03.05.1974
Neðri deild: 119. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4182 í B-deild Alþingistíðinda. (3766)

337. mál, jafnvægi í efnahagsmálum

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Í umr. þeim, sem fóru fram á hv. Alþ. í gærkvöld, gerði ég í örfáum orðum grein fyrir þeirri sérstöðu, sem við Alþb.-menn höfum í sambandi við það stjfrv., sem hér liggur fyrir. Ég sagði, að við áskildum okkur rétt til þess að flytja og fylgja brtt., sérstaklega við þær gr. frv., sem snerta launagreiðslu og vísitölumál. og um niðurgreiðslur vöruverðs. Ég sagði, að við teldum, að frv. ætti að geta orðið eðlilegur grundvöllur til samkomulags á Alþ. með vissum breytingum og við legðum mesta áherslu á, að launakjör hinna lægra laumuðu verði ekki skert og að takast megi að stöðva verðhækkunarskrúfuna og tryggja fulla atvinnu.

Sá fyrirvari, sem við vildum, að tekinn yrði fram um okkar afstöðu, varðar sem sagt fyrst og fremst 4. gr. frv., sem fjallar sérstaklega um vísitölumálið, og þá þar af leiðandi um leið 5. gr., sem fjallar um landbúnaðarmál og er nátengd, 6. gr., sem er um bindingu fiskverðs, 7. gr., þar sem sérstaklega er fjallað um það, hvernig með skuli fara þá launasamninga, þar sem grunnlaunahækkunin var meiri en sem nemur 20%, og svo 9. gr. frv., en það eru sérstaklega ákvæðin um niðurgreiðslu á vöruverði.

Það er enginn vafi á því, að sá vandi, sem við stöndum nú frammi fyrir í efnahagsmálum, snýst öðru fremur um það, hvernig skuli fara með þá hækkun á kaupgjaldsvísitölu, sem sýnilegt er, að verða muni 1. júní n.k. og aftur 1. sept. að hausti. Eins og fram hefur komið í umr. hér, er reiknað með því, að kaupgjaldsvísitalan muni hækka 1. júní n.k, um 13–15%, og ef sú hækkun verður látin ganga yfir án aðgerða, mundi kaupgjaldsvísitalan aftur hækka sennilega um 7–8% eða jafnvel meira 1. sept. Það eru afleiðingarnar af þessum hækkunum, sem fyrst og fremst þarf að glíma við. Og ég held, að allir hljóti að verða sammála um, að það þarf í rauninni að koma í veg fyrir það, að þessar hækkanir gangi yfir og út í efnahagskerfið. En þá kemur að sjálfsögðu upp spurningin um það, hvernig hægt er að komast hjá því, að þessar hækkanir gangi út í efnahagskerfið, með hvaða ráðum er hægt að koma í veg fyrir þessar hækkanir, þannig að launafólk í landinu almennt geti unað við þær ráðstafanir.

Það er skoðun okkar Alþb.-manna, að það ætti að vera hægt að greiða niður vöruverð fyrir 1. júní, þannig að vísitalan ætti að lækka um 8–9%. Þessir möguleikar eiga að verða til með því að samþykkja 8. gr. frv., en þar er gert ráð fyrir heimild til að skera niður útgjöld á fjárl. um 1500 millj. kr. En við teljum, að það, sem sparast við þann niðurskurð, eigi fyrst og fremst að nota til dýrtíðarráðstafana, til þess að draga úr þeim mikla vanda, sem hér er við að glíma.

Í öðru lagi teljum við, að það þurfi að nota þá heimild, sem er að finna í 4. gr. frv. um það, að greiða skuli sérstakar fastar bætur til þeirra, sem eru lægst launaðir, þannig að þeir þurfi í rauninni ekki að tapa neinu teljandi í launakjörum sínum. Það veltur því mjög mikið á því, hvernig staðið verður að framkvæmdum í þessum efnum, hver sá vandi er fyrir hinar almennu launastéttir í landinu, sem hér er um að ræða. En við undirstrikum það sem okkar skoðun, að það þarf að ná því marki, að kaupgjaldsvísitalan verði almennt séð ekki hærri eftir 1. júní en hún er nú í dag.

