17.04.1974
Neðri deild: 107. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3649 í B-deild Alþingistíðinda. (3266)

9. mál, grunnskóli

Pálmi Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr, mikið úr þessu. Ég hafði ætlað mér að gera hér örfáar aths. við ræðu hv. 3. þm. Vestf., frsm. menntmn. Tveir síðustu ræðumenn hafa vikið að henni nokkrum orðum, svo að ég get stytt mjög mál mitt.

Hv. þm. Hannibal Valdimarsson sagði, að nú hefði komið í ljós, hvað fyrir þeim andófsmönnum vekti í sambandi við umr, um þetta mál. Það væri sem sé komið í ljós það, sem þeir hefðu alltaf ætlað sér, og það væri að koma málinu í heild fyrir kattarnef. Ég vil segja það fyrir mína parta, að sú er ekki meiningin í sambandi við þann tillöguflutning, sem ég hef staðið hér að. Og það kom einnig fram í máli hv. 4. þm. Austf., Sverris Hermannssonar, að það, sem fyrir okkur vakir, er fyrst og fremst það og það eitt, að sett verði löggjöf um skólamál, sem verði svo vandað til sem best megi verða. Hv. þm. þarf ekki að vera með getsakir til okkar í sambandi við það, því að við höfum eða a.m.k. ég í ýmsum ræðum um þetta mál, hæði nú á þessu þingi og hinu fyrra, þegar þetta mál hefur verið tekið til umr., lagt á það ríka áherslu, að það beri að vanda vel til löggjafar sem þessarar, svo þýðingarmikil sem hún er fyrir æskulýð landsins og fyrir þjóðina í heild. Hins vegar vil ég láta það koma fram, að miðað við þá galla, sem við teljum að séu á þessu frv., er ekki nema eðlilegt, að við teljum fulla ástæðu til þess og enga goðgá að fresta afgreiðslu þessa frv. um eitt ár til viðbótar, þegar hlið~sjón er höfð af því, að í frv. sjálfu, eins og það er nú, er gert ráð fyrir því, að það komi ekki til fullra framkvæmda fyrr en að 10 árum liðnum, að einu afriði undanskyldu, þ.e. lengingu skólaskyldunnar, hún komi til framkvæmda um allt land allt að 6 árum liðnum. Það ættu því ekki að vera framin nein spjöll á þessu máli og ekki verða veruleg töf á framgangi þess, þó að því verði nú frestað um eitt ár til þess að freista þess enn að fá því breytt í það horf, að allir megi sæmilega við una.

Hv. þm. Hannibal Valdimarsson gat þess hér, að að samningu þessa frv. hefðu unnið ýmsir merkir skólamenn. Það skal síst vefengt. Hann rakti að vísu, hverjir þeir menn voru, sem voru í hinni fyrstu grunnskólanefnd. Um hina síðari grunnskólanefnd var það svo, að í henni voru einnig mætir menn og að sumu leyti einnig skólamenn. En það hygg ég þó, að megi segja, að hlutur rn., æðstu yfirstjórnar í skólamálum, hafi verið sæmilega tryggður, ef litið er á, hvernig sú n. var skipuð. Það er enda svo, að þrátt fyrir að ýmsum sýnist, að nm. hafi viljað hafa það að leiðarljósi að dreifa valdinu, þá hefur þeim verulega mistekist í því efni, og hin svokallaða valddreifing frv. er að mestu hjóm eitt. Eftir sem áður eru völdin í höndum rn., og fræðsluskrifstofurnar, eins og ég hef getið um fyrr, eru eins konar selstöður ríkisins.

