin að ljúka þá umr. í kvöld? (Forseti: Þá mundi ég freista þess.) Ég verð að segja, að ég á nokkuð eftir af ræðu minni og treysti mér ekki til að ljúka henni á mjög skömmum tíma. — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Ég var þar kominn í ræðu minni, að ég var að gera grein fyrir því, sem vikið er að í e-lið dagskrártill. um missmíði á því frv., sem hér er til umr. Ég hafði vikið að landshlutasamtökunum og því, hve mikil vansmíð það er á lagasetningu frá hv. Alþingi að fela samtökum, sem ekki eiga sér stoð í lögum, ákveðin verkefni og hver nauðsyn er að bæta úr því og fyrst og fremst með því að veita landshlutasamtökunum lagalegan grundvöll að standa á. Enn fremur benti ég á, hversu ítarlegt frv. er, og það hafa fleiri gert. Frv. er langtum of ítarlegt, mærðarfullt og langt, og þó að endurskoðun þess nú hefði ekki annað gott í för með sér en að stytta það svo sem um þriðjung eða helst helming, þá væri mikið við það unnið. Það mætti þá einnig vera, að með því móti yrði svo að verki staðið af þeim, sem þá endurskoðun hefðu með höndum, að gert yrði ráð fyrir því, að kennarar, skólastjórar og aðrir þeir, sem að skólamálum vinna, væru gæddir heilbrigðri skynsemi. En svo virðist ekki vera samkv. því frv., sem hér liggur fyrir. Til þess að finna þessum orðum nokkurn stað, má vitna í t.d. 54. gr. frv., en þar segir m.a. svo með leyfi hæstv. forseta:

„Ef nemanda reynist verulega áfátt í hegðun, ber kennara að leita orsaka þess. Í ljósi fenginna upplýsinga skal hann í viðtali við nemanda og forráðamenn hans, ef við á, leitast við að fá bætt úr því, sem áfátt er. Nú ber viðleitni kennara skv. 3. mgr. ekki árangur, og skal hann þá vísa málinu til meðferðar skólastjóra, sem kannar málið frá öllum hliðum. Ef meðferð hans leiðir ekki til viðunandi ástands, vísar skólastjóri málinu til sérfræðilegrar meðferðar fræðsluskrifstofu. Meðan mál skv. 4. mgr. er óútkljáð, getur skólastjóri vísað nemanda úr skóla um stundarsakir, enda tilkynni hann forráðamönnum nemanda og fræðslustjóra tafarlaust þá ákvörðun. Fræðslustjóri tekur þá málið til meðferðar í samráði við skólanefnd. Ákveða skal nánar í reglugerð um framkvæmd þessarar greinar.“

Þannig hljóða þau ódæmi. Sem sé, ef nemandi brýtur af sér í skóla, þá er kveðið svo á í l., að kennari skuli ræða við hann, ef það ber ekki árangur, þá á skólastjórinn að ræða við hann, ef það hefur ekki árangur í för með sér, skal vísa málinu til fræðsluskrifstofu og fræðslustjóra, og þá tekur fræðslustjóri málið til meðferðar í samráði við skólanefnd. Og það undrar engan eftir að hafa hlýtt á lestur þessarar greinar, að talið er, að það þurfi að setja reglugerð til þess að kveða nánar á um, hvernig með þetta allt skuli fara.

Það er sem sé augljóst, að ef slík tilvik ber við í grunnskóla, þá er gert ráð fyrir því af höfundum og flm. þessa frv., að ekki sé til staðar hjá þeim mönnum, sem stjórna skóla og annast kennslu, venjuleg heilbrigð skynsemi, úr því að þarf að kveða á um það í l. að ræða við nemendur, ef út af ber. Þannig eru fjölmargar greinar þessa frv. Þær eru með ólíkindum langorðar, ítarlegar og með því marki brenndar, að það sé álit þeirra, sem að frv. standa, að þeir aðilar í skólakerfinu, sem um er fjallað, hafi varla heilbrigða skynsemi til að bera.

