06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 396 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

358. mál, áhugaleikfélög

Fyrirspyrjandi (Helgi F Seljan) :

Herra forseti Ég vil þakka hæstv. menntmrh. svörin um það, að þessa frv. sé að vænta mjög bráðlega. Það er orðið mjög brýnt, að ný lög komi um þetta efni. Sannleikurinn er sá, að starfsemi leikfélaganna s. l. ár var það mikil og það vaxandi, að hún hreinlega sprengir þann fjárhagsramma í rauninni, sem henni var ákveðinn lögum samkvæmt. Ég bendi á það, að hæsta möguleg styrkveiting mun nú sennilega verða 90 þús. til einstaks leikfélags, sem er veitt fyrir tvö fullgild verkefni. Samanborið við Akureyri með sín 5 fullgildu verkefni og 11/2 millj. í styrk, segir þetta sína sögu um það, hversu alls ófullnægjandi þessi lægri upphæð er. Akureyringum veitir sannarlega ekki af sinni upphæð. Það er svo annað mál, að Leikfélag Akureyrar er þarna komið út fyrir lagarammann algerlega, og segir það líka sína sögu.

Ég fagna því líka, ef það mætti verða svo, að endurskoðuð lög um Þjóðleikhúsið, og þessi lög um áhugaleikfélögin, eða almenn leikhúslög, verði lögð fram nokkuð samhliða. Ég benti á það við umr. í Ed. um Þjóðleikhúsfrv. á sínum tíma, að mér þætti það eðlilegur og sjálfsagður háttur, að þessi tvö mál yrðu tengd nokkuð saman, og vænti mér þess vegna hins besta af þessu.