02.05.1974
Efri deild: 114. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4029 í B-deild Alþingistíðinda. (3663)

174. mál, viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi

Auður Auðuns:

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 789, höfum við hv. 5. þm. Vestf., Þorv. Garðar Kristjánsson, lagt til, að frv. verði samþ. óbreytt, en aðrir nm. hafa áskilið sér rétt til að flytja brtt. við frv. og fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.

Í menntmn, lagði form. fram brtt. við frv., og nú hafa verið fluttar við það brtt. á þskj. 790 af 5 nm. varðandi ákvæðin um einkaskólana, þ.e.a.s. Verslunarskólann og Samvinnuskólann. Ég skal síðar víkja að þeim brtt., en vil taka það fram, að við 5. þm. Vestfj. eru þeim brtt. algjörlega andvíg, enda lítum við svo á, að þeir aðilar, sem stóðu að samningu þessa frv. af hálfu þeirra, sem einkaskólana reka, hafi treyst á það, að þau ákvæði frv., sem tryggja áframhaldandi sjálfstæði þessara skóla, héldust óbreytt, þótt þeim vitaskuld eins og öðrum væri ljóst, að enginn segir Alþ. fyrir verkum.

Hæstv. menntmrh. hefur lagt fram frv. óbreytt í þeirri mynd, sem n., sem undirbjó það, gekk frá því, að því einu undanskildu, að það hefur verið breytt einu orði. Þar sem í frv., sem n. skilaði, var talað um verslunarstúdentspróf, er í frv. nú aðeins talað um stúdentspróf. Enn er þess að geta, að þeir aðilar, sem sömdu frv., voru allir sammála um öll ákvæði þess, og eins og fram kemur í grg. með frv., sátu í n. fulltrúar frá menntmrn. auk fulltrúa frá skólunum tveim, sem ég leyfi mér að nefna einkaskóla, Samvinnuskólanum og Verslunarskólanum.

Þessir tveir einkaskólar hafa einir annast verslunarmenntun í landinu um langt skeið, þegar frá eru skildar verslunardeildir eða einhverjir þættir verslunarnáms, sem einstaka gagnfræðaskólar hafa tekið upp á síðari árum. Þessir skólar hafa sparað ríkinu stórfé með því að veita menntun, sem ríkið hefði ella þurft að annast. Þetta á þó enn frekar við Verslunarskólann, sem er mörgum sinnum fjölmennari en Samvinnuskólinn og veitir nú menntun allt að stúdentsprófi. Sá skóli hefur starfað síðan árið 1905. Það er óhætt að fullyrða, að fært til núgildandi verðlags hafi hann sparað ríkinu hundruð, og þó öllu frekar þúsundir milljóna í stofnkostnaði og rekstrarkostnaði. Með þeim styrk, sem einkaskólarnir tveir hafa haft á fjárlögum undanfarin ár, má í rauninni líta svo á, að ríkið hafi verið að kaupa þjónustu af þessum menntastofnunum langt undir kostnaðarverði. En til þess að standa að einhverju leyti straum af rekstrarkostnaði hafa þessir skólar orðið að láta nemendur greiða skólagjöld. Mér er þó kunnugt um, að Verslunarskólinn a.m.k. hefur í mörg ár ekki talið unnt að hækka skólagjöld sín sem eru 10500 kr., þrátt fyrir stórhækkaðan rekstrarkostnað. Með þessu frv. er ætlunin að bæta fjárhagsaðstöðu skólanna, að skólagjöldin falli niður. Það er rétt að geta þess, sem reyndar kemur einnig fram í grg. með frv., að Verslunarskólinn hefur auk þess um langt skeið notið styrks frá Reykjavíkurborg.

Verslunarskólinn hefur í rekstri sínum lagt megináherslu á að efla sem mest tengsl skólans við viðskipta- og athafnalífið í landinu og samræma þá menntun, sem hann veitir, þörfum þess. En til þess hafa vitaskuld þeir aðilar, sem að skólanum standa, Verslunarráðið og SÍS, aðstöðu langt umfram það, sem ríkisskóli getur haft. Og til þess að gegna því hlutverki veit ég, að a.m.k. aðstandendur Verslunarskólans hafa lagt megináherslu á sjálfstæði skólans, og ég veit, að sama máli mun gegna um Samvinnuskólann.