Í 7. gr. frv. er gert ráð fyrir því að fresta fram til 1. des. þeim grunnlaunahækkunum, sem reynast vera umfram 20% hækkun á grunnkaupi og samið hefur verið um á þessu ári. Eins og hefur komið fram í þessum umr., er enginn vafi á því, að slíkar grunnkaupshækkanir hafa átt sér stað í ýmsum tilvikum, og verður að telja mjög eðlilegt, að þeim umframhækkunum sé frestað, á meðan er verið að gera ráðstafanir til þess að hafa að öðru leyti áhrif á gerða launasamninga, fremur til lækkunar en hitt í næstum öllum tilfellum. En því er ekki að neita, að það er mjög erfitt eflaust að standa að framkvæmd þeirra ákvæða, sem er að finna í 7. gr. frv. Deilur verða eflaust um það, hvað telst vera grunnkaupshækkun í mörgum þessum tilvikum, og ég býst við því líka, að það muni mæta allharðri andstöðu þeirra, sem þarna eiga einkum hagsmuna að gæta, og getur orðið vafasamt, hvort tekst að ná því marki, sem að er stefnt með ákvæðum í þessari grein. Við viljum því fyrir okkar leyti huga vel að því, hvort rétt er að halda sig við þessa gr. óbreytta eða hvort ætti að sníða henni nokkurn annan búning, þ.e.a.s. banna allar verðhækkanir umfram það, sem nemur 20% almennri grunnkaupshækkun, þ.e.a.s. þeir vinnuveitendur, sem samið hafa um eða semja um meiri grunnkaupshækkun en sem nemur 20%, verði þá sjálfir að standa undir þeim vanda að gera slíka samninga, en fái ekki að framselja það út í verðlagið. Þá verða þeir eflaust að standa frammi fyrir því, sem þeir hafa gert. En það er enginn vafi á því, að í einhverjum tilvikum gæti þarna risið upp einhver vandi. Þá viljum við einnig leggja áherslu á það, að reynt sé að hafa samráð við samtök vinnumarkaðarins, bæði verkafólk og atvinnurekenda og þessar samningaviðræður hafa þegar verið teknar upp. En við leggjum mikla áherslu á að reyna að skapa eins mikinn frið um þessar ráðstafanir við þessa aðila og mögulegt er. Þess er auðvitað helst að vænta, að slíkur friður fáist, ef haft er fullt samráð við þessa aðila.

Þessi atriði, sem ég hef nú tekið fram, eru meginatriðin í þeim viðhorfum, sem við höfum til þessa frv., en erum að sjálfsögðu samþykkir öllum meginatriðum frv., þó að við viljum taka þátt í viðræðum við aðra um að gera á þessum greinum einhverjar breytingar.

Hér hafa orðið talsverðar umr. um stöðuna í efnahagsmálum almennt, eins og eðlilegt er, þegar till. liggja fyrir um jafnvíðtækar ráðstafanir í efnahagsmálum og hér er raunin á. Mig langar til að fara nokkrum almennum orðum um það ástand, sem við búum við í efnahagsmálum.

Ég held, að sá vandi, sem við er að glíma í okkar efnahagsmálum nú, sé aðallega tvíþættur. Annars vegar er það, að nokkur lækkun hefur orðið á allþýðingarmiklum útflutningsvörum okkar, á verði þessara útflutningsvara á heimsmarkaði. Þær lækkanir, sem þar er um að ræða, eru þó ekki mjög veigamiklar enn. Hér er fyrst og fremst um að ræða nokkra lækkun á fiskblokk, sem seld er á Bandaríkjamarkað, en enn sem komið er höfum við ekki selt nema sáralítið af okkar framleiðslu á þessu verði. Annar frosinn fiskur, sem við framleiðum og seljum inn á þennan markað í mjög ríkum mæli, hefur ekki lækkað enn sem komið er. Þá hefur einnig það gerst, að verð á fiskmjöli og loðnumjöli hefur lækkað talsvert frá því hæsta verði, sem við nutum á s.l. ári og nú um s.l. áramót. Verðið á fiskmjöli komst hæst í það að vera um 10 dollarar á verðeiningu, en nú hefur átt sér stað nokkur sala á 6.50 dollara verðeiningu Hér er að sjálfsögðu um allverulega lækkun frá hæsta verði að ræða, en þó er hér um mjög verulega hækkun að ræða frá því verði, sem við höfðum fyrir þessa vöru á s.l. ári. En við höfum, eins og ég hef sagt, ekki selt nema lítinn hluta af framleiðslu okkar á þessu lága verði, en hins vegar selt fyllilega jafnmikið á því hæsta verði, sem fékkst fyrir þessa vöru. Það er því ekki hægt að segja, að enn sem komið er sé um verulega mikla verðlækkun á okkar útflutningsvörum að ræða, þó að verðlækkunin sé að sjálfsögðu nokkuð tilfinnanleg hjá þeim, sem verða fyrir henni.

