23.04.1974
Sameinað þing: 76. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3864 í B-deild Alþingistíðinda. (3399)
426. mál, kaup Seðlabankans á rekstrarvíxlum iðnaðarins
Jón Árnason:
Herra forseti. Það er eðlilegt, að þetta mál hafi komið hér til umr. Vitanlega hefði það átt að vera við annað tækifæri, því að hér er of lítill tími, sem hægt er að ræða málið undir þessum dagakrárlið.
Lán til iðnaðarins, segir hæstv. ráðh., að hafi verið með öðrum hætti úr bankakerfinu. Sannleikurinn er sá, að innlendur iðnaður hefur yfirleitt ekki haft nokkra lánsmöguleika í bankakerfinu. Þess vegna er hér ekki um það að ræða, að hann hafi haft aðra möguleika en hann hefur nú. Hann hafði raunverulega enga möguleika áður. Ég vil taka undir það, sem hv. þm. Ingvar Gíslason sagði hér áðan, að það er nauðsynlegt að fá upplýsingar um þær reglur, sem eiga að gilda í þessum efnum, og verður að fara fram á það við þá menn, sem ráða þessum málum, t.d. hæstv. viðskrh., að hann gangi eftir því við Seðlabankann eða aðra þá, sem eiga að veita þessi lán til iðnaðarins, að fá upplýst, eftir hvaða reglum þeir ætla að starfa. Og það er vitanlegt, að ýmis hin smærri fyrirtæki hafa enn sem komið er ekki fengið neina fyrirgreiðslu hvað framleiðslulán snertir. Það verður að ráða hér bót á. Það verður hins vegar að viðurkenna, að það er rétt, að hér er um nýjung að ræða í sambandi við lánamál fyrir iðnaðinn, og þess vegna er nauðsynlegt, að settar séu einhverjar reglur til þess að fara eftir, svo að þeir, sem eiga að njóta þessarar fyrirgreiðslu viti þá, eftir hverju þeir mega ganga. Þetta tel ég vera höfuðatriðið og nauðsynlegt, til þess að það geti komið að gagni fyrir hinar ýmsu verksmiðjur eða framleiðendur, hvort sem um er að ræða, að þeir séu að framleiða vöru á innlendan eða erlendan markað.