02.05.1974
Neðri deild: 118. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4045 í B-deild Alþingistíðinda. (3682)

Umræður utan dagskrár

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það er nú svo með hv. 7. þm, Reykv., að ég má varla víkja mér hér úr d., svo að hann sé ekki kominn hér upp og farinn að tala á bakið á mér, í hvert og eitt einasta skipti. Ég var að tala í máli Ed., og þá var hann auðvitað kominn hér upp og byrjaður að lesa mér lesturinn. Honum dugar ekki að ræða við mig um tiltekið mál í sjónvarpi eða útvarpi, og þó að hann beri sig illa eftir slíkt samtal, sé ég ekki ástæðu til, að hann þurfi að vera hér í pontunni á hverjum degi og segja hér alltaf sömu fjarstæðuna. Það er rétt, að ég fái ástæðu til að rif ja upp enn einu sinni gang þessa máls, af því að það, sem hv. 7. þm. Reykv. segir, er í rauninni alrangt.

Hér er ekki um það að ræða, að sjútvrn. hafi verið að veita einum eða neinum leyfi, heldur er um það að ræða, að utanrrn. leitar til sjútvrn, og biður um umsögn um, hvort það hafi við það að athuga, að 3 tilteknar flugvélar lendi með skipshafnir á Reykjavíkurflugvelli, eins og beiðnin kom upphaflega fram. Eftir að sjútvrn, hafði aflað sér upplýsinga um, að hér væri um það að ræða, að þessi austur-þýski floti væri að veiða á Nýfundnalandsmiðum upp í tiltekinn aflakvóta, skrifaði sjútvrn. það bréf, sem ég hef lesið upp áður og hv. þm. var að enda við að lesa nú, enn einu sinni, — þá skrifuðum við utanrrn. það bréf og sögðum, að við hefðum ekkert við þetta að athuga.

Þá kemur spurningin: Eru þær upplýsingar, sem við höfum fengið um það, að þessi floti hugsaði sér að stunda veiðar við Nýfundnaland og Kanada, réttar eða rangar?

Það kom hér allítarleg frétt, sem höfð var eftir sendifulltrúa Þýska alþýðulýðveldisins í útvarpi og sjónvarpi, og það kom einnig fram í umr. hér á Alþingi, að þær upplýsingar hefðu verið gefnar, að þessi skip stunduðu veiðar við Nýfundnaland og stundum veiddu þau einnig við Noreg. Það hafði ég reyndar ekki heyrt minnst á fyrr en við umr. hér á Alþingi. Umsögn okkar í sjútvrn, um þessa fsp, byggðist á þessum upplýsingum, sem við höfðum fengið, að hér væri um að ræða mannskipti á skipum, sem ættu að veiða upp í tiltekinn kvóta á Nýfundnalandsmiðum. Þetta voru því nákvæmlega sömu upplýsingar, sem við byggðum umsögn okkar á, og aðrir höfðu fengið, bæði útvarp og sjónvarp, og greindu frá þeim, þegar skipið kom hingað, og einnig komu fram á Alþingi í umr. um málið. Við veittum ekki leyfi og settum því hvorki eitt né neitt skilyrði fyrir leyfisveitingunni. En hitt var alveg ljóst, að okkar umsögn byggðist á þessu, eins og ég tók fram á Alþingi, um leið og hér var minnst á málið.

Um leið og við heyrðum, að það væri uppi frétt um, að það skip, sem hafði komið hingað til þess að sækja þessar skipshafnir, væri með fiskiskipaflota vestur af Vestfjörðum, 90–100 mílur þar frá landi, en sagt var frá því í hádegisútvarpi, að þetta væri talið, en hins vegar hefði Landhelgisgæslan ekki haft aðstöðu til þess þá að kanna þetta vegna dimmviðris, — um leið og ég heyrði þetta í hádegisútvarpi, skrifaði ég heima hjá mér bréf það, sem hér hefur verið lesið upp, bæði af mér og nú aftur af hv. 7. þm. Reykv., og afhenti það sendli úr rn., sem kom hingað niður í Alþ. til þess að sækja þetta handrit mitt, rétt upp úr kl. 2, og ráðuneytisstjórinn skrifaði bréfið og sendi það til utanrrn., sem hv. 7. þm. Reykv, segir, að hafi fengið bréfið kl. 5 Ég stend að vísu ekki þannig yfir mínum starfsmönnum, að ég geti gætt þess nákvæmlega, á hvaða klukkustund þeir afhenda bréf, en það var a.m.k. löngu áður en þessi hv. þm. eða aðrir, gerðu vart við sig í þessu máli í sambandi við þessa nýju frétt. Við heyrðum hana og brugðumst fljótt við, vegna þess að við höfðum byggt okkar umsögn á ákveðnum upplýsingum sem lágu fyrir, og voru þær sömu og aðrir höfðu fengið.