Á móti þessum verðlækkunum koma aftur nokkrar verðhækkanir á okkar útfluttu vörum. Það hefur t.d. orðið verðhækkun á saltfiski, mjög veruleg verðhækkun á lýsi og í nýlega gerðum samningi við Sovétríkin um sölu á frosnum fiski var meðaltalsverðhækkunin 48% frá því á s.l. ári. Þessi verðhækkun var auðvitað að langmestu leyti til þess að reyna að hífa það verð upp til jafns við það, sem við höfðum fengið annars staðar hæst. En eigi að siður gildir þessi verðhækkun sem hreinn tekjuauki fyrir þennan útflutning frá því, sem var á s.l. ári. Ég vara því við því fyrir mitt leyti að gera of mikið úr þeim verðlækkunum, sem hafa orðið, og þeim vanda, sem af þessu stafar, þó að ég viðurkenni það fyllilega, að hér er um nokkurn vanda að ræða, sem sérstaklega skellur á okkar frystihúsum. En þá ber líka að gæta, að þessi útflutningur hefur á undanförnum árum byggt sér upp verulega öflugan stuðningssjóð, sem er Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins eða fiskiðnaðarins. Þessi sjóðir er nú orðinn á 3. milljarð kr., og hann mundi samkv. lögum sínum og reglum taka að sér greiðslur að nokkru af þessari verðlækkun og auðvelt væri að láta hann standa undir þessum vanda að vissu marki. Þá er þess einnig að gæta, að á s.l, ári var skráningu íslensku krónunnar hagað á þann veg, að hún var hækkuð verulega í verðgildi borið saman við dollar frá því, sem verið hafði, og nam mesta hækkunin, sem varð frá aprílmánuði til ársloka, réttum 15%. Þessi hækkun á gengi krónunnar var ákveðin í krafti þess, að útflutningsverð á okkar helstu útflutningsafurðum var hátt og talið var, að okkar Útflutningsframleiðsla þyldi þessa gengishækkun. Síðan um áramót hefur hins vegar gengi krónunnar fallið miðað við dollar um nærri 6%. Það hefur alltaf legið skýrt fyrir, að ef hið háa útflutningsverð, sem gengisskráningin var miðuð við, félli eitthvað verulega, þá hlyti það einnig að hafa einhver áhrif á skráningu íslensku krónunnar.

Þetta, sem ég hef sagt um þessi atriði, þýðir það frá mínu sjónarmiði, að þó að hér sé vissulega um nokkurn vanda að ræða fyrir okkar þýðingarmiklu útflutningsframleiðslu, þá ber ekki að gera of mikið úr því eða að grípa til einhverra ráðstafana, eins og stundum hefur hent áður, sem eru ótímabærar. Ég minni á það í þessum efnum, að bæði í upphafi ársins 1972 og aftur í upphafi ársins 1973 var hlaupið til þess að gera ráðstafanir, sem ekki áttu þá rétt á sér, miðað við þá þróun, sem síðar varð.

Þá er einnig þess að gæta, að afkoma okkar helstu útflutningsatvinnugreina var sérstaklega hagstæð á s.l. ári. Það er t.d. mat hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins, að afkoma sjávarútvegsins hafi orðið betri á s.l. ári en Um langan tíma áður. Í skýrslu hagrannsóknadeildar um þessi efni segir m, a. orðrétt á þessa leið:

Ef rekstraráætlanir hagrannsóknadeildar fyrir helstu greinar sjávarútvegsins á árinu 1973 eru dregnar saman, fæst sú niðurstaða, að vergur hagnaður fyrir skatta og afskriftir á almanaksárinu verði að líkindum nálægt 2 300 millj. kr., samanborið við rúmar 800 millj. kr. á árinu 1972.“ Og síðar segir: „Á hvaða kvarða sem mælt er, virðist hagur sjávarútvegsins á árinu 1973 með því besta, sem gerst hefur.“