Það hefur verið rætt hér á fundi fyrr í dag, t.d. af hv. þm. Bjarna Guðnasyni, hvernig gert er ráð fyrir því, að þetta frv., ef að lögum verður, hrúgi upp pappírsfargani og skriffinnskubákni með endalausum umsóknum, umsögnum, úrskurðum og bréfaskrifum hinna ýmsu aðila. Hv. þm. Bjarni Guðnason stillti hér upp ákveðnu dæmi, sem sannaði þetta glöggt, og það var hreinn útúrsnúningur hjá hv. þm. Svövu Jakobsdóttur, 4. landsk. þm., þegar hún taldi, að slík mál mætti leysa í síma. Til þess að sanna það, að hér var um útúrsnúning hjá hv. 4. landsk. að ræða, segir í þessari 8. gr., sem hv. þm. Bjarni Guðnason vitnaði í, að ef á að óska eftir því, að barn fái leyfi úr skóla um tímabundið skeið, t.d. hálfan mánuð eða eitthvað þess háttar, þá á forráðamaður slíks barns að sækja um undanþágu, og þá umsókn á að senda fræðslustjóra. Fræðslustjóri fær umsögn skólastjóra og skólan., og fræðslustjóri getur veitt undanþágu að fengnum slíkum umsögnum. Það dugir ekki að sækja til skólastjóra eða stjórnenda skólans, það þarf að sækja til fræðsluskrifstofunnar, til fræðslustjóra, og engum dettur í hug, að sú umsögn geti verið öðruvísi en skrifleg. Fræðslustjóri getur ekki veitt þessa heimild án þess að fá umsögn skólastjóra og skólanefndar. Þar er um tvo aðila að tefla, og umsagnir eru yfirleitt ekki teknar gildar, nema skriflegar séu. Þarna er sem sé réttilega frá skýrt af hv. þm. Bjarna Guðnasyni. Það er verið að hrúga upp skriffinnskubákni, og hinar og þessar stofnanir í þessu kerfi, sem meiningin er að setja á laggir, eru með því marki brenndar, að þeim virðist að miklu leyti á fót komið til þess að fá að skrifa bréf og senda þau á milli sín. Allt er þetta harla þungt í vöfum, og mun svo verða, að það verði ærinn frumskógur að ganga í gegnum allt það kerfi, sem sett verður á laggir, ef þetta frv. verður að lögum í þeirri mynd, sem það er nú.

Það er því ærin ástæða til þess að gagnrýna gerð þessa frv., þótt ekki sé talað um stefnumið þess. Stefnumið frv. eru, eins og þegar hefur komið fram, mjög gagnrýnisverð, enda þótt ýmislegt megi þar finna til bóta.

Í umr. um þetta mál hef ég vikið að fleiri þáttum þess, sem telja verður, að orki a.m.k. mjög tvímælis. Þar á ég við t.d. hið þéttriðna net sálfræðinga, félagsráðgjafa og skólaráðgjafa, en ég tel, að betur væri fyrir þeim málum séð, ef sú ábyrgð væri lögð á hendur stjórnenda og starfsliðs skóla að ráða fram úr hinum ýmsu vandamálum, sem til kunna að falla í skólastarfinu. Ég skal ekki fara mörgum orðum um þann þátt málsins, en það er athyglisvert, að í frv. er ekki að finna stafkrók um ábyrgð skólastjóra á því starfi, sem í skóla fer fram. Ég vakti athygli á því við 2. umr., að í gildandi lögum segir, að skólastjóri skuli bera ábyrgð á skólastarfinu gagnvart skólanefnd og fræðsluyfirvöldum, en einhverra hluta vegna hafa flm. þessa frv. séð ástæðu til þess að fella þetta niður. Það er enda svo, að skólastjóri hefur yfir sér fimmfalda yfirstjórn. Hann hefur þéttriðið net sálfræðinga, skólaráðgjafa og félagsráðgjafa til þess að taka við því starfi, sem bann og hans starfskraftar, kennarar, annast eftir því sem lög ákveða nú. Og ef eitthvað út af ber, þá er ekki að finna nokkurn stafkrók fyrir því, að hann beri ábyrgð á þessu starfi. Hann getur varpað ábyrgðinni af sér til annarra aðila. Hann getur hringt eftir sérfræðingum, sem eru á fræðsluskrifstofunni. Við skulum segja, að ef fræðsluskrifstofa væri á Ísafirði og það koma fram ákveðin atvik í skóla á Hólmavík eða í Reykhólasveit, þá verður það auðvitað fyrsta verk skólastjóra að leita eftir þeim úrlausnum, sem sérfræðingalið fræðsluskrifstofunnar kynni að hafa í sínum fórum, í stað þess að leita úrbóta sjálfur. Hér er a.m.k. óhætt að segja, eins og um hnúta er búið í frv., að það sé harla vafasamt kerfi, sem upp er sett.