Nú er auðvitað rétt að athuga það einnig í þessu máli, sem reynt er hér að gera úr afar stórt mál, — ég hef bent á það áður, að hér er auðvitað um fádæma lítið mál að ræða og aðeins fyrir litlar sálir að þjóta upp út af, — að það lá opið fyrir og liggur opið enn fyrir Austur-Þjóðverja að hafa sama hátt á og Bretar hafa og Vestur-Þjóðverjar hafa, að senda þessa skipshöfn sína með farþegaflugvélum, sem fljúga hingað til Íslands, — við höfum engin lög til að banna þeim að senda þessa menn hingað, — eins og Bretar senda iðulega sjómenn til að fylla í skarðið á sínum skipum, þegar svo stendur á hjá þeim. Í staðinn fyrir það, að skipshöfnin er send með leiguflugi, gátu þessir sjómenn komið með áætlunarflugvélum hingað og geta það enn. Við höfum heldur engin lög til þess að banna þeim að stíga um borð í skip, sem hingað kemur. Vegna þessa er auðvitað alveg augljóst, að það er minni háttar stigsmunur á því, hvort þessir sjómenn koma með áætlunarflugvélum eða leiguflugvél í þessu tilfelli. En ekki nóg með það.

Svo er verið að tala um veiðar þessara skipa, sem eiga sér stað langt fyrir utan okkar landhelgi, 90–100 mílur vestur af landinu, eins og gefið hefur verið upp, eða langt fyrir utan venjulegar fiskislóðir okkar. Þessi floti hefur verið þarna að veiðum; eins og reyndar oft áður, að erlendur floti hefur tekið þátt í veiðum á þessum slóðum, þar sem þeir eru að veiða grálúðu. Ekki getum við amast við því í sjálfu sér eða sagt eitt eða neitt við því, þó að þessi floti sé að veiða þarna. Við höfum ekki vald til þess. Þessi sami floti hefur hins vegar viðurkennt það — meira en það, sem aðrir hafa gert, — að hann fer í einu og öllu eftir okkar landhelgisreglum, hann veiðir ekki innan 50 mílnanna og hefur virt þær frá upphafi, á sama tíma og aðrir fiskveiðiflotar, eins og t.d. fiskveiðifloti Vestur-Þjóðverja, stunda hér ólöglegar veiðar innan 50 mílnanna víðs vegar í kringum landið. Það er ekkert stórmál hjá hv. 7, þm. Reykv. Hann þarf meira að segja að koma því inn í sína ræðu að það sé mikill munur á því, að þeirra skip séu af venjulegri gerð. En auðvitað er það stórmál að reyna að hnekkja því, að þeir brjóti okkar lög. Hitt er ekki jafnmikið stórmál, þó að þeir, sem virða okkar lög, veiði á hafinu þar fyrir utan.

