02.05.1974
Sameinað þing: 82. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4061 í B-deild Alþingistíðinda. (3702)
Almennar stjórnmálaumræður
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Þjóðfélag okkar er eitt hið fámennasta í veröldinni. Það eru aðeins þrír áratugir síðan við urðum sjálfstæð þjóð. En á þessum áratugum hafa orðið hér gífurlegar framfarir og núlifandi kynslóð búið við betri lífskjör en áður hafa þekkst í þessu annars harðbýla landi, jafnvel ein hin bestu í öllum heiminum. Þessar staðreyndir eru öllum svo kunnar, að óþarfi er að fara um þær mörgum orðum. En því minni ég á þær nú, að oft er eins og menn líti á þessa þróun sem sjálfsagðan hlut, sem aldrei muni breytast, hversu illa sem við kunnum að halda á málefnum okkar. Sannleikurinn er hins vegar sá, að okkar litla þjóð þarf á fyllstu aðgætni að halda til þess að varðveita þau verðmæti, sem hún hefur áunnið sér: frelsi sitt og lífskjör, og þar verður ábyrgðartilfinning jafnt stjórnmálamanna sem almennings ávallt að sitja í fyrirrúmi, ef ekki á illa að fara. Í dag erum við óþægilega minnt á þessar staðreyndir, minnt á, að á örskömmum tíma geta flest okkar málefni komist í algjört óefni, ef ábyrgðartilfinning og heilindi móta ekki stjórn landsins. Það er einmitt þetta, sem blasir við í dag.
Núv. ríkisstj. er samsteypustjórn þriggja flokka með tvenns konar vinstri stefnu. Ráðh. þessarar ríkisstj. hafa aldrei af heilindum og ábyrgðartilfinningu starfað saman, aldrei haft neina sameiginlega ábyrga stefnu í málefnum þjóðarinnar, aðeins átt það eitt sameiginlegt að vilja sitja í ríkisstj. á hverju sem gangi. Atburðir síðustu daga hér á Alþ. sýna þjóðinni betur en nokkuð annað samstarfið í ríkisstj., þegar ráðh. brigsla starfsbræðrum sínum um ósannindi og fréttatilkynningar eru gefnar út til þess að fegra sjálfan sig, en sverta samráðh. sína.
Stjórnarsáttmálinn sýndi þegar í upphafi samstöðu- og stefnuleysi ríkisstj. Í stjórnarsáttmálanum var öllu lofað. Allir áttu stjórnarherrarnir sinn óskalista, og enginn hafði kjark né hreinskilni til að segja sannleikann um það, hvað hægt væri að gera og hvað ekki. Þess vegna var öllu lofað í málefnasamningi ríkisstj. Þar fékk þjóðin fyrstu vísbendinguna um fyrirhyggjuleysi ríkisstj. Það eru hygginna manna ráð að hafa ætíð í huga íslenska spakmælið: „Endirinn skyldi í upphafinu skoða.“ Það gerði ríkisstj. hins vegar ekki, og er því áfram haldið í samræmi við það. Þess vegna blasa við okkur nú einhver þau ömurlegustu endalok, sem ríkisstj. getur hent. Það harmar enginn. Hitt er verra, að nú verður að finna færar leiðir til úrlausnar þeim vanda, sem stjórnarhættir þessarar ríkisstj. hafa leitt til.
Ekkert vitnar betur máli mínu til stuðnings en skýrsla sú, sem ríkisstj. lét embættismenn sína gera um efnahagsástandið nú fyrir skömmu og lögð hefur verið fram á Alþ. í dag sem grg. með frv. því, er ríkisstj. flytur til þess að reyna að bjarga sér út úr þeim ógöngum, sem hún hefur stofnað til á valdatíma sínum. En það er eftir öðru á stjórnmálaheimilinu, að í grg. þessa bjargráðafrv. segir, að stjórnarflokkarnir séu ekki skuldbundnir til þess að samþykkja það, og verða hlustendur vafalitíð varir við sundurþykkjuna í þessum umr.
