03.05.1974
Efri deild: 116. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4129 í B-deild Alþingistíðinda. (3729)

291. mál, almannatryggingar

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér um ræðir, felur í sér að mínu viti nokkrar merkar umbætur á högum þeirra, sem erfitt eiga í þjóðfélaginu. Þetta er að mestu leyti í þrennu lagi: Í fyrsta lagi tekjutryggingin og lagfæringar á því fyrirkomulagi, sem þar hefur ríkt. Í öðru lagi, að kostnaður við leyfi og rannsóknir mun nú ekki koma eins þungt niður á þeim, sem erfitt eiga, og áður hefur gert. Og í þriðja lagi og kannske ekki síst umbætur á tannlæknaþjónustunni. Þetta hefur verið mikið vandamál í þessu landi, ekki síst úti í dreifbýlinu, og hefur það byggt á tvennu: í fyrsta lagi aðstöðuleysi og þar að auki, að þetta er ein af þeim fáu greinum heilbrigðisfræðinnar, sem hefur staðið utan við greiðslur frá almannatryggingum. Ef þetta frv. verður að lögum, tel ég, að mikið vinnist, enda þótt það sé sjálfsagt, að þetta kostar fé. En ég verð að segja það, að stærsti hópurinn af þeim, sem njóta dýrustu umhótanna í þessu frv., eru ellilífeyrisþegar. Þeir eru fjölmennastur hópur þeirra, sem tekjutryggingar njóta. Og hvaða fólk er þetta? Þetta er fólkið, sem kom út í atvinnulíf okkar í fyrri heimsstyrjöldinni. Þetta er fólkið, sem var þá á fermingaraldri. Þetta er fólkið, sem hefur byggt upp þetta land og breytt okkur úr fátækri nýlendu í eitt af hinu stóru og miklu velferðarríkjum, — fólkið, sem hefur sannarlega verið mikilvirkt í því að hyggja upp þetta þjóðfélag. Ég held, að við hljótum að hafa efni á því að gera aðeins betur við það en við höfum gert. Hér er að sjálfsögðu ekki um að ræða nema tiltölulega fámennan hóp af þeim, sem eru 67 ára og eldri, en þó er það stærsti hópurinn af þeim, sem tekjutryggingar njóta.

Það hefur rækilega verið farið í gr. frv., og ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það. Ég tek það fram eins og hv. 6. þm. Reykv., að tekjurnar sem eiga að standa undir kostnaðinum við þetta frv., eru fengnar á þann hátt að taka þær frá þeim, sem eiga börn, og það má deila um, hvað það sé réttlátt og sjálfsagt. Það er fyrirvari með því nál., sem við létum frá okkur fara. Hann byggist eingöngu á því, að ég vil ekki taka afstöðu til þess, hvort þetta eigi að falla út úr vísitölunni eða ekki. Það verða þeir, sem ráða landinu, að gera, og er ég sammála hv. 6. þm. Reykv. hvað það snertir.

En ég vil aðeins fara fáum orðum um 5. gr. frv. Hafa m.a. starfsbræður mínir talið, að við værum hér að fara út á varhugaverða braut með því að ákveða lágt gjald fyrir skoðanir hjá sérfræðingum, telja, að þetta muni gera starfsaðstöðu þeirra erfiðari og auka stórlega ásókn á þá. Ég skal ekki segja um, hvað þetta kann að verða mikið, en ég held, að of mikið sé úr þessu gert. Að vísu er það rétt, að í stóru löndunum hefur nokkuð borið á, að ákvæði sem þessi hafi orðið til skaða eða a.m.k. vafasöm. En ég held, að það sé nokkuð annað viðhorf hér hjá okkur í fámenninu, og ég held, að við þurfum ekki að óttast mikið aukna misnotkun á læknum eða lyfjum, enda þótt þetta ákvæði sé komið inn. Þetta er fyrir hendi í dag að einhverju leyti. Ég hef ekki trú á, að þetta ákvæði breyti miklu þar um. Sömuleiðis verður nú miklu auðveldara fyrir fólk að fá sig röntgenskoðað utan sjúkrahúsa. Af því hefði getað orðið allverulegur kostnaður undanfarið, enda þótt menn greiddu ekki nema 1/4, en er nú tiltölulega auðvelt.

