02.05.1974
Neðri deild: 118. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4049 í B-deild Alþingistíðinda. (3683)
Umræður utan dagskrár
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Mér duga aðeins örfá orð. Þetta alvarlega mál er upplýst að fullu. Afglöp hæstv. sjútvrh, eru afhjúpuð. Ég endurtek, að þau eru svo alvarlegs eðlis, að hann á að segja af sér eða að öðrum kosti forsrh, að biðja um lausn fyrir hans hönd. Ræða hans áðan var aumlegur kattarþvottur. Hann byrjaði að kvarta yfir því, að hann hafi ekki verið við, þegar ég hóf mál mitt. Sannleikurinn var sá, að ég gerði honum ekki sérstaklega viðvart, vegna þess að í fyrradag gerði sjónvarpið tilraun til að tala við okkur báða um þetta mál, og þá neitaði hann að eiga viðtal í sjónvarp ásamt mér um málið. Ég hafði fulla ástæðu til að halda, að hann mundi neita að koma hingað, ef ég ;segði honum frá því, að ég ætlaði að vekja máls á þessu máli hér.
Hæstv. ráðh. getur ekki borið á móti því, enda gerir hann það ekki, að auðvitað hafði hann lesið umsókn sendiráðs Þýska-alþýðulýðveldisins. Hann vissi, að hún var um almennt leyfi til áhafnaskipa á almennum úthafstogurum Austur-Þjóðverja. Hann reynir að verja sig með því, að hann hafi fengið upplýsingar einhvers staðar að um það, að togararnir væru að veiðum við Kanada og Nýfundnaland, og hann vitnaði í það, að austur-þýskir fulltrúar hefðu sagt frá því hér í fjölmiðlum, að skipin hafi þá verið að veiðum við Nýfundnaland og Kanada. En ég vil benda á það, að sendifulltrúi Austur-Þjóðverja sjálfur hefur líka sagt við fjölmiðla, að á þessum árstíma, á núv, árstíma séu skip venjulega á veiðum fyrir vestan Ísland. Ég hef fulla ástæðu til þess að halda, að hæstv. ráðh. hafi ekki fengið sínar upplýsingar frá sendifulltrúanum sjálfum, en skal þó ekki ræða frekar um það mál, nema alveg sérstakt tilefni gefist til.
Hæstv, ráðh, er að gera það að kjarna málsins, að hann hafi ekki veitt leyfið, það sé utanrrh. sem hafi veitt leyfið. Þarna er hæstv, ráðh. líkur sjálfum sér. Þegar hann tekur ranga ákvörðun, þegar hann gerir rangt, þá reynir hann að koma ábyrgðinni af því yfir á aðra. Það er lítilmannlegt. Hann segir, hæstv. ráðh., að hér sé um lítið mál að ræða. Ég get fullyrt, að íslenskir sjómenn lita öðruvísi á málið. Þeir telja hér um stórmál að ræða, Íslenska þjóðin telur hér um stórmál að ræða. Athyglisverðast af öllu er þó það; sem ég lýk þessum fáu orðum mínum með, að það er augljóst, að ráðh. ver enn þessa ráðstöfun. Ég vek athygli á því, að ráðh. hefur ekki tekið sinnaskiptum, hann telur ráðstöfunina enn vera rétta. Þetta er hörmulegt. Það er enn meiri ástæða til þess fyrir hæstv. forsrh, að biðja um lausn fyrir þennan íslenska sjútvrh. Sannleikurinn er sá, að hegðun hans í þessum málum frá byrjun til þessarar stundar er engu líkari en að hann í næstu kosningum ætli ekki að bjóða sig fram á Austurlandi, heldur í Austur-Þýskalandi.