30.04.1974
Sameinað þing: 80. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4013 í B-deild Alþingistíðinda. (3632)

Umræður utan dagskrár

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Nú er málið alveg hætt að vera skemmtilegt. Ég gat ekki heyrt betur á hæstv. forsrh. áðan, af hinum mikla alvöruþrunga í orðum hans og alvörusvip, sem á honum var, en hann væri að flytja einhvers konar líkræðu. Og það er enginn vafi á því, hvern á að fara að grafa, það er ríkisstj. Þetta var eins konar inngangur að kveðjuorðum yfir ríkisstj., sem hann flutti með alvöruþrunga og alvörusvip.

Það stendur hér staðhæfing á móti staðhæfingu, annars vegar af hálfu formanns eins stjórnarflokksins og hins vegar sérstaklega af hálfu eins ráðh., sem hæstv. forsrh. virðist þó frekar styðja. En í öllu falli, það er ágreiningur um það, hvað í raun og veru hefur gerst, því að formaður eins stjórnarflokksins hefur vitnað í einn ráðh., sem hefur líka sagt, að iðnrh. hafi sagt ósatt. Þetta er mál, sem verður að uppklárast. Þingið getur ekki látið bjóða sér það, að hér standi ráðh. og formenn sjálfra stjórnarflokkanna og beri hver annan ósannindum. Það getur ekki gengið. Þetta mál verður að fást upplýst, fást úr því skorið nákvæmlega, hvað þar stendur, ef það þá er rétt bókað. En öðru en því að fletta upp í gerðabókinni og sjá, hvað þar stendur, ef það þá er rétt bókað. En eitt er þó alveg augljóst. Það er alveg augljóst, að hæstv. iðnrh. hefur farið á bak við forsrh. sinn, líklega ekki í fyrsta skipti. En það hefur hann gert núna, það er alveg augljóst, og því hefur hann lýst yfir, hæstv. forsrh., að Magnús Kjartansson hafi ekkert umboð haft til að gefa þá yfirlýsingu, sem hann gaf í útvarpinu í fyrrakvöld, og það er að fara á bak við sinn forsrh. Hann sagðist hafa lýst sínum skoðunum, en hann var að lýsa skoðunum annarra manna, en ekki sínum eigin. Það getur hann gert auðvitað, hvenær sem hann vill, lýst sínum eigin skoðunum, — menn hafa fengið alveg nóg af því að heyra þær, — og hann má gjarnan halda því áfram, hann eykur veg sinn ekkert sérstaklega með því. En ef hann lýsir skoðunum annarra, þá á hann að segja satt og ef hann segir staðreyndir, um skoðanir annarra, þá eiga það að vera staðreyndir, réttar staðreyndir, og það er það, sem dregið er í efa. Ef menn halda, að það sé eitthvað nýtt, að þessi hæstv. ráðh. segi ósatt, ja, ég bara bið fyrir mér. Hvernig halda menn, að tungan í þeim manni sé, sem hefur verið ritstjóri Þjóðviljans í 20 ár? Hún er ábyggilega ekki falleg.

Nei, þetta ber auðvitað vott um það eitt og ekki annað en það, að þessi ríkisstj. er orðin algerlega óstarfhæf. Það hefur oft komið í ljós á undanförnum vikum og mánuðum hér á hinu háa Alþ., að ríkisstj. er í raun og veru búin að kveða upp dauðadóminn yfir sjálfri sér, svo að það er ekkert undarlegt, þó að hæstv. forsrh. haldi ræðu eins og hann hélt hér áðan. Líf stjórnarinnar er búið, það er löngu búið, og hún ætti að taka afleiðingunum af því, segja af sér og fara, því að farið hefur fé betra. Það er óhætt að segja það.