Á því er enginn vafi, að almenn afkoma sjávarútvegsins og útflutningsgreina hans varð mjög hagstæð á s.l. ári. En á sama tíma og það gerist, að ber á nokkru verðfalli, t.d. á framleiðsluvörum frystihúsanna, þá gerist það í upphafi þessa árs, að ákveðnar eru mjög miklar kauphækkanir, — kauphækkanir, sem í dag munu nema 25–35%, þegar vísitöluhækkun á kaupi er tekin með frá 1. mars s.l. Það gefur auga leið, að þegar tekjurnar lækka eitthvað, en útgjöldin hins vegar hækka, ekki aðeins launakostnaður, heldur einnig annar rekstrarkostnaður, þá hallar augljóslega undan fæti. Það er það, sem hefur gerst, og eigendur þessara framleiðslutækja setja af skiljanlegum- ástæðum fram sínar kvartanir og sínar kröfur. Ég tel þó, að miðað við allar aðstæður sé ekki ástæða til stóraðgerða fyrir þessar framleiðslugreinar umfram það, sem Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins á að taka á sig, og umfram það, sem þegar hefur gerst í gengisskráningarmálum og eðlilegt kann að vera að gerist þar, annað en að koma í veg fyrir þær frekari verðhækkanir, sem hætta er á að skelli yfir og augljóst er, að skella yfir, ef ekki verða gerðar einhverjar ráðstafanir. Það er því fyrst og fremst um það að ræða að mínum dómi, að það þarf að koma í veg fyrir þær verðlagshækkanir, sem mundu skella yfir 1. júní og aftur 1. sept. og síðan koll af kolli, ef ekki eru gerðar viðnámsráðstafanir.

Það eru þessi atriði, sem ég tel, að skipti hér mestu máli, þ.e. að hafa þetta í huga. Afkoma sjávarútvegsins var mjög góð á síðasta ári, betri en nokkru sinni áður. Það verðfall, sem þegar hefur gert vart við sig, er enn sem komið er ekki verulegt, og á að vera hægt að mæta því. Kauphækkanirnar, sem þegar eru komnar fram, eru að vísu talsverðar og þannig, að vissar greinar þar mundu standa nokkuð höllum fæti. En fyrst og fremst þarf að gera ráðstafanir í þessum efnum til þess að koma í veg fyrir frekari hækkanir.

Það eru þessi atriði, sem ég tel, að skipti hér umr., að dýrtíðarvöxturinn hér hjá okkur væri miklu meiri en í öðrum löndum og hafi verið hartnær 30%, frá upphafi árs 1973 til loka þessa árs. Þetta er rétt. En því er bara gleymt í þessum samanburði, að það er engin leið að bera saman þær verðhækkanir, sem við skráum hér, m.a. í okkar kaupgjalds- eða framfærsluvísitölu, og þær, sem birtar eru í nálægum löndum, og hafa þó hækkanir þar viða orðið mjög miklar. Hvergi í nálægum löndum er hafður sá háttur á í þessum efnum, að sú dýrtíð, sem mæld er, skuli ganga óbrotin svo að segja út í kaupgjald allt og út í verð landbúnaðarafurða á þriggja mánaða fresti, en afleiðingarnar af þessu hljóta skiljanlega að verða þær, að hér snýst upp á vísitöluna með miklu meiri hraða en í nokkru öðru landi. Ef sami háttur hefði verið hafður á hér og t.d. í Vestur-Þýskalandi, Bretlandi eða Svíþjóð, þar sem laun eru alls ekki tengd vísitölu og auðvitað enn þá síður verðlag á landbúnaðarafurðum, þá hefði auðvitað hækkunin á okkar vísitölu orðið allt önnur en raun hefur orðið á. Það er því þetta kerfi, sem við búum við og er kannske ekki einum frekar en öðrum um að kenna, sem gerir það að verkum, að það þýðir ekkert annað en horfast í augu við það, að þegar miklar verðhækkanir ganga yfir, t.d. erlendis, þá hljóta þær að snúa upp á sig í okkar kerfi á þann hátt, sem gerst hefur. Í ljós hefur komið, að meðalhækkun á verði innfluttra neysluvara á s.l. ári var um 26%. Mjög margar vörur, sem hafa mikla þýðingu í okkar almenna rekstri, hafa hækkað langtum meira en þetta. Þannig hefur verð á flestöllum hráefnum til iðnaðar hækkað miklu meira og þar af leiðandi síðan verð á framleiðsluvörum innlenda iðnaðarins. Sama er að segja um verðlag á timbri, járni, fóðurvörum, að maður tali nú ekki um á olíuvörum. Þar hefur verðhækkunin verið miklum mun meiri en þetta. En við Íslendingar erum háðir innflutningi þessara vara í miklu ríkara mæli en flestar aðrar þjóðir. Af þessum ástæðum hljóta á tímum eins og þeim, sem nú ganga yfir, áhrifin í mældri vísitölu hjá okkur að koma fram í margföldum mæli miðað við það, sem er í nálægum löndum. Og það þýðir ekki að loka augunum fyrir því, að á yfirstandandi ári eru allmiklar líkur til þess, að áhrifin af þessu háa erlenda verðlagi verði jafnvel enn þá meiri en þau voru á s.l. ári. Það hefur verið reiknað út, að þær olíuvörur, sem landsmenn nota, miðað við það magn, sem gert er ráð fyrir, að við notum á yfirstandandi ári, árinu 1974, muni verða um 5 200 millj. kr. dýrari en það olíumagn var, sem við notuðum árið 1972. Það er augljóst mál, að hér hækkar verð af þessum ástæðum gífurlega mikið og viðskiptakjör þjóðarinnar versna af þessum ástæðum.

