19.04.1974
Efri deild: 104. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3295)
8. mál, skólakerfi
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Mál þetta og næsta mál, 5. dagskrármálið, frv. um skólakerfi og grunnskóla, eru svo náskyld og grípa svo hvort inn í annað, að ég hyggst ræða þau hér saman í einni framsöguræðu, eins og verið hefur áður, þegar þessi frv. hafa verið til meðferðar á Alþ., ef enginn gerir aths. við, að sá háttur sé á hafður.
Þessi frv. komu fyrst fram fyrir 3 árum rúmum og hafa síðan hlotið endurskoðun og undirgengið miklar breyt. Þau eru mjög sitt með hvoru móti hvað form snertir. Frv. til l. um skólakerfi er stutt og laggott, og er þar kveðið á um, hvernig megindrættir skuli móta skólakerfi landsins. Frv. til l. um grunnskóla er aftur á móti langt og ítarlegt, svo að ýmsum þykir nóg um, en þar eru ákvæði um undirstöðu þess skólakerfis, sem um er fjallað í hinu frv., skyldunámið, sem á að vera sameiginlegur þáttur og grundvöllur að annarri skólamenntun í landinu, og þetta skólastig hefur í þessu frv. hlotið nafnið grunnskóli.
Það er ekki einungis, að þessi mál hafi verið ítarlega rædd í hv. Nd. oftar en einu sinni. Þau hafa einnig mjög verið til umr. manna á meðal á opinberum vettvangi, í blöðum, öðrum fjölmiðlum og á mannfundum. Og þegar frv. komu úr endurskoðun fyrir rúmu ári, var efnt til skipulags fundahalds um land allt, þar sem þeir, sem að endurskoðuninni höfðu staðið og að nokkru leyti að samningu þessara frv. frá öndverðu, ferðuðust um landið og gerðu þeim, sem einkum töldu sig málið skipta, grein fyrir þeim í heild. Þessa fundi sóttu hundruð manna, einkum þó skólamenn og sveitarstjórnarmenn á þeim stöðum, þar sem fundirnir voru haldnir.
Grundvallarsjónarmiðin, sem bæði þessi frv. byggjast á og kveðið er á um sér í lagi í frv. til l. um skólakerfi, eru þessi helst:
Skólakerfið skal vera samfellt, svo að þar sé bein leið milli skólastiga, að menn þurfi ekki að leggja á sig á námsbrautinni útúrkróka til þess að komast í þá námsáfanga, sem hver telur sér best fallna, — að sérhver, sem á annað borð er heilsu sinnar vegna fær um að sækja almennan skóla, hljóti þar þá undirstöðumenntun, að hann eigi kost á framhaldsnámi við sitt hæfi, eftir að skyldunámi er lokið, — og í þriðja lagi, að námsaðstaða sé jöfnuð eins og nokkur er kostur, svo að þar ríði það ekki baggamuninn, hversu foreldrar námsmanna eða námsmenn sjálfir eru efnum búnir né hvar þeir eru búsettir á landinu, í strjálbýli eða þéttbýli.
Það er öllum ljóst, að því fer fjarri, að jafnræði hafi ríkt á undanförnum tímum um námsaðstöðuna, og sérstaklega er það búsetan, sem þar skiptir sköpum, enda bera þess merki þær töflur, sem fylgja frv. til l. um grunnskóla. Þær sýna, að langtum stærri hluti hvers aldursflokks í þéttbýli lýkur hinum hærri prófum á miðskólastigi í þéttbýli heldur en í strjálbýlinu. Þetta stafar að sjálfsögðu af mörgum samverkandi ástæðum, en meginástæðan er sú, að hvergi nærri hefur tekist að skapa sömu fræðsluskilyrði í strjálbýli og í þéttbýli. Einnig er það alkunna, að framhaldsskólar eru misjafnlega á vegi staddir.
Í framhaldsskólakerfinu í heild hallast á á þann veg, að bóknámi er, þegar á heildina er litið, gert hærra undir höfði en verkmenntun. Skilyrði til þess að rétta þennan halla er ekki síst, að almennur menntunargrundvöllur, undirbúningsmenntunin, sé ein og hin sama um land allt, að allir, sem undirstöðumenntunar geta notið, standi jafnt að vígi til framhaldsnáms, þegar henni lýkur, að þar sé ekki eins og nú er óbrúað bil á milli skyldunámsins og þeirra inntöku skilyrða, sem ríkja við framhaldsskólana flesta eða alla.
