24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3926 í B-deild Alþingistíðinda. (3481)

123. mál, nýting raforku til húshitunar

Frsm. (Jón Árnason):

Herra forseti. Till. til þál. um nýtingu raforku til húsahitunar og verðjöfnun á raforku var vísað til fjvn, nokkru fyrir jól. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj, að taka til endurskoðunar fyrri áætlanir um raforkuframleiðslu til húsahitunar með það fyrir augum, að öllum aðgerðum í þessum efnum verði flýtt svo sem kostur er á. Jafnframt beiti ríkisstj. sér fyrir nauðsynlegum lagabreyt., ef með þarf, til þess að á verði komið jöfnunarverði á raforku til húsahitunar, þannig að kostnaður við upphitun húsa með raforku verði sambærilegur við hitun húsa á jarðhitasvæðum, þar sem hitaveitur eru fyrir hendi eða verður við komið með eðlilegum hætti.“

Fjvn. leitaði umsagnar um till. þessa hjá samtökum sveitarfélaga og Orkustofnun, og mun ég síðar koma að efni þeirra umsagna.

Að undanförnu hafa hér á hv. Alþ. farið fram allítarlegar umr. um orkumál. Sú staðreynd, að sá orkugjafi, sem við Íslendingar höfum lengst af verið háðir hvað viðkemur upphitun húsa, þ.e. olían, hefur stórhækkað í verði, auk þess sem til hefur komið samdráttur í sjálfri olíuframleiðslunni, hefur vakið okkur Íslendinga til alvarlegrar umhugsunar um það að láta nú ekki dragast lengur að gera stórt átak í þeim efnum að hagnýta sem best þá orku, sem til er í landinu, með það fyrir augum, að við sjálfir getum framleitt alla þá orku, sem við þurfum á að halda til húsahitunar og til rekstrar margvíslegs iðnaðar og framleiðslu í landinu. Það er öllum löngu ljóst, að mikill mismunur hefur átt sér stað á hitunarkostnaði húsa á hinum ýmsu stöðum á landinu. Er þar sérstaklega um að ræða þau byggðarlög, sem hafa aðstöðu til upprifjunar frá jarðvarma og hins vegar þá, sem verða að nota olíu sem orkugjafa. Hitt er svo annað mál, að stór hluti landsmanna mun ekki eiga þess kost, a.m.k. ekki í náinni framtíð, að fá hitaorku frá jarðvarma. Mun láta nærri, að nú sem stendur þurfi um helmingur landsmanna að notast við olíu til upphitunar. Annar orkugjafi, sem nokkuð hefur farið vaxandi á undanförnum árum, er raforkan, og það er sú orka, sem till. þessi tekur til og leggur áherslu á að framkvæmdum verði flýtt svo sem kostur er á. Það er ískyggilegt til þess að vita, hvað stór hluti þjóðarinnar er háður því að nota olíu til húsahitunar, og ef svo fer fram sem horfir, að olían fari hækkandi, má öllum vera ljóst, að aðstöðumunur til búsetu á landinu er orðinn svo mikill, að það hlýtur fyrr en varir að hafa enn meiri áhrif til byggðaröskunar en fyrr hefur átt sér stað, ef ekkert sérstakt verður að gert.

Það, sem ég hef nú vikið að varðandi þau áhrif, sem olíuverðhækkunin muni hafa í för með sér, hefur Alþingi þegar gert sér ljóst. Með frv. um lækkun á olíuverði er þessi staðreynd viðurkennd og ætti að vinna nokkuð á móti þeim mismun, sem olíuverðshækkunin veldur, þótt ekki sé tjaldað til langs tíma í þeim efnum, eins og frv. ber með sér.

Það sýnist einsýnt, að auk jarðvarmans verði það raforkan, sem notuð verði til húsahitunar í framtíðinni. En til þess að almenningur, sem ekki á aðgang að jarðvarma, fái notið raforkunnar, verður að gera stórátak og það ekki aðeins í aukinni raforkuframleiðslu, heldur einnig og ekki síður í uppbyggingu veitukerfa bæði með traustum dreifilínum og að sjálfsögðu sjálfu raforkukerfinu á hinum þéttbyggðu stöðum, því að það vantar mikið fé á, að þau mál séu þar í lagi í dag.