Eins og ég hef sagt, var það okkar skoðun, að það væri með öllu ástæðulaust að standa á nokkurn hátt í vegi fyrir því, að þeir gætu fengið hér lendingarleyfi fyrir 3 flugvélar í þessu tilfelli, fyrst upplýsingar lágu fyrir um það, að veiðarnar væru stundaðar á fjarlægan miðum og veiðar upp í kvóta, þar sem við gátum engin áhrif haft á. (Gripið fram í: Hvaðan voru þær upplýsingar?) Frá Austur-Þjóðverjum sjálfum hér, sem ræddu við fulltrúa frá okkur. Það voru þeirra menn, sem gáfu þetta upp, alveg eins og þeir gáfu þetta upp til Ríkisútvarpsins. En hitt er svo annað mál, að það voru ekki sett nein sérstök skilyrði, hvorki af okkur né öðrum, í þessu sambandi. Það má vel vera, að utanrrn, hefði átt að setja þarna miklu stífari skilyrði. En hér gat vitanlega ekki verið um að ræða neitt stórmál. Og þessu er aðeins ausið hér upp í sambandi við óvild til þeirrar þjóðar, sem hér á hlut á máli, og svo til að reyna að koma höggi á mig, sem alls ekki hef veitt neitt leyfi. Við höfum aðeins veitt tiltekna umsögn um það, sem við vorum spurðir um, og á ákveðnum grundvelli. Það vorum einmitt við, sem brugðumst fyrstir og hraðast við, þegar við heyrðum, að þær upplýsingar, sem við hefðum fengið, hefðu ekki verið nægilega nákvæmar. Þá vorum það við, sem lögðum til, að leyfinu yrði kippt til baka, En líklega vegna þess, að við höfum tekið þessa afatöðu, þá kemur hv. 7. þm. Reykv. hér upp og segir, að ég eigi að segja af mér, hér sé hneykslismál á ferðinni.

Mér er vel kunnugt um það, og það hefur reyndar komið hér fram í umr, áður, að sú beiðni, sem lá fyrir í stuttu bréfi frá Austur-Þýskalandi, var almenns eðlis, að þeir óskuðu eftir að fá lendingarleyfi hér fyrir 3 flugvélar til þess að skipta um áhafnir á þessum úthafsflota sínum. Það hefur verið upplýst áður og ekkert nýtt, en ég hygg, að flestir viðurkenni, að það hefði verið talið mjög óeðlilegt, ef við hefðum mælt gegn því, að þessar flugvélar fengju hér lendingarleyfi, þegar við það var miðað, að þessi skip stunduðu veiðar mjög fjarri okkur. En eins og ég hef upplýst hér á Alþingi, var þetta sjónarmið okkar byggt á ákveðnum forsendum. Um leið og við heyrðum að þær forsendur voru ekki haldnar, þá vorum það við, sem lögðum til, að leyfið yrði afturkallað. Hitt er mér ljóst, að þeir geta haldið áfram þessum veiðum, án þess að við komum þar nokkru valdi við. Þeir geta sent sína sjómenn hingað, eins og Bretar og Vestur-Þjóðverjar hafa gert, við höfum þar ekkert vald á móti, og þeir geta stundað veiðar 90–100 mílur frá landi, án þess að við höfum nokkurt vald til að stöðva þær. Þetta er aðalatriði málsins.

Ég hef ekki á móti því á neinn hátt, að öll gögn þessa máls séu athuguð. Það eru ekki mörg bréf, sem hafa farið á milli hjá okkur, það liggur alveg skýrt fyrir. Þessi eina umsögn okkar, sem gefin var 21, mars, þegar þetta hafði borist okkur, var afar stutt, hún hljóðaði þannig:

„Með tilvísun til fylgibréfs utanrrn., dags. 19, mars 1974, varðandi lendingarleyfisumsókn Austur-Þjóðverja í því skyni að skipta um áhafnir á úthafstogurum; staðfestir ráðuneytið samþykki við því, að umrætt leyfi verði veitt í þau þrjú skipti, sem tilgreind eru í bréfi sendiráðs Þýska alþýðulýðveldisins frá 25. febr. 1974“

Þetta var allt og sumt, sem við gerðum. En eins og ég hef sagt, gerðum við þetta, eftir að okkur höfðu borist upplýsingar um það, að flotinn ætlaði sér að veiða á þennan hátt. Og vegna þess að hv. 7. þm. Reykv. er mjög gjarnt að vilja halda því fram sérstaklega, að ég sé að segja ósatt, þá vitna ég til þess, að það hefur komið fram, að aðrir höfðu fengið nákvæmlega sömu upplýsingar og við um þetta og hafa birt sínar skýrslur um það. En við höfðum ekkert beint samband við veitingar á þessum leyfum, heldur aðeins ræddum við fulltrúa, sem gaf þessar upplýsingar fyrir þeirra hönd, og það var á því, sem víð byggðum okkar umsögn.