18.04.1974
Sameinað þing: 75. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3724 í B-deild Alþingistíðinda. (3287)

299. mál, nýting innlendra orkugjafa

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég skal reyna að vera tiltölulega fáorður, en hæstv. iðnrh. gaf mér tilefni til að segja nokkur orð, þótt hann byrjaði ræðu sína þannig áðan, að hann ætlaði að haga máli sínu á þann hátt, að ekki væri ástæða til að lengja umr. út af hans máli.

Hæstv. ráðh. gaf í skyn, að það væri nú fyrst sem farið væri að gera áætlanir í orkumálum, bæði vatnsvirkjunarmálum og jarðhitamálum, og m.a. þess vegna væri mikill stefnumunur í þessum málum frá því, sem var í tíð fyrrv. ríkisstj.

Aðalstefnubreytingin var þó sú að áliti hæstv. ráðh., að áður hafði ekki verið talið fært að ráðast í stórvirkjanir nema með aðstoð erlendra aðila og stóriðju, sem erlendir aðilar ættu, m.a. álverksmiðju. Hæstv. ráðh. sagðist hafa flutt till. um litlu virkjunina í Efstadal vegna þess, að hann hefði viljað gera tilraun til þess að koma í veg fyrir, að ráðist yrði í stórvirkjunina með það fyrir augum að láta álverksmiðjuna festa hér rætur. Þannig skildi ég hæstv. ráðh.

Álverksmiðjan og álsamningurinn eru í huga hæstv. ráðh. þannig, að stappi næst landráðum. Þetta hefur hæstv. ráðh. sagt bæði í ræðu og riti. Hitt er þó rétt, að á s.l. ári gaf álverksmiðjan nokkuð á annan milljarð kr. í erlendum gjaldeyri og stendur undir öllum erlendum lánum vegna virkjunarinnar við Búrfell. Það er einnig staðreynd, sem ekki verður á móti mælt, að vegna þess að ráðist var í stórvirkjunina við Búrfell og álverksmiðjunni var seld orka, var orkuverð til almenningsnota milli 60 og 70% lægra en það hefði orðið án verksmiðjunnar. Þessu er ekki hægt að mótmæla. Þetta liggur fyrir í opinberum skjölum og útreikningum eftir færustu menn.

Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði talsvert breyst á síðustu mánuðum og jafnvel síðustu árum útlitið í orkumálunum, þannig að nú mætti sjá, að það væru miklu meiri möguleikar á nýtingu orkunnar innanlands en áður var, og þá sérstaklega nú allra síðast, eftir að olían hækkaði. Það er enginn vafi á því, að þessi mikla hækkun, sem er á olíunni, ýtir á að virkja og nota jarðhitann. En þrátt fyrir það höfum við þörf á því að koma hér upp ýmsum atvinnurekstri, sem þarf mikla orku í, og hæstv. ráðh. virðist vera sammála um það.

Hæstv. ráðh. ræddi hér áðan um járnblendiverksmiðjuna, lýsti því, hvernig hún væri til komin og það væri ekki hægt vegna tímaskorts að flytja frv. um hana á þessu þingi, það væri heldur ekkert ánægjulegt að flytja frv. um stórmál nú, þar sem stjórnarandstaðan virtist vera með því hugarfari að snúast gegn öllum málum og gera ríkisstj. erfitt fyrir fremur en að vinna eftir málefnum. Þetta er vitanlega út í bláinn sagt. En í sambandi við járnblendiverksmiðjuna væri hægast fyrir hæstv. ráðh. að leita formlega eftir umsögn stjórnarandstöðunnar, hvort stjórnarandstaðan væri til með að styðja hæstv. ráðh. í þessu máli eða hvort stjórnarandstaðan ætli að snúast gegn málinu. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að ef hæstv. ráðh. leitar eftir umsögn Sjálfstfl. í þessu máli, þá fái hann svar. Það er þess vegna ekki til stuðnings máli hæstv. ráðh. að viðhafa þær kenningar, sem hann notaði hér áðan, í þessu máli eða öðru. Stjórnarandstaðan, a.m.k. Sjálfstfl., hefur miðað sinn málflutning og stuðning eða stuðningsleysi við mál eftir því, hvernig málin eru. En hæstv. ráðh. sagði áðan, og ég held, að ég hafi skrifað það alveg rétt eftir honum, að hann teldi eðlilegt að flytja frv. um járnblendiverksmiðjuna á næsta hausti, ef hann verður í þeirri stöðu þá að vera iðnrh. og fara með þessi mál. Það held ég, að ég hafi skrifað alveg orðrétt eftir hæstv. ráðh., og ef ég fer ekki með alveg rétt mál, þá vitanlega andmælir hæstv. ráðh. því.

Ráðh. sagði áðan, að fylgjast yrði að ákvörðun um virkjun Hrauneyjafossa og um járnblendiverksmiðjuna. Ég get fallist á það. Ég get einnig fallist á það, að innlendi markaðurinn hafi aukist, og um leið, ef ákveðið yrði að byggja hér járnblendiverksmiðju, þá yrði einnig að taka ákvörðun um virkjun Hrauneyjafossa. En það eru hæg heimantökin hjá hæstv. iðnrh. Alþ. hefur gefið heimild til virkjunar Hrauneyjafossa. Það er þess vegna ráðh. og ríkisstj., sem tekur ákvörðun um það, hvort Hrauneyjafossar verði virkjaðir. Það ætti ekki að vera til tafar málinu, þótt aukin virkjun þyrfti að fylgja, ef það þykir hagstætt og eðlilegt að ráðast í byggingu járnblendiverksmiðjunnar. Hæstv. ráðh. sagði, að samningsdrögin um járnblendiverksmiðjuna væru þannig, að þau gætu orðið til hags fyrir þjóðina, ef þau yrðu löggilt og úr verksmiðjubyggingunni yrði.

