03.05.1974
Efri deild: 116. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4122 í B-deild Alþingistíðinda. (3727)

291. mál, almannatryggingar

Frsm. (Helgi F. Seljan):

Herra forseti. Frv. það til I. um hreyt á l. um almannatryggingar, sem hér liggur fyrir til 2. umr., var samið af stjórnskipaðri n., sem í áttu sæti fulltrúar allra stjórnmálaflokka, og hefur greinilega verið vel undirbúið um margt. Heilbr: og trn. hefur athugað frv. mjög ítarlega, fengið á sinn fund fulltrúa ýmissa þeirra aðila, sem málið snertir, einnig ráðuneytisstjórann í heilbr.- og trmrn., og niðurstaðan er, eins og á nál. sést, að n. mælir með samþykkt frv., með einni tiltekinni breyt. þó, en að öðru leyti áskilja menn sér rétt til að flytja eða fylgja öðrum brtt., enda skrifa tveir hv. nm. undir með fyrirvara.

Varðandi ýmsar greinar frv. vöknuðu upp ýmsar spurningar hjá nm., m.a. út af þeim upplýsingum og ábendingum, sem fram komu. Heildarniðurstaðan er tvímælalaust jákvæð, enda í verulegum atriðum verið að gera umtalsverðar úrbætur, þó að einnig hafi heyrst, að til baka væri haldið um sumt, og ég á þá við 4. gr. um fjölskyldubæturnar.

Ég skal víkja að einstökum greinum á þann veg að vitna nokkuð í umr. í nefndinni, mótbárur og athugasemdir aðila. En á það dreg ég enga dul persónulega, að megingreinar frv. eru mjög til góðs, og þótt um sumar hafi heyrst vissar aðvaranir aðila, svo sem um 5. gr., er ég sannfærður um, að hér er stefnt að réttu marki, þ.e. að gera tryggingakerfið virkara og réttlátara, eins og hlýtur að vera aðalatriðið í málinu.

Um 2. gr. urðu nokkrar umr., þ.e. hvort fæðingarstyrkur í núverandi mynd ætti rétt á sér nema til þeirra kvenna, sem ælu börn sín heima, fæðingar og sjúkrahúsin féllu sjálfkrafa inn í sjúkratryggingarnar. Þetta skiptir engu höfuðmáli og er raunar frekar spurning um orðalag l., en framkvæmd, því að öll lega vegna fæðinga er hvort sem er greidd af tryggingum, fari fæðing fram í sjúkrahúsi eða fæðingarstofnun. Eftir eru þá þær sárafáu konur, sem ala börn sín heima. N. sá ekki ástæðu til að gera hér till um breyt., þó að rétt sé að skýra frá þessum umr., sem m.a. komu fram vegna ábendinga frá læknum.

3. gr. er sú þýðingarmesta um flest, Þar er verið að koma til móts við það fólk, sem hefur litlar atvinnutekjur eða lágar lífeyrisbætur, að tekjutrygging þess skerðist ekki vegna mjög lágra upphæða af þessu tagi.

Á þessari skerðingu tekjutryggingarinnar hefur komið fram töluverð gagnrýni. Um réttmæti hennar má deila, en hér er henni mætt að nokkru, og við höfum lagt til hækkun á viðmiðun teknanna úr 30 þús. í 37500 kr. til samræmis við almenna hækkun bóta nú 1. apríl, þannig að fólk með tekjur innan þessara marka heldur sinni fullu tekjutryggingu, 80 þús. kr., engu að síður. Hafi bótaþeginn hins vegar tekjur umfram þetta mark, 37500 kr., skal skerða tekjutrygginguna um helming þeirra tekna, sem umfram eru. Hér er um mikla kostnaðaraukningu að ræða, eða samkv. verðlagi, að ég held í haust, um 250 millj. á ársgrundvelli, en hún er réttlætismál og á því fyllsta rétt á sér. Til álita kom í n., að í stað talna skyldi koma ákveðin prósenta, en þar sem allar bætur trygginganna eru ákveðnar með tölum, en ekki öðru formi, þótti rétt að halda því þarna einnig. Hins vegar reiknum við með því, að um þessar bætur gildi áfram sú regla, sem gilt hefur, að þær hækki jafnhliða öðrum tryggingabótum, þótt um það sé aðeins heimild til handa ráðherra.

Þá vík ég stuttlega að 4. gr., þar sem gert er ráð fyrir þeirri breyt. að fjölskyldubætur séu ekki lengur greiddar með fyrsta barni, séu brúttótekjur foreldra hærri en 700 þús. kr. eða börnin séu ekki fleiri en 4. Það er nú löngu viðurkennt, að í raun séu fjölskyldubætur miklu fremur hagstjórnartæki, spurning um vísitölu, en raunverulegar tryggingabætur. En um þetta má eflaust deila, og vissulega er hér um að ræða verulega upphæð til barnmargra eða tekjulágra fjölskyldna, enda ekki gert ráð fyrir neinni skerðingu bóta til þessara aðila.

