18.04.1974
Sameinað þing: 75. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3695 í B-deild Alþingistíðinda. (3278)
299. mál, nýting innlendra orkugjafa
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Hér eru tvö mál rædd samtímis, annars vegar till. til þál. um nýtingu innlendra orkugjafa og hins vegar skýrsla hæstv. iðnrh. um nýtingu innlendra orkugjafa í stað olíu. Þeir hv. þm., sem hér hafa talað, hafa þakkað hæstv. ráðh. fyrir þessa skýrslu. Ég ætti kannske að bæta við og segja: þakka fyrir kærlega. En hvað sem um það má segja, hvort þessi skýrsla er í fyllsta máta ágæt eða fullnægjandi, þá má segja, að hæstv. ráðh. hafi sýnt viðleitni með því að leggja hana fram, og rétt er það, sem sagt var hér áðan, að talsverður fróðleikur er í þessari skýrslu.
Um till. er öðru máli að gegna. Einhver sagði hér áðan, að í henni fælist sýndarmennska. Ég fyrir mitt leyti hef enga ánægju af því að segja nokkuð niðrandi eða ljótt um hæstv, iðnrh. En það liggur við, að ég geti tekið undir þetta. Till. þessi er óþörf, vegna þess að hæstv. ráðh. hefur allar heimildir til þess að gera og láta gera það, sem farið er fram á, að Alþ. samþykki með till. Þess vegna er það í rauninni óviðeigandi fyrir hæstv. ráðh. að vera að flytja þessa till. hér á hv. Alþ. og fara þess á leit, að hún verði samþ. Hæstv. ráðh. hefur Orkustofnunina og sérfræðinga hennar og hefur fullar heimildir til þess að auka við liðskostinn þar, til þess að Orkustofnunin vinni þessi verk. Og því fremur er þessi till. óþörf, að það er vitað, að það er ekki nokkur þm., sem vill mæla á móti því, að þetta verði gert, sem ætlast er til, að unnið verði samkv. till.
Það er sjaldan til mikils gagns að tala langt mál og leggja fram langar skýrslur, nema því fylgi raunhæfar aðgerðir. Málskrúðið dugar ekki til lengdar. Það getur dugað í bili, en ekki til lengdar. Það kemur að því, að það verður spurt: Hvað um aðgerðir? Mig minnir, að það séu tvö ár síðan hæstv. iðnrh. lagði fram heildaráætlun, eins og það var kallað, um iðnþróun á Íslandi. Þetta var rammi um iðnþróunaráætlun, sem unnin var á vegum Sameinuðu þjóðanna eftir beiðni fyrrv. iðnrh., Jóhanns Hafsteins. Þetta var aðeins rammi, þessi rammi gaf talsverðar vonir, og iðnrekendur margir voru sérstaklega ánægðir yfir því, að þetta væri þó komið áleiðis. Þá ríkti enn talsverð bjartsýni hjá iðnrekendum og þeim, sem við iðnað fást í þessu landi. En þessi áætlun var aðeins einn liður í því, sem þurfti að gera, til þess að iðnaður gæti þróast í landinu.
Ég ætla ekki nú að fara að rekja ástæðuna fyrir því, hvers vegna ekki ríkir lengur bjartsýni í iðnaðinum, hvers vegna svo er komið, að menn eru daprir og vonlitlir: Menn minnast þess, að það er ekki langt síðan í sjónvarpinu var viðtal við forustumann Félags ísl. iðnrekenda. Ég býst við því, að margir hafi hlustað á það samtal. Hann lýsti því dapurlega, hvernig núv. stjórnarfar hefur farið með iðnaðinn og þá þróun, sem stefnt var að og hæstv. iðnrh. hefði örugglega viljað vinna að, þótt hann hljóti nú að viðurkenna, að það hafi mistekist. Iðnaðurinn þarf orku, og hann er samtvinnaður því máli, sem hér er um að ræða.
Till. er fyrr á dagskránni og þess vegna eðlilegt að fara nokkrum orðum um hana, áður en rætt verður um skýrsluna.