Hæstv. ráðh. sagði svo í lokin, að það væri skrýtið að vera að tala um, að efnahagsástandið væri slæmt, eins og nú stæði, og hann furðaði sig á því, hæstv. ráðh., að ég hefði talað um það hér í dag. Hæstv. ráðh. talar um velmegunarvandamál. Ég verð að leyfa mér að benda hæstv. ráðh. á, að hagfræðingar og ráðunautar ríkisstj. í efnahagsmálum gera sér grein fyrir vandanum, og þarf ekki annað en að lesa skýrslu hagrannsóknardeildarinnar til staðfestingar á því. Ég ætla ekki hér að fara að vitna í þá skýrslu, þar sem allir hv. þm. munu þekkja, hvað þar stendur, en að tala um það í léttum tón, að nú sé aðeins um velmegunarvandamál að ræða í þjóðfélaginu, það séu í rauninni engir erfiðleikar, það sé unnt að yfirstiga þá með hægu móti og enginn þurfi að hafa áhyggjur af því, það finnst mér vera of mikil léttúð. Ég held, að það sé alveg öruggt, að hæstv. núv. ríkisstj. yfirstígur ekki þennan vanda. Þar verða aðrir til að koma.

Hæstv. ráðh. talaði um, að það væri einkennilegt að vera nú að ræða um, að það hafi verið góðæri í þessu landi. Ég sagði, að undanfarin 4–5 ár hefði verið einstakt góðæri í landinu. Og á s.l. ári var góðæri, þrátt fyrir eldgosið í Vestmannaeyjum. Eldgosið í Vestmannaeyjum var vitanlega áfall. En það var tiltölulega litið áfall miðað við það góðæri, sem annars var í landinu, og þá miklu framleiðslu, sem var, og það hagstæða verð, sem var á okkar útflutningsvörum. Fyrir dugnað Vestmanneyinga náðist undraverður afli á Vestmannaeyjaflotanum á s.l. ári, þrátt fyrir það þótt heimahöfnin væri lokuð. Tjón þjóðarbúsins vegna eldgossins var þess vegna miklu minna en búast hefði mátt við.

Hæstv. ráðh. talaði um, að það væri öðru máli að gegna núna eða 1968–1969, þegar atvinnuleysi var og ýmsir flýðu land. Það var allt annað árferði 1968 og 1969 en hefur verið nú. Þá var vont árferði. Þá var kuldi og kalt til landsins. Þá var grasleysi og erfiðleikar í landbúnaðinum. Þá var mikil aflatregða, og þá var stórkostlegt fall á útflutningsafurðunum, þannig að gjaldeyristekjur þjóðarinnar minnkuðu á tveimur árum um 50%, alveg öfugt við það, sem hefur verið undanfarið, þegar aflaverðmætið hefur alltaf verið að aukast og verðlagið stöðugt að hækka erlendis.

Það er rangt, sem hæstv. ráðh. sagði, að í lok stjórnartímabils fyrrv. stjórnar hefði verið hér atvinnuleysi. Það er algerlega rangt, því að 1970 og 1971 var þjóðin komin yfir erfiðleikana. Þá var ekkert atvinnuleysi. Þá fór árferðið batnandi, og það sást strax, kjör almennings bötnuðu á 12 mánuðum um 19.5%, og það er sú mesta kjarabót, sem launþegar hafa fengið á ekki lengri tíma. Það er þess vegna rétt, sem oft hefur verið sagt og staðfest af hæstv. forsrh., að núv. ríkisstj. tók við góðu búi á miðju ári 1971. Hún tók við blómlegu búi. Atvinnutækin höfðu stórlega aukist. Fyrrv. ríkisstj. endurnýjaði fiskibátaflotann, og hún hafði fest kaup á 19 skuttogurum. Hún hafði endurnýjað og aukið frystihúsakost og byggt fiskimjölsverksmiðjur. Atvinnuleysi var hér ekki nema á aflaleysis- og verðfallsárunum. Ef núv. hæstv. ríkisstj. hefði haldið í horfinu og kunnað að fara með þann arf, sem henni var fenginn í hendur, væri allt annað ástand í efnahagsmálunum en nú er. Þá hefði hagrannsóknadeildin ekki þurft að skrifa þá skýrslu, sem menn nú lesa, og þá væri ekki talað um vandræðaástand og það, að ríkisstj. hrökklaðist sennilega frá á þessu sumri, vegna þess að hún réði ekki við vandann.

Hæstv. iðnrh. hefur annars staðar, og á öðrum vettvangi látið þau orð um munn fara, að ástæða er til að ætla, að hann hafi gert sér grein fyrir því, hvernig efnahag þjóðarinnar er komið. Það er sárgrætilegt, ef enginn hæstv. ráðh., einnig hæstv. iðnrh., hefur komið auga á þetta. Ef svo er, að hæstv. ríkisstj. er öll þeirrar skoðunar, að hér sé aðeins um örlítinn vanda að ræða, sem flokkast undir velmegunarvandamál. þá þarf ekki að búast við því, að núv. hæstv. ríkisstj. sé fær um að gera till. til úrbóta eða leysa þann vanda, sem nú steðjar að.