17.04.1974
Neðri deild: 107. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3641 í B-deild Alþingistíðinda. (3264)
9. mál, grunnskóli
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég hef ekki áður blandað mér í umr. um það mál, sem hér liggur fyrir, þetta geysilega viðamikla mál. og ég mun ekki heldur nú að áliðnum degi og við 3, umr. setja á langar tölur um málið.
Ég get tekið undir það, að í þessum mikla lagabálki virðist mér, að ýmislegt og raunar margt horfi til bóta, enda þótt í flestu þessu verði reynslan, að því er lýtur að nýjungum í málinu, að skera úr við framkvæmd þess.
Ég hef ekki staðið að brtt. persónulega hér á hinu háa Alþ., heldur hafa þau vinnubrögð verið viðhöfð hjá þingflokki Sjálfstfl„ að eftir að málefnanefnd á vegum miðstjórnar flokksins hafði fjallað um málið, var kosin sérstök n. til að vinna að málinu, hvað gert var mjög vandlega lengst af í sumar. Og þær till., sem fram hafa verið bornar af fulltrúum flokksins í menntmn., eru unnar af þingflokknum sem heild að mestu leyti. Að sjálfsögðu eiga þeir nm, einnig sérstakan hlut að máli.
En enda þótt mér virðist, að hér sé margt allgirnilegt í boði, sýnist mér, að á þessu séu ýmsir vankantar. Hv. 3. þm. Vestf, lagði á það áherslu, að hér horfði margt til hins betri vegar og það væri þá ekki annað fyrir hendi, ef menn þættust sjá á þessu vankanta, en að sníða þá af. Og rétt er það. Enda þótt menn hafi lagt í þetta feiknamikla vinnu, — en að vísu hefur ekki verið tekið á í þessu máli fyrr en nú á þessu þingi, trúi ég, enda þótt það hafi verið lagt fram fyrir rúmlega þremur árum, — þá býður mér fastlega í grun og sýnist við yfirvegun og athugun á málinu, að ýmsa vankanta eigi enn eftir að sníða af, Og þá er spurningin, þar sem nú hlýtur að líða að lokum þessa þinghalds og margt af stórmálum sjálfsagt óafgreitt, hvort hér er um mjög þröng tímamörk að tefla, hvort brýna nauðsyn ber til, að þetta frv. nái fram að ganga og verði að lögum á þessu þingi.
Nú er að sjálfsögðu rétt, að það má segja, að óhæfilega langur tími hafi liðið, síðan þetta mál sá fyrst dagsins ljós, þótt það sé nú orðið í mjög breyttu formi, og einhvern tíma verði að reyna að ná lokamarkinu og koma þessum lögum á. Ég held, að það sanni eitt með öðru, hversu málið er geysilega viðamikið, hversu langan tíma það hefur tekið, hversu langa meðferð þetta hefur þurft að hafa hér á hinu háa Alþingi, — að þetta sanni einmitt það, að við þurfum að gefa okkur mjög góðan tíma. Þessi lög munu væntanlega standa lengi að meginstofni til, þegar þau ná fram að ganga, og þess vegna þarf mjög vel til þeirra að vanda. Ég fyrir mitt leyti er sannfærður um það, að svo mjög knýr ekki á um þessa lagasetningu, að við þurfum að skoða hug okkar um það að gefa okkur eitt ár til til þess að vanda þetta sem best. Það mundi enginn skaði verða skeður við það. Fyrir því er það, að ég hef nú borið fram till. til rökstuddrar dagskrár um þetta mál, að það verði nú látið staðar numið, en fengin 7 manna þm: nefnd til þess að yfirfara það og þá alveg án tvímæla sem lokayfirferð.
Hv. 3. þm. Vestf., hv. frsm. n., hafði ekki trú á því, að ný nefndarskipan mundi neinu breyta til hins betra í þessu efni, og hafði ekki trú á þm., að þeir mundu mikið um bæta frá því, sem hinir færustu skólamenn hefðu um málið vélt. Nú er ég á dálítið öðru máli í þessum efnum, og ég held, að minn gamli skólastjóri, hv. 3. þm. Vestf., sé kannske orðinn of mótaður af kerfinu, að honum hætti til, sem mér finnst ákaflega áberandi og hvimleitt, að vilja taka um of við sem nýju neti ýmsu því, sem embættismennirnir matreiða hér fyrir hv. alþm.