Mér hefur ætíð þótt sem fjölskyldubætur með einu barni væru óeðlilegar, og raunar gildir hið sama um fyrsta barn í fámennum barnahópi, en um þetta má einnig deila. Um þetta var rætt í n., og m.a. vegna þessa atriðís og þá sérstaklega 11. gr. um, að skerðing þessi reiknist ekki inn í vísitöluna, hafa 2 hv. nm. fyrirvara á stuðningi við málið. N. ræddi og spurninguna um, hvort fella skyldi niður síðustu orðin í 2. mgr.: „sé um það sótt“, en upplýsingar komu um það frá Tryggingastofnun og ráðuneyti, að hér væri um mikið aukastarf að ræða, ef kanna þyrfti alla aðila, og þá einnig það atriði, að til eru þeir í okkar þjóðfélagi, sem geta hagrætt skattframtölum sínum á þann veg, að ekki séu sannleikanum í öllu samkvæm, og því ekki eðlilegt, að þeir hinir sömu fengju bætur með fyrsta barni sjálfkrafa, heldur yrðu að opinbera allsleysi sitt og eymd með umsókn, sem a.m.k. í sumum tilfellum gæti þá niður fallið vegna einhvers brots af sómatilfinningu, sem þó verður að ætla mörgum þessara aðila. Um bætur trygginga er yfirleitt sótt, og því þótti n. ekki rétt að fella þessi orð niður. Engum, sem þyrfti á að halda og rétt hefði, ætti að vera þetta ofaukið. Viðmiðun við aldraða fólkið og tekjutrygginguna ætti einmitt að vera hér mjög gagnleg, því að það fólk verður einmitt að sækja um sína tekjutryggingu, og því ætti þessu fólki á besta aldri ekki frekar að vera það vorkunn.

Í þessari gr. er komið inn á þann sparnað í tryggingakerfinu, sem koma á að nokkru til móts við þau auknu útgjöld, sem aðrar greinar frv. valda, og liggur ekki fyrir að fullu, að hve miklu leyti það muni verða.

6. gr. var einna mest rædd í n. Læknar, form. tryggingaráðs og ráðuneytisstjóri sögðu sitt álit, og inn í þetta kom svo frv. þeirra hv. þm. Jóns Árnasonar og hv. þm. Steinþórs Gestssonar, sem snertu sömu atriði og um getur í b-lið og c-lið 43. gr. l. sjálfra. Læknar lýstu nokkrum áhyggjum út af þessu fyrirkomulagi, töldu t.d. greinina um lyfjagreiðsluna geta aukið ásókn til lækna og valdið þeim auknu álagi og bentu á slæma reynslu Svía í þeim efnum. Úr þessu verður reynslan að skera og einnig því atriði, hversu rétt viðmiðunin er í b-liðnum, hvað snertir 150 kr. greiðsluna til sérfræðings, og fullyrðing í grg., að hér væri um nánast óbreyttan kostnað að ræða, eða 1/4 eins og nú er. Upplýst var, að þessi tala væri fundin með nákvæmri könnun, sem leitt hefði þetta í ljós. Læknar vildu fullyrða, að talan ætti að vera nokkru hærri. En það, sem máli skiptir, er í fyrsta lagi það, að tryggingarnar taka þá aðeins á sig eitthvað aukinn kostnað, og svo hitt, að við hverja gjaldskrárbreytingu getur ráðherra eftir reglugerð hækkað allar þær tölur, sem nefndar eru í 5. gr.

Um það var rætt í n., hvort nota mætti frekar það orðalag um lyfin í frv. því, sem áður er getið, frá hv. þm. Jóni Árnasyni og Steinþóri Gestssyni, þ.e. um lyf til elli- og örorkulífeyrisþega eingöngu og þá að fullu til þeirra, en horfið frá því m.a. vegna þeirra áhendinga, sem við fengum um hættu í misnotkun, svo og af því að nauðsynlegt er í raun að lækka lyfjakostnað fleiri aðila, sem á dýrum lyfjum þurfa að halda, en ekki tilheyra þessum hópi.

