02.05.1974
Sameinað þing: 82. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4072 í B-deild Alþingistíðinda. (3705)
Almennar stjórnmálaumræður
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Á meðan áróðursmoldviðrið gnýr héðan úr Alþingishúsinu, held ég, að væri ráð, að hlustendur skyggndust út í vorblíðuna og gróandann annað kastið og bæru saman orð og staðreyndir. Innan úr múrum Alþingishússins berast þær kenningar, að allt sé að farast af völdum efnahagsörðugleika, jafnt þjóðarbúið í heild, atvinnuvegirnir og afkoma heimilanna, eins og fram kom vel í ræðu Matthíasar Á. Mathiesen og Sverris Hermannssonar hér áðan, en þeir voru hér ræðumenn vegna þess, að þingflokkur Sjálfstfl. gat ekki komið sér saman um, hvor keppinautanna, Geir eða Gunnar, ætti að tala. Úti í vorblíðunni blasir hins vegar allt annar veruleiki við. Þjóðin á nú fleiri og betri atvinnutæki en nokkru sinni fyrr, framleiðslutækin eru hagnýtt til hins ítrasta, og afköstin eru í algeru hámarki. Menn keppast við að koma í framkvæmd stórvirkjum á sem flestum sviðum og ætla sér ekki af í bjartsýni sinni.
Þjóðartekjur í fyrra voru svo miklar, að sé þeim jafnað niður á mann, reynumst við vera þriðja tekjuhæsta þjóð í heimi, og þessar þjóðartekjur hafa aukist um meira en 70% í tíð núv. ríkisstj.. Þar kemur ekki aðeins til sú árgæska, sem Sverrir Hermannsson minntist á áðan, heldur einnig markviss stjórnarstefna í atvinnumálum. Menn leika sér að því að verja 60 millj. kr. til Mallorcaferða um páskana eina. Við flytjum það sem af er þessu ári inn þrefalt fleiri bila en í fyrra, og var það þó metár. Ég er hræddur um, að meiri hluti mannkynsins, þau hundruð milljóna manna, sem búa á mörkum hins algera skorts, ætti erfitt með að fallast á, að Íslendingar búi við erfiðleika í efnahagsmálum, enda blygðast maður sín fyrir að nefna þetta tvennt í sömu andránni. í samanburði við aðra eru viðfangsefni okkar velmegunarvandi, erfiðleikar manna, sem vilja gera of mikið í senn og nota of mikið af afrakstri vinnunnar í einkaneyslu tafarlaust.
Með þessu er ég engan veginn að segja, að við Íslendingar búum við eitthvert fyrirmyndarskipulag í efnahagsmálum og félagsmálum, því fer víðs fjarri. Hvarvetna má benda á andstæður stéttaþjóðfélagsins, misrétti og spillingu, sem því miður vex ævinlega ásamt velmeguninni. Á hitt vil ég leggja áherslu, að við höfum alla burði til að takast á við þennan vanda, án þess að þurfa að leggja hart að okkur. Þau verkefni eru hégóminn einber í samanburði við þau forréttindi, sem við njótum fram yfir flestar þjóðir heims. Hitt skiptir máli, að við leysum vandann á kostnað þeirra, sem betur mega sin í þjóðfélaginu, að úrræði okkar auki jöfnuð og félagslegt réttlæti.
Hinn bráði vandi, sem á okkur brennur, er verðbólgan, eins og raun hefur verið í 30 ár. Á þeim tíma hefur verið haldinn ótölulegur grúi af endalausum verðbólguræðum með skæðadrífu af tölum og útreikningum, og það gerist vafalaust einnig hér í kvöld. Ég tel hins vegar mestu máli skipta, að menn átti sig á einni grundvallarstaðreynd. Meginástæða verðbólgu eru andstæðurnar milli launavinnu og auðmagns, milli þeirra, sem selja vinnu sína eins og vöru, og hinna, sem kaupa hana, sem eiga framleiðslutækin eða ráða yfir þeim. Það hefur ekki tekist í neinu auðvaldsþjóðfélagi að tryggja fulla atvinnu án verðbólgu, vegna þess að í slíkum þjóðfélögum er vinnan vara, sem lýtur lögmálinu um framboð og eftirspurn. Sé sóst eftir vinnuafli, hækkar verð þess og þeim mun meir sem eftirsóknin er meiri, jafnt fyrir tilstilli verkalýðsfélaga og frumkvæði einstaklinga. Atvinnurekendur velta hins vegar bagganum af sér með sífelldum verðhækkunum, gera verðbólguna að gróðalind, og hjólið snýst hraðar og hraðar. Hið sígilda ráð auðvaldsþjóðfélagsins við þessum vanda er svokallað hæfilegt atvinnuleysi, að neita nægilega mörgum um réttinn til vinnu, til þess að hinir verði hræddir um sinn hag. Því úrræði hafa Íslendingar oft fengið að kynnast, síðast í tíð viðreisnarstjórnarinnar, sem flæmdi menn til útlanda þúsundum saman. Úrræði þeirra ríkja, sem kenna sig við sósíalisma og láta ríkið reka framleiðslutækin, eru hins vegar þau að tryggja vissulega fulla atvinnu, en svipta samtök launafólks samningsrétti og verkfallsfrelsi.