Í því frv., sem hér liggur fyrir, er gert ráð fyrir, að ríkisstj, fái allmiklu viðtækari heimildir til þess að ákveða almenna verðstöðvun en nú eru til í lögum og að ríkisstj. fái einnig aðstöðu til þess að fyrirskipa verðlækkun, þegar hún telur þörf á slíku. Ég tel nauðsynlegt að fá þessar heimildir, m.a. vegna þess, að það kerfi, sem við búum við nú varðandi ákvörðun á verðlagi, er svo ófullkomið og er í höndum á svo mörgum aðilum, að það er engin von til þess, að hægt sé að treysta á það, að verðlagi sé haldið niðri með nokkurri hörku, ef þetta kerfi á að ráða, eins og það er nú. Auðvitað er verðstöðvun engin lækning til frambúðar á þeim vanda, sem við er að glíma. En hún getur eigi að síður haft allmikil áhrif, m.a. verður hún til þess að draga nokkuð úr almennum og víðtækum kröfum um verðhækkanir, sem alltaf er látið undan að meira eða minna leyti, og slík verðstöðvun verður auðvitað til þess, að þeir, sem þar eiga hlut að máli, verða að taka á sig nokkurn vanda á stuttu tímabili, þó að þeir eigi eftir að koma seinna og óska eftir verðhækkun til þess að bæta sér upp þau útgjöld, sem þeir hafa orðið fyrir á verðstöðvunartímanum. En verðstöðvunartíminn gefur nokkurt tóm til þess að skoða þessi mál betur og hvernig hægt er að draga úr dýrtíðarvextinum raunhæfari hátt. Ég tel, að við verðum að nota þetta ráð, eins og flestar aðrar þjóðir hafa gert eða mjög margar, þó að við gerum okkur fulla grein fyrir því, að þetta sé engin varanleg lausn á þeim vanda, sem við er að glíma.

Ég tel, að það ákvæði frv., sem gerir ráð fyrir heimild til þess að lækka útgjöld fjárl. um 1500 millj. kr., sé eðlilegt miðað við núv. aðstæður. Ef sá sparnaður, sem við það fæst, er notaður til þess að greiða niður verðlag og minnka þann vanda, sem við er að glíma, tel ég þessa ráðstöfun sjálfsagða, En það var vægast sagt að mínum dómi heimskulegt að leggja til slíkan niðurskurð, eins og sjálfstæðismenn lögðu til, og nota hann í því skyni að lækka almenna skattlagningu, Það hefði ekki haft mikil áhrif. Hitt er að mínum dómi gersamlega annað að lækka nokkuð fjárveitingar til ýmiss konar framkvæmda og draga nokkuð úr rekstrarkostnaði ríkisins og opinberra fyrirtækja og nota það, sem þannig sparast, til þess að greiða niður verðlag og koma í veg fyrir eða stöðva þessa verðhækkunaröldu. Það er réttlætanlegt, jafnvel þó að hér sé um að ræða ýmsar framkvæmdir, sem vissulega væri æskilegt, að hægt væri að halda áfram með fullum hraða. Ég tel, að það sé engin frágangssök, svo ríflegu fé sem hefur verið áætlað að verja til margvíslegra framkvæmda, þó að það sé skorið niður um 10–15% á þessu ári, ef því, sem sparast, verður varið á þennan hátt. En hitt hefðu ekki verið hyggindi að mínum dómi að falla frá þessum framkvæmdum og borga þessar fjárhæðir út í minnkandi skattheimtu á þeim tíma, sem kaupmátturinn í landinu er greinilega meiri en hagkerfið ræður við.