Ég held, að þó að þannig hafi unnið að samningu þessa frv. ýmsir mætir og merkir skólamenn, þá hljóti hv. 3. þm. Vestf. að hafa orðið þess var, að fjölmargir skólamenn, bæði skólastjórar kennarar, einkum á miðskólastigi, eru andvígir ýmsum atriðum í þessu frv. Ég hef vitnað til þess í þessum ræðustól, að skólastjóraþing gagnfræðaskólastigsins hefur lýst andstöðu víð lengingu skólaskyldunnar. Fjölmargir skólastjórar og kennarar eru fullir efasemda um ýmis önnur atriði þessa frv., t.d. um hið mikla stjórnunarbákn þess, um þá flækju, sem þarf að ganga í gegnum í sambandi við hin lítilfjörlegustu efni í skólastarfi og skólakerfi til þess að ná ákvörðun fram, þar sem hinum og þessum efnum er þvælt á milli nefnda, ráða og stofnana og leita þarf umsagnar fjölda aðila, áður en unnt er að senda öll þau plögg til menntmrn. og hæstv. menntmrh., þar sem úrskurðurinn á loks að verða kveðinn upp. Ég held því, að enda þótt skólamenn hafi unnið að samningu þessa frv., muni þeir skólamenn vera ótaldir, sem eru andvígir ýmsum ákvæðum þess.

Hv. þm. viðurkenndi, að þrátt fyrir það, að þessir mætu menn hefðu unnið að samningu frv., hefði það þó að hans — og ég hygg allra annarra alþm. — batnað verulega í meðförum Alþ. og batnað eftir hverja endurskoðun frv., og því er ég hjartanlega sammála. Þess vegna og með hliðsjón af þeirri reynslu geri ég mér enn vonir um það, að verði enn gengið í það verk að endurskoða þetta þýðingarmikla mál, muni að þeirri endurskoðun lokinni nást fram niðurstaða, sem við getum að ári liðnu eða hálfu ári eða rúmlega það verið sammála um, að mjög hafi breytt frv. til hins betra.

Þetta eru orsakirnar til þess, að við fjórmenningar, sem stöndum að þeirri till., sem hér hefur verið lögð fram til rökstuddrar dagskrár, berum hér fram í trausti þess, að betri niðurstaða náist. Og ég tek undir það, sem fram kom hjá hv. 4. þm. Austf., að hér má ekki ráðá persónulegur metnaður nokkurs eins manns, ekki eins flokks eða ríkisstj, eða annarra afla hér á hv. Alþ. Það á að vera okkur öllum metnaðarmál og kappsmál að ljúka þessu máli svo, að það verði til þeirra mestu heilla, sem unnt er að ná.

Ég tel ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð í sambandi við getsakir hv. þm, um þetta efni til okkar tillögumanna og þeirra, sem hann kallaði andófsmenn.

Hv. þm. taldi sig gera hreint fyrir sínum dyrum í sambandi við þann kostnað, sem af samþykkt þessa frv. mundi spretta fyrir ríki og sveitarfélög, og vitnaði enn til þess, að í grg. frv., eins og það fyrst var lagt fram fyrir nálega þremur árum, stendur, að kostnaðarauki í rekstri muni verða um 289 millj. kr. Ég skal ekki eyða orðum að þessu efni miklu meir, en ég tel, að þrátt fyrir það að þessi tala sé lögð til grundvallar og verðlagsbreytingar ofan á hana lagðar, hefði verið ástæða til þess að endurskoða það mál allt. Hv. þm. fullyrti ekki neitt um, hvort það mundi standast, sem þarna kemur fram, og er sjálfsagt að virða það. Hitt hefur hvergi komið fram og engin svör við fengist, hver kynni að verða stofnkostnaðarauki í sambandi við framkvæmd þessa frv., ef að lögum verður. Og víst er, að sá stofnkostnaðarauki fyrir ríki og sveitarfélög verður gífurlegur.

