29.04.1974
Neðri deild: 113. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3977 í B-deild Alþingistíðinda. (3576)

292. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Hér hafa komið fram tvær brtt. við 2. gr. frv., og tel ég þær báðar til bóta, eins og komið er. Þar sem búið er að samþykkja greinina við 2. umr. eins og hún er í frv., tel ég báðar þessar till. til bóta og í réttlætisátt. Ég mun því vissulega greiða þeim báðum atkvæði.

En þegar það kemur fram, að nú er farið að taka út einstaka tekjulága aðila eins og þá, sem ellilífeyris njóta og tekjutryggingar, er það öruggt, að það eru fleiri aðilar í þjóðfélaginu, sem svipað er ástatt um. Er ekki til tekjulítið fólk, sem ekki enn þá er komið inn í tryggingakerfið, og á það ekki eins rétt á því að fá einhverjar uppbætur og þeir, sem fengið hafa örorkubætur, og þeir, sem hafa aldur til að fá lífeyri? Getur ekki verið um aðila að ræða, sem svipað er ástatt um, en ekki njóta tekna frá hinu almenna tryggingakerfi? Ef svo er, þá er þarna atriði, sem jafnhliða þyrfti að skoða.

Ég ætla að vona í lengstu lög, að hv. Ed. beri gæfu til þess að endurskoða frv. og færa það í einfaldara form en það nú er, eftir að búið er að afgreiða það hér við 2. umr. í þessari hv. d., því að mér sýnist svo, að því betur, sem málið er skoðað, því flóknara verði það í framkvæmd. Og ég er alveg sannfærður um það, að Alþ. er að fara hérna inn á braut, sem verður því lítt til sæmdar, þegar málið liggur ljóst fyrir hjá þeim aðila, sem víð taka að annast framkvæmdina á því.

Hæstv. viðskrh. sagði hér áðan, að það væri til vansæmdar fyrir Alþ., hve mál þetta hefði dregist lengi. Ég geri ráð fyrir, að hann eigi þá við, að það sé til vansæmdar, að aðilar fái síðar uppbætur vegna olíukaupa en ef málið hefði verið afgreitt fyrr. En sér hæstv. viðskrh. ekki, inn á hvaða braut hann er kominn? Hvenær fá þeir, sem eiga að njóta styrks, hann greiddan? Ég hygg, að það verði ekki fyrr en síðari hluta þessa árs, þegar sveitarfélögin fara að gera upp við þá útsvörin, að þá fyrst komi það þeim til góða. Ég held, að það verði þannig í flestum tilfellum, að það hefði verkað miklu fyrr fyrir þá, sem þurfa að kaupa olíu til húsakyndingar, ef farið hefði verið inn á það að greiða olíuna beint niður.

Nú liggur alveg ljóst fyrir, að sveitarfélögin eru andvíg að taka þetta að sér. Það á að þvinga þau til að taka málið að sér, taka það til fyrirgreiðslu.

Það fær enginn olíustyrk, að ég hygg, fyrr en farið er að liða á síðari hluta ársins, þannig að ég tel, að það sé miklu frekar ámælisvert fyrir hv. Alþingi að hafa ekki gert málið einfaldara heldur en að til vansæmdar sé sá dráttur, sem farið hefur í það að reyna að þoka málinu í eðlilegt horf.

Ég skal ekki tefja umr. um þetta mál lengur, en ég leyfi mér að vona í lengstu lög, að hv. Ed. sjái að sér, skoði málið betur en þessi hv. d. hefur gert og geri það einfaldara í framkvæmd en nú liggur fyrir, að það verði, ef það verður samþ. eins og það liggur fyrir eftir 2. umr.