Ég vil þá víkja nokkuð að umsögnum um málið, sem n. bárust. Vil ég þá fyrst minnast á umsögn Orkustofnunarinnar. Þar er um athyglisverðar upplýsingar að ræða, sem ég tel rétt að lesa upp, það er ekki langt mál. Með leyfi forseta, þá er umsögn Orkustofnunar svo hljóðandi:

„Till. til þál. um nýtingu raforku til húsahitunar og verðjöfnun á raforku, 123, mál Alþingis. — Með bréfi, dags. 21. des. 1973, óskar hæstv. fjvn. umsagnar Orkustofnunar um ofangreinda till. Seint á síðasta ári fól iðnrn. verkfræðistofu hér í bæ að athuga í samráði við Orkustofnun, hvernig megi hraða þeirri þróun, að innlendir orkugjafar komi í stað innfluttra. Orkustofnunin hefur nú nýlega endurskoðað fyrri grg. um möguleika til nýtingar jarðhita á ýmsum stöðum landsins. Hefur þessi endurskoðun grg. m.a. verið send hv. þm., þ.e.: Nýting jarðhita og framtíðarhorfur, eftir Kristján Sæmundsson og Valgarð Stefánsson. Orkustofnun, jarðhitadeild í nóv. 1973.

Sem stendur er talið, að tæplega helmingur landsmanna búi í húsum, sem hituð eru upp með jarðhita. Athuganir Orkustofnunar benda til, að hækka megi þetta hlutfall í 60–70%. 30–40% þjóðarinnar þurfa þá að nota raforku til upphitunar, ef útrýma á olíu alveg á þessu sviði.Eftir því sem nú horfir um verð á olíu, virðist sem hún muni alls ekki vera samkeppnisfær við rafhitun hvað verð snertir, þannig að eðlilegt er að gera ráð fyrir, að olían hverfi alveg af húshitunarmarkaðinum. Hingað til hefur verið mjög á mörkum, hvort ódýrara væri hitun með olíu eða með rafmagni.

Áætlað er, að til fullrar hitunar fyrir 30–40% landsmanna (íbúafjöldi 1. des. 1972) þurfi orkuvinnslu, er nemur 800—1000 gígawöttum á ári.

Til samanburðar má geta þess, að öll raforkuvinusla á landinu nam árið 1972 1768 gígawöttum, þar af voru unnin vegna álbræðslu 771 og vegna annarra nota 997. Innflutningur á eldsneyti nam alls um 513 þús. tonnum árið 1972. Talið er, að af því hafi um 138 þús. tonn eða 27% farið til hitunar á húsrými.

Enda þótt jarðhiti sé fáanlegur, er hann samt misjafnlega auðveldur í vinnslu og flutningi á notkunarstað eftir staðháttum. Kostnaður jarðvarmaorku við þéttbýlismörk getur þannig orðið mismunandi. Að auki getur dreifingarkostnaður orðið mismikill eftir því, hve þéttbyggt er. Allt þetta leiðir til þess, að kostnaðarverð jarðvarmans við húsvegg notenda getur orðið allmisjafn. Svipað gildir um raforku til húshitunar. Þó er þess að vænta, að mismunur á rafhitunarkostnaði milli staða verði heldur minni en samsvarandi staðarmunur á jarðhítakostnaði, þegar strjálbýli er undanskilið, þar sem miklu dýrara er að dreifa raforku en í þéttbýli. Hins vegar er þess að vænta, að rafmagn verði yfirleitt dýrara sem hitagjafi en jarðhiti, þar sem vinnsla jarðhita er sæmilega auðveld, en eins og fyrr segir, er þ.ess að vænta, að 60–70% landsmanna búi við slíkar aðstæður að geta nýtt jarðvarmann í framtíðinni.