Ég lít svo á, að skóli sem stofnun eigi að lúta sterkri og ábyrgri yfirstjórn síns skólastjóra, skólastjóri og kennarar eigi að bera ábyrgð á því starfi, sem þar fer fram, eins og gildandi lög kveða á um, og ef um það er að ræða, að nokkur misbrestur sé á í sambandi við hegðun nemenda, þá er það sjálfsagt mál og ekki umtalsvert og ætti ekki að þurfa að setja í lög, að skólastjóri og kennarar takist á við þann vanda, sem af því sprettur, og ráði fram úr honum á eigin spýtur. Ef skólaskylda yrði ekki lengd, eins og frv. þessi gera ráð fyrir, og þó helst að hún yrði stytt um eitt ár, þá gæfi það stjórnendum skóla meiri tækifæri til þess að hafa vald á aga op öðrum brotum nemenda í skóla og taka þau þeim tökum, sem duga mundu til þess, að aginn héldist í sómasamlegu horfi.

Ég lít svo á, að enda þótt gallar þessa frv. séu miklir, og ég hef minnt á nokkra þeirra, bæði í dag og eins áður í umr. um þetta mál, séu þó kostir þess einnig miklir. Svo er þó um hnúta búið í þessu frv., að kostum og göllum er hrært saman, svo að þar verður ekki á milli skilið, án þess að frv. í heild verði tekið til gagngerðrar endurskoðunar.

Sú till., sem ég hef ásamt 4 öðrum þm. lagt fram gerir ráð fyrir því, að frv. verði nú vísað frá, það verði sett á laggir 7 manna n, þm. til þess að taka málið að nýju til endurskoðunar og freista þess enn að fá það í það horf, að allir mættu sæmilega við una. Þær umbætur, sem eru í þessu frv. og flestum sýnast eðlilegar, eru þess eðlis, að engin vandkvæði hefðu verið, ef það ráð hefði verið tekið í tíma, að fella þær inn í gildandi fræðslulög frá 1946 og engin þörf að afgreiða þennan lagabálk allan til þess að ná ýmsum þýðingarmiklum umbótum fram á fræðslulögum. Þetta ráð hefði verið hægt að taka og er raunar hægt að taka enn, ef þing stendur nokkrar vikur til viðbótar, og mætti þannig koma til framkvæmda þegar á næsta skólaári ýmsum mjög mikilsverðum umbótum, sem í þessu frv. felast. En ég tel það óhæfu miðað við þá miklu galla, sem á þessu frv. eru, að afgreiða það í því formi, sem það er nú.

Í f-lið þeirrar dagskrártill., sem ég og félagar mínir höfum hér flutt, er vikið að því, að meðferð þessa máls hér í hv. d. er með eindæmum. Í tillgr. segir, að hún hafi bæði verið reikul og stefnulaus. Ég hygg, að það sé einsdæmi í sambandi við jafnþýðingarmikið frv. og hér er á ferðinni, frv., sem ætlað er að mynda ramma um undirstöðumenntun þjóðarinnar, að það skuli vera lagt hér fram og koma úr þingnefnd hér á þriðja þingi, frá því að það fyrst kom fram, og skuli komnar fram yfir 80 brtt. að allri þeirri meðferð lokinni.

Það er reyndar svo, að afgreiðsla þessara brtt. varð næsta handahófskennd, og er þó ekki útséð um það allt enn, því að nokkrar þeirra voru dregnar til baka til þessarar umr. Meðferð málsins hefur þannig nú á lokastigi verið með eindæmum flausturskennd og hringlandaleg. Ég tel, að það megi undur heita, ef frv. verður afgreitt að lokinni slíkri meðferð hér úr þessari hv. d. án nánari athugunar. En þótt svo fari, þykir mér einsýnt, að hv. Ed. verði að taka hendi til og lagfæra margháttuð missmíði, sem á þessu frv. eru, og á ég þar þó einungis við þau missmíði, sem felast í afgreiðslu brtt. við 2. umr. og þeirra, sem væntanlega koma til afgreiðslu hér að lokinni 3. umr.

Þetta er eitt af þeim atriðum, sem styðja það mjög, að frv. verði lagt til hliðar að þessu sinni og enn gengið í það verk að reyna að koma á það skaplegri mynd.