Þegar aðilar frá þessum skólum féllust á að starfa í n. til að undirbúa frv. um viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi, gerðu þeir það í trausti þess, að samkomulag yrði um að varðveita sjálfstæði skólanna. Nú eru fram komnar brtt. við ákvæðin um einkaskólana, Verslunarskólann og Samvinnuskólann, og ég skal nú víkja að þessum brtt. Þær eru á þskj. 790 og fluttar af 5 nm. í menntmn. Ég skal fyrst ræða efni fyrri till., sem er varðandi 9. gr. frv., þar sem er að finna aðalákvæðin varðandi þessa tvo einkaskóla.

Í frv. er lagt til, að styrkur úr ríkissjóði til nefndra skóla skuli hlíta þeim ákvæðum, sem síðar segir, annars vegar um rekstrarkostnað og hins vegar um stofnkostnað. Það er skilyrði þessara styrkveitinga, eins og í frv. stendur, að menntmrn. hafi samþ. árlega áætlun rekstrarkostnaðar skólanna og að fé sé veitt í fjárl. fyrir stofnkostnaði, enda liggi áður fyrir samþykkt stjórnvalda fyrir nýjum byggingarframkvæmdum. Í þessari brtt. frá þeim fimmmenningunum í menntmn. er lagt til, að þarna verði ekki um styrk að ræða, heldur framlög. Segja má, að þetta skipti aðallega máli í sambandi við stofnkostnaðinn, en þar stendur í brtt. í næstsíðustu mgr., að framlag ríkissjóðs til stofnkostnaðar kennslu- og heimavistarhúsnæðis teljist áfram eign ríkisins og ráðuneytið geti tekið sinn hluta húsnæðisins til annarra nota, þegar það er ekki hagnýtt í þágu viðkomandi skólastofnana. Þetta kann í fljótu bragði að virðast ekki óeðlilegt. En ef nánar er að gáð, má ætla, að samþykkt þessarar brtt. gæti haft áhrif á sjálfstæði skólanna. Eins og nú er, starfar Samvinnuskólinn í húsnæði, sem ekki er eign skólans sem slíks, en Verslunarskólinn í eigin húsnæði og á geysiverðmætar eignir hér í miðborginni. En þar er þegar orðíð allt of þröngt um skólann og það meira að segja svo, að hann varð að taka húsnæði á leigu til að halda uppi vissum þætti kennslu í verslunarfræðum. Honum var svo sagt upp þessu húsnæði, og í haust varð að fækka nemendum við skólann af þessum orsökum, en í honum voru nú í vetur um 630 nemendur. Það er því eðlilegt, að Verslunarskólinn, sem stöðugt er ákaflega mikil aðsókn að, hyggi á nýbyggingar. Þá leggst væntanlega niður notkun þess húsnæðis, sem skólinn er nú í hér í miðbænum. En þegar ráðist verður í byggingar á nýjum stað, gæti Verslunarskólinn með sölu þessara verðmætu eigna auðvitað lagt mikið fé í þær. Ef nú 80% eignaraðild ríkisins í nýbyggingu væri fyrir hendi eða það yrði samþ., að svo yrði, þá er hætt við, að sjálfstæði skólans fari að verða lítið úr því. Þetta er atriði, sem ég veit að er mikill þyrnir í augum þeirra, sem að Verslunarskólanum standa. Það mætti kannske segja, ef skólinn yrði hreinlega lagður niður, en ekki yrði byggt neitt upp á nýjum stað, að ríkið ætti kröfu á endurgreiðslu á styrknum. En miðað við það, að byggt verði á nýjum stað, verður útkoman töluvert önnur, og eins og ég sagði áðan, þá mundi það þýða, að á nýjum stað yrðu skólahúsin að langmestum hluta í eigu ríkisins. Eins og ég áðan sagði, gefur auga leið, hvaða áhrif það hefði á sjálfstæði skólans, sem aðstandendur Verslunarskólans leggja megináherslu á