Mér sýnist, að í aðalatriðum höfum við náð nokkurri fótfestu í þessari tillögugerð, en ýmislegt af því, sem betur mætti fara í samræmingu, yrði ágætlega unnið einmitt af þm., sem nú hafa lengi um málið fjallað, og sérstaklega held ég, að þeim ætti að vera innan handar að láta framkvæma nokkuð ítarlega kostnaðaráætlun. Það er ekki hvað síst það, sem lýtur að kostnaðaráætlun, skorti á nægjanlega glöggri og greinargóðri kostnaðaráætlun, sem gerir það að verkum, að ég legg eindregið til, að við gefum okkur aðeins betri tíma til þess að athuga málið. Það er að vísu rétt, að í grg, með frv. er að finna kostnaðaráætlun, sem ég hygg, að við getum orðið sammála um, að sé fremur lausleg. En þó er þetta það viðamikið mál, að mönnum er e.t.v. ekki ætlandi, eins og málin lágu fyrir þá, að hafa getað gert sér gleggri grein fyrir þeim kostnaði, sem þetta kynni að hafa í för með sér, En nú er málið það vel á vegi, að öllu er hægara að gera sér fyllri grein fyrir, til hvers muni leiða varðandi fjárhagshliðina. Það er t.d. alveg nýtt viðhorf eftir afgreiðslu við 2. umr. hér á dögunum, að þar var tekin inn brtt., sem gerir ráð fyrir mötuneytum í skólum landsins, sem menn eru að kasta í milli sín, að muni ekki nema tugum millj. kr. í kostnaðarauka, heldur hundruðum millj. kr. Engar sönnur veit ég á þessu, og enga grein get ég gert mér fyrir þessu. Þess vegna er alveg nauðsynlegt að taka málið til ítarlegri athugunar, hvað þetta snertir.
Ég vil benda á, að hér á hinu háa Alþ. hefur verið lögð fram þáltill. um kostnaðaráætlun við stjórnarfrv., þar sem Alþ. ályktar að beina því til ríkisstj., að frv., sem fela í sér ný útgjöld fyrir ríkissjóð, séu ekki lögð fram, án þess að þeim fylgi rækilegar kostnaðaráætlanir, og rétt nýverið skilaði hv. fjvn. nál. um málið, þar sem einróma er mælt með samþykkt þessarar þáltill. Ég held, að það mætti taka mið af þeirri þáltill. Það er ekki meira en að ýmsir embættismenn hafa þegar tekið mið af ósettum grunnskólalögum. Það er ekki meira en að landshlutasamtökum, sem eru ekki til eftir laganna bókstaf, er falið af löggjafanum stórkostleg stjórnunaraðild í sambandi við þessi nýju grunnskólalög. Það er í samræmi við annað. Þess vegna legg ég áherslu á og mér sýnist, að það séu mjög frambærileg rök fyrir frestunartill. og frávísun á þessu nú, að okkur beri skylda til að gera okkur miklu fyllri grein fyrir þeim kostnaðarauka, sem þetta ber í skauti sér, ef fram nær að ganga.
Það er rétt að taka það fram, að mér gengur ekkert annað til í þessu sambandi en þessi lagasetning megi fara hinu háa Alþ. sem best úr hendi. Mér er alveg ljóst, að málum er þann veg komið, að við hljótum að koma okkur saman um nýja skólalöggjöf. Héðan í frá er ekki um það að ræða að búa við þá skólalöggjöf, sem við höfum búið við nú um nær 30 ára skeið, þótt því miður hafi komið fram og liggi fyrir, að hún hafi ekki allt fram til dagsins í dag verið framkvæmd eins og skyldi. Það er annað mál, sem ekki snertir þetta mál, sem augljóslega hlýtur fyrr eða síðar fram að ganga. Við þurfum þess vegna einvörðungu að mínum dómi að gera upp við okkur, hvort það er brýnt tímaspursmál. að það nái fram að ganga nú eða ekki. Ef það er ekki hin brýnasta nauðsyn, að það verði að lögum strax, þá er ekkert á móti því, að við fáum tækifæri til þess að sníða af þá vankanta, sem mjög margir og mér er nær að halda helftin af hv. þm. eru sannfærðir um, að er enn að finna á frv.