Til þess að þeim tilgangi, sem ég hef nú lýst í fáum orðum, verði náð, þykir sýnt, að upp verði að taka í ríkum mæli nýja starfshætti á skyldunámsstiginu. Um það er bæði að ræða, að námsefni sé endurskoðað, greiningu námsefnis breytt og þó sér í lagi, að í efstu bekkjum grunnskólans komi til sögunnar bæði breyttir kennsluhættir, breytt námsefni og breytt námsfyrirkomulag. Þar er gert ráð fyrir, að tekið verði upp verknám í tengslum við atvinnulíf. Þar eiga að koma til sögunnar valgreinar og nokkur aðgreining námssviða í því sambandi, og til þess að þessu námsefni verði annað, er gert ráð fyrir lengingu skólaárs.
Árangurinn af þessum breyt. á að verða sá, að úr hinu almenna undirstöðunámi komi nemendur stórum betur undirbúnir en nú er. Til þess er talið, að bæta þurfi 9. skyldunámsárinu við þau 8, sem fyrir eru, svo að skyldunámíð lengist um eitt ár. En með þeim breyttu kennsluháttum og þeim breyt. á námsefni, sem gert er ráð fyrir, er til þess ætlast, að þessi námstími nýtist þannig, að námsferillinn styttist í heild um eitt ár, miðað víð það, sem nú er, fyrir mikinn þorra þeirra, sem hefja nám á framhaldsskólastigi strax að skyldunámi loknu. Ráð er fyrir því gert, að þegar níu ára skyldunám er komið til framkvæmda, geti 3 ára nám nægt til menntaskólanáms í stað 4 ára nú. Sömuleiðis er ráð fyrir því gert, að stórlega sé hægt að draga úr, ef ekki sleppa öllu kennslu í ýmsum almennum greinum í verknámsskólum á iðnskólastigi, svo að þar sé hægt að einbeita skólastarfinu að þeirri sérþekkingu, sem ætlast er til, að nemendur hljóti, og þeirri sérstöku þjálfun, sem þeir þurfa, áður en þeir hljóta atvinnuréttindi sín.
Þessar breyt. krefjast að sjálfsögðu endurskoðunar á fyrirkomulagi náms og skólaskipulagi á framhaldsskólastiginu, eins og tekið er fram í aths. víð grunnskólafrv., og gert er ráð fyrir, að sú endurskoðun hefjist jafnskjótt og þessi mál hafa hlotið afgreiðslu.
Þá fjalla veigamiklir þættir frv. um grunnskóla um þær ráðstafanir, sem gert er ráð fyrir að þurfi að hafa í frammi til þess að tryggja, að skólinn og skólaveran nýtist öllum, sem hafa heilsu og hæfileika til að sækja almennan skóla, til þess að hljóta þann almenna undirbúning, sem til framhaldsnáms þarf. Þar er fjallað um sé°kennslu, um námsráðgjöf og sálfræðiþjónustu, sem sérstaklega er gert ráð fyrir að komi til skjalanna í efri bekkjum grunnskólans, hvað námsráðgjöfina varðar. Sumir þættir þessa sérstaka stuðnings við skólastarfið hafa þegar komist á og tíðkast um misjafnlega langan tíma í þéttbýlustu skólahverfunum. Nú eru drög að því lögð í frv. um grunnskóla, að skólakerfið allt, í strjálbýli jafnt og þéttbýli, verði aðnjótandi þessa stuðnings og þessarar aðstoðar. Gert er ráð fyrir, að þessi þjónusta fari fram á vegum fræðsluskrifstofa, sem settar verði á stofu í hverju kjördæmi landsins. Þessar fræðsluskrifstofur munu, verði frv. að lögum, taka við ýmsum þeim verkefnum, sem hingað til hafa verið í verkahring menntmrn. Gert er ráð fyrir, að þessar fræðsluskrifstofur verði undir stjórn fulltrúa í fræðsluráðum og að landshlutasamtökin kjósi fræðsluráðsmennina 6 af 7, eftir þeirri breyt., sem Nd. gerði á frv. um grunnskóla.