Ég hef áður minnst nokkuð á það ákvæði frv., sem snýr að vísitölumálunum. Þar er eðlilega um mjög viðkvæm mál að ræða og þarf að leita eftir samstöðu við verkalýðshreyfinguna um þau ákvæði. Ber vitanlega að halda á framkvæmd þeirra mála á þann hátt, að kaupskerðingin verði eins lítil og mögulegt er. Hins vegar tel ég engan verulegan vanda vera, þó að um nokkra skerðingu á umsömdum launum þeirra, sem eru með meðallaun og hærri en meðallaun, sé að ræða á því tímabili, sem þessi lög eiga að gilda. Ég tel, að laun hjá okkur séu orðin svo há, að þeir, sem þannig er ástatt um, þurfi í rauninni ekki að bera sig illa, þó að þeir verði að sætta sig við minni háttar skerðingu á þessu tímabili. En það ber vissulega að taka tillit til þess að reyna að vernda hag þeirra, sem hafa lægstu launin, og að mínum dómi kemur ekki til mála að ætla að fella niður alla vísitölubætur án gagnráðstafana, því að það yrði til þess, eins og hér hefur verið bent á, að þá væri veruleg hætta á því, að staða þeirra aðila væri verri eftir 1. júní heldur en hún var jafnvel fyrir samningagerðina í lok febrúarmánaða.

Þá er gert ráð fyrir í frv., að bankar, sparisjóðir og lífeyrissjóðir verði skyldaðir til þess að kaupa ríkisskuldabréf fyrir sem nemur 15% af ráðstöfunarfé þessara aðila og lífeyrissjóðirnir auk þess skyldaðir til þess að kaupa ríkisskuldabréf eða önnur hliðstæð bréf fyrir sem nemur 20% af ráðstöfunarfé þeirra, en þar yrði um verðtryggingu að ræða. Þessar ráðstafanir tel ég mjög nauðsynlegar, ef ætlunin er að draga úr þeirri spennu, sem mikið er um talað og ég verð að lýsa undrun minni á því, að hv. 5. þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen taldi sig ekki vera reiðubúinn til þess að fylgja þessum till., þótt hann tæki mjög líklega í margar aðrar, þó að augljóst sé, að útlán bankanna á s.l. höfðu gífurlega mikil áhrif á það að auka spennuna í þjóðfélaginu, þar sem útlánaaukning þeirra varð nokkuð á 8, milljarð kr., og þegar það er einnig haft í huga, að nú er svo komið, að lífeyrissjóðirnir í landinu munu hafa ráðstöfunarfé, sem nemur í kringum 5 000 millj. kr., og þessir aðilar veita þessu fjármagni út til margvíslegrar eyðslu og auka auðvitað stórkostlega á spennuna í landinu. Það virðist því ekki vera nema eðlileg ráðstöfun að kalla eftir því, að þessir aðilar bindi meira af sínu fé til þeirra nauðsynlegu framkvæmda, sem á að standa að hvort sem er, en hafi ekki fullt frjálsræði með ráðstöfun á þessu fé, eins og þeir hafa haft. Ég álít einmitt þessa till. eina þá þýðingarmestu, sem er að finna í frv., til þess að draga úr spennunni í þjóðfélaginu. Þessi ráðstöfun jafnhliða því, að dregið verður úr framkvæmdum á vegum ríkisins, og jafnhliða því, að gerðar verða ráðstafanir til þess að minnka nokkuð lán fjárfestingarlánasjóðanna, þessar ráðstafanir miða allar sameiginlega að því að draga úr þeirri miklu spennu, sem óneitanlega hefur verið. En það verða menn að gera sér ljóst, að það er þýðingarlítið að tala um mikla spennu í atvinnulífi þjóðarinnar, ef þeir þora ekki að gera þær einu ráðstafanir, sem koma að einhverju gagni til þess að draga úr þessari spennu. Það er auðvitað enginn vafi á því, að það er ekki hægt að draga úr þessari spennu þannig, að um muni aðeins með því að draga úr framkvæmdum á vegum ríkisins. Þær eru ekki svo miklar, að þær ráði þar öllu.