Hvorug þessi leið getur leyst vandamál okkar. Við hljótum að stefna að þjóðfélagi raunverulegrar sameignar, þar sem vinnandi menn eiga framleiðslutækin og ráða yfir þeim í verki, þar sem efnahagslegt og pólitískt lýðræði haldast í hendur, þar sem menn semja í raun og veru við sjálfa sig um kaup og kjör. Þetta er vissulega draumsýn, en þessa framtíðarsýn verða menn að eygja, ef þeir eiga að geta tekist á við vandamál líðandi stundar. Umfram allt þurfa verkalýðssamtökin að eygja þessa framtíðarsýn og þá stéttarlegu samstöðu, sem hún tryggir. Að öðrum kosti geta þau sundrast í stríðandi hagsmunahópa, sem hver reynir að hreppa einhverjum prósentum meira en hinn. Sá ábati, sem menn klófesta með því, verður hermdargjöf, þegar hann er tekinn á kostnað félagslegrar samstöðu. Þetta eru staðreyndir, sem launamenn verða nú að gera upp við sig af mjög mikilli alvöru.
Alþb. hefur aldrei ímyndað sér, að það mundi leysa andstæður stéttaþjóðfélagsins með þátttöku í núv. ríkisstj. Í kjaramálum hefur það hins vegar sett sér það mark að tryggja hagsmuni láglaunafólks, og verkafólk hefur nú um þriggja ára skeið búið við betri afkomu og meira öryggi en nokkru sinni fyrr í sögu þjóðarinnar. Þann árangur verður að festa og tryggja og leiðrétta á ný það alvarlega misrétti, sem magnast hefur í glundroða stéttaþjóðfélagsins að undanförnu. Þetta er áformað í frv. ríkisstj. um dýrtíðarráðstafanir, þar sem m.a. er lagt til, að verðbólguskriðan verði stöðvuð með niðurgreiðslum á nauðsynjavörum og fastri launauppbót til láglaunamanna einna, þótt sumum ákvæðum frv. þurfi að breyta og festa önnur betur en enn hefur verið gert. Um þetta frv. verður nánar fjallað af hálfu Alþb. í ræðu Lúðvíks Jósepssonar hér á eftir, en hins vegar er frv. um bráðabirgðaráðstafanir mótað af þeirri pólitísku sjálfheldu, sem nú er á Alþ. og ég mun víkja nánar að síðar.
En verkefni núv. ríkisstj. hafa verið önnur og meiri en þau að stuðla að vaxandi einkaneyslu. Við settum okkur það mark að tryggja félagshyggju í stað gróðahyggju, þjóðlega reisn og metnað í stað þjónkunar við erlend stórveldi og efnahagsbandalög, íslensk yfirráð yfir auðlindum og atvinnulífi í stað innrásar erlendra stórfyrirtækja. Stækkun landhelginnar í 50 mílur er verk núv. ríkisstj. og afleiðing af stórsigri Alþb. í kosningunum 1971. Þeim árangri kunnum við að glata á nýjan leik, ef völdin komast aftur í hendur þeirra manna, sem vildu binda landhelgina við 12 mílur um alla framtíð.
Við höfum endurnýjað veiðiflota Íslendinga og gert stórfelldar umbætur á fiskiðnaðinum. Þau algjöru umskipti hafa valdið stökkbreytingu á afkomu fólks um land allt. Grundvöllur íslensks iðnaðar hefur verið styrktur til muna með fjölþættum ráðstöfunum. Útflutningur á iðnaðarvarningi hefur margfaldast, og stefnt er að þreföldun iðnaðarframleiðslu á þessum áratug. Athafnir hafa verið stórauknar á sviði raforku, menntamála, heilbrigðismála og félagsmála. Orðið hefur gerbreyting á afkomu þeirra, sem áttu lífskjör sin undir bótum almannatrygginga, og þannig þveginn af þjóðfélaginu smánarblettur, sem viðreisnarstjórnin og sérstaklega Alþfl. skildu eftir.
Öll þessi atriði og fjölmörg önnur hliðstæð verða menn að vega og meta, þegar þeir hugleiða kjör sín. Þar koma ekki aðeins til greina þær krónur, sem menn telja upp úr launaumslögunum heldur og sú samneysla, sem hefur verið stóraukin í tíð núv. ríkisstj., atvinnuöryggi og ný félagsleg þjónusta, sem kemur ekki síst láglaunafólki að gagni.
