29.04.1974
Efri deild: 109. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3971 í B-deild Alþingistíðinda. (3546)

200. mál, landgræðslustörf skólafólks

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Fyrsti flm. og frsm. menntmn. hefur nú gert grein fyrir afstöðu n. Ég vil aðeins standa upp til að fagna þeirri hugmynd, sem fram kemur í frv., og tel hana vel tímabæra og hv. d. ætti að sameinast um að samþykkja frv. og koma því áleiðis og Alþingi að afgreiða það. Hann undirstrikaði, að þetta er mál, sem tekur sinn tíma að koma í framkvæmd, og það mun ekki vera ætlunin að rasa hér um ráð fram. En hér er lagður grundvöllurinn að mjög mikilvægu starfi fyrir framtíðina, að græða upp landið á margvíslegan hátt.

Í 2. gr. er gerð grein fyrir því, með hvaða hætti landgræðslustörf geta verið, og er þar ýmislegt talið upp, sem bæði gæti verið innan borga og bæja og utan þeirra marka, og er það mjög ákjósanlegt. Það er hverjum ungum manni hollt að leggja nokkuð af mörkum fyrir þjóðfélagið og framtíðina og vera utan skólaveggja í góðu veðri við slík störf, sem frv. gerir ráð fyrir. Ég vil þakka 1. flm. fyrir framlag hans í þessu máli og góða samvinnu við okkur í menntmn. í sambandi við þetta frv. og skýringar hans á málinu.