Það hefur verið minnt hér á mötuneytisaðstöðu við alla skóla, sem eftir frv. er skylt að reisa. Það hefur verið minnt á það, að tilgangur frv. er sá að færa skólastarfið í heild inn í skólana, þannig að þar geti rúmast vistarverur fyrir nemendur til þess að nema það, sem nú fer fram í heimahúsum í þeim efnum. Og það verður væntanlega ekki um það að ræða, ef þetta frv. á að komast til framkvæmda, að unnt sé að koma við því, sem nú tíðkast, að skiptikennsla fer fram ýmist á sama degi eða sína vikuna hvor námshópur eða sinn daginn hver námshópur. En þetta tíðkast nú í ýmsum skólahverfum og mundi væntanlega verða af lagt, ef þetta frv. ætti að komast til framkvæmda, og er þá ljóst, að af því hlyti að spretta aukin skylda fyrir ríki og sveitarfélög til þess að koma upp stórkostlega auknum skólamannvirkjum.

Fjölmörg atriði önnur má nefna í sambandi við stofnkostnað, sem af þessu frv. mundi hljótast, og það hefur engin tilraun — ég endurtek — það hefur engin tilraun verið gerð til þess að greina Alþ. frá, hvað sá stofnkostnaðarauki mundi nema miklum fjárhæðum.

Hv. þm. Hannibal Valdimarsson vék að skólaskyldunni, sem hann kvað það eina, sem væri bitastætt í þeirri gagnrýni, sem við hinir einstöku þm., höfum flutt á þetta frv. Ég skal ekki lengja mikið umr, um skólaskylduna, þær eru orðnar alllangar og nægir að mestu að vitna til þess, sem hv. þm. Lárus Jónsson sagði áðan um það efni. Í máli hans kom fram með svipuðum hætti og ég hef rakið hér áður, að þær forsendur, sem í grg. frv. eru taldar liggja til þess, að nauðsyn beri til þess að lengja skólaskylduna, eru falskar. Þær röksemdir eru ekki réttar. Það eru falsrök að það þurfi að lengja skólaskyldu til þess að ná fram jafnrétti í námi í einstökum skólahverfum í strjálbýli og þéttbýli, vegna þess að sá munur, sem fram kemur á skólasókn, stafar af því, að ríkið fyrst og fremst hefur ekki haft úr fjármunum að spila til þess að koma upp skólamannvirkjum í heimabyggðum þeirra nemenda, sem orðið hafa útundan á þessu sviði. Þá mundi ekki breytast við samþykkt þessa frv., nema síður væri, vegna þeirra auknu fjárútláta, sem þyrfti að verja til rekstrar og annarra þátta þessa máls, og mundu þá sem áður vera látin sitja á hakanum hin fámennari og afskekktari sveitarfélög, en þéttbýlið látið sitja við kjötkatlana.

Það eru einnig falsrök, að nauðsyn sé lengingar skólaskyldu upp í 16 ár til þess að brúa það bil, sem nú er á milli skyldunáms og framhaldsnáms. Þetta kom mjög glöggt fram í ræðu hv. 5. þm. Norðurl. e., þannig að það mundi duga, að grunnskólapróf, eins og hann nefndi það, gæfi rétt til þess að ganga inn í framhaldsskóla, þ.e. menntaskóla og sérskóla, án tillits til þess, hvort um skólaskyldu eða fræðsluskyldu væri að ræða.

Hv. þm. Hannibal Valdimarsson spurði: Hvenær varð skólaskyldan slík viðurstyggileg þvingun, — eins og hann orðaði það, — í augum þeirra manna, sem gagnrýna hana? Og hvernig stendur á því, að skólaskylda frá 7–15 ára, eins og nú er í gildi, er ágæt, en skólaskylda frá 7–16 ára óalandi og óferjandi? — Ég sagði við 2. umr., að ég teldi a.m.k. fulla ástæðu til þess að líta á það mál að stytta skólaskylduna fremur en að lengja bana. Og ég tel með hliðsjón af þeirri reynslu, sem fengist hefur af skólaskyldu og því, hvernig hún verkar á nemendur, að ástæða væri til þess að stytta skólaskylduna um eitt ár frá því, sem er í gildandi lögum. Það er eitt af þeim atriðum, sem ég treysti, að verði tekin til athugunar, ef dagskrártill. okkar fjórmenninga nær fram að ganga, og mætti þá svo fara, að stigið yrði mikið heillaspor.