Menn minnast þess, að fyrrv. ríkisstj. lét vinna mikið að rannsóknum, bæði virkjunarrannsóknum og eins að því að rannsaka jarðhitann og nýtingu hans. Í tíð fyrrv. ríkisstj. voru keyptir jarðborar til landsins, sem alltaf höfðu ærið verkefni að vinna. Hitaveitur voru auknar víðs vegar um landið, þar sem aðstaða var til þess, og að því stefnt að halda slíku áfram, m.a. með stöðugum og auknum jarðborunum. Sama máli gegndi um virkjunarframkvæmdir og rannsóknir í virkjunarmálum, enda er viðurkennt og verður ekki rengt, að virkjað afl margfaldaðist í tíð fyrrv. ríkisstj., tíu eða tólffaldaðist. Sama máli gegnir um dreifingu raforkunnar á þessum tíma. Það var unnið að þessum málum með meiri hraða en nokkru sinni fyrr. Skilningur manna, hvar í flokki sem þeir eru eða voru, var fyrir hendi, og menn gerðu sér ljóst, að jarðhitinn og vatnsaflið eru námur, eru auðæfi, sem þetta land þarf að nota.
Hæstv. núv. iðnráðh. misskildi stundum, þegar hann var í stjórnarandstöðu, hversu mikils virði það er að virkja þetta afl. Menn minnast þess, að þegar rætt var um virkjun við Búrfell, stórvirkjun, þá fannst honum í mikið ráðist. Og hann flutti till. um að fá heimild til að virkja smávirkjun, um 30 þús. kw., í Efstadal. Hæstv. ráðh., þáv. hv. þm. Reykv., hefði ekki flutt þessa till. um smávirkjun, ef hann hefði þá gert sér grein fyrir gildi stórvirkjunar, fyrir mikilvægi þess fyrir þjóðarbúið að nota vatnsaflið í stórum stíl, eins og nú er gert, en þarf að auka og gera miklu betur. En till. þessi verður lesin upp í útvarpinu, hún verður prentuð í þingtíðindunum, og það verður talað um þetta, og hún verður prentuð í ýmsum blöðum, þegar þau fara að koma út. Og það verður sagt frá því, að hæstv. ráðh. hafi flutt þessa till. á Alþingi og hann hafi birt þá stefnu, sem hann vill vinna eftir.
Sannleikurinn er sá, að hér er ekki um neina nýja stefnu að ræða. Hér er aðeins um það að ræða að halda áfram þeirri stefnu, sem fyrrv. ríkisstj. markaði og vann eftir. En það er rétt, sem sumir hv. alþm. hafa sagt í þessum ræðustóli, að síðan núv. hæstv, ríkisstj, var mynduð og tók til starfa hefur verið unnið hægt að ýmsum rannsóknarmálum, allt of hægt. Það hefur miðað áfram í sambandi við jarðhitamálin, það hefur miðað áfram eðlilega má segja að mestu leyti, en þó alls ekki með meiri hraða en áður var, sennilega nokkru minni. En rannsóknir í virkjunarmálum hafa verið með hægagangi, sbr. það, að ekki er enn lokið virkjunarrannsóknum við Kröflu, og þegar hæstv. ráðh, síðast í dag var að tala um, að það yrði virkjað við Kröflu, þá er ekki hægt fyrir hæstv. ráðh, að fullyrða neitt um það enn sem komið er, vegna þess að rannsóknum er ekki lokið. En við skulum vona, að það verði virkjað annaðhvort við Kröflu eða Námafjall, og það er það, sem Alþingi hefur gefið heimild til. Verði virkjað við Námafjall. er tímabært fyrir hæstv. ráðh. að athuga, eins og ég benti á í vetur, hvort nokkrar tafir geta orðið á því vegna afstöðu heimamanna, vegna þess að þeir óttist mengun í Mývatni, ef um virkjun í Námafjalli verður að ræða. Það er vitanlega raunalegt, hversu hefur tafist með lokarannsókn við Kröflu, og það er í sjálfu sér óskiljanlegt, því að það er rétt, sem hér hefur verið sagt, að orkumál Norðlendinga eru ekki í góðu lagi.