Í skýrslu embættismannanna eru svo ógnvekjandi upplýsingar, að ekki verður annað séð en að allt atvinnulíf landsmanna stöðvist innan örfárra mánaða, ef áfram verður fylgt stefnu stjórnarinnar. Framfærslukostnaðurinn mun vaxa á þessu ári um 40–50%. Er það fjórfaldur vöxtur verðlags í nágrannalöndunum. Afleiðingar slíkrar óðaverðbólgu eru geigvænlegar. Fram kemur, að við blasir stórfelldur taprekstur frystihúsanna í landinu, meira en 1200 millj. á ársgrundvelli, saltfisk- og skreiðarverkun verður rekin með tapi, og jafnvel fiskimjölsverksmiðjurnar munu skila halla. Bátaflotinn mun skila 700 millj. kr. rekstrarhalla á árinu, en togararnir um 1000 millj. Allir vita um erfiðleika iðnaðarins í tíð núv. ríkisstj., og segja sérfræðingarnir, að rekstrargrundvöllur útflutningsiðnaðarins sé um það bil að bresta. Allt gerist þetta í einhverju hinu mesta góðæri. Við höfum búið við árgæsku til lands og sjávar. Þjóðarframleiðslan hefur aukist um 8.5% að meðaltali s.l. þrjú ár. Verð á sjávarafurðum okkar hefur aldrei verið hærra. Hinar ytri aðstæður hafa aldrei verið betri en nú og velmegun aldrei meiri, þrátt fyrir þungar búsifjar vegna eldgossins á Heimaey. Samt blasir alls staðar við taprekstur eða stöðvun atvinnuveganna að áliti sérfræðinga ríkisstj. sjálfrar. Þarf frekari vitnanna við? Sjá ekki allir skipbrot stjórnarstefnunnar?
Engu að síður koma ráðh. ósammála fram fyrir þjóðina. Þeir, sem raunsæjastir eru, viðurkenna skipbrotið og mistök sín og lýsa ástandinu eins og það er, og í hópi þeirra er hæstv. forsrh. Aðrir berja höfðinu við steininn og telja vandann lítinn, ef til vill svolítinn velmegunarvanda vegna mikillar framkvæmdagleði. Í hópi þeirra eru forustumenn Alþb., sem hafa hvað eftir annað gleypt sín fyrri stóryrði, allt til þess að sitja sem lengst í ráðherrastólunum.
Á þremur árum hefur ríkisstj. þrefaldað fjárl. og tekið í hlut hins opinbera stærra hlutfall af þjóðartekjunum en nokkru sinni fyrr. Er nú gert ráð fyrir af sérfræðingum ríkisstj., að um 2000 millj. kr. greiðsluhalli verði á ríkissjóði á þessu ári. Skattar og álögur ríkissjóðs hafa nær fjórfaldast í tíð núv. ríkisstj. En um þverbak keyrir að dómi sérfræðinganna með erlendar lántökur. Þær munu aukast um 51/2 milljarð á þessu ári, sem er mesta skuldaaukning, sem átt hefur sér stað á einu ári til þessa, og skuldir þjóðarbúsins til langs tíma vaxa um 27% og verða við lok ársins nærri 30 milljarðar eða sem næst fjárlög ársins 1974. Er að búast við öðru en að fólk missi trú á verðgildi peninganna? Enda hefur það komið fram í algjöru kaupæði, þar sem fólk reynir að bjarga peningum sínum frá verðbólgubálinu. — Talið er, að gjaldeyrisvarasjóðurinn minnki um helming á árinu eða um 3000 millj. og viðskiptahallinn við útlönd fari vaxandi og verði á þessu ári um 8 milljarðar. Þannig mætti halda áfram upp að tel,ja. Alls staðar blasa við okkur verksummerki ráðleysis og dáðleysis.