Ég skal ekki að þessu sinni lengja þetta meira. Ég hef vikið hér að nokkrum þáttum þessa máls, gerð frv. og hinum stórmiklu göllum, sem á því eru hvað allan búnað þess snertir, lengd, mærðarfullt tal um óþarfa hluti og móðgandi fyrrimæli til stjórnenda í skóla um það, hvernig þeir skuli haga sér við hin smávægilegustu efni. Ég hef gert grein fyrir hinum stórkostlegu göllum, sem fylgja lengingu skólaskyldu og lengingu skólaársins. Út af lengingu skólaársins varpaði ég því hér fram við 2. umr., hvernig það yrði framkvæmt, sem mér sýnist þó vera virðingarverð tilraun hjá hv. n., að það sé sett inn í l., að störf í atvinnulífi megi meta til jafns við skólanám. Ég varpaði fram spurningum um það, hvaða mati yrði slegið á nám þeirra nemenda, sem t.d. í apríl og maímánuði hyrfu úr skóla til þess að vinna í fiski eða aðstoða föður sinn á sauðburði í sveit, eða annað því um líkt, sem fylgir þýðingarmestu þáttum í atvinnuvegum þjóðarinnar, og hvort slíkir nemendur mundu fá inngöngu í framhaldsskóla að slíku starfi loknu. Ég fékk auðvitað engin svör, enda eru þau ákvæði frv., sem nú eru komin inn í það eftir 2. umr., ákaflega óljós og erfitt að átta sig á þeim að þessu leyti, enda þótt þar sé um virðingarverða tilraun að ræða. Ég vil þó enn ítreka það, hvort hv. n., sem um þetta hefur fjallað, hafi gert sér grein fyrir því, hvernig slík tilvik skyldi framkvæma.

Ég hef gert grein fyrir því, hvílíkt stjórnunarbákn er sett upp með þessu frv. og hvílíku skriffinnskubákni og flækju í skólakerfinu öllu er verið að koma upp. Ég hef dregið í efa, að nokkur valddreifing fylgi því, þótt settar séu upp fræðsluskrifstofur úti í hinum ýmsu landshlutum, — fræðsluskrifstofur, sem að vísu fá til umsagnar hin og þessi málefni, en valdið er eigi að síður í höfuðstöðvum stjórnkerfisins, hjá menntmrn. í Rvík. Ég hef dregið í efa, að rétt sé stefnt með hinu þéttriðna neti sálfræðinga, skólaráðgjafa og félagsfræðinga, og ég hef gagnrýnt harðlega, að ekki skuli með þessu frv. fylgja ítarlegri grg. heldur en fram hefur komið um þann gífurlega kostnaðarauka, sem af því hlýtur að stafa í útgjöldum ríkis og sveitarfélaga. Um það efni hafa engin svör fengist, og ég tel það óviðunandi vinnubrögð af hæstv. ríkisstj., sem leggur frv. fram, og af þeirri hv. þn., sem um málið hefur fjallað, að geta ekki með neinum hætti gert hv. Alþingi grein fyrir því, hver kostnaðarauki hlýst af samþykkt þessa frv. bæði í rekstri og mannvirkjagerð.

Það eru því ærnar ástæður til þess, að ég og 3 aðrir þm. höfum hér lagt fram till. til rökstuddrar dagskrár, þar sem við gerum að lokum þá till., að skipuð verði 7 manna þingmannanefnd til þess að endurskoða frv. og að það verði lagt fram endurskoðað fyrir Alþingi næsta haust. Í trausti þess, að svo verði á málum haldið, og í trausti þess, að það megi þá vera fært í þann búning, að allir megi sæmilega við una og ekki verði slíkur stórkostlegur ágreiningur um þetta mál bæði hér á hv. Alþingi og meðal þjóðarinnar, eins og raun er á í dag, þá vil ég vænta þess, að þessi dagskrártill. fái samþykki hér í hv. deild.

Auðvitað mætti, eins og ég hef þegar getið um, taka nokkra þætti þessa máls í heild út úr frv. með samstarfi nokkurra manna og þá væntanlega fyrst og fremst hv. menntmn. og þeirra manna, sem mest hafa gagnrýnt þetta frv., og fella þá inn í gildandi lög og koma þannig þegar til framkvæmda ýmsum þýðingarmiklum atriðum, sem allir eru sammála um, að séu til bóta fyrir fræðslukerfið í heild. Það yrði þá væntanlega strax til bóta fyrir íslenskan æskulýð, sem flest gott á skilið og allt þarf á sig að leggja til þess að fá sem besta undirstöðumenntun undir frekara nám og undir sitt lífsstarf.