Við höfum nokkuð oft minnst á Laxárdeiluna og Laxárvirkjunina, og ég ætla engar ásakanir að bera fram á hendur einum eða neinum í því sambandi. Hitt vitum við, að ef heimilað hefði verið að virkja með 20 m hárri stíflu í Laxá, eins og sýslunefnd Suður-Þingeyjarsýslu og eins og Búnaðarsamband Suður-Þingeyjarsýslu var búið að samþykkja þá væri þarna 13–14 mw. meiri virkjun og öruggari en nú er. En eins og hv. 5. þm. Norðurl. e. sagði áðan, þegar það var ljóst, að þetta fékkst ekki, þá vitanlega lá á því og var nauðsynlegt að leggja áherslu á lokarannsóknir við Kröflu, til þess að unnt væri að hefjast þar handa með virkjun eða í Námafjalli fyrr en nú er mögulegt.
Þetta er mál út af fyrir sig, og má segja, að ekki þýði að vera að deila um orðinn hlut, orkumálum Norðlendinga verði ekki bjargað með því, úr því sem komið er, heldur beri nú að leggja meiri áherslu á en hingað til hefur verið gert að finna heppilegustu lausn á þessum málum. Það má segja, að ástæðulítið sé að vera að amast við þessari till., ekki muni hún tefja fyrir, þótt hún verði samþ. Það geta allir verið sammála um það. Hún tefur ekki fyrir. Hún flýtir á engan hátt fyrir heldur, vegna þess að ráðh. hefur möguleika til þess að láta vinna verkið, hvað sem till, liður, Eitt er það, að þessi till., þótt hún verði samþ., gefur ekki fjármagn, gefur ekki vinnuafl og skapar enga aðstöðu til að hraða framkvæmdum á einn eða annan hátt.
Það er eðlilegt, að þm. flytji till. til þál. Þm. flytja till. til þál. til að koma áhugamálum sínum á framfæri og til að leitast við að fá samþykkt Alþ. fyrir þeim málum, sem þeir bera fyrir brjósti. Þegar Alþ. hefur samþykkt eða gert slíkar ályktanir, þá er það ríkisstj., sem fær beinlínis kröfu frá Alþingi um, að framkvæmdir verði í samræmi við till. Hitt er miklu óvenjulegra, að ráðh. flytji till. eins og í þessu efni og fari þess á leit við Alþingi, að það gefi leyfi til þess að vinna að málum, sem heyra beint undir sama ráðh., og málum, sem ráðh, hefur fullar heimildir til þess að láta vinna að, eins og jarðhitarannsóknum og virkjanarannsóknum.
Ég ætla ekki, vegna þess að tíminn er takmarkaður, að eyða fleiri orðum um þessa till. En ég vil segja það, að ég tel brýna nauðsyn bera til að gera áætlanir bæði í jarðhitamálum og virkjanamálum og einnig um dreifingu raforkunnar, og það er ekkert vafamál, að það er þjóðarnauðsyn að vinna að því eftir fremstu getu, að sá orkugjafi, sem við höfum í jarðhitanum og í fallvötnunum, verði notaður bæði til að spara gjaldeyri og til að skapa gjaldeyri.
Það var sagt hér áðan, að hæstv.iðnrh. hefði verið vakinn á s.l. hausti af værum blundi, þegar olíuverðið hækkaði 23, nóv. Ég skal ekkert fullyrða um, hvort hæstv, ráðh, hefur sofið fast á verðinum til þess tíma. En hæstv. ráðh. hefur þó eftir 23. nóv. látið nokkuð til sín taka og til sín heyra í sambandi við orkumálin, og er það vel. Það fer ekki á milli mála, að það er mikils virði fyrir Ísland. Það gerir hvort tveggja að spara gjaldeyri og skapa gjaldeyri, ef við getum komist hjá því að nota svo mikið af innfluttum orkugjafa, olíunni, eins og við gerum nú. Það verður ekki komist hjá því, að við verðum að kaupa bensin á bilana og olíu og við verðum að kaupa olíu á skipaflotann. En ef við getum komist hjá að nota olíu til húskyndingar og ef við getum komist hjá að nota dísilvélar sem orkugjafa fyrir iðnaðinn, þá er mikið unnið. Þá sparast ekki hundruð millj. kr., heldur þús. millj. kr., og um þetta er áreiðanlega allir alþm. sammála. Þess vegna þarf ekki að spyrja Alþingi um leyfi, hvort eigi að gera áætlanir, hvort eigi að halda áfram rannsóknum á virkjunum eða í jarðhitamálum. Það eru allir alþm., hvar í flokki sem þeir eru, þessu fylgjandi, fylgjandi þeirri stefnu, sem fyrrv. ríkisstj. vann eftir, að rannsaka jarðhitamálin, virkjunarmálin og dreifa orkunni út um landið.
