02.05.1974
Neðri deild: 118. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4051 í B-deild Alþingistíðinda. (3690)
275. mál, dómari í ávana- og fíkniefnamálum
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það er sama um þetta frv. að segja og það, sem síðast var hér á dagskrá, að það er fylgifiskur með frv. til l. um fíkniefni og ávanalyf, sem hér stendur næst á dagskránni. Þetta frv. er flutt fyrst og fremst í því skyni að gera alveg ótvírætt, að brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, svo og brot gegn 173. gr. almennra hegningarlaga, sem frv. það, sem siðast var talað um, fjallar um, falli einnig undir valdssvið dómara og rannsóknardeildar í ávana- og fíkniefnamálum, sbr. þau lög, sem þar um fjalla.
Þetta frv. hefur líka gengið í gegnum 3 umr. í Ed., og verið samþ. shlj. Ég leyfi mér að leggja til, að það verði að lokinni þessari umr. látið ganga til 2. umr. og hv. allshn.