Einu langar mig til að bæta við, en áður smáinnskot varðandi fréttastofuna. Menn voru hér að ásaka fréttastofuna fyrir hlutdrægni í fréttaflutningi. Ég andmæli þessu. Ég held, að fréttastofan hafi komið algerlega rétt fram og allt, sem hún hafi gert í þessu máli, sé algerlega ámælislaust. Hún leitaði fyrst til þriggja ráðh., þeir fengu allir að segja sína skoðun. Hún leitaði til formanna stjórnarandstöðunnar, við fengum að segja okkar skoðun. Þá reiddist hæstv. iðnrh., vildi fá að segja sína skoðun, og hann fékk það. Það er alveg átölulaust af minni hálfu. Það getur vel verið, að ég sendi út af þessu smáleiðréttingu seinna í dag, getur vel verið. Hún skal vera afskaplega saklaus, svo að fréttastofan á vel að geta birt hana. En hitt var náttúrlega dólgsháttur í mesta máta, þegar iðnrh. gaf í skyn, að ég sem var yfirmaður útvarpsins í 15 ár, hafi misnotað aðstöðu mína sem slíkur. Hann getur spurt hvaða mann sem starfað hefur á fréttastofunni í allan þennan tíma um það, hvort ég hafi nokkurn tíma hringt þangað til þess að hafa afskipti af því, hvað kæmi í fréttum. Ég hef aldrei gert það, aldrei í 15 ár. En það kynni að vera, að einhver gæti sagt frá því, að einhver annar hefði hringt þangað. Það kynni að vera. Ég skal ekki segja meira um það, en það mætti kannske upplýsa eitthvað í þá átt síðar meir. Þó að það sé engin gerðabók til á fréttastofunni, þá kunna menn að hlusta og menn hafa sæmilegt minni a.m.k. Ráðh. var að ásaka mig fyrir að hafa verið vanstilltur í útvarpi og sjónvarpi undanfarið. Þetta segir hann, sem öll þjóðin heyrði skjálfa í útvarpinu í gærkvöldi.

En komum nú aftur að alvöru málsins. Fyrst farið er að vitna í gerðabók ríkisstj. og það, sem þar er skráð eða kann að vera skráð, þá langar mig til að bæta einu atriði við. Ef henni er flett upp á annað borð, vil ég láta fletta upp á fleiru en því, sem hér er deilt um. Þá vildi ég fá að vita, hvað stendur í gerðabók ríkisstj. um afstöðu ráðh. Alþb. til hugmynda hæstv. forsrh. um efnahagsmál. Í þeim hugmyndum, frumhugmyndum hans, var eitt atriðið það, að binda skyldi vísitöluna með lögum til loka nóv. n.k. (Forseti hringir.) Ég skal stytta mál mitt. — Ég vil fá áð vita, hvað þar stendur um afstöðu ráðh. Alþb. til 5. gr. þeirra hugmynda, þar sem kveðið er á um, að vísitalan skuli bundin með lögum til 31. nóv. n.k. Stendur það ekki þar, að ráðh. Alþb. hafi samþykkt þetta? Og ég vil spyrja um annað: Bættist ekki í seinni útgáfu þessa frv. við ein gr., sem nú er 7. gr., þar sem svo er kveðið á, að afturkalla skuli með lögum allar kauphækkanir í síðustu samningum, sem eru umfram 20%? Stendur það ekki í gerðabókinni, að sú hugmynd hafi komið frá ráðh. Alþb.? Þetta vildi ég gjarnan fá að vita, Og enn fremur: Stendur það ekki í gerðabókinni líka, að á ráðherrafundi nokkrum dögum seinna hafi þeir snúist gegn báðum þessum hugmyndum, fyrst hugmynd forsrh., sem þeir voru áður búnir að samþykkja, og sinni eigin hugmynd,sínu eigin eggi. (Gripið fram í: Það er allt hugarburður.) Nú skulum við fá að skoða gerðabókina. Ég vildi gjarnan fá að sjá hana, formaður SF, Hannibal Valdimarsson, hefur viljað fá að skoða hana. Ég tel nú, að eftir svona lagað ætti bara að birta blessaða bókina hér eða þessa siðu úr henni, sem um þetta fjallar. Þessi ósk er eðlileg, þegar það hefur komið fram, að forustumenn stjórnarflokkanna bera hver öðrum á brýn ósannindi. Það er vitnað í gerðabókina. Þá vil ég líka fá að vita, — það er eðlileg ósk, — hvað stendur í gerðabókinni um þessi atriði. Það er ekki minna athyglisvert.