Ég skrifaði eftir hæstv. ráðh, áðan, þegar hann var að tala um, til hvers við gætum notað innlenda orku. Hann talaði um heykögglaverksmiðjur sem dæmi, Ég er nú einn af þeim þm., sem telja sig hafa haft skilning á því, hvað það gæti haft að segja, en það vil ég segja hæstv. iðnrh., að það er of mikil bjartsýni hjá honum, að við getum í næstu framtíð framleitt það mikið af heykögglum, að við þurfum ekki á innfluttum fóðurbæti að halda. Ég held, að það eigi ákaflega langt í land. En ég er þeirrar skoðunar, að við getum aukið heykögglaframleiðsluna og minnkað innflutning á erlendum fóðurbæti og að við eigum að geta framleitt þessa heyköggla með innlendum orkugjafa, en ekki olíu, eins og við gerum að mestu leyti nú. Húsahitunin þarf að fara fram annaðhvort með heitu vatni eða rafmagni. Sem dæmi um það, hversu mikið hefur verið unnið að þessum málum á undanförnum árum, er, að meira en helmingur íbúa landsins notar jarðhita eða rafmagn til upphitunar húsa. Mig minnir, að það séu um 115 þús. manns. En vissulega ber að keppa að því, að allt húsnæði verði hitað upp með jarðhita eða rafmagni, allt húsnæðið, og að því verður að vinna. Sannleikurinn er sá, að það liggja fyrir áætlanir að mestu leyti um þetta þegar í dag. Þetta er dýrt. En menn hugðu fyrir þremur árum, að það ætti ekki langt í land, það gæti tekist að koma innlendri orku þannig fyrir, að flestir landsmenn gætu notið hennar. En ég er hræddur um nú, eins og komið er, þótt vilji stjórnvalda og annarra væri fyrir hendi, að þetta geti tafist vegna þess, hvernig okkar efnahagsmál eru í dag eftir fjögurra, fimm ára góðæri. En það segir sina sögu og væri allt of langt mál, ef farið væri að blanda almennum stjórnmálaumr. inn í þetta mál. Ég veit, að hæstv. iðnrh. hefur betur en sumir hinir ráðh. gert sér grein fyrir því skipbroti, sem núv. ríkisstj, hefur komið efnahagsmálum landsins í, og ber að viðurkenna það, að hæstv, ráðh. hefur nokkuð glöggan skilning á því og hefur gert sér grein fyrir því, að svona getur ekki lengur stefnt.
Á bls. 19 í skýrslu hæstv. ráðh. er gerð grein fyrir stofnkostnaði nýrrar hitaveitu, og á bls. 21 er gerð grein fyrir þeim raforkuframkvæmdum, sem líklegastar eru á næstu árum. Það kostar mikið fé að framkvæma þetta, en það sparar líka mikinn gjaldeyri, þegar það er komið í gegn, og reikningslega borga þessar framkvæmdir sig mjög vel. Reiknislega eru þessar framkvæmdir, hitaveitur og virkjanir, mjög arðberandi, og þess vegna er það, að við verðum að nota okkar lánstraust út á við og fjáröflunarleiðir inn á við til þess að fjármagna þessar framkvæmdir með eins miklum hraða og eins miklum þunga og við getum á þetta lagt. Það er þjóðhagslega nytsamt og það borgar sig vel og styrkir undirstöðuna undir velgengni þjóðarinnar og þjóðarbúsins. En það er hætt við, að þjóðin öll verði að gjalda þess, hversu komið er í okkar efnahagsmálum, að þetta verði allt seinvirkara en það hefði getað orðið, ef rétt hefði verið haldið á okkar efnahags- og fjármálum.
