29.04.1974
Efri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3968 í B-deild Alþingistíðinda. (3542)

85. mál, vísindaleg verndun fiskimiða landgrunnsins

Frsm. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Sjútvn. þessarar d, hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. nr. 44 frá 6. apríl 1948, um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins. N. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt frv. óbreytts. Hér er um að ræða, eins og frv. her með sér, breyt. á l. frá 1948. Greinin kemur til með að hljóða þannig:

„Sjútvrn. skal með reglugerð ákveða takmörk verndarsvæða við strendur landsins innan endimarka landgrunnsins“ — og síðan bætist við: „eða hafsvæði allt að 200 sjómílum utan við grunnlínu.“

Það var nokkuð rætt um það í n., hvort ekki væri ljóst, ef landgrunnið teldist ná lengra samkv. l. frá 1969 en 200 sjómílur, að það mundi þá ráða, en annars 200 sjómílur. Voru nm. sammála um, að svo bæri að skilja þessa grein. Til skýringar vil ég geta þess, að í l. frá 1969 er svo sagt í 3. gr.: „Íslenska landgrunnið telst í merkingu þessara laga ná svo langt út frá ströndum landsins sem unnt reynist að nýta auðæfi þess. Landgrunn eyja, sem utan landhelgi liggja, skal markað á sama hátt“.

Þarna er farið að alþjóðlegri skilgreiningu, sem að vísu er nú til athugunar, enda ákaflega óljós, en við hana er stuðst, á meðan annað liggur ekki fyrir.

Að þessu sögðu, endurtek ég, að n. mælir með samþykkt þessa frv.