29.04.1974
Neðri deild: 114. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3995 í B-deild Alþingistíðinda. (3610)

Umræður utan dagskrár

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Það fór sem margan grunaði, þegar umr. um leyfisveitingar til handa flugvélunum frá Austur-Þýskalandi voru hér til umr., að skip þau, sem áttu að skipta hér um áhafnir, væru að veiðum að einhverju leyti á Íslandsmiðum. Um það er staðfesting í fregnum í útvarpinu í kvöld, þegar Landhelgisgæslan segir frá því, að á miðum vestur af Víkurál innan við 90 mílur séu 18 austur-þýsk skip, 10 pólsk, 6 rússnesk og 1 vestur-þýskt. Þessi floti, sem þar er frá Austur-Þýskalandi, tilheyrir því skipi, sem hingað mun koma í kvöld til þess að ná í nýja áhöfn.

Leyfisveitingarnar voru byggðar á því, eftir því sem hæstv. sjútvrh. sagði, að hér væri um að ræða veiðar við Kanada og við Noreg, en furðaði að vísu á því, að hingað skyldu þessi skip leggja leið sína til þess að skipta um áhafnir. Þetta voru þær forsendur, sem þeir í sjútvrn. höfðu gefið sér, þegar þeir mæltu með því, að utanrrn. veitti þau umbeðnu leyfi vegna lendingar flugvéla á Keflavikurflugvelli. Því var hins vegar haldið fram í umr. á þingi, að þetta væri ekki eins auðvelt og ekki eins venjulegt og hæstv. sjútvrh. vildi vera láta, enda kom það fram í ræðu hæstv. forsrh., að hér væri um að ræða hreina undantekningu og þeir í utanrrn., hann var þá mættur fyrir hæstv. utanrrh. í fjarveru hans, — höfðu ekki heldur gert sér grein fyrir því, hvar þessi skip gætu verið að veiðum. Nú er hins vegar staðreyndin komin í ljós, þegar Landhelgisgæslan í dag staðreynir, hvar þessi skip eru að veiðum.

Það er hins vegar gleðiefni, að hæstv. sjútvrh. bregður fljótt við og sendir bréf til utanrrn. Mér er hins vegar kunnugt um, að aðgerðir af þess hálfu hafa engar verið í dag, þar sem bréfið kom hingað það seint til rn. og því ekki hægt að gera neitt í málinu. Skipið kemur hingað í kvöld kl. 10, sagði í fréttunum, en flugvélin á að koma á morgun. Ég er alveg sammála hv. 7. þm. Reykv., þegar hann gerir kröfu til, að þessi leyfi verði nú þegar stöðvuð.

Þegar þessi mál voru rædd hér, vildi hæstv. ráðh. ekki á okkur hlusta. Hann gerði ákaflega lítið úr þeirri gagnrýni, sem við höfðum uppi, og fannst, eins og hann orðaði það, að hér væri um venjulega leyfisveitingu að ræða. Ráðh. gekk í gildru og mælti með því, að þessi leyfi skyldu fást og utanrrn. skyldi veita þau. Hvernig honum tekst að komast út úr þeirri gildru, skal ég ekki um segja. Hann hefur gert sitt til í dag.

En ég var ekki alveg ánægður með það orðalag, sem var á bréfi hæstv. sjútvrh. til utanrrn., en mér skilst á því, að allt ætti að vera háð yfirlýsingu fulltrúa austur-þýskra stjórnvalda.

Það kom fram í ræðu hv. 7. þm. Reykv., að við fulltrúar Sjálfstfl. í utanrmn. höfðum beðið um fund í n. á morgun. Ég ræddi við hæstv. forsrh. í forföllum utanrrh. nú í kvöld og óskaði eftir því, að fundur yrði haldinn í n., og hann sem dómsmrh. gerði ráðstafanir til þess, að forstjóri Landhelgisgæslunnar mætti þar á fundi til þess að staðreyna sannindi þessa máls. Mér finnst það liggja í augum uppi fyrir okkur hér á Alþingi íslendinga, að það eru upplýsingar íslenskra stjórnvalda, sem gilda í þessu máli. Það hlýtur að vera skýrsla sú, sem forstjóri Landhelgisgæslunnar gefur á utanrmn.- fundi á morgun og þá hafandi gefið ríkisstj. þá skýrslu, sem ræður úrslitum í þessu máli en ekki yfirlýsing fulltrúa austur-þýskra stjórnvalda. Ég legg líka áherslu á það, sem kom fram í ræðu hv. 7. þm. Reykv., að þau bréfaviðskipti, sem fram fóru á milli utanrrn., sjútvrn. svo og austurþýskra stjórnvalda, verði öll lögð fram í utanrmn. Þegar hæstv. forsrh. gaf okkur umrædda skýrslu, sem hann svo gaf hér í Sþ. um þetta mál, gerði hann aðeins grein fyrir bréfunum og gerði grein fyrir því, hvað í þeim stæði, en lagði þau ekki fram í nefndinni.

Ég ætla svo ekki að fjölyrða um þetta. Ég vildi aðeins draga þessi atriði saman. Það er staðreynd málsins, að forsendur þessara leyfa eru brostnar. Íslensk stjórnvöld hafa staðreynt það. Það á því hiklaust á stundinni að afturkalla leyfið.