19.04.1974
Neðri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3778 í B-deild Alþingistíðinda. (3311)
191. mál, málflytjendur
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Ég hafði átt von á því, að einhver af tillögumönnum um brtt. á þskj. 558 gerði grein fyrir þeirri brtt. við þessa umr., en svo virðist ekki vera, en ég hafði hins vegar hugsað mér að tjá mig um þessa till. með nokkrum orðum.
Þetta frv. vafðist nokkuð fyrir n. vegna þess, að nokkur óánægja hafi komið fram um 13. gr. frv., sem fjallar um, hvernig ungir lögfræðingar geta öðlast héraðsdómslögmannsréttindi. Hafa komið fram álitsgerðir frá Dómarafélaginu, frá Lögfræðingafélaginu og frá laganemum í þá áttina, að frv. yrði breytt í þá átt, að við lagadeild háskólans yrðu sett á sérstök námskeið, sem ungir lögfræðingar, kandídatar, gætu sótt til þess að öðlast réttindi sem héraðsdómslögmenn. Þetta töldu þeir vera eðlilegri leið en þá, sem lögð var fram í frv. upphaflega, að ungir lögfræðingar gætu aðeins öðlast þessi réttindi með því að gerast fulltrúar hjá viðurkenndum starfandi lögfræðiskrifstofum. Nefndin fjallaði nokkuð um þessa leið, en komst síðan að þeirri niðurstöðu, eins og frá er greint í áliti n. og frsm. hefur gert hér grein fyrir, að auk þess sem lögfræðingar geta starfað sem fulltrúar hjá héraðsdóms- og hæstaréttarlögmönnum í eitt ár og eftir þann tíma sýnt hæfni sína með flutningi tveggja munnlegra fluttra mála, geta þeir jafnframt öðlast þessi réttindi með því að flytja fjögur munnleg mál með samþykki þar til skipaðrar prófnefndar, og taldi n., að þar væri girt fyrir það, að ungir lögfræðingar gætu ekki fengið þessi réttindi, ef þeir vildu og hugur þeirra stæði til.
En í umr., sem urðu í n., spratt sú till., sem er nú komin fram á þskj. 558 og flutt er af 4 hv. þm. deildarinnar, en sú brtt. gerir ráð fyrir því, að við lagadeild Háskóla Íslands sé sett á stofn lögfræðiskrifstofa, er veiti efnalitlu fólki almenna málflutningsþjónustu gegn vægu gjaldi. Skal ráðh. skipa forstöðumann lögfræðiskrifstofu lagadeildarinnar, og síðan ræður forstöðumaður starfsfólk, og geta þá lögfræðinemar eða ungir lögfræðingar hlotið málflutningsréttindi með því að starfa við þessa skrifstofu í eitt ár.
Ég vildi láta þá skoðun mína í ljós hér, að þessi till. sé óeðlileg og þjóni ekki þeim tilgangi, sem hún er ætluð til. Í fyrsta lagi tel ég hana óeðlilega, þar sem þarna er gert ráð fyrir starfsemi á vegum Háskóla Íslands, sem auðvitað væri eðlilegra, að kæmi í lög um Háskóla Íslands, en ekki í lög um málflytjendur. Ef hv. Alþingi er þeirrar skoðunar, að slíka stofnun eigi að setja á fót í háskólanum, þá er eðlilegra, að slík breyting sé gerð á lögunum um háskólann, en ekki sett inn í þau lög, sem hér eru til meðferðar.
Í öðru lagi tel ég, að með því að setja þessa málflutningsþjónustu á stofn sé aðeins verið að stofna eina nýja lögfræðiskrifstofu hér í borg, án þess að hún á nokkurn hátt skapi eða opni einhverja möguleika fyrir unga lögfræðinga að fá réttindi né heldur að það séu aukin réttindi fyrir efnalítið fólk að fá þessa þjónustu.
Það er nú viðurkennt í lögum, að ef fólk er ekki talið hafa efni á því að sækja rétt sinn hjá dómstólum, þá er því veitt gjafsókn samkv. leyfi eða úrskurði ráðuneytis, og á það við bæði um opinber mál og einkamál, og tel ég litla fyrirstöðu á því, að fólk geti sótt um gjafsókn, þegar þannig stendur á, að það hafi ekki efni á málshöfðun að öðrum kosti. Þessi málflutningsþjónusta, sem till. gerir ráð fyrir, mun að sjálfsögðu kosta ríkissjóð nokkurt fé, vera aukið álag á háskólanum og vera í reynd rekin með sama hætti og almennar lögfræðiskrifstofur, og er ekki sjáanlegt, að það hafi neina grundvallarþýðingu, eins og á stendur.
Mér er kunnugt um það, að á Norðurlöndum eru gerðar tilraunir til þess að koma til móts við þau sjónarmíð, sem að baki þessarar brtt. liggja, með ýmsum öðrum hætti, og er það fólgið einkum í því, að fólki er veitt svokölluð réttarhjálp, og er hún framkvæmd með þeim hætti, að efnalítið fólk getur snúið sér til félagsmálastofnana eða viðkomandi sveitarfélaga, gert grein fyrir málum sinum, og þar er lagt mat á málið og málsatvik, og ef viðkomandi yfirvöldum sýnist svo, þá heimila þau viðkomandi einstaklingi að leita til starfandi lögfræðinga, sem síðan fá greitt fyrir þá þjónustu, sem þeir veita, frá viðkomandi félagsmálastofnun eða sveitarfélagi. Þannig eru þessi mál leyst, og mér er ekki kunnugt um annað en að það hafi reynst farsællega, og ég held, að það sé eðlilegra fyrir okkur Íslendinga að skoða þessa leið, áður en við ráðumst í að stofna sérstaka lögfræðiskrifstofu við Háskóla Íslands í þessu skyni.
Þetta vildi ég láta koma fram, að ég í sjálfu sér skil flutning þessarar till., en ég er andvígur till., tel hana óþarfa og óæskilega og ekki þjóna sínum tilgangi eða neinum tilgangi og tel eðlilegra, að við könnum aðrar leiðir og skoðum þá löggjöf á Norðurlöndum, sem er vitnað hér til, áður en við gerum breytingar hjá okkur með þessum hætti. Vil ég leggja til, að hæstv. dómsmrh. beiti sér fyrir því, að jafnframt því sem lög um málflytjendur eru samþykkt, þá gefi hann einhvers konar yfirlýsingar um, að rn. eða hann fyrir sitt leyti vildi láta skoða þessa leið, þannig að þá þyrftum við ekki að vera að samþ. brtt., sem fram kemur á þskj. 558.