23.04.1974
Sameinað þing: 76. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3859 í B-deild Alþingistíðinda. (3391)
428. mál, viðskilnaður mannvirkja á Heiðarfjalli á Langanesi
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Það er víðar en á Heiðarfjalli, sem sjá má óhrjálegar mannvirkjaleifar frá hernámsárunum, og í tilefni þess flutti ég snemma á þessu þingi till. til þál. um að skora á ríkisstj. að láta fjarlægja eða grafa slíkar leifar. Þessar leifar eru dreifðar hér og hvar um landið, og ég kem hér upp í ræðustól nú fyrst og fremst til að vekja athygli þeirrar n., sem hefur þessa þáltill. til meðferðar, á því, hvort ekki væri hægt að fá hana afgreidda. Það er í raun og veru víðar en á Heiðarfjalli, sem er óviðunandi ástand í þessum efnum, og eins og fyrirspyrjandi komst að orði, í hróplegu ósamræmi við náttúru landsins að hafa þessar gömlu leifar í því ástandi, sem þær eru víða í.