29.04.1974
Efri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3969 í B-deild Alþingistíðinda. (3543)
85. mál, vísindaleg verndun fiskimiða landgrunnsins
Jón Árnason:
Herra forseti. Ég var með nokkrar aths. í sambandi við þetta frv., þegar það var hér til 1. umr., og það var sérstaklega í sambandi við ákvæðið um 200 sjómílurnar, sem ég dró í efa, að væri rétt að taka sérstaklega fram. En ég hef fengið þær upplýsingar hjá sérfræðingum um þessi mál, að orðalagið í 1. gr. frv., en þar segir: „eða á hafsvæði allt að 200 sjómílum utan við grunnlínu“ — takmarki í engu endanlega stærð landgrunnsins. Eftir sem áður eru það sjálf landgrunnslögin, sem hér ráða úrslitum, en þar segir, að stærð landgrunnsins miðist við hagnýtingarmörk. Það er á þeim forsendum, sem ég er samþykkur því frv., sem hér er til umr.