22.04.1974
Efri deild: 105. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3813 í B-deild Alþingistíðinda. (3343)
173. mál, Hótel- og veitingaskóli Íslands
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á l. um Hótel- og veitingaskóla Íslands, en frv. fjallar fyrst og fremst um eitt atríði laganna, þ.e.a.s. skipan skólanefndar. Frv., eins og það var lagt fram, gerði ráð fyrir fjölgun í skólanefnd, þannig að hún yrði skipuð 6 mönnum og bættist við einn fulltrúi nemenda. N. var sammála þeirri meginstefnu, sem þarna kemur fram, en flytur þó brtt. við frv.
Í fyrsta lagi er það till. n., að Félag bryta tilnefni ásamt Matsveinafélagi Sjómannasambands Íslands einn fulltrúa í n., en Félag bryta hafði sérstaklega óskað eftir því að vera þarna tilnefningaraðili og hafði hlotið m.a. stuðning Farmanna- og fiskimannasambands Íslands til þess.
Í öðru lagi er það till. n., að fulltrúar nemenda séu tveir, en ekki einn, eins og frv. gerði ráð fyrir. Í frv. var gert ráð fyrir því, að vegna þess að fjöldi skólanefndarmanna stóð á jafnri tölu, réði atkv. formanns, ef atkv. yrðu jöfn í skólanefndinni, en n. gerir það að till. sinni, að fulltrúar nemenda séu tveir, og þar af leiðir, að skólanefndin verður 7 manna. Það, sem ræður þessari tillögugerð, er fyrst og fremst það sjónarmið, að ef á annað borð er farið að hafa nemendur í skólanefndum af þessu tagi, sé eðlilegra, að þeir séu tveir hverju sinni, en ekki aðeins einu. Það er svo, að það er talsverður aldursmunur og reynslumunur annars vegar á skólanemendum og hins vegar á þeim, sem að öllu jöfnu sitja í skólanefndum. Nemendum finnst því, að þeir eigi undir högg að sækja að sitja að störfum innan um sér margfalt reyndari menn, og þykir því eðlilegra og skynsamlegra út frá mannlegu sjónarmiði, að fulltrúi nemenda sitji þar ekki einn, heldur séu bar tveir fulltrúar, sem geti þá borið saman ráð sín, ef upp koma einhver vandamál. sem taka þarf afstöðu til.
Þriðja efnisbreytingin á frv. er, að gert er ráð fyrir því, að 7 varamenn séu skipaðir með sama hætti. Það var ekki gert ráð fyrir því í frv., og er þetta til samræmingar við aðrar skólanefndir. Eins er því slegið föstu í brtt. n., að tilnefning nemendafulltrúa gildi til eins árs, en annarra fulltrúa til 4 ára, en þetta kom ekki skýrt fram í frv. og er til samræmis við aðrar skólanefndir.
Þess skal getið, að tvö önnur frv. voru lögð á sama tíma fyrir þd. Var annað um lög um vélstjóranám, en hitt lög um fiskvinnsluskóla, og tilgangur beggja þessara frv. var hinn sami, að veita nemendum tilnefningarrétt í skólanefndir. Menntmn. hefur afgr. þessi frv. öll í einu lagi og með sama hætti, gert sams konar breyt. á þeim, þannig að nemendur eigi yfirleitt tvo fulltrúa í öllum þessum n. Að öðru leyti hafa ekki verið gerðar breyt. á hinum tveimur frv., nema hvað í lögum nm vélstjóranám er gert ráð fyrir því, að tveir nm. séu skipaðir eftir tilnefningu Vélstjórafélags Íslands, en ekki eftir tilnefningu annars vegar frá Vélstjórafélaginu og hins vegar Mótorvélstjórafélagi Íslands, því að n. var tjáð, að hið síðarnefnda væri ekki lengur til.
Ég nota sem sagt þetta tækifæri, um leið og ég mæli fyrir nál. um Hótel- og veitingaskóla Íslands, að skýra frá brtt. n. við frv. um vélstjóranám og frv. um fiskvinnsluskóla, sem væntanlega verða tekin hér fyrir strax á eftir, og mun líta svo á, að ég hafi þegar mælt fyrir þeim til tímasparnaðar.