Um það er deilt, hvort hér sé nógu langt gengið og æskilega langt gengið í því að dreifa um landið og út til héraðanna valdi yfir þeim þáttum fræðslukerfisins, sem um er að ræða. Það er álit mitt, að hvað sem menn telja æskilegt, þá sé hér gengið ákjósanlega langt, miðað við, hvernig aðstæður eru, — að hér sé gengið eins langt og fært er og landshlutasamtökin fái undir risið, eins og þau eru nú á veg komin. Vera má, að þau verði fær um það síðar að taka á sig stærra hlutverk. Þá er að líta á það, en í þessu máli tel ég, að miða verði við ríkjandi ástand.
Hvað kostnað snertir, fylgir frv. um grunnskóla ítarlegt yfirlit um þann kostnað, sem felst í auknu starfsmannahaldi og framkvæmd grunnskólakerfis. Á verðlagi öndverðs árs 1972 reiknast hann 289 millj. kr., þar af 60 millj., sem koma mundu í hlut sveitarfélaga og landshlutasamtaka.
Að sjálfsögðu má færa þessa tölu fram til samræmis við hreyt. á verðlagi, síðan hún var reiknuð. En einnig er á það að líta, að í meðförum hv. Nd. hefur nokkuð verið dregið úr mannahaldi í sambandi við breyt., sem d. gerði á nokkrum þjónustuþáttum, og hefur það að sjálfsögðu áhrif til lækkunar á heildartöluna.
Varðandi áhrif samþykktar frv. um skólakerfi og grunnskóla á stofnkostnað skóla vil ég segja það, að miðað við kerfin tvö, ríkjandi kerfi og það kerfi, sem gert er ráð fyrir að taki við samkv. grunnskólafrv., er ekki stórkostlegur munur á miðað við fulla skólagöngu, vegna þess að við upptöku grunnskólakerfis fellur brott 4. bekkur þess gagnfræðaskóla, sem nú er. Hins vegar koma til sögunnar liðir, sem hækka byggingarkostnað almennt, t.a.m. við það, að gert er ráð fyrir sem skyldu, að í hverju skólahúsi sé aðstaða fyrir nemendur til að læra undir næsta dag. Gert er ráð fyrir mjög auknum umsvifum skólabókasafna, og þarf þá auðvitað húsrými að auki fyrir það, og einnig er gert ráð fyrir, að í öllum skólahúsum sé aðstaða fyrir nemendur til að neyta málsverðar í matarhléum. Þetta tvennt síðar nefnda, námsaðstaða til að búa sig undir kennslustundir næsta dags og aðstaða til að neyta málsverðar, eru hlutir, sem þegar er ráð fyrir gert í öllum nýjum skólabyggingum, sem nú eru undirbúnar, án þess að það sé lögbundin skylda, vegna þess að þetta þykir svo sjálfsagt og greiða svo fyrir eðlilegu og samfelldu skólastarfi. Þarna er því alls ekki alfarið um að ræða viðbót við byggingarkostnað miðað við þann, sem nú ríkir, en eins og Nd. gekk frá frv. um grunnskóla, eru þessir framkvæmdaþættir gerðir að skyldu.
Heildarkostnaður við skólabyggingar fyrir skyldunámsskóla á landinu ræðst ekki einungis af því, hvaða skólakerfi ríkir, heldur ekki siður af því, hversu tekst að laða sveitarfélögin til samstarfs, að mynda í strjálbýlinu skólahverfi með samstarfi nokkurra sveitarfélaga. Þar sem
það tekst, er reynsla fengin fyrir því, að við byggingu allstórra skóla, sem ná yfir viðeigandi svæði, næst fram meiri hagfeldni, og það víða svo að mjög miklum fjárhæðum skiptir, heldur en ef byggt væri sitt í hvoru lagi í hverju sveitarfélagi um sig. Þetta liggur í augum uppi, að skólahúsnæðið nýtist því betur sem nemendahópurinn er stærri, sem þar getur hlotið kennslu. En einnig helst það í hendur, að sérhæfðir kennslukraftar nýfast betur, þar sem skólaeiningarnar eru stærri en þær væru, ef eitt og eitt sveitarfélag ætti að standa að sinum skóla.