Þá er gert ráð fyrir því í frv., að teknar verði til endurskoðunar útlánareglur fjárfestingarlánasjóða með það fyrir augum að samræma lánveitingakjör sjóðanna, en nú er þannig ástatt, að ýmsir stofnlánasjóðir lána út allmikið fé með tiltölulega lágum vöxtum og án frekari verðtryggingar, en aðrir stofnlánasjóðir lána hins vegar út næstum allt sitt fé og meira og minna verðtryggt. Þar bendi ég t.d. á Fiskveiðasjóð, sem er með gengistryggingu á öllum sínum lánum, og auk þess aðra verðtryggða sjóði í ýmsum tilfellum. Það er enginn vafi á því, að það verður óeðlileg ásókn í lán hjá hinum fyrrnefndu fjárfestingarlánasjóðum, ef lánareglum þeirra verður ekki breytt eitthvað frá því, sem nú er. Með því að vinna að samræmdum reglum í þessum efnum er líka hægt að hafa áhrif á eftirspurnina eftir lánum og hafa einhver áhrif á það að draga úr hinni miklu spennu.

Þá er í frv. ákvæði um að taka upp nokkurn skyldusparnað. Ég fyrir mitt leyti geri ekki mikið úr þessari till. Hún hefur ekki mikil áhrif. Þó er hér um réttmæta ráðstöfun að ræða. En það hefði í rauninni þurft að ganga allmiklu lengra að mínum dómi, ef ætti að fara inn á þessa braut, og skyldusparnaður mætti gjarnan vera stighækkandi í prósentum, þannig að af hærri tekjunum yrði skyldað að spara enn meira en gert er ráð fyrir í frv. En hér er þó ekki um neitt grundvallaratriði að ræða varðandi frv.

Það, sem ég tel, að gæti náðst með þessu frv., er fyrst og fremst þetta. Það er hægt að framkvæma þau ákvæði, sem heimildir standa til um í frv., til þess að hafa veruleg áhrif á spennuna í atvinnumálum með ákvæðum varðandi banka, sparisjóði og lífeyrissjóði, með reglunum varðandi stofnlánasjóði, og með ákvæðunum Um að draga úr ríkisframkvæmdum. Á þennan hátt er hægt að hafa þarna allveruleg áhrif. Þá mundi frv. einnig tryggja það að mínum dómi, að hægt ætti að vera að koma í veg fyrir þá vísitöluskrúfu, sem er fram undan, og það skiptir mestu máli, og það ætti að vera hægt að standa að þeim framkvæmdum þannig, að launþegasamtökin í landinu gætu annaðhvort fallist á þá ráðstöfun eða unað við hana, vegna þess að hér er líka um mikið hagsmunamál launþega að ræða að koma í veg fyrir þær verðhækkanir, sem annars yrðu hér óhjákvæmilegar. Eins og kom fram hjá hæstv, forsrh., þegar hann talaði fyrir málinu, er með þessu frv., gert ráð fyrir að taka upp ýmiss konar hömlunarráðstafanir án þess þó að fara í almenna gengislækkun, — og það tel ég mjög mikilvægt, — þá leið, sem var leið gömlu viðreisnarflokkanna, í öllum tilvikum, þegar hliðstæðan vanda bar að eins og nú, að fara í stórkostlegar gengislækkanir og taka vísitöluna einfaldlega úr sambandi um leið. Slíkar ráðstafanir þýddu auðvitað stórfellda kjaraskerðingu fyrir launafólk almennt í landinu. En með þeim till., sem byggt er á í þessu frv., er í rauninni farin allt önnur leið.

Ég tók eftir því, að hv. 5. þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen, sagði, að öðruvísi hefði verið tekið á þessum málum í tíð viðreisnarstjórnarinnar árið 1960 og þá hefði í rauninni tekist að ná jafnvægi í íslenskum þjóðarbúskap á árunum 1960–1962, En hvernig var þetta jafnvægi? Þetta jafnvægi fékkst með því að gera fyrst stórkostlega gengislækkun árið 1960 og banna alla vísitölutengingu á laun og síðan, þegar launþegasamtökin í landinu reyndu að rétta hlut sinn að nokkru árið 1961, þá var brugðið strax við aftur og gengið lækkað aftur. Það er auðvitað afskaplega einföld aðferð, þegar maður mætir vandamálum af þessu tagi, að knýja bara fram almenna launalækkun frá þeim launagrundvelli, sem verið hefur. Það eru gömlu viðreisnarráðin. Þau eru afar einföld, og það leyndi sér ekki á því, sem hv. 5, þm. Reykv., Gunnar Thoroddsen, sagði hér, að hann er enn hrifinn af þessum ráðum og enn mundi hann vilja beita þeim og ná jafnvægi á þennan hátt. Það væri einfalt að lækka gengið um 20–30%, — Það var reyndar miklu meira 1960, og banna síðan allar vísitöluhækkanir á kaup og ná jafnvægi á þann hátt. Þá væri ekki mikill vandi að lifa, ef á þann hátt væri farið að. En ég er afar hræddur um það, að jafnvel þó að viðreisnarflokkarnir reyndu að fara þessa leið aftur við núv. kringumstæður, kæmust þeir ekki ýkjalangt, enda fór svo, að þeir urðu á sínum tíma að gefast upp á þessari leið. Þeir urðu að samþykkja að taka upp vísitöluna á nýjan leik, m.a. til þess að fá meiri frið á vinnumarkaði en orðinn var, en þá var orðinn sá háttur á, að launþegasamtökin fengjust ekki til að semja um kaupgjaldsmál nema til 6 mánaða í senn. Það er vitanlega engin leið út úr slíkum vanda sem þessum að lenda í slíku.