Það er ljóst, að eitt aðalefnisatriðið, sem deilt hefur verið um í þessu sambandi, er lenging skólaskyldunnar, og ég verð að játa, að ég hef verið og er enn harla gagnrýninn á það ákvæði. Raunar væntir maður þess, að sá dagur kunni upp að renna, að enga skólaskyldu þurfi, að það verði það eftirsóknarvert fyrir ungmenni að sækja skóla, að skólaskyldu þurfi þess vegna ekki. Ég er þeirrar skoðunar, að lenging skólaskyldunnar í 16 ára aldur sé óþörf. Bent hefur verið á, að þarna sé verið að brúa bil, sem ella hafi verið milli miðskólastigsins og framhaldsskóla, menataskóla og einhverra annarra æðri skóla. Vegna t.d. dreifbýlisins sýnist þetta vera hagsmunaatriði. En ég held, að þetta sé einvörðungu framkvæmdaatriði, sem skólunum ætti ella að vera í lófa lagið, að um þetta þurfi enga skyldu, og í því efni sérstaklega vil ég meina að þeir, sem ekki eru til þess hæfir eða fýsir að neyta annarra bragða um atvinnu eða það, sem til fellur, séu ekki til þess skyldir að sitja lengur á skólabekk en verið hefur. Ég hef þá skoðun, að það gæti orðið, að vísu ekki stórum hóp ungmenna, en nægjanlega stórum þó, til ills eins að binda þá þannig við rúmstuðulinn, ef svo mætti orða það, skólarúmsstöðulinn lengur en gert hefur verið.
Ég er sannfærður um, að við munum áður en langt um líður ná samkomulagi nær alfarið um þetta mál, og þess vegna finnst mér það óframbærilegt, þar sem ég hef engin rök heyrt fyrir því, að þessu séu þröngar tímaskorður reistar. Þess vegna er það, að ég legg á það áherslu, að við frestum þessu enn um hríð og gerum til þess úrslitatilraun að ná um þetta miklu meiri samstöðu en mér sýnist að í boði sé enn. Ég vísa til þess rökstuðnings, sem færður er fram með till. okkar fjórmenninganna á þskj. 713. Ég held, að þar sé að finna rök, sem ætti að skoða af sanngirni og láta sér ekki liggja of mikið á, rök, sem nægjanlega séu haldgóð til þess, að réttmætt sé að fallast á þessa rökstuddu dagskrá, og ég vænti þess fastlega, að meiri hl. verði fyrir því. Það má ekki verða neitt metnaðarmál eins eða neins að knýja þetta mál fram. Raunar skal ég játa, að menn kunna að segja sem svo: Það er búið að þæfa þetta mál svo lengi, að einhvern tíma verður að draga að leiðarlokum. En ég held, að ef grannt er skoðað, þá geti allir menn verið sammála um það, að á þessu eru enn vankantar. Til að mynda var atkvgr. um hinar geysilega fjölþættu brtt., sem afgreiddar voru við 2. umr. málsins, með þeim hætti, að hún ein út af fyrir sig vekur hjá manni grunsemdir um, að þetta þurfi að gaumgæfa enn miklu betur og bera saman, þannig að ekki stangist hvað á annars horn. Nú á að vísu hv. Ed. eftir að fá málið til meðferðar. En eins og ég sagði, það líður senn að þinglokum, og eftir því sem manni sýnist eftir öllum sólarmerkjum að dæma, þá bíða enn sjálfsagt úrlausnar geysilega stór og viðamikil mál, þannig að ég hef ekki trú á því, að þeirri hv. deild gefist neinu kostur að marki á því að gaumgæfa þetta mál sem skyldi. (Gripið fram í.) Því fer víðs fjarri. Og það geri ég ekki heldur og jafnvel ekki þótt ég viti, að hæstv, menntmrh. eigi þar sæti. Það geri ég alls ekki. Ég var hins vegar að benda á, að þannig væri komið vinnubrögðum hér á hinu háa Alþingi, að allt benti til, að hv. Ed. gæfist mjög naumur tími til þess að gaumgæfa þetta geysilega viðamikla mál. Hér hefur verið unnið geysimikið verk á liðnum vetri af þessari hv. d., og ég sé í sjónhendingu að hv. menntmn, hefur unnið geysilegt starf. Ég er alveg sannfærður um það, að þeir, sem hafa mest að þessu unnið, geta verið mér sammála um, að það verður að ákaflega takmörkuðu leyti, sem Ed, gefst kostur á að taka þetta mál til meðferðar eða athugunar.
Ég hygg, að ef þetta mál á að afgreiðast sem lög, neyðist hv. Ed. til að líta svo á, að þetta hafi verið það vel unnið hér, að þar verði að hlaupa yfir þetta á hundavaði. Ég fæ ekki betur séð, Þess vegna er það, að ef menn leggja trúnað á það hjá þeim, sem vilja aðeins fá enn betri tíma til rannsóknar á málinu, að þeim gangi aðeins gott til, að þeir vilji með því reyna að stuðla að því, að þetta fari sem allra best úr hendi, og enn fremur, ef þeir vilja sættast á það sjónarmið, að engin knýjandi nauðsyn sé á því að afgreiða þetta mál á þessu þingi, þá fæ ég ekki betur séð en þessi till. okkar um að vísa málinu frá nú eigi hinn fyllsta rétt á sér.