Hv. þm. Sverrir Hermannsson sagði áðan, að við vonumst allir eftir því, að skólasókn verði eftirsóknarverð í augum nemenda. Allir getum við tekið undir þessi orð. En þau verða ekki að veruleika, ef nemendur eru þvingaðir til þess að sækja skóla að lagaboði og fyrirmælum ríkisins. Sú er reynsla, eins og margoft hefur fram komið, að nemendur breyta um ham, eftir að í 3. bekk miðskóla er komið, þá sækja þeir nám af meira kappi, þeir eru viðráðanlegri gagnvart skólareglum og þeir sækja nám af meiri alvöru, vitandi það, að þeir sækja nám af frjálsum vilja, af eigin hvötum, til þess . að ná árangri í því að búa sig undir frekara nám og búa sig undir sitt lífsstarf. Þessi hugsunarháttur er því miður ekki ríkjandi, meðan skyldunámsstigið varir. Og þó hygg ég, að vandkvæði af þessu tagi láti ekki verulega á sér kræla, fyrr en kemur á síðasta hluta núverandi skyldunáms, og á það þær orsakir, að á því aldursskeiði verða miklar breytingar, bæði sálarlegar og líkamlegar, hjá nemendum, eins og hv. þm. er kunnugt. Ég hygg því, að mjög kæmi til athugunar að stytta skólaskylduna frá því, sem nú er, niður í 14 ára aldur eða frá 7–14 ára og við tæki fræðsluskylda, sem brúaði bilið til framhaldsnáms. Ná óttast ég það ekki, að misbrestur yrði á skólasókn nemenda á 15.–16. ári, þó að fræðsluskylda væri í stað skólaskyldu. En þó yrðu það örfáir nemendur, sem ekki mundu sækja skóla, og að sumu leyti væri það gott, því að við verðum að viðurkenna það allir, hvort sem við erum hlynntir skólaskyldu eða ekki, að til eru einstaka nemendur, sem ekki eiga erindi í skóla og hafa þau áhrif mest á sitt umhverfi og á sina félaga að spilla öllu skólastarfi og brjóta niður aga og siðferðiskennd annarra nemenda, og gildir þar hið fornkveðna, að það þarf ekki nema einn gikk í hverja veiðistöð. Sumir þessara nemenda eru því marki brenndir, að þeir eru betur komnir við önnur störf heldur en nám, og það má þá líka verða til þess, að þeir verði fljótari að sjá að sér og gætu komið inn í skólakerfið að nýju betri menn en þeir hurfu þaðan.

Það leiðir þá jafnframt hugann að því, að námsbrautirnar mega ekki lokast. Við verðum að halda því skipulagi, að þeir, sem oltið hafa eða hætt skólanámi á einhverju stigi þess, stundum fyrir þær orsakir, sem ég hef hér greint frá um þá nemendur, sem eru til vandræða og eru sem betur fer örfáir, en líka fyrir þá nemendur, sem hætta skólanámi annarra orsaka vegna, kannske heilsubrests eða annarra vandræða, sem þeir ráða ekki við eða þeirra aðstandendur, — það þarf að gæta þess að þessir nemendur geti komið inn í skólann aftur, þó að líði ekki einungis eitt ár, eins og frv. gerir réttilega ráð fyrir, að unnt sé, heldur jafnvel 2 eða 3 ár, og enn fremur að stuðla að því að halda uppi námskeiðum og aukinni fullorðinsfræðslu, sem gefi fullorðnu fólki, sem hefur tíma og vilja til slíks, aðstöðu til þess að sækja sér aukna menntun.