Hitt er rétt, að það er mikil þörf á því að breyta þeim vísitölugrundvelli, sem notaður er til þess að vernda kaupmátt launa. Sá vísitölugrundvöllur, sem við búum við í dag, er í eðli sínu ósanngjarn, og hann er auk þess stórhættulegur í efnahagskerfinu. Það er rétt, það er ekkert vit í því, að vísitölukerfið skuli vera þannig uppbyggt, að þegar þjóðin verður fyrir stóráföllum, eins og við mikla hækkun á olíuvörum, þá skuli allar launastéttir í landinu fá kauphækkun út á slík óhöpp, en það er það, sem gerist nú í dag. Ég tel, að það sé launþegasamtökunum í landinu nauðsynlegt og einnig gagnlegt fyrir vinnumarkaðinn almennt séð að hafa vissa vísitölutryggingu á launum, en það þarf að miða þá tryggingu við allt annað en vísitalan er miðuð við í dag. Nú er hún látin mæla margvíslegar verðbreytingar, sem koma í rauninni lítið við hinn almenna launamann. Það þarf því að endurskoða allt það kerfi, því að verði það ekki endurskoðað, er hætt við því, að það verði tekin upp gamla viðreisnaraðferðin að skera vísitöluna niður með öllu en það hefur líka í för með sér margs konar vandkvæði.

Það er enginn vafi á því, að s.l. ár var íslenskum þjóðarbúskap mjög hagstætt. Það liggur nú fyrir, að þjóðartekjurnar jukust á því ári um 9.5% og í lok ársins voru launatekjur manna hér á landi með því hæsta, sem við þekkjum hér í nálægum löndum miðað við kaupmátt. Atvinna var gífurlega mikil, framkvæmdir um allt land meiri en áður hafa þekkst og heildarafkoman í hagkerfinu var mjög góð, sparifjármyndun í bönkum var meiri en nokkru sinni áður og gjaldeyrisvarasjóðurinn jókst um nærri 1000 millj. kr. Það er alger misskilningur að halda því fram, að raunverulega hafi útkoman orðið þessi af þeim ástæðum, að við höfum stóraukið skuldir okkar við útlönd á árinu. Það er að vísu rétt, að skuldirnar jukust, en þær jukust ekki eins mikið og við fluttum inn til landsins af varanlegum atvinnutækjum. Það er rétt, að talið er, að heildarskuldaraukning okkar á árinu hafi numið í kringum 3 600 millj. kr., en heildarverðmæti innfluttra skipa á árinu nam hins vegar 3 900 millj. kr., þar að auki kom svo annar innflatningur, sem flokkast verður undir varanleg verðmæti til aukinnar verðmætasköpunar í landinu. Erlendar lántökur okkar voru fyrst og fremst bundnar við ný framleiðslutæki, enda sýnir það sig samkv. opinberum skýrslum, að greiðslubyrði okkar af erlendum lánum hefur fremur farið lækkandi en hækkandi, þegar greiðslurnar eru bornar saman við þjóðarframleiðslu. Árið 1969 var t.d. greiðslubyrðin af erlendum lánum talin 16.7%, árið 1970 var greiðslubyrði talin 11.2%, árið 1971 var greiðslubyrðin af erlendum lánum 10%, árið 1972 var greiðslubyrðin 11.4% og árið 1973 var greiðslubyrðin 9.7%.

Það er ekki hættulegt fyrir neina þjóð að taka erlend lán á móti varanlegum eignum, sem eru fluttar inn í landið. Það spillir ekki fjárhagslegri stöðu þjóðarinnar