8. gr. frv. fjallar um það, að fólki, sem oft þarf að fara á sjúkrahús, en dvelur þar tiltölulega stutt í einu, sé gert þetta auðveldara með því að láta það njóta örorkubóta sinna eða ellilífeyris lengur en lögin hafa heimilað hingað til. Við þessa gr. geri ég svo hljóðandi brtt.:

„Aftan við 2. málsgr. 8. gr. komi nýr málsliður, svo hljóðandi:

Í stað orðanna „En hlutaðeigandi ... lágmarksbóta“ í niðurlagi 50. gr. l. komi: „Ef hlutaðeigandi er algjörlega tekjulaus, skal Tryggingastofnunin greiði honum sjálfum 2á% lágmarksbóta, enda votti stjórnendur viðkomandi stofnunar þörf hans.“

Þetta virðist vera heldur ómerkilegt ákvæði. Það er aðeins ætlað til hagsbóta fyrir þá, sem eru kannske allra erfiðast settir hjá okkur. Það eru langlegusjúklingarnir. Og þetta ákvæði hljóðar svo í tryggingalöggjöfinni, með leyfi hæstv. forseta, eins og það er í dag: „Ef hlutaðeigandi er algjörlega tekjulaus, er Tryggingastofnuninni heimilt að greiða honum sjálfum allt að 25% lágmarksbóta.“ Ástæðan til þess, að ég hef hug á því að breyta heimildinni í skyldu, er sú, að ég tel, að það hafi orðið misbrestur á, að þetta væri framkvæmt eins og okkur hefur fundist að ætti að gera, en það er kannske meira tilviljun og ókunnugleiki heldur en af öðrum ástæðum. Hins vegar bætti ég þarna inn i, að stjórnendur þeirrar stofnunar, sem sjúklingurinn er á, eigi að votta, að hann sjálfur hafi þörf fyrir þessar tekjur eða þessar bætur. Þegar gr. er orðin þannig breytt, lít ég svo á, að orðið geti frekar til sparnaðar en til útgjalda, og það byggist á því, að kvartað hefur verið yfir, að ýmsir þeir, sem ýmist væru komnir út úr heiminum, orðnir ellihrumir og þyrftu ekki á neinum vasapeningum að halda, eða þá ýmsir aðrir sjúklingar hefðu ekki not þessara peninga og þetta rynni þá til stofnana eða til ættingja eða inn á bók jafnvel og færi svo til ættingjanna seinna meir. Það er ekki ætlun mín, að þetta sé svo. Með því móti, að stjórnendur stofnana votti, að þörf sé fyrir peningana, álít ég nokkuð tryggt, að þetta sé aðeins látið af hendi þar, sem þörf er fyrir það. Vafalaust gæti það mjög komið til, að menn nytu þessara bóta t.d. í nokkur skipti nokkra mánuði, á meðan þeir væru að kaupa sér sínar þarfir, og síðan, þegar þeir hefðu ekki not fyrir meira, mundu stjórnendurnir láta í ljós það álit, að eins og á stæði, þá væri ekki þörf fyrir peninga og þá félli það niður. Þetta er smekksatriði.

Þetta er komið fram vegna ítrekaðrar beiðni til Öryrkjabandalags Íslands um að reyna að fá þessu hreytt. Ég vil ekki fara að rekja nein einstök tilfelli, og má vel vera, að gert sé meira úr þessu en ástæða er til. En ég vona, að hv. þm. sjái, að hér er um að ræða þá verst stæðu þegna, sem til eru í þessu þjóðfélagi, menn, sem eiga hvorki fyrir tóbaki, fötum né tannbursta eða hvað sem er, sem stofnunin lætur í té, og þetta skapar þeim nokkru meira öryggi en áður var.

Eins og ég sagði áður, álít ég, að þetta sé mikil umbót á almannatryggingalögunum. Þetta kostar að vísu fjármagn. Tryggingabætur og almannatryggingar byggjast á því að taka frá almenningi og láta til þeirra, sem þess þurfa. Þannig er að sjálfsögðu augljóst, að þetta hefur í för með sér allmiklar fjárhæðir til útgjalda. En á móti kemur, að þar eru teknar milli 300 og 400 millj. af fjölskyldubótum.