19.04.1974
Neðri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3793 í B-deild Alþingistíðinda. (3324)

262. mál, mat á sláturafurðum

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég fagna þeim áhuga, sem hv. 8. landsk. þm. hefur á uppbyggingu sláturhúsanna. Ég hef vakið athygli á því áður hér á hv. Alþ., að það þyrfti stóraukið fé til að byggja upp vinnslustöðvar landbúnaðarins, og það er vissulega rétt, að þarna þarf að gera stórt átak. En því hefur ekki verið sinnt nægilega vel fram að þessu.

Í sambandi við bað, sem hann talaði um, erlenda dýralækna, sem munu hafa komið hingað á árinu 1968, ef ég man rétt, þá átti ég þess kost að borða með þeim bandaríska dýralækni, sem kom og var að skoða þessi sláturhús á Norðurlandi, og hann skoðaði t.d. sláturhúsið á Kópaskeri, sem hefur ekki réttindi, hann skoðaði sláturhúsið á Akureyri. En hvað sagði þessi læknir, þrátt fyrir þær kröfur, sem hann gerði. Hann sagði: Við mættum þakka fyrir, ef við hefðum svona góð sláturhús. Við höfum ekki 10% af okkar sláturhúsum eins góð og þessi sláturhús, sem eru þó ekki talin forsvaranleg til útflutnings. Ég geri ráð fyrir því, að sum sláturhúsanna hér á landi séu að vísu miklu lakari en þessi. En þetta voru hans orð. Það er auðséð, að þegar um innflutning á matvælum til Bandaríkjanna er að ræða, þá gera þeir langtum hærri kröfur til annarra en þeir gera til sinnar eigin framleiðslu. Það lá í orðum þessa læknis.

Það hefði mátt ætla það, að mörg af þessum sláturhúsum væru mjög léleg, bæði miðað við þá skýrslu, sem hv. þm. las upp úr, og eins af orðum hans. En það, sem er aðalgallinn og vandræðin við þetta, er, að dýralæknarnir segja: Við getum ekki fylgst með hverri kind, um leið og er tekið t.d. innan úr henni. Það er ekki aðstaða til þess. — Og það er fyrst og fremst þetta, ekki í raun og veru hreinlæti að öðru leyti, sem skortir, a.m.k. víðast hvar. Það er þetta nýja kerfi, þetta færibandakerfi, sem gerir þetta eftirlit mögulegt.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta frekar. Þessi skýrsla frá framleiðsluráði er hér prentuð, og geta þm. kynnt sér hana. Ég tel sem sagt, að það sé hægt að misskilja hana, að hún sé ekki nógu skýr að þessu leyti, í hverju í raun og veru þessir gallar felist í sláturhúsunum mörgum hverjum. Það kemur fram í þessari skýrslu, að það verður búið að loka 7 af þessum húsum, sem hafa verið starfrækt, og það er sýnilegt, að það verður að gera mikið átak á næstu árum. Það er verksvið hv. Alþingis að sjá til þess, að það verði gert og það verði gert fjárhagslega mögulegt.