02.05.1974
Sameinað þing: 82. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4080 í B-deild Alþingistíðinda. (3707)

Almennar stjórnmálaumræður

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Gamalt orðtak segir: Allt er þá þrennt er. Þriðja tilraunin til að vinna með kommúnistum að stjórn landsmála á Íslandi var gerð árið 1971 og hefur nú varað um nálega 3 ára skeið. Tvær fyrri tilraunir með þá í ráðherrasætum stóðu hins vegar aðeins 21/2 ár hvor, því að lengra var þrek þeirra og þol ekki.

Allir starfandi stjórnmálaflokkar í landinu hafa tekið þátt í þessum tilraunum; m.a. til þess að sannprófa með eigin reynslu orð þeirra og yfirlýsingar um föðurlandsást og þjóðernisvitund, svo sem þeir hafa viljað láta í veðri vaka. Í öll þessi þrjú skipti hefur þjóðarbúið í upphafi staðið á þann veg, að ýmsir möguleikar hafa verið fyrir stjórnvöld til að gera hin vinsælli verk, sem svo eru nefnd, þ.e. að láta fjármunina renna örar um atvinnulífið og um sinn a.m.k. auka möguleika fólks til betri lífskjara. Svo sem öllum kosningabærum íslendingum er hins vegar kunnugt, hefur undirstaða allrar okkar velmegunar verið æði sveiflukennd. Eftir góðærin hafa oft komið erfiðleikatímabil. sem nauðsynlegt hefur reynst að yfirstíga, og þá oft með miður vinsælum stjórnarathöfnum. Það er þá, sem reynir á stjórnmálamenn og þá forustu, sem kjósendur hafa falið þeim, — ekki aðeins þegar vel árar, þá reynir lítt á þessa forustuhæfileika, heldur fyrst og fremst þegar í móti blæs, þegar erfiðleikarnir steðja að. Undantekningarlaust hafa kommúnistar þá ekki reynst vera meiri föðurlandsvinir en svo, að þá hafa þeir hlaupið af hólmi og þá ýmist sagt, að erfiðleikarnir, sem fram undan væru, séu sáralitlir og auðleysanlegir eða þá, ef ekki hefur reynst unnt að hlekkja þjóðina og leyna vandanum, sem stefnt er að af þeirra völdum, þá er hann að þeirra dómi ofureinfaldlega hinum að kenna.

Um þessar mundir eru unglingar um land allt að þreyta sitt lokapróf. Alþb. og kommúnistar geta að sjálfsögðu ekki skýlt sér á bak við saklaus ungdómsár í íslenskum stjórnmálum, til þess hafa þeir fengið of mörg tækifæri til að taka prófið upp aftur. Það eina, sem fræðarar þeirra í íslenskum málefnum sérstaklega geta álasað sér fyrir, er að áminna þá ekki á réttum tíma um tilgangsleysið í því að láta þá taka yfirleitt nokkurt próf. Þeir hafa þegar fengið þrem möguleikum of mikið. Það þætti ekki manndómsmerki af húsbónda að ganga af heimili sínu frá konu og börnum, þegar mótlæti eða andbyr mætti afkomu heimilisins, ekki síst ef hann gæti sjálfum sér um það kennt. Slíka framkomu vilja kommúnistarnir í Alþb. telja íslenskum almenningi trú um, að sé í þágu íslenskrar alþýðu og sérstakt merki þeirra um þjóðerniskennd og verndun efnalegs sjálfstæðis þjóðarinnar.

Verndun sjálfstæðis þjóðarinnar að dómi kommúnista er m.a. fólgin í því „trausti“ á íslensku þjóðinni, að hún geti ekki valið á milli íslenskrar og erlendrar sjónvarpsdagskrár, en hún má að þeirra dómi sjá sömu myndirnar, aðeins ef þær eru sýndar í íslenska sjónvarpinu. Enn þá megum við þó að þeirra dómi fara í bókabúð og kaupa íslensk og erlend rit eftir eigin vali. Væri nú ekki meira samræmi í því af þeirra hálfu að taka þennan valrétt einnig af fólki og þeir hinir sömu menn flyttu till. um takmörkun á bóka og blaðakaupum almennings, svona rétt til að vera meira og í betri takt við húsbændurna austan tjalds? Slík ráðstöfun kæmi almenningi áreiðanlega ekki meira á óvart en vantraustið, sem í því felst að mega ekki ráða vali á innlendan og erlendum sjónvarpsdagskrám.

Mikið hljóta frændur vorir á Norðurlöndum og í Mið-Evrópu að vera þroskaðri en við Íslendingar. Þar geta menn séð í einu og sama sjónvarpstæki dagskrár frá allt að 4–5 þjóðlöndum, og engum manni kemur til hugar að amast við því. Hvernig förum við svo að, þegar sjónvarpshnettir fara að endurvarpa dagskrám frá fjarlægustu heimshornum innan fárra ára? Svo langt er gengið í þessum efnum, að eftir kostnaðarsamar utanlandsstefnur sendinefnda með ráðh. í fararbroddi er talið til stórsigra í svonefndu herstöðvarmáli, að draga muni úr styrkleika hinnar erlendu sjónvarpsstöðvar. Þá eru þau lítilþæg, samtökin, sem að baki þessum kröfum stóðu, ef þetta verða taldar efndir á gefnum loforðum kommúnista.