Ég ætla ekki að fara fleiri orðum um skólaskylduna og lengingu hennar, en niðurstaða mín er sú, að lenging skólaskyldunnar sé þörf með tilliti til þeirra ástæðna, sem færðar eru fram sem rök fyrir því, að hún sé nauðsynleg. Lenging skólaskyldunnar er skaðleg gagnvart skólastarfi, gagnvart unglingunum sjálfum uppeldislega og að því er snertir árangur þeirra í námi og viðhorfi gagnvart yfirvöldum, ekki einasta í skóla, heldur og yfirvöldum þjóðfélagsins í heild. Þetta er sú niðurstaða, sem ég hef fengið af viðræðum við fjölmarga skólamenn, og ég tek ekkert síður mark á þeim sumum hverjum heldur en þeim mætu mönnum, sem staðið hafa að samningu þessa frv.

Hv. þm. Hannibal Valdimarsson taldi ekki missmíði til baga á þessu frv. Þegar hafa verið gerð hér að ærnu umtalsefni landshlutasamtökin, löggilding þeirra og ákvæði um það í þessu frv. og öðrum að fela þeim verkefni. Hv. þm. Hannibal Valdimarsson upplýsti, að hann væri einn helsti bjargvættur þessara samtaka, og ég þakkaði honum fyrir það og vænti þess, að þess sjáist stað víðar en gert hefur hingað til. Það skal þó ekki vanmetið sem vel er gert og skal ekki eyða fleiri orðum að því.

Hv. þm. viðurkenndi, að frv. væri langt og ítarlegt. Eftir 2. umr. er það 41 vélrituð síða, og ég skal ekki fara að þreyta þá fáu þm., sem sjá ástæðu til þess að vera viðstaddir þessa umr., með því að fara enn að vitna í frv. máli mínu til stuðnings um þetta atriði. Það hefur verið rækilega gert, bæði af mér og öðrum. En hv. þm. sagði, að það mundi þá verða til þess, að ekki þyrfti að setja eins nákvæma reglugerð um frv. og ella væri. Þó segir í sumum þeirra greina, sem eru hvað ítarlegastar, t.d. um það, hvernig skólastjóri og kennarar eigi að haga sér gagnvart nemendum, eins og ég vitnaði til í 55. gr. í dag, þar sem það er meira að segja fært í lög, að kennarar skuli tala við nemendur og skólastjóri skuli tala við nemendur, forráðamenn nemenda, ef eitthvað bjátar á, — í síðustu mgr. þeirrar gr. segir: „Ákveða skal nánar í reglugerð um framkvæmd þessarar gr.“ — Það dugar ekki einu sinni til, að það sé fært í lög, að skólastjóri og kennarar skuli tala við nemendur. Það þarf að kveða nánar á um það í reglugerð, hvernig það skuli framkvæmt. Þvílík er nú nákvæmnin í uppbyggingu þessa frv., og er hugað að því þegar að færa þessa nákvæmni á enn æðra stig í reglugerð. Fyrr má nú vera. Það er ekki að furða, þótt hv. 3. þm. Vestf., sem sjálfur er fyrrv. skólastjóri og kennari, komi hér og lýsi yfir, að það séu engir áberandi vankantar á þessu frv., enda hlyti hann þá sem slíkur, ef hann áliti það vera, að hafa sniðið þá af við meðferð málsins í þeirri n., sem hann er formaður fyrir.

Hv. þm, líkti þeirri dagskrártill., sem hér liggur fyrir, við þetta frv. Hún væri löng og loðin, sagði bann. Hún er þó ekki nema tæplega ein vélrituð síða með haus og öðru, miðað við það, að frv. er þó 40 síðum lengra. Ég skal ekki eyða orðum í slíkt mál. Hann líkti frv. einnig við landbúnaðarlöggjöfina, sem hann taldi, að ég væri kunnugur. Það er rétt, að sumir lagabálkar landbúnaðarlöggjafarinnar eru til óþurftar langorðir og þ. á m. sum þau frv., sem við hv. 3. þm. Vestf. fjöllum um þessar vikurnar í þn. En ég get sagt honum það, að þar sem ég hef komið að lagasmíð í sambandi við gildandi landbúnaðarlöggjöf, hefur eitt atriðið af þeim, sem ég hef haft í huga, einmitt verið að færa þá þætti löggjafarinnar til styttra og skýrara máls, og það álít ég kost á hverri löggjöf, hvort sem hún fjallar um skóla- og menntamál eða landbúnaðarmál eða hvað annað. Ég tel, að frv. sé a.m.k. helmingi of langt og væri ákaflega þægilegt að stytta það mjög.