Skólaskipan á stórum svæðum á landinu er enn óráðin. Menntmrn. hefur á undanförnum árum gennið frá till. um skólaskipun í flestum landshlutum. Þær till. hafa verið ræddar við heimamenn, og er þeim viðræðum misjafnlega langt komið eftir landshlutum, en enginn vafi er á því, að samþykkt laganna um skólakerfi og um grunnskóla mundi veita ákjósanlegar forsendur til að hraða því, að skiptingin í skólahverfi sé ráðin sem fyrst. Og þegar því er lokið, þegar sýnt er, hvaða sveifarfélög sameinast um skólabyggingar, er fyrst hægt að gera og leggja fram viðhlítandi áætlanir um kostnaðinn við skólabyggingar á landsmælikvarða. Ljóst er, að sveitarfélögin standa og hafa staðið mjög misjafnt að vígi að fullnægja sínum hluta af byggingarkostnaði skóla, og hefur það staðið skólabyggingum fyrir þrifum á ýmsum stöðum. Reynt er að bæta úr þessum annmarka í frv. um grunnskóla með því að taka þar inn ákvæði, sem heimilar, að ríkið láni sveitarfélögum, sem þannig eru á vegi stödd, fé fyrir þeirra hluta af byggingarkostnaðinum, sem þau endurgreiði svo síðar á lengri tíma, en gert er ráð fyrir, að hlutur sveitarfélaga í skólabyggingum greiðist ella.
Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á því, að í frv. um grunnskóla er breytt gagngert reglunum um greiðslu skólakostnaðar. Þær breyt. hafa í för með sér, að útreikningurinn verður smærri skólahverfunum, sem erfiðast eiga uppdráttar, mun hagstæðari en verið hefur til þessa.
Þessi atriði, sem ég hef nú talið, og enn fleiri munu að mínum dómi tvímælalaust stuðla að því, að greiðara gangi en verið hefur hingað til að fá sveitarfélög til að sameinast um skóla, einkum þó fyrir eldri bekkina. Til þess að við verði komið þeirri kennslugreiningu og þeim kennslutækjum, sem grunnskólafrv. gerir ráð fyrir, þarf tvímælalaust allstórar skólaeiningar í efstu bekkjunum. Yngri árgangarnir í strjálbýlinu munu hins vegar samkvæmt því, sem frv. um grunnskóla kveður á, sækja að verulegu leyti skóla, sem verða útibú frá þessum stærri skólum, og þessi útibú verða reist sem næst heimilum nemenda, eftir því sem aðstæður leyfa á hverjum stað. Svo er ráð fyrir gert, að hvarvetna sem því verður við komið og nemendur geta ekki sótt skóla heiman frá sér, sé viðhafður heimanakstur og alls ekki eigi sér stað, að nemendur af yngstu árgöngunum, innan við 10 ára aldur, séu vistaðir í heimavistarskólum. Þá er einnig gert ráð fyrir, að þar sem svo er ákveðið geti sumarskóli komið í stað einhvers hluta af því skólastarfi, sem fram hefur farið samfellt yfir veturinn hingað til, og þykir sýnt, að það muni talið hagkvæmt á ýmsum stöðum.
Því er ekki að leyna, að mér, eins og líklega fleiri mönnum í hv. d., hefur þótt hv. Nd. allfastheldin á þessi frv. En nú hefur hún látið þau af hendi. Ég vil beina þeim eindregnu tilmælum til þeirrar n., sem fær málið til athugunar, að hún hagi svo störfum sínum, að frv. geti hlotið afgreiðslu á þessu þingi. Eftir afgreiðslu þeirra bíður endurskoðun námsbrauta á framhaldsskólastigi. Skólaskipunin víða um land ræðst af því, hvort frv. hljóta afgreiðslu eða ekki. Þótt skiptar séu skoðanir um einstök atriði í þessum frv., tel ég þó, að í stórum dráttum megi segja, að skólamenn og sveitarstjórnir hyggi gott til að takast á við verkefni sín í skólamálum á þeim nýja grundvelli, sem þessi frv. hafa að bjóða. Allir virðast sammála um markmiðin, sem sett eru: jafnrétti til menntunar og í skyldunámi án tillits til búsetu, efnahags eða kynferðis. Hingað til hefur búsetan gert mestan mun og strjálbýlið búið við skarðan hlut.
Ein meginástæðan til, að frv. um grunnskóla er eins ítarlegt og raun ber vitni, er, að höfundar vildu búa svo um hnútana, að tryggt væri eftir föngum, að allir sætu við sama borð gagnvart hinni almennu undirstöðufræðslu. Ágreiningur er um einstaka þætti í þeirri leið, að settu marki, sem frv. benda á. Ég tel einsýnt, að leiðin, sem valin er í frv., tryggi betur en nokkur önnur, sem til tals hefur komið, að markmiðin, sem allir virðast sammála um, náist, og því beri að velja þá leið.
Ég leyfi mér að leggja til. herra forseti, að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. menntmn.