Það er ýmislegt, sem fram undan er í verkefnum þessarar þjóðar, og möguleikarnir eru miklir. Þess vegna segi ég það, að þótt nokkuð syrti í álinn og þótt þjóðin búi nú við lélega ríkisstj., sem ekki getur haldið í horfi í besta góðæri, sem yfir þjóðina hefur komið, er ekki ástæða til svartsýni. Sem betur fer búum við í lýðræðisþjóðfélagi, sem gerir ráð fyrir kosningum á a.m.k. fjögurra ára fresti, sem gefa möguleika til að skipta um stjórn í landinu. Okkar land er svo gott og á svo mikinn auð, að þótt illa fari efnahagslega í bili, tekst örugglega að byggja upp aftur og treysta grunninn undir þjóðfélagsbyggingunni, Þess vegna verður haldið áfram að virkja, og það verður haldið áfram að auka notkun jarðhitans, byggja upp iðnað í landinu, bæði smærri og stærri, og það er vissulega fagnaðarefni, að hæstv. iðnrh. hefur nú gert sér grein fyrir því, að okkur nægir ekki aðeins smáiðnaður, við þurfum einnig að fá inn í landið stærri iðnað og arðgefandi, orkufrekan iðnað, til þess að við getum haldið áfram að virkja og fengið arð úr vatnsaflinu.
Hæstv. iðnrh. talaði um það í dag, hvað það væri sem yrði virkjað. Hann nefndi Kröflu eða við Námafjall. Það hlýtur að verða að virkja fyrir norðan. Þeir geta ekki verið lengur í orkusvelti. Hann talaði um Sigölduvirkjun og Hrauneyjafossa og sagði, að það þyrfti að taka Hrauneyjafossa fljótt, vegna þess að orkan frá Sigölduvirkjun yrði að nokkru notuð fyrir stóriðnað. Ég er alveg sammála hæstv, iðnrh. En í tilefni af þessu vil ég nota tækifærið og spyrja hæstv. iðnrh., hvernig á því stendur, að hann hefur ekki enn flutt frv. um járnblendiverksmiðjuna, sem ég hélt, að hæstv. ríkisstj. hefði ákveðið að byggja. Ég veit, að starfandi hefur verið n. um orkufrekan iðnað, sem hefur gert samkomulag eða samning við stórfyrirtækið Union Karbide um að stofna sérstakt félag um byggingu járnblendiverksmiðju í Hvalfirði. Samningarnir eru til, en þeir hafa ekki verið undirskrifaðir. Uppkast að frv. um þessa verksmiðju hefur verið samíð. Það var gert ráð fyrir því á s.l. sumri og í allan vetur, að frv. um þetta yrði flutt. Hæstv. ríkisstj, óskaði eftir því, að þingflokkarnir tilnefndu sinn manninn hver í n, til að fylgjast með þessu máli. Þetta var gert á s.l. sumri, í ágústmánuði, að mig minnir, og þingflokkarnir, bæði stjórnarflokkarnir og stjórnarandstaðan, hafa því fylgst með þessu máli. Ég hef átt sæti í þessari n. og fylgst með málinu, og það var fullyrt, að ríkisstj, stæði að þessum samningaumleitunum, sem n. um orkufrekan iðnað vann að, og það var fullyrt á s.l. hausti, að það yrði flutt frv. um þetta og ákvörðun tekin um byggingu verksmiðjunnar. Það var meira að segja tímasett, hvenær verksmiðjan skyldi taka til starfa. Það átti að vera á miðju ári 1976, en ef verulega vel gengi í ársbyrjun 1976. Ég efast ekkert um, að hæstv. iðnrh. hefur fylgst með þessu og n. hefur unnið undir hans stjórn og að hans fyrirlagi að þessum samningum. En nú er komið að lokum þessa þings, og þess vegna efast ýmsir um, að þetta frv. verði flutt nú, heldur verði geymt til næsta hausts, eða a.m.k. telja þeir, sem standa nærri hæstv, ráðh., að það muni verða flutt í haust, úr því að það var ekki flutt núna. Það væri fróðlegt, ef hæstv. ráðh, vildi gefa alþm. upplýsingar um, hvernig málið stendur frá hans hendi, því að sannleikurinn er sá, að það virðist ekki, eins og sakir standa, um annan