Hv. þm. beindi því til okkar andófsmanna, sem hann kallaði: Úr því að þið eruð óánægðir með þetta og ýmsir vankantar að ykkar áliti á frv., hvers vegna hafið þið ekki flutt brtt? Til þess ætti að hafa gefist nægur tími á þrem árum í hv. d. — Ég skal taka það fram, að ég lít svo á, að það sé eðlileg starfsvenja Alþ., þegar um svo viðamikil mál sem þetta er að ræða, að sú þn., sem um málið fjallar, láti koma fram sitt álit og skili brtt., ef hún telur, að þess sé þörf, og það hefur þessi þn, gert, þar sem fram hafa komið ýmist frá n. í heild eða einstökum nm. milli 80 og 90 brtt. Hvort tveggja er, að þær brtt., sem fram komu frá fulltrúa míns flokks í n., hlutu ekki þá afgreiðslu, sem ég taldi viðunandi, og að öðru leyti verð ég fyrir miklum vonbrigðum með þær hinar mörgu brtt. n., sem fluttar voru. Enda þótt þær væru margar hverjar nokkuð til bóta, var ekki höggvið á meginókosti frv., sem ég hef gert nokkuð að umtalsefni. Það var ekki farið í það að stytta frv., færa það til skýrara og hnitmiðaðra máls. Það var ekki farið í það að höggva á hið margslungna og ótrúlega flókna stjórnunarkerfi þess. Það var ekki horfið að því að fella niður hina óþörfu lengingu skólaskyldunnar. Það voru að vísu auknar undanþágur til frávika í lengd skólaársins, sem er til verulegra bóta, en það hefur þó vissa annmarka í för með sér að gefa undir fótinn með það, að allt aðrar reglur gildi í strjálbýli en þéttbýli. Og þó að það sé vitað, að þéttbýlisfólkið vilji gjarnan hafa börn og unglinga sem lengst í skólum til þess að losna við börnin af heimilunum eða af götunni, þá er ekki þar með víst, að það sé best að hafa skólatímann sem lengstan. Ástæða kynni að vera til þess að taka það upp í ríkum mæli að efna til námskeiða fyrir þéttbýlisbörn og unglinga úti í strjálbýlinu, og mætti þá nota skólastofnanir þar til þeirra hluta. Þó að venjulegu skólanámi væri lokið, mundi það veita börnum þéttbýlisins aukinn þroska að hverfa í nokkrar vikur til dvalar í skólum úti í strjálbýlinu, þar sem unnt væri undir leiðsögn kennara og annarra starfsmanna skóla að veita þeim innsýn í atvinnuhætti þjóðarinnar og auka þroska þeirra með kynnum af atvinnulífinu, kynnum af landsháttum og því lífi og starfi, sem fram fer í því umhverfi, sem þau hafa lítt kynnst til þess tíma. Ég hygg, að þar væri fundin leið til þess að nýta heimavistarskólana, sem eru úti á landsbyggðinni, til þess að auka þroska unglinga og barna úr þéttbýlinu að miklum mun og ætti að gefa meiri gaum en gert hefur verið til þessa.

