07.11.1973
Efri deild: 14. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í B-deild Alþingistíðinda. (372)
72. mál, Háskóli Íslands
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :
Herra forseti. Svo hefur skipast í Háskóla Íslands, að rektor hefur látið af störfum og þarf að kjósa nýjan með skömmum fyrirvara. Þegar stúdentar eða fulltrúar þeirra fengu aðild að rektorskjöri á árinu 1969, voru ákvæði sett um tiltekna tölu fulltrúa stúdenta, sem kosningarrétt hefðu við rektorskjör. Hins vegar eru, eins og kunnugt er, ákvæði um kosningarrétt kennara við Háskólann almenn. Kosningarrétt hafa prófessorar og aðrir, sem fastráðnir eru til fulls kennslustarfs. Vegna mikillar fjölgunar í Háskólanum, jöfnum höndum nemenda og kennara, hefur kjörmannahópurinn, sem kennarar skipa, stækkað mjög síðan 1969. Þetta veldur því, að hlutdeild stúdenta í rektorskjöri að óbreyttum lögum, mundi rýrna úr 16%, eins og hún var miðað við 1969, niður í 10%, eins og nú er.
Þetta mál hafa stúdentar tekið upp innan Háskólans, og út af þeim málatilbúnaði hefur háskólaráð gert samþykkt, þar sem lagt er til, að l. um Háskóla Íslands sé breytt á þann veg, sem til er tekið í 1. gr. frv. á þskj. 78. Breytingin er sú og sú ein, að þar sem fulltrúar stúdenta, sem nú hafa rétt til að taka þátt í rektorskjöri, eru fulltrúarnir tveir, er sæti eiga á háskólaráðsfundum, og annar af tveim fulltrúum stúdenta á deildarráðafundum og formaður stúdentaráðs, er gert ráð fyrir að fjölga í stúdentahópnum, sem þátt tekur í rektorskjöri, þannig, að kosningarrétt hafi báðir fulltrúarnir á deildarráðafundum, og sömuleiðis fulltrúar stúdenta, sem sæti eiga í stjórn námsbrautar í almennum þjóðfélagsfræðum, og formaður og varaformaður stúdentaráðs. Að þessari breytingu gerðri er hlutdeild stúdenta í kjörmannatölunni við rektorskjör orðin nánast hin sama og var 1969 eða 16%.
Þetta mál ber allbrátt að. Eins og ég sagði áðan, er knýjandi, að rektorskjöri sé hraðað sem mest. Frv. hefur þegar hlotið afgreiðslu frá Nd. Var þar um það fjallað í menntmn. og var hún sammála um að leggja til, að það yrði samþ. óbreytt.
Þar sem hér er um tiltölulega einfalt mál að ræða, og ég held, að allir geti samsinnt því, að það sé líka sanngirnismál, mun ég ekki gera till. um nefndarmeðferð á málinu í hv. deild, en legg til, herra forseti, að því sé vísað til 2. umr.