Það, sem nú var rakið, þarf að hafa í huga, þegar rætt er um þá verðjöfnun á hitaorkunni, sem till. gerir ráð fyrir. Hvort og að hve miklu leyti taka skuli upp slíka verðjöfnun, er algjörlega pólitískt mál, sem stjórnvöld verða að taka ákvörðun um, og verður sú spurning ekki rædd hér. En verði farið út í verðjöfnun, er viðfangsefnið a.m.k. tvíþætt: í fyrsta lagi verðjöfnun milli jarðhitaveitna innbyrðis og annars vegar verðjöfnun milli þéttbýlis og strjálbýlis. Ef út í verðjöfnunina er farið, er mikilvægt, að henni verði komið fyrir með slíkum hætti, að hún dragi ekki úr viðleitni til að nýta á hverjum stað þann hitaorkugjafa, sem ódýrastur er, ef engin verðjöfnun kæmi til.“

Þá vil ég einnig minnast á umsögn frá Sambandi sveitarfélaga á Vestfjörðum, en ég hygg, að fáir landshlutar eigi við meiri örðugleika að etja í þessum efnum en Vestfirðir, og var ekki á þá erfiðleika bætandi, sem þar voru fyrir hendi, til þess að koma í veg fyrir fólksflutninga úr því héraði. Í bréfi, sem okkur barst frá Vestfjörðum, frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga, segir svo um þetta mál:

„Till. til þál. á þskj. 151, 123. mál. Þarna er þarft og gott málefni, sem vonandi nær fram að ganga í einhverri mynd. Kemur það Vestfirðingum þó að engu gagni, ef það er í raun stefna Alþ. og ríkisstj., sem kemur fram í svari raforkumrh, við fsp, um raforkumál Vestfirðinga á þskj. 117, en lokaorð ráðh. voru á þessa leið: „Svo sem þingheimi er kunnugt, er nú unnið að mikilli stækkun Mjólkárstöðvarinnar í Arnarfirði. Er gert ráð fyrir því, að sú stækkun, sem nemur 5.6 mw., verði tekin til notkunar á árinu 1975, . og verður þá vel séð fyrir raforkuöflun um Vestfirði í bráð.“ — Þessi „mikla“ stækkun Mjólkárstöðvar gerir lítið meira en að leysa dísilaflið, 3437 kw., af hólmi í bili. Það er því tómt mál að tala um rafhitun húsa hér næstu árin. Til að svo megi verða, þarf hugur ráðamanna um virkjanir á Vestfjörðum og orkuflutning hingað að taka miklum breyt. í framfaraátt, einnig að Vestfirðingar sjálfir hafi meiri áhrif á gang mála, eins og fyrr er getið. Skylt er að upplýsa, að af þeim 3960 kw. með vatnsafli, sem ráðh. getur um í svari sínu við fsp, á þskj. 117, eru 1100 kw. vatnsaflsstöðvar í Engidalsstöð mjög lamaðar af vatnsaflsskorti, sem varð vegna þess, hvað úr hömlu dróst að gera við 33 kw. strenginn yfir Dýrafjörð á næstliðnu hausti. Segja má, að dísilafl sé grunnafl í orkuveri Ísfirðinga, eins og sakir standa. Það er mikið alvörumál.

Að endingu: Rafveita Ísafjarðar hefur fullan hug á því að auka bæði orkuframleiðslu og orkudreifingu sina til hagsbóta fyrir ísafjörð og Vestfirði alla. Enginn efast um virkan stuðning þm. eða annarra forsjármanna Vestfirðinga til að hrinda þeim áætlunum í framkvæmd, þegar þar að kemur.

Það komu fleiri umsagnir um þetta mál, en ég sé ekki ástæðu til að lesa meira upp í þessu sambandi. Þær umsagnir hnigu mjög í sömu átt og það, sem ég hef hér lesið bæði varðandi Vestfirði og hið almenna álit Orkustofnunarinnar, og sé ég því ekki ástæðu til þess að lesa það sérstaklega.

Um þann hluta till., sem snýr að verðjöfnun, verður að viðurkenna, að hér er við mikið vandamál að fást, sem verður að fást lausn á. Verðjöfnun á raforku til hitunar húsa er réttlætismál, og ekkert er mikilvægara í hinu svokallaða byggðajafnvægismáli en það, að landsmenn sitji allir við sem jöfnust kjör hvað viðkemur almennum kostnaði á rekstri heimilanna.

Ég tel svo ekki ástæðu, herra forseti, til að orðlengja frekar um þetta mál, en það var einróma samþykkt í fjvn. að vísa þessari till. til ríkisstj. í trausti þess, að hún tæki málið til alvarlegrar athugunar og framkvæmda.