Það er nokkuð rétt í því, að það eru ekki aðstæður til þess fyrir atvinnuvegina að taka til sín alla þá unglinga, sem þess þyrfti með, úr þéttbýli til þess að hafa með þeim hætti áhrif á þroska þeirra. Það er virðingarvert og gott, hvað unnt er að sinna í þeim efnum. En ég held, að með því að taka heimavistarskólana úti í strjálbýlinu undir slíka þjónustu og kynna nemendum starfið, sem fram fer úti á landi, undir leiðsögn hæfra manna, þá væri fundin leið til þess að auka verulega við það ágæta starf og þá miklu þjónustu sem rækt hefur verið í þessu efni af einstaklingum og í sumum tilvikum af barnaheimilum. Ég vil líta svo á, að með þessum hætti gegndu heimavistarskólarnir úti í strjálbýlinu ekki lakara hlutverki heldur en með því að leigja þá Ferðaskrifstofu ríkisins fyrir erlenda ferðamenn.

Ég skal ekki lengja þessar umr. Með hliðsjón af því, sem hér hefur verið sagt, að frv. þessu er ekki ætlað að taka gildi þegar í stað, þótt að lögum verði, það er gert ráð fyrir alllöngum aðlögunartíma eða allt að 10 árum, þá er ekki af þeim sökum hægt að telja, að það sé stefnt í neina ófæru eða til neins teljandi baga a.m.k., þótt svo að afgreiðslu þessa máls verði frestað um eitt ár til viðbótar. Það mætti þá gjarnan stytta aðlögunartíma að gildistökunni um eitt eða tvö ár og jafnvel meira, ef árangur af endurskoðun verður slíkur, að sem flestir mættu vel við una. Það er því ekki hægt að bera við þessari röksemd fyrir því, að ekki megi nú fresta afgreiðslu frv. um eitt ár. Hitt er þó veigamest í mínum augum og að ég hygg okkar allra, sem stöndum með þeim hætti sem kostur er og búa hana svo úr garði, að sem flestir geti verið ánægðir í sambandi við það, hvernig lyktir málsins verða.

Það er sem sé ekkert smámál, sem hér er á ferðinni.Það er ekkert smámál að setja löggjöf um undirstöðumenntun þjóðarinnar. Það er ekkert smámál að búa svo um hnúta um skólastarf og menntun æskufólksins, að áhrif þess megi verða sem best fyrir framtíð þjóðarinnar, sem fólgin er í þessu unga fólki. Og það þarf að gæta þess vandlega að samþykkja ekki ákvæði eins og að mínum dómi felast í þessu frv., sem hafa skaðleg uppeldisáhrif á æskufólkið í landinu, þegar með skýrum rökum er hægt að benda á, að unnt er að ná sömu markmiðum með öðrum hætti, en þar á ég við að taka upp fræðsluskyldu í stað skólaskyldu í tveimur efstu bekkjum grunnskóla. Hér er sannarlega um þýðingarmikið mál að ræða, — mál, sem enginn ætti að gerast talsmaður fyrir, að kastað yrði til höndum, sem enginn hv. þm. ætti að gerast talsmaður fyrir, að afgreitt yrði með þeim hætti, að kannske nálega helmingur alþm. væri tilbúinn að greiða atkv. gegn því, en sum ákvæði frv. hafa við 2, umr. verið samþ. með minni hl. alþm. í þessari hv. d. Með sama hætti ætti enginn hv. alþm. að gerast talsmaður þess að afgreiða svo þýðingarmikið mál sem þetta, þegar vitað er, að mjög mikill fjöldi þeirra manna, sem gerst þekkja til á því stigi skólastarfsins, sem þetta frv. fjallar um, eru andvígir ýmsum ákvæðum þess. Ég vil því fastlega vænta þess með hliðsjón af því, að um svo þýðingarmikið mál er að ræða, að það verði ekki knúið í gegn, áður en grandskoðað er, hvernig best verði til þess vandað, og að enn verði horfið að því ráði að taka málið til nýrrar endurskoðunar með það að leiðarljósi að ná fram sem bestri niðurstöðu fyrir æskulýð landsins og framtíð þjóðarinnar.