23.04.1974
Sameinað þing: 76. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3862 í B-deild Alþingistíðinda. (3396)

426. mál, kaup Seðlabankans á rekstrarvíxlum iðnaðarins

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Ég skal gera stutta aths. aðeins. — Það eru mjög athyglisverðar upplýsingar, sem hér hafa verið gefnar af hæstv, ráðh. Hæstv. ráðh, sagði réttilega, að það væri verið að byggja upp endurkaupskerfi á rekstrarvíxlum iðnaðarins. Ég vil taka undir það, sem hefur verið sagt, að hér er um mjög mikilvægt mál að mæða og nauðsynlegt, að þetta kerfi verði sem best upp byggt. Mér sýnist fljótt á litið af þeim tölum, sem hér hafa verið gefnar, að það hafi orðið verulegar framfarir á síðustu árum hvað þetta snertir, en mig langar til þess aðeins vegna þessara umr. að spyrja hæstv. ráðh., hvort hann geti gefið okkur einhverjar frekari upplýsingar um þær meginreglur, sem gilda um þessi endurkaup, t.d. hvort þetta gildi eingöngu um útflutningsiðnaðinn eða hvort þetta nái að einhverju leyti til þess iðnaðar, sem framleiðir fyrir innanlandsmarkað. Ég vænti þess, að hæstv. ráðh. geti gefið okkur nokkrar upplýsingar um þessi atriði.