23.04.1974
Sameinað þing: 76. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3846 í B-deild Alþingistíðinda. (3381)
301. mál, rannsóknarstörf prófessora
Fyrirspyrjandi (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Á síðasta þingi bar ég fram fsp. til hæstv. menntmrh, um kennsluskyldu og rannsóknastörf prófessora við Háskóla Íslands. 1 umr. þá um þessa fsp. kom fram, að mjög óljóst var a.m.k. þá, hver afrakstur þessarar rannsóknaskyldu væri, þar eð litlar sem engar upplýsingar virtust liggja fyrir um framkvæmd þessa þáttar prófessorsstarfsins, og það ljóst, að við slíkar aðstæður sem þessar, að engum skýrslum sé skilað um störfin né eftirlit með þeim haft, fer það í raun og veru að verulegu leyti eftir samviskusemi viðkomandi einstaklings, hvernig þessum þætti starfsins er sinnt. Það kom einnig fram í þessum umr. hjá einum hv. þm., sem gjörla ætti um þetta að vita, að hann taldi sig þurfa allt upp í tvo daga til undirbúnings fyrirlestrar, Þessi fsp. mín þá virtist a.m.k. af sumum hafa verið tekin á þann veg, að ég væri á einhvern hátt að gera lítið úr starfi prófessora. Þetta er mesti misskilningur. Ég tel hins vegar, að á því sé full þörf, ekki síst með tilliti til þess, sem fram kom í fyrrnefndum umr., að almenningur fái um það vitneskju, hversu mikið starf liggur að baki þeim þætti í starfi prófessora, sem hér um ræðir. Ég tel, að prófessorum sé síst greiði gerður með því, að einhver sérstök hula liggi yfir starfi þeirra.
Það kom einni fram í þessum umr, hjá hæstv. menntmrh., að hann taldi á því fulla þörf, að komið yrði í fastara form bæði kennsluskyldunni, svo og afrakstrinum af rannsóknaskyldu þessarar stéttar. Með tilliti til þessa og ekki síður hins, sem fram kom hjá hv. 3. landsk. þm. í áðurnefndum umr. um vinnu þá, sem að baki liggur þessu starfi, hef ég leyft mér að bera fram á þskj. 631 svo hljóðandi fsp. til hæstv. menntmrh.:
„1. Hver hafa verið rannsóknastörf þeirra prófessora við Háskóla Íslands, hvers um sig, sem skipaðir voru prófessorar á árunum frá 1960–1970, á þeim tíma, sem þeir hafa 5tarfað sem prófessorar hver um sig?
2. Hafa verið settar einhverjar reglur um það, á hvern hátt prófessorar við Háskóla Íslands gera grein fyrir rannsóknastörfum sínum?“