Hagnýting fallvatnanna og nýting jarðhitans hafa markað tímamót í lífskjörum landsmanna. Viðreisnarstjórnin hófst handa um stórvirkjanir og stóriðju, en litlu eða engu hefur miðað áfram í þeim efnum nú. Jafnvel hafa sveitarfélögin í nágrenni Reykjavíkur orðið að bíða lengi eftir heimild stjórnvalda, til þess að þeim hafi verið gert kleift að nýta jarðvarma til upphitunar húsa. Rafmagnsmál á Norðurlandi hafa komist í óefni vegna sérvisku og forklúðrunar iðnrh. og öllum till. heimamanna verið hafnað.
Húsnæðismálin eru í algeru öngþveiti. Það skortir mikið fjármagn til húsnæðismálastjórnar og lánin hlutfallslega lægri nú en þegar ríkisstj. tók við völdum. Byggðamálum hefur ekkert verið sinnt og það, sem núv. ríkisstj. hefur þar fram að færa, er stórfelldur niðurskurður fjármagns til vegagerðar.
Ég hef hér að framan vikið að þeim mikla vanda, sem við blasir í efnahags- og fjármálum þjóðarinnar, ásamt einstökum þáttum í stjórnarháttum ráðh. og leitt sérfræðinga stjórnarinnar sem vitni, en þeir segja í skýrslu sinni, að nú séu tímamót í efnahagsmálum, sem séu svo alvarleg, að varla sé of fast að orði kveðið, þótt ástandið fram undan sé nefnt hættuástand. — Það verður erfitt að takast á við slíkan vanda, en það verður ekki gert, nema þjóðin fái tækifæri til þess að velja sér nýja forustumenn og það sem fyrst, — menn, sem af heilindum og kjarki takast á við vandann í von um, að úr rætist.
Ríkisstj, hefur ekki aðeins leitt yfir þjóðina hættuástand í efnahagsmálum, heldur blasir slíkt ástand nú einnig við í öryggis- og varnarmálum þjóðarinnar. Allt frá upphafi vinstri stjórnarinnar hefur þessum málum verið stefnt í óefni, og við öllum blasir undansláttur ríkisstj. í utanríkismálum gagnvart kommúnistum. Það er til marks um, hvað öllum er það ljóst, að á nokkrum vikum í byrjun þessa árs skrifuðu 55 622 Íslendingar undir áskorun til ríkisstj. og Alþ., þar sem ábyrgðarleysi stjórnvalda í þessu sjálfstæðismáli þjóðarinnar er hafnað. Ríkisstj. virti að vettugi vilja þessa mikla fjölda, en við sjálfstæðismenn teljum nauðsynlegt, að Alþ. fjalli um málið, og þess vegna fluttum við Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstfl., till. fyrir hönd þingflokksins, þar sem lagt er til, að Alþ. álykti, að brýna nauðsyn beri til, að Íslendingar leggi áherslu á af sinni hálfu að treysta samstarfið innan Atlantshafsbandalagsins, en leggi á hilluna ótímabær áform um uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin og brottvísun varnarliðsins. Skömmu áður hafði utanrrh. kynnt utanrmn. viðræðugrundvöll þann, sem ríkisstj. hafði orðið sammála um, varðandi viðræðurnar við Bandaríkjamenn, en af því tilefni létu fulltrúar Sjálfstfl. bóka afstöðu flokksins í varnar- og öryggismálum. Ég tel ástæðu til þess í þessum útvarpsumr. að ítreka þær till. með leyfi forseta:
„Sjálfstæðismenn telja eðlilegt, að í varnar- og öryggismálum beri einkum að leggja áherslu á eftirfarandi 7 atriði:
1) Að varnarliðið sé þess megnugt á grundvelli þátttöku okkar í Atlantshafsbandalaginu að reka héðan flug til eftirlits með siglingum í og á hafinu kringum landið og fylgjast með flugferðum ókunnra flugvéla um íslenskt flugstjórnarsvæði, svo að við vitum, hverjir fara um næsta nágrenni okkar.
2) Að varnarliðið sé þess megnugt að veita viðnám sem fyrstu varnir, einkum í þeim tilgangi að koma í veg fyrir, að nokkurn tíma verði á okkur ráðist.
3) Að varnarstöðin sjálf verði aðskilin frá annarri starfsemi á Keflavíkurflugvelli, eins og ráð var fyrir gert í áætlunum fyrri ríkisstj.