Ég skal þá víkja að annarri brtt., sem er um það, að ráðh. skipi skólanefndir við þessa skóla og ráðh. skipi einn fulltrúa frá menntmrn. án tilnefningar, aðra eftir tilnefningu eignaraðila. Það er að vísu býsna mikil framför í þessum brtt. frá því, sem fyrst var lagt til í nefndinni, þar sem stungið var upp á þriggja manna skólanefndum og ráðh. skipaði formanninn, en eignaraðilar tilnefndu tvo. Ég lýsti því þá, að mér þætti það alveg furðulegt, að hv. nefndarform. vissi ekki einu sinni, hvernig skólanefnd Verslunarskólans er skipuð, þessarar gömlu menntastofnunar, sem er búin að starfa í nær 70 ár og hefur menntað þúsundir Íslendinga til starfa í viðskipta- og athafnalífinu. Skólanefnd Verslunarskólans, eins og hún er skipuð, gefur nefnilega til kynna, hvert er markmið og stefna þeirra, sem að skólanum standa. Skólanefndin er 5 manna nefnd, og af þessum 5 er einn nm. tír hópi Nemendasambands Verslunarskólans og annar úr hópi félaga úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur, en í því félagi mun allur fjöldi meðlima vera fólk, sem hefur hlotið menntun í Verslunarskóla Íslands. Um Nemendasambandið vil ég bæta því við, að það hefur á margvíslegan hátt sýnt mikla umhyggju fyrir skólanum og verið skólanum mikil stoð — og fólk í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur einnig. Þarna er fólk, sem er í öllum greinum viðskipta- og athafnalífs, bæði starfsmenn og stjórnendur og framámenn á ýmsum sviðum viðskipta og annarra greina.

Nú er verið að bæta í þessa skólanefnd fulltrúa frá kennurum og fulltrúa frá nemendum, sem er í samræmi við þá stefnu, sem nú er almennt viðurkennd: að gefa þessum aðilum aðild að stjórnun þeirra stofnana eða skólanefndum þeirra stofnana, sem þeir kenna eða nema við.

Ég hlýt að segja það, að ég er algjörlega mótfallin þessari brtt. og ekki síður því, að nú eigi ráðh. að fara að skipa skólanefndirnar, þótt það sé eftir tilnefningu frá eignaraðilum. Það á ekki að haldast, sem verið hefur, að eignaraðilarnir skipi skólanefndirnar. Og varðandi fulltrúa frá menntmrn. í skólanefndirnar, þá sé ég ekki, að það sé nokkur nauðsyn á því. Þessir skólar starfa eftir reglugerð og undir yfirumsjón menntmrn., sem hefur alla möguleika til þess að fylgjast með rekstri þeirra, gefa þeim fyrirskipanir, sem það telur að gera þurfi, og yfirleitt að fylgjast með öllum málefnum skólans, fjárreiðum sem öðrum, enda vil ég minna á það, sem segir um skilyrði fyrir styrkveitinum í frv.

Ég vil taka það fram varðandi skólaráð, sem er í brtt., að það breytir engu fyrir Verslunarskólann, því að slíkt skólaráð hefur starfað þar um langt skeið og hefur gefið, að mér er sagt, ágæta raun.

Þegar verið var að ræða frv. í n. kom það fram, að auk okkar hv. 5. þm. Vestf. voru tveir fulltrúar stjórnarfl. í n., sem lýstu því yfir, að þeir hefðu helst kosið, að frv. færi í gegn óbreytt. Þeir skýrðu frá því, að þeir hefðu haft samband við forráðamenn og aðstandendur Samvinnuskólans og að þeir hefðu einnig óskað eftir eða talið æskilegt, að frv. færi í gegn óbreytt. En hvað kemur til? Ég held, að það sé enginn vafi á því, að ef þessir hv. menntmn.-menn ásamt okkur tveimur hefðu viljað stuðla að því, þá væri ekkert hægara en að fá þetta frv. óbreytt í gegnum þessa hv. þd. En þarna liggur eitthvað annað að baki. Ég skal ekki segja, hvort það eru eingöngu skoðanir hv. nefndarform., sem þessir ágætu nm. töldu sig knúða til þess að beygja sig undir, eða hvað annað þar ræður.

Ég sé ekki ástæðu til á þessu stigi að hafa fleiri orð um málið, en vil endurtaka það, sem ég reyndar er áður búin að segja, að við hv. 5. þm. Vestf. erum algjörlega andvíg brtt. og leggjum áherslu á, að frv. fari í gegn óbreytt varðandi einkaskólana, þar sem við teljum, að þegar fulltrúar frá eignaraðilum féllust á að starfa í n. til þess að semja frv. um þessa skóla, hafi þeir gert það í trausti þess, að sjálfstæði þeirra yrði varðveitt og menn mundu virða það, þegar málið kæmi til umr. í þinginu.