Þegar rætt er um efndir Alþb, á gefnum loforðum, er ekki úr vegi að minnast á afskipti þeirra af verkalýðsmálum, Í þeim efnum deildu þeir mjög hart á fyrrv. ríkisstj, fyrir kauprán og arðrán íslenskrar alþýðu, svo að notuð séu þeirra eigin orð. Röksemdirnar fyrir þessum fullyrðingum voru þær, sem þeir nefndu fikt þáv. ríkisstj. með vísitöluna og frestun um sinn á greiðslu verðlagsuppbótar. Nákvæmlega sömu aðgerðir í dag, þegar þeir sjálfir sitja í ráðherrastólum, heita þá ofureinfaldlega endurskoðun vísitölunnar. Sú ákvörðun er einnig tekin, áður en undirskriftablekið á nýgerðum kjarasamningum er þornað. Þá var siglt til síðustu kjarasamninga með slagorðunum: Kauphækkun til þeirra lægst launuðu. — Allir vita nú og finna á launaumslögum sínum, að einnig hér voru efndirnar svik og ósannindi. Jafnvel landhelgismálið varð hæstv. forsrh, að taka úr þeirra höndum, til að á því fengist bráðabirgðalausn. Var þó einhugur þings og þjóðar um það mál.

Skattamál voru mjög á vörum kommúnista í tíð fyrrv. ríkisstj., og áttu þeir vart nógu sterk lýsingarorð til að lýsa ranglæti skatta, meðan þeir voru utan ríkisstj. Þá var óspart leitað til miðlaunaflokkanna í ríkiskerfinu og iðnaðarmanna um fylgi til lausnar á þeim óréttmætu skattaálögum, sem þá giltu að þeirra eigin sögn. Hvað finnst þessum aðilum nú um efndirnar á loforðum um skattalækkun?

Í tíð fyrrv. ríkisstj, voru það landráð og föðurlandssvik að semja við erlenda aðila um iðnrekstur hér á landi, sbr. alúminíumsamningana. Í dag telur hæstv, iðnrh, það sem eina af sínum fegurstu rósum að hafa náð samningum við bandarískan auðhring um hliðstæðan atvinnurekstur hér á landi.

Þá var það einnig eitt af ádeiluefnum kommúnista á fyrrv. ríkisstj., að hún hefði beitt gengisfellingu til lausnar aðsteðjandi efnahagsvanda. Samkv. yfirlýsingu form. Alþb. heita nú næstum mánaðarlegar gengisfellingar að láta krónuna síga.

Það er því nákvæmlega sama, hvert litið er. Það af gefnum loforðum, sem ekki hefur verið svikið, hefur verið látið ógert, og mun það þó sennilega vera talin betri hliðin á starfi þeirra, er fram líða stundir og allur sannleikurinn verður alþjóð ljós. Enginn þarf að gera því skóna, að í því, sem nú þegar er upplýst um gang efnahagsmála, sem þó er nægjanlegt hverjum þjóðhollum Íslendingi til andvöku, að finna allan sannleikann. Því miður er enn þá ekki séð fyrir þann enda.

Með hvaða hætti er og hægt til að ætlast, að menn, sem hafa varið manndómsárum sínum í niðurrifsstörf og svívirðingar um einstaklinga og hópa manna, geti allt í einu farið að vinna ábyrg og jákvæð störf.

Alþfl. hefur það sem af er þessu kjörtímabili, svo sem í öllu starfi sínu fyrr og síðar, í nálega 60 ár, sýnt fulla ábyrgð í störfum, jafnt innan ríkisstj. sem utan, fylgt fram þeim málum, sem hann hefur talið í samræmi við stefnu sina og horfa til almannaheilla, án tillits til þess, hver þau hefur flutt. Alþfl. hefur einnig átt frumkvæði að mörgum málum, sem nánar mun um fjallað af öðrum fulltrúum flokksins hér í kvöld.

Niðurstaðan af þessum lauslegu hugleiðingum, þar sem þó er aðeins tæpt á því helsta í starfi kommúnistanna í Alþb. í núv. ríkisstj., er því sú, að þeir hafa enn reist og undirstrikað á legstein fyrri vinstri stjórna orðið „ósamstarfshæfir“, og þá sér í lagi vegna brigðmælgi sinnar og blekkinga. Skiptir í því efni ekki máli, hvort þeir hlaupast frá þeim vanda, er n.í steðjar að, í dag eða eftir 3–4 mánuði. Þjóðina alla skiptir það hins vegar miklu að losna við þá úr ráðherrasætum hið allra fyrsta og áður en sá vandi, sem þeir hafa skapað, verður alls óviðráðanlegur.

Lokaniðurstaðan verður því tvímælalaust sú, að á meðan ríkisstj. ber kommúnistameinið í brjósti sér, er henni engra góðra verka treystandi. Hún er sjálfri sér sundurþykk, sbr. yfirlýsingar ráðh, síðustu daga. Þess vegna ber henni að víkja. — Góða nótt.