02.05.1974
Efri deild: 114. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4037 í B-deild Alþingistíðinda. (3667)

174. mál, viðskiptamenntun á framhaldsskólastigi

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég vil ógjarnan, að við hv. 6. þm. Reykv. séum skráðir hér sem ósannindamanneskjur, og mér dettur í hug, að ef til vill sé skýring á þessu. Ég vil endurtaka það, að ég hef alltaf, frá því að farið var að tala um breytingar á þessu frv., talið breytingu, sem fram kemur við 9. gr., sjálfsagða, og ég minnist þess ekki, að ég hafi nokkurn tíma lýst annarri skoðun um það.

Hins vegar má vera, að hv. þm. sé að vísa til þess, að ég hef látið þau orð falla um 10. gr. og reyndar hygg ég oftar en einu sinni, að ég gæti fallist á óbreytta skipan skólanefndarinnar, ef um það yrði samkomulag. Ég álit breytinguna við 10. gr. ekki nálægt því eins mikilvæga og við 3. gr. (AuA: Var ekki um það samkomulag?) Nei, það varð ekki um það samkomulag, en sem sagt, ég hygg, að hv. þm. muni vera að vísa til þess, sem ég hef sagt um 10. gr. Það getur vel staðist, og reyndar var fyrst og fremst um þá gr. rætt, því að hv. þm. var ákaflega mótfallinn þeirri brtt., sem upphaflega kom fram hjá formanni. Eins og ég sagði áðan, gerðum við einnig aths. við einn lið í þeirri brtt. Hins vegar vil ég endurtaka það, að ég tel að brtt. við 10. gr. sé nú orðin á þann veg, að mér þykir undarlegt, að allir aðilar skuli ekki geta sætt sig við hana. — Ég vona, að þetta skýri málið.