orkufrekan iðnað að ræða, sem gæti keypt raforku frá Sigöldu nú strax, heldur en þann, sem hér um ræðir. Ég fer fram á, að hæstv. ráðh. gefi upplýsingar um það, ef svo er, að samningar hafi ekki gengið það vel, að bann telji þess virði að byggja verksmiðjuna á þeim grundvelli, sem það samkomulag er, sem nú liggur fyrir. Ég skrifaði eftir hæstv. ráðh, áðan, að hann reiknaði með orkufrekum iðnaði sem kaupanda að orkunni frá Sigölduvirkjun og taldi í tilefni af því eðlilegt og nauðsynlegt, að ráðist yrði í Hrauneyjafossavirkjun strax í framhaldi af Sigölduvirkjun. Ég er þeirrar skoðunar, að það sé nauðsynlegt að fá orkufrekan iðnað og halda áfram að virkja, um leið og við reynum að nota orkuna sem mest í eigin þarfir, t.d. til húshitunar. Þó að það megi telja nokkuð mikið, sem þarf til húshitunar, er það svo, að það tekur talsverðan tíma að breyta um kerfi og dreifa, hvort sem það verður rafhitun eða jarðhiti, svo að það nægir okkur ekki til þess, að við getum haldið áfram að virkja t.d. í Þjórsá og virkja stórt einnig fyrir norðan eða austan. Til þess að það megi verða, þurfum við meira en þann iðnað, sem landsmenn sjálfir geta komið upp. Við þurfum orkufrekan iðnað, sem byggður er upp að einhverju eða verulegu leyti með erlendu fjármagni, og það hefur hæstv. iðnrh. ætlað sér að gera, þegar hann lagði grundvöllinn að viðræðunum við Union Karbide-hringinn.
Hér hefur verið rætt nokkuð um hitaveitumál Reykjavíkur og nágrennis. Segja má, að það sé mikils virði, að Reykjavíkurborg hefur haft dug og kjark til þess að nýta jarðhitann fyrir borgarbúa. En það er líka mikils virði, að Reykjavíkurborg hefur verið fær um að láta nágrannana njóta þess, að framkvæmdir hafa verið örar og miklar í Reykjavík. Ég held, að bæði Hafnarfjarðarbær, Kópavogur og fleiri nágrannasveitarfélög geti verið þakklát Reykjavík fyrir það framtak og þann vilja, sem borgarstjórn Reykjavíkur hefur sýnt í því að útbreiða hitaveituna. Í tilefni af því, sem einn hv. ræðumaður sagði hér áðan, vil ég nú halda því fram, að Hafnfirðingar megi vera þakklátari borgarstjórn Reykjavíkur heldur en hæstv. iðnrh, fyrir það samkomulag, sem gert hefur verið milli Reykjavíkurborgar og Hafnarfjarðar. Nú efast ég ekkert um það, að hæstv. iðnrh. hefur viljað greiða fyrir þessu samkomulagi. En ýmsum fannst samt sem áður dragast óþarflega lengi hjá hæstv. ráðh. að svara bréfum borgarstjórnar. Sumir segja, að það hafi verið í nokkra mánuði. Eitt er víst, að það var skilyrði hjá Reykjavíkurborg og hlaut að vera það fyrir auknum framkvæmdum, að hún þyrfti ekki að reka þetta fyrirtæki með miklu tapi, eins og orðið hefði, ef hún hefði ekki fengið hækkun gjaldskrárinnar. í fyrirtæki, sem til lengdar er rekið með tapi, hlýtur að koma stöðnun og verður ekki lengur Útbreiðsla þar. Slíkt fyrirtæki fær ekki heldur lán, hvorki erlendis né innanlands, til aukinnar starfsemi og útfærslu. Þegar gjaldskrárhækkunin fékkst, þá tókust samningarnir, og er vel, að það gerðist. Ásakanir í garð hæstv. iðnrh, ætla ég ekki að færa fram vegna þessara tafa. Þær hafa sennilega verið óþarflega miklar. En vissulega er honum nokkur vorkunn og ríkisstj., þótt hún samþykkti ekki strax á sama degi allar þær hækkanir, sem beðið er um. En hækkanirnar dynja yfir á öllum sviðum daglega, og menn eru að kafna undan öllum þessum hækkunum og undan allri þeirri dýrtíð, sem leiðir af stjórnarfarinu.