Síðast, en ekki síst hét núv. stjórn því að losa Íslendinga við smán og niðurlægingu erlendrar hersetu, vísa á brott öllum erlendum her og afmá herstöðina á Miðnesheiði. Sá róður hefur orðið þyngri en ég gerði mér vonir um í upphafi. En 21. mars s.l. var þó gert samkomulag í ríkisstj. um alla áfanga þeirra sögulegu umskipta. Því samkomulagi verður ekki breytt nema með samþykki stjórnarflokkanna allra, og við höfum nú tök á að setja kosti því stórveldi, sem hefur setið yfir hlut okkar í meira en 30 ár og krafðist á sínum tíma herstöðva í heila öld.
Allir hafa fylgst með því, á hve ofstækisfullan hátt viðreisnarflokkarnir hafa hamast gegn þeirri stefnu, að Íslendingar fengju að lífa einir og frjálsir í landi sínu, og kom það raunar fram í máli Matthíasar Á. Mathiesen áðan. Þar hafa þeir beitt fyrir sig hópi hrokafullra menntamanna, sem vert er að veita sérstaka athygli. Þetta eru sömu menntamennirnir, sem hafa búið til þá kenningu, að þeir eigi að hafa margfaldar tekjur á við verkafólk, vegna þess að þeir hafi orðið að þola þá áþján að stunda háskólanám árum saman, að verulegu leyti á kostnað þjóðarinnar. Þessir menntamenn telja sig svo hátt hafna yfir alþýðu manna, að þeir neita að taka þátt í almennum umræðufundum. Að mati þeirra eru Íslendingar ekki vitsmunaverur, heldur tölvufóður. Þegar athafnir þeirra eru gagnrýndar, eru viðbrögðin ekki þau að svara fyrir sig, heldur krefjast þess, að menn með vanþóknanlegar skoðanir verði dregnir fyrir rétt og dæmdir í tugthús. Þessir hrokafullu menntamenn, sem gerst hafa erindrekar erlends stórveldis og hernaðarbandalags, eru fyrirburi, sem íslendingar hafa ekki þekkt að marki í meira en 30 ár. Viðhorf þeirra geta orðið hættuleg lýðræði okkar, ef þeir stjórnmálaflokkar, sem styðja þá, komast til valda á nýjan leik.
Ég nefni þessi mál öll, vegna þess að nú er tekist á um þjóðmálin í heild. Það eru ekki eingöngu tímabundin vandkvæði í efnahagsmálum, sem nú eru á dagskrá, heldur skilin milli hægri og vinstri, milli gróðahyggju og félagshyggju. Þær ráðstafanir, sem gera verður í efnahagsmálum til þess að stöðva verðbólgu, eru aðeins eitt verkefni af ákaflega mörgum, — verkefni, sem enginn þarf að láta vaxa sér í augum. Erfiðleikar ríkisstj. stafa ekki af því, að hún geti ekki náð samkomulagi um till., heldur af hinu, að félagshyggjustefna hefur ekki lengur nægan meiri hl. á Alþingi Íslendinga. Einn þeirra, sem mestu lofaði 1971, Bjarni Guðnason, hefur brugðist kjósendum sínum gersamlega. Hann er meira að segja horfinn frá andstöðu við hersetu og aðild Íslands að hernaðarbandalagi, eins og heyra mátti í sjónvarpsþætti nýlega. Það hefur verið furðulegt að fylgjast með því, hvernig þessi maður hefur á hálfu ári hlaupið sama skeið og fyrri methafi, Gylfi Þ. Gíslason, rann áður á áratug. Afleiðingin af hringsnúningi Bjarna Guðnasonar hefur orðið alger sjálfhelda á Alþ., jöfn atkv. milli hægri stefnu og vinstri stefnu í Nd. Og þessi aðstaða hefur verið hagnýtt til hins ítrasta. Frá því í des. í vetur hefur stjórnarandstaðan haft þá stefnu að fella öll stórmál fyrir ríkisstj., einnig mál, sem stjórnarandstaðan segist fylgja. Í sjónvarpsþættinum á dögunum lýsti Bjarni Guðnason meira að segja yfir því, að þótt stjórnin flytti hinar ágætustu till. í efnahagsmálum, mundi hann samt fella þær ásamt öðrum stjórnarandstæðingum. Þannig er nú verið að leika óprúttið, samviskulaust valdatafl á Alþingi Íslendinga. Það er sá raunverulegi stórvandi, sem víð er að etja og m.a. ástæðan fyrir þeim efnahagslega vanda, sem upp hefur komið að undanförnu.
