29.04.1974
Neðri deild: 114. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4000 í B-deild Alþingistíðinda. (3616)
257. mál, hússtjórnarskólar
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Um nokkur undanfarin ár hefur aðsókn að að húsmæðraskólum víða um land verið afar dræm. Þó eiga þar ekki allir skólarnir óskilið mál, en allmargir þeirra hafa búið við svo litla aðsókn, að þótt allra ráða væri leitað, ekki aðeins auglýst eftir námsfólki til reglulegrar skólaveru, heldur einnig efnt til ýmiss konar námskeiðahalds til að draga að nemendur um skemmri tíma, hefur mikið skort á, að þessir skólar væru eðlilega skipaðir miðað við þann húsakost og það kennaralið, sem þar er um að ræða.
Þessi þróun mála hefur að sjálfsögðu verið forráðamönnum þessara skóla mikið áhyggjuefni, ekki síst þeim sýslufélögum, sem staðið hafa að rekstri skólanna að sínum hluta móti ríkinu. Það hefur kveðið svo rammt að nemendafæðinni, að þótt hefur á mörkunum, hvort verjandi væri að halda uppi kennslu og skólahaldi fyrir þá fáu, sem suma skólana sóttu.
Ég mun ekki rekja hér þær orsakir, sem menn telja, að til þessa liggi, þá breyttu þjóðfélagshætti, sem valda því, að þverrandi hluti uppvaxandi kynslóðar hefur áhuga á að sækja þá fræðslu, sem húsmæðraskólarnir hafa látið af mörkum. En sjálfsagt þótti að leita úrræða, hversu vænlegast þætti að koma þessu skólahaldi í vænlegra horf. Í því skyni var skipuð n. af hálfu þeirra aðila, sem málin eiga að vera kunnugust, af hálfu skólastjóra húsmæðraskólanna, af hálfu Sambands ísl. sveitarfélaga, af hálfu Kennarafélagsins Hússtjórnar- og Kvenfélagasambands Íslands. Þessi n. starfaði að viðfangsefninu, sem fyrir hana var lagt, og skilaði tveim frumvörpum, frv. um hússtjórnarskóla, sem hér kemur til hv. d. frá Ed., sem hefur gert á því nokkrar breyt., m.a. þá að breyta nafni skólanna, sem um er að ræða, úr Heimilisfræðaskóla í Hússtjórnarskóla.
Efni frv. fjallar annars vegar um breytt námsefni og breytta tilhögun á kennslunni í húsmæðraskólunum, sem hingað til hafa heitið svo, og hins vegar um breyttan rekstur skólanna.
N. leggur til, að horfið verði frá því, að héruð og ríki reki þessa skóla í sameiningu, heldur verði þeir algjörlega ríkisskólar. Jafnframt er ráð fyrir því gert, að niðurstaðan verði sú, að ekki verði unnt aðsóknar vegna að reka skólana alla. Tekið er fram, að þótt um það semjist milli héraða og ríkis, að ríkið taki við skólum, fylgi því ekki skuldbinding um að reka skólana í því horfi, sem miðað er við um hússtjórnarskóla. Breyt. á skólastarfinu eru hugsaðar þær, að aðgang að skólum hafi jafnframt piltar og stúlkur, en ekki eingöngu stúlkur, eins og verið hefur, og í skólunum verði veitt ekki aðeins fræðsla, sem að því beinist að mennta verðandi húsmæður, heldur sömuleiðis fræðsla, sem orðið geti undirstaða að störfum eða frekari menntun til starfa í ýmsum þjónustu- og umsjónagreinum. Því er gert ráð fyrir, að auk þeirrar almennu undirstöðufræðslu, sem veitt verði í hússtjórnarskólum, skuli jafnframt stofna til framhaldsnáms í hússtjórnar- og heimilisfræðum fyrir þá, sem hyggjast veita forstöðu mötuneytum á viststofnunum. Lagt er á vald menntmrn., hvenær efnt verður til þessarar framhaldsmenntunar. Reynslan mun svo skera úr, hve víða reynist unnt að halda uppi hússtjórnarskólahaldi, ef lögfest verður þetta nýja fyrirkomulag. Ég veit, að á ýmsum stöðum er það viðkvæmt mál, að gamlar og merkar skólastofnanir leggist ekki niður, en hitt er jafnljóst, að það er engum til góðs, að reynt sé að halda uppi kennslu, þar sem aðsókn réttlætir ekki skólahald.
Ég legg svo til, herra forseti, að eftir þessa umr. verði frv. vísað til hv. menntmn.