Um d-lið 43. gr. l. í 5. gr. þessa frv. var einnig rætt nokkuð, einkum kostnaðarhliðina. Um það lágu ekki neinar tæmandi upplýsingar um líklegan kostnaðarauka, enda upplýst, að erfitt væri að meta hann til fulls. Nm. voru á einu máli um nauðsyn 6. gr. um að taka þátt í greiðslu tannlækninga, þ.e.a.s. gera það að skyldu sjúkrasamlaga. Hér er um áfangaþróun að ræða og er sannarlega til stórhóta. Tannlæknar eða forustumenn þeirra töldu skrefið e.t.v. of stórt, þ.e. að atvinna og ásókn í tannlækningar ykist svo á Reykjavíkursvæðinu, að erfiðara yrði að fá tannlækna út á land af þeim ástæðum. Þessi röksemd er vægast sagt hæpin. Reynslan er a.m.k. víða önnur nú varðandi tannlæknana, enda skapa heilsugæslustöðvarnar aðstöðu og möguleika, sem áður hafa ekki verið fyrir hendi úti á landi yfirleitt.

Við 7. gr. var engin aths. gerð í n, og ekki þá 8. heldur, nema hvað snerti 50 gr. l. almennt, sem grein þessi fjallar um. Áhending kom frá Öryrkjahandalaginu og fleirum um, að í stað 25% heimildarákvæðis varðandi aukagreiðslur vistmanna á stofnunum, kæmi skylda, svo sem frv. þeirra hv. þm. Jóns Árnasonar og Steinþórs Gestssonar gerir ráð fyrir. Upplýst var af formanni tryggingaráðs, að þessi prósenta væri í raun í dag nálægt 21.5%, en þess bæri að gæta, að um stóra hópa fólks væri þannig ástatt, að skylduprósenta til þess stæðist varla, hún hreinlega rynni ekki til þess beint, kæmi því ekki persónulega til góða, t.d. sjúklinga, sem komnir væru út úr heiminum svo sem sagt er, fávita o.fl. Þar sem þessi meðaltalsprósenta er engu að síður svona há, sá n. sem slík ekki neina ástæðu til brtt. af þessu tagi, enda um það full heimild, að þessi 25% verði notuð í öllum eðlilegum tilfellum. Um þetta voru þó skiptar skoðanir, svo sem brtt. hv. 3. þm. Reykn., Odds Ólafssonar, ber með sér, en það skal tekið fram, að Tryggingastofnun ríkisins mælti á sínum tíma gegn þessari breyt. Það skal einnig tekið fram, að í brtt. hv. þm. hefur hann bætt við orðunum: „enda votti stjórnendur viðkomandi stofnunar um þörf hans“, þ.e.a.s. hlutaðeigandi tekjulauss aðila, þannig að það breytir að vísu nokkru hér um. Engu að síður sé ég enga ástæðu til

þess, þar sem heimildin er svona ótvíræð til þess, að við göngum svona langt nú.

Um 9. og 10. gr. var ekkert ágreiningsefni rætt.

Um 11. gr. hef ég áður rætt, vil aðeins taka það fram, að ASÍ var sent frv. með sérstöku tilliti til þessa ákvæðis, því að allir þekkja viðkvæmni vísitölumálanna yfirleitt. Svar barst ekki formlega, en ég held, að óhætt sé að segja, að forusta ASÍ vilji láta þetta átölulaust, þó að þeir lýsi ekki heldur stuðningi við þetta ákvæði.

Ég persónulega tel engan vafa leika á réttmæti þessarar gr., en skal ekki fara frekar út í þau mál öll, svo viðkvæm sem þau annars eru, þó að ég vilji fullyrða, að vísitölubætur í dag séu ekki á heilbrigðum grunni byggðar og til þess helst fallnar að auka launamisrétti í landinu.

Sem von var um frv., sem samið hafði verið í meginatriðum af fulltrúum allra flokka, var meginniðurstaða n. mjög jákvæð, eins og fram kemur í nál. Hér er, svo að ekki verður um villst, stefnt í rétta og jákvæða átt í veigamiklum atriðum: Leiðrétting fyrir aldraða fólkið ótvíræð stórbót. Tannlæknaþjónustan mikilsverð viðurkenning á þeirri staðreynd, að tannlækningar séu mikilvægur hluti heilbrigðisþjónustu almennt. Lækkun lyfjakostnaðar. Greiðsla til sérfræðinga og röntgengreiningarkostnaðar veruleg fyrir fjölmarga, einkum þá, sem mest þurfa á að halda. Tekjujöfnunarhliðin á móti gagnvart fjölskyldubótunum fyllilega réttlætanleg að mínu mati, því að í heild verði að jafna metin í þjóðfélaginu. Megintilfærslan er til þeirra, sem sannarlega þurfa þess með.

Fleiri orð hef ég ekki hér um, en n. leggur til. að frv. verði samþ. með tiltekinni breyt., sem ég gerði grein fyrir. 2 nm. skrifa undir með fyrirvara, og nm. yfirleitt áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. Fjarverandi afgreiðslu málsins vegna veikinda var þm. Eggert G. Þorsteinsson.