4) Að allir varnarliðsmenn og erlendir starfsmenn á vegum varnarliðsins og skyldulið þeirra búi á Keflavikurflugvelli.
5) Að sérstakt samstarf verði tekið upp af Íslands hálfu innan Atlantshafsbandalagsins við Noreg, Danmörk, Kanada og Bandaríkin, til þess að stöðug samráð verði höfð um öryggismál í okkar næsta nágrenni.
6) Að Íslendingar hafi varnar- og öryggismál landsins í stöðugri endurskoðun og geri sér sjálfstætt grein fyrir nauðsynlegum aðgerðum, hafi sjálfvirkt frumkvæði að því, hvaða ráðstafanir þurfi að gera á hverjum tíma og hvenær óhætt sé, að allt varnarlið hverfi af landi brott. Þangað til sé varnarliðið í lágmarki þess, sem óhætt sé öryggisins vegna, og þess sé gætt, að dvöl þess hafi ekki þjóðernisleg, félagsleg og fjárhagsleg áhrif, er skaðleg séu íslensku þjóðinni og geri hana háða varnarliðinu á einn eða annan hátt, utan þess öryggishlutverks, sem það gegnir.
7) Að Íslendingar taki þátt í þeim störfum, sem unnin eru í þágu eigin öryggis og ekki eru hernaðarlegs eðlis, jafnframt verði landhelgisgæsla okkar og löggæsla efld til aukins framtíðarhlutverks.“
Þetta eru till. okkar sjálfstæðismanna í öryggis- og varnarmálum, og við leggjum þær óhikað fram fyrir kjósendur gegn varnarleysisstefnu stjórnarinnar, sem kjósendur hafa þegar hafnað.
Það voru sjálfumglaðir menn, sem settust í ráðherrastólana 14. júlí 1971. Kosningaúrslitin í alþingiskosningunum höfðu orðið þau, sem fáa óraði fyrir, að aftur var mynduð vinstri stjórn í landinu. Þeir höfðu skrifað undir stjórnarsáttmálann, þar sem öllu var lofað, og þeir strengdu þess heit, að nú skyldi sagan frá 1956 –1958 ekki endurtaka sig. Nú skyldi þjóðin fá að sjá og finna, hvernig þetta átti raunverulega að vera 1956-1958. Þeim var ljóst, að þeir tóku við blómlegu búi viðreisnarstjórnarinnar, en í forsæti stjórnarinnar voru sem kunnugt er þeir Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson og Jóhann Hafstein. Alhliða framfarir höfðu átt sér stað, sem aukið höfðu hagvöxt þjóðarbúsins og bætt lífskjör þjóðfélagsþegnanna, svo að aldrei hafði Íslendingum liðið betur. Þeir töldu sér trú um, að sú þróun héldi áfram, hvernig svo sem stjórnarhættir væru, og þess vegna þyrfti ekki að koma til ábyrgðartilfinningar og heilinda, og þeir gætu nánast hagað sér eins og þeir vildu.
Þegar Hermann Jónasson sagði af sér 1958, sagði hann sjálfur, að innan ríkisstj. sinnar væri ekki samstaða um nein úrræði í efnahagsmálum. Hvað blasir við okkur nú? Ríkisstj. hefur lagt fram frv., sem engin samstaða er um innan stjórnarflokkanna. Heitstrengingarnar frá 14. júlí 1971 eru orðnar að engu.
Góðir hlustendur. Á næstu dögum verður hér á Alþ. rætt um efnahagsglundroðann, sem ríkisstj. og þingmeirihlutinn hafa leitt yfir þjóðina og hafa ekki samstöðu um að bægja frá. Við sjálfstæðismenn teljum þessa ríkisstj. ekki færa um að stjórna landinu og krefjumst þess, að hún fari frá. Það er þjóðarnauðsyn. Þá fyrst geta menn vænst þess, að þannig sé á málum þjóðarinnar haldið, að ekki leiði til áframhaldandi ófarnaðar. Við skulum vona, að þess sé ekki langt að bíða. — Góða nótt.