Það er staðreynd, sem öll þjóðin þarf að veita athygli, að stjórnarandstæðingar vilja hvorki gera grein fyrir till. sínum í efnahagsmálum né þora það. Þeir segjast aðeins ætla að fella allar till., sem fram verði bornar af ríkisstj. Í íslenskri stjórnmálasögu eru naumast dæmi áður um jafnsiðlaust ábyrgðarleysi. En vitneskja þjóðarinnar um raunveruleg áform þessara manna er staðfest á 10 ára viðreisnartímabili, sem ætti að vera flestum í fersku minni.
Hér er því fyrst og fremst um pólitískan vanda að ræða. Þann vanda verður að leysa á stjórnmálavettvangi í almennum þingkosningum. Engum hefur dottið í hug að leggja til kosninga, án þess að gerðar verði ráðstafanir fyrst til þess að stöðva verðbólguna. En síðan á þjóðin heimtingu á að fá að kveða upp sinn dóm um það, hvort hún vill, að fylgt verði félagshyggju eða gróðahyggju við varanlegri lausn þeirra mála. Valdataflið hefur hins vegar þann tilgang að knýja ríkisstj. frá, án þess að þjóðin verði spurð um álit sitt, án þess að komi til þingkosninga á þessu ári, eins og greinilega hefur komið fram síðustu dagana. Þetta er sjálfur kjarni málsins. Takist stjórnarandstöðunni að ná því marki, mun hún ekki aðeins leysa efnahagsvandamálin einhliða á kostnað láglaunafólks, eins og viðreisnarflokkarnir hafa alltaf gert, hún mun ekki aðeins gera gróðaviðhorfin að ríkjandi stefnu á nýjan leik, heldur mun hún reyna að tryggja hersetu landsins um ófyrirsjáanlega framtíð. Og það er ekki síst þetta lokaatriði, sem veldur því, að nú er lagt á það ofurkapp að klófesta völdin strax með öllum ráðum, hvað sem það kostar, án þess að þjóðin sé spurð, án þess að efnt sé til kosninga í ár.
Það er alveg rétt, sem sagt er, að núv. ríkisstj. er orðin of veik til þess að leysa vandamál þjóðfélagsins. En þeir, sem aðhyllast félagshyggju og vinstri stefnu, skyldu ekki einvörðungu leita að ástæðunum hjá okkur, sem sitjum í ríkisstj. eða Alþ., heldur skyggnast einnig í eigin barm. Verk okkar skipta vissulega máli, en við getum ekki barist með öðrum vopnum en þeim, sem okkur eru fengin. Okkur vinstri mönnum hættir við að sundrast og skiptast í andstæðar fylkingar, leyfa gróðahyggjuöflunum að deila og drottna. Við munum aldrei ná verulegum og varanlegum árangri, hvorki í efnahagsmálum né á öðrum sviðum, fyrr en okkur tekst að skipuleggja fjöldaflokk, sem einn getur tryggt völd, sem duga. Þarna er ég ekki að hugsa um þá svokölluðu sameiningu, sem nokkrir forsprakkar semja um sín á milli. Þarna er ég ekki að hugsa um flokk, sem aldrei getur endanlega gert það upp við sig, hvort hann er vinstri flokkur, miðflokkur eða kannske hægri flokkur. Ég er að hugsa um þá sameiningu, sem sprettur upp hjá fólkinu sjálfu. Ég er að hugsa um raunverulegan félagshyggjuflokk, sem stefnir að sósíalisma í samræmi við íslenskar aðstæður.
Á undanförnum 6–7 árum hefur slík sameining verið að þróast á eðlilegan hátt innan Alþb. og í kringum það. Það var stórsigur Alþb. 1971, sem gerði vinstri stjórn óhjákvæmilega og hefur nú tryggt umfangsmiklar framfarir um þriggja ára skeið. Viðbrögð okkar við vandkvæðum í efnahagsmálum og sjálfheldu í stjórnmálum mega ekki verða þau að einblína á einhverja svokallaða forustumenn, heldur halda áfram hinni pólitísku sókn í þjóðfélaginu sjálfu. Þar bíða okkur nú kjörin verkefni á næsta leyti.
Fram undan eru sveitarstjórnarkosningar, sem að þessu sinni hljóta að mótast af afstöðunni til landsmála í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr. Úrslit þeirra geta ráðið miklu um þróunina á næstunni. Fram undan hljóta einnig að vera þingkosningar á þessu ári og vonandi frekar fyrr en seinna. Það er þar sem hin raunverulegu úrslit ráðast, en ekki í þeim samningum, sem okkur kann að takast að gera í pólitískri sjálfheldu á Alþ. Á næstunni verða völdin hjá ykkur, hlustendur góðir. Það er á ykkar ábyrgð að nota þau. — Góða nótt.