23.04.1974
Sameinað þing: 76. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3845 í B-deild Alþingistíðinda. (3380)
314. mál, aðstaða bæklaðra
Fyrirspyrjandi (Oddur Ólafsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. hans ítarlegu svör. Það er sannarlega óhugnanlegt til þess að vita, að biðlistinn skuli vera á 7. hundrað manns, og ekki síst er þetta ömurlegt vegna þess, hve mikill fjöldi er þarna af fullorðnu fólki, sem á ekki nema takmarkaðan árafjölda ólifað og er þess vegna mjög mikils virði að geta fengið einhverja bót á sínum meinum, sé það mögulegt, innan hæfilegs tíma.
Það er ekkert nýtt, að það séu settir mjaðmarliðir í fólk hér á landi. Þetta hefur verið gert á annan tug ára a.m.k., og það er ekki vafi á því, að einhverjar leiðir þarf að finna til þess að rýmka þarna verulega um, svo framarlega sem þessi langi biðlisti á ekki að haldast um áratugi. Í þessu sambandi kemur manni í hug, hvort hagkvæm sé sú breyting, sem gerð hefur verið. Fyrir nokkrum árum voru slíkar aðgerðir, sem nú eru gerðar á bæklunardeildinni, gerðar hér og hvar á handlækningadeildum spítalanna. Þær voru gerðar af sérfræðingum, en þá var hins vegar ekki sérdeild ætluð fyrir bæklaða. Nú hef ég grun um það, að víðar en hér sé svo komið, að menn séu í vafa um, hvort þessi mikla sérhæfing að ákveða deildunum alveg gjörsamlega ákveðin rúm með ákveðnu starfsliði, hvort það sé framkvæmanleg og hentug aðferð. Ég tel líklegt, að væri farið inn á þá braut, að handlækningadeild Landsspítalans tæki við sjúklingum til bæklunaraðgerðar, ef mikið lægi við, mundi það strax nokkuð laga til í þessum efnum. Enn fremur mun það hafa skeð, að nú eru ekki lengur stundaðar bæklunaraðgerðir að verulegu leyti á Landakoti, en þar hefur um langt árabil verið unnið að slíkum aðgerðum. Í því sambandi kemur manni í hug, að fyrir nokkrum árum var stofnuð svonefnd samstarfsnefnd sjúkrahúsa á Reykjavíkursvæðinu, og átti einmitt að vera verkefni þessarar n. að samræma aðgerðir sjúkrabúsanna og sjá til þess, að þær kæmu að sem bestum notum hvert á sínu sviði. Væri þarna ekki verðugt verkefni fyrir þessa samstarfsnefnd? Ég veit ekki betur en það sé í raun og veru nóg til af bæklunarsérfræðingum á þessu svæði. Hin.s vegar vantar þá rúm og aðstöðu til þess að geta skorið sjúklinga og stundað þá, en það er ekki vafi á því, að á Landakoti mundu, ef samvinna fengist við lækna þar, skapast möguleikar til að geta fært þessa starfsemi út og sinnt fleiri bæklunarsjúklingum en nú er hægt að gera.
Ég held, að það sé bráð nauðsyn að reyna að vinna að úrhótum á þessu sviði. Það verður ekki leyst, enda þótt hægt verði að koma bæklunarsjúklingunum eitthvað fyrr á Reykjalundi heldur en senda þá heim. En það er svo, að þeir menn, sem starfa við bæklunardeildina, hafa verið mjög ötulir og hafi útskrifað sína sjúklinga fljótt og með góðum árangri. Þess vegna tel ég, að það mundi ekki aukast mikið þeirra skurðaðgerðageta, enda þótt þeir fengju fleiri sjúkrarúm til ráðstöfunar á öðrum stöðum.