Ég hef reyndar heyrt hæstv. iðnrh. tala oft um erlenda dýrtíð. Það er þessi erlenda dýrtíð, sem enginn ræður við. Og vissulega er það rétt, að það er ekki á okkar valdi að stjórna verðlagsmálum erlendis. Það er ekki á okkar valdi, hvort byggingarefni hækkar erlendis, matvara eða aðrar neysluvörur. En við vitum samkv. opinberum skýrslum, að þessar verðhækkanir erlendis eru aðeins 1/3 af verðbólgunni hér. Ég hlustaði á útvarpið, þegar verið var að segja frá verðlagsmálunum í OECD-löndunum á s.l. ári, og Íslendingar hafa víst orðið hreyknir af því, að þeir áttu ekki metið, eins og skýrslan var sett fram. Hæstv. ríkisstj. hefur áreiðanlega orðið mjög hrifin af því, að hún átti ekki metið að þessu sinni. Verðbólgan hér á s.l. ári var ekki nema 32%, en í Grikklandi var hún 33%, og þá var miðað við 28. febr. 1973 til 28. febr. 1974. En hæstv. ríkisstj, var heppin, að það skyldi ekki vera 1. mars 1974, sem miðað var við, því að ef það hefði verið, þá hefði hún áreiðanlega slegið metið og verðbólgan hér verið 40% á þessu árstímabili, en ekki 32%. Verðbólgan í nágrannalöndunum var frá 7–12% á þessum sama tíma. En það er annað mál. Það má segja, að þetta komi ekki við skýrslu hæstv. iðnrh.
Samkv. þessari skýrslu er augljóst, að Orkustofnunin hefur ekki verið aðgerðarlaus og það hefur verið unnið að ýmsum athugunum á s.l. ári og þörfum málum, þótt benda megi á, að á sumum sviðum hefði þurft kannske meiri mannafla til þess að flýta því, sem beðið er eftir, sbr. virkjunarrannsóknir við Kröflu.
Það hefur verið minnst á þær þáltill., sem bornar voru fram snemma á þessu þingi. Hv. 3. þm. Sunnl. Guðlaugur Gíslason, og hv. 2, þm. Vesturl., Jón Árnason, fluttu snemma till. um nýtingu raforku til húshitunar og verðjöfnun á raforku. Þessari till. er vísað til ríkisstj., en allir alþm. eru sammála þessari till. og undirstrika það, sem ég sagði, að hæstv. ríkisstj. hefur allar heimildir og vilja Alþingis til þess að gera það, sem nefnt er í till. til þál., sem hæstv. ráðh. leggur fram. Hv. þm. Alþfl. þrír flytja till. snemma á þessu þingi um úrræði til að minnka olíukaup erlendis frá. Þessi till. gengur að nokkru í sömu átt. Og þá eru það þm. Sjálfstfl., sem fluttu einnig snemma á þessu þingi till. til þál. um, að hraðað verði rannsóknum og framkvæmdum á nýtingu jarðhita. Þetta er það veganesti, sem hæstv. ráðh. hefur, og hann hefur viljayfirlýsingu hv. alþm. Vegna þess að þessi till. hæstv. ráðh., þótt hún sé algerlega óþörf, getur ekki á neinn hátt spillt fyrir þessu máli, efast ég ekkert um, að Alþ. mun samþykkja till., ef hæstv. ráðh, að athuguðu máli telur ástæðu til að sækjast eftir samþykkt hennar.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa þessi orð fleiri. Þetta hefur orðið talsvert lengra mál en ég ætlaði í fyrstu, en það má segja, að það sé eðlilegt, að þessi mál, orkumálin, jarðhitamálin og virkjunarmálin séu rædd á Alþ. Þetta eru hagsmunamál byggðarlaganna. Þetta eru hagsmunamál þjóðfélagsins í heild. Og það ríður mikið á, að það verði ekkert til þess sparað að nýta þessa orku eins og mögulegt er, spara gjaldeyrinn með því og afla gjaldeyris með því og auka þægindi þjóðarinnar og bæta lífskjörin með því að nota þessa orku og þennan þjóðarauð, sem við eigum. — Fundarhlé.]