06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í B-deild Alþingistíðinda. (347)

360. mál, sjómannastofur

Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Til skýringar á þessari fsp. minni vil ég segja þetta. Á fjárl. undanfarin ár hefur verið lítilsháttar fjárveiting til rekstrarsjómannastofa. Þessa fjárveitingu þyrfti vitanlega að hækka. En hvað sem því líður, tel ég skynsamlegt að setja löggjöf um skipulegan og aukinn stuðning hins opinbera við áhugafólk, sem starfar að þessum málum heima fyrir.

Á síðasta þingi flutti ég ásamt hv. þm. Karvel Pálmasyni og Geir Gunnarssyni till. til þál. um að fela hæstv. ríkisstj. að láta undirbúa löggjöf um þetta efni. Þessi till. var nokkuð seint á ferðinni og fékk ekki afgreiðslu.

Flm. till. rituðu þá bréf til hæstv. sjútvrh. og báðu hann að taka til athugunar, hvort ekki væri rétt að vinna að undirbúningi þessarar löggjafar, þótt till. hefði ekki náð fram að ganga.

Ég hef leyft mér að bera fram þessa fsp. núna til þess að minna á þetta mál að nýju og til þess að fá það upplýst hér á hv. Alþingi, hvort málið er nú í vinnslu hjá hæstv. ríkisstj.