24.04.1974
Efri deild: 107. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3902 í B-deild Alþingistíðinda. (3430)

61. mál, tannlækningar

Frsm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Þetta frv. er komið frá Nd. og tók þar töluverðum breyt., sem þó kom í ljós, að ekki hefðu um sumt verið réttar eða nægar af hálfu ýmissa þeirra aðila, sem þar fjölluðu nánast um málið. Það kom því í hlut n. í Ed. að kanna þessi mál enn nánar, og var það sannarlega mikið verk og ærin lífsreynsla, svo mikið djúp sem reyndist milli ýmissa aðila, sem þetta mál snertir á einhvern hátt. Þetta bil höfum við eftir bestu getu og samvisku reynt að brúa. Við það eru brtt, okkar miðaðar, hvernig sem þar hefur til tekist.

Tvö voru okkar höfuðvandamál. Annað snerti 6. gr. um sérfræðileyfi. Í upphaflegri gerð frv. var gert ráð fyrir sérstakri n., sem fjallaði um reglur um leyfi þessi, þar sem deildarforseti tannlæknadeildar háskólans yrði form., en Tannlæknafélag Íslands tilnefndi 2 menn, ásamt frekari skilgreiningu á útfærslu þeirrar n. Nd. breytti þessu á þann veg, að tannlæknadeild háskólans skyldi ein setja þessar reglur.

Sem von var, þótti tannlæknum, að þessi breyt. færði aftur á bak, hvað rétt þeirra snerti, og óskuðu ákaft einhverrar breyt. í þá átt til hins upprunalega í frv.

Við reyndum að finna hér millileið, og niðurstaðan liggur hér fyrir í nál. okkar, og verðum við að vænta þess, að allir séu sæmilega sáttir við þetta ákvæði nú, þótt hvorugur aðili sé það eflaust fullkomlega. Við leggjum til, að 6. gr. orðist svo:

„Enginn tannlæknir má kalla sig sérfræðing, nema hann hafi fengið til þess leyfi ráðh. Ráðh. staðfestir reglur um nám sérfræðinga, sem skulu settar af n., er ráðh. skipar. Sú n, skal einnig fjalla um umsóknir um sérfræðileyfi. N. skal þannig skipuð, að landlæknir er form. hennar, en einn nm. skal tilnefndur af Tannlæknafélagi Íslands og annar af tannlæknadeild Háskóla Íslands til þriggja ára í senn. Með sama hætti skal einnig tilefna tvo sérfróða tannlækna til þátttöku með n. í meðferð einstakra mála, er varða sérgrein þeirra, og fá þeir þá einnig atkvæðisrétt í n. Tannlæknir á rétt til að kalla sig sérfræðing, ef hann sannar fyrir n., að hann hafi lokið sérfræðinámi í sérgrein, sem viðurkennd er samkv. fyrrnefndum reglum.“

Í upphaflega frv. var þetta eins að öðru leyti en því, að Tannlæknafélag Íslands fékk tvo fulltrúa, en nú einn, og landlæknir er þarna sem oddamaður.

Annað það atriði, sem olli nm. hálfu meiri höfuðverk, snerti 8. og 9. gr. frv. og þá reyndar aðeins hvað eina starfsstétt varðaði, þ.e. tannsmiði. Í ljós komu, að nýlega hefur verið sett reglugerð um tannsmiði sem tæknimenntaða heilbrigðisstétt, en jafnframt er verið að undirbúa það, að tannsmiðir fái sveinsbréf og meistarabréf og tilheyri þannig hreinum iðnaðarmönnum. Þennan vanda gat n. ekki leyst eða þann mismun, sem hér er á túlkun milli rn., enda alls ekki í okkar verkahring. Tannsmiðir sendu alþm. bréf og vildu hreinlega hvergi inn í þetta frv. koma, og höfum við, að svo miklu leyti sem mögulegt og réttlætanlegt er, tekið tillit til þess, m.a. með því að fella niður upptalningu á sérhæfðu starfsfólki í 8. gr., þó að vitanlega hljóti tannsmiðir að tilheyra þessu sérhæfða starfsfólki, sem tannlæknum er heimilt að hafa, einkum þar sem nýsett reglugerð er staðfesting á því, að þeir tilheyri hinum tæknimenntuðu heilbrigðisstéttum. Þessi breyt. er því hrein orðalagsbreyt. eða orðalagsniðurfelling, en þó þótti þetta rétt.

Varðandi 9. gr. hafði rn, strax í Nd, gert till. um algjöra umorðun gr., einkum af því að tannsmiðum þótti of nærri sér höggvið með því orðalagi, sem var í frv., eins og það kom frá Nd.

Skilningur þeirra á gr. var nánast sá, að þeim væri með henni gert ókleift að reka sjálfstæða starfsemi, þó að tannsmiðir viðurkenni eðlilega, að verkefni þeirra séu almennt bundin tilvísan tannlækna. Við tókum það ráð að nota að okkar dómi þetta skynsamlega orðalag rn., — vitum, að tannsmiðir telja það í áttina, þó ekki fullnægjandi. Þar kemur aftur inn á mál, sem fjarstæða væri að ætla þingnefnd úr að skera, þar hljóta ráðuneytin að verða til að koma og binda enda á deilu, sem virðist viðkvæm og verður án efa torleystari, því lengur sem dregst að skera á hnútinn.

Orðalag 9. gr. er þá svo, eins og segir í nál. okkar:

„Sérhæft starfsfólk samkv. 8. gr. hefur ekki heimild til að taka að sér, án tilvísunar tannlæknis sjálfstæð verkefni á sviði tannlækninga. Hverjum öðrum en tannlæknum og sérhæfðum starfsstéttum við tannlækningar er óheimilt að vinna nokkurt það verk, sem undir tannlækningar heyrir.“

Að öðru leyti en þessi tvö atriði snertir mælir n. eindregið með samþykkt frv., eins og það er komið frá Nd. N, vonar, að hv. d. geti fallist á þessar breyt., sem n. gerir að mjög vel athuguðu máli, og er nánast varla hægt að finna aðrar leiðir, sem frekar væri hægt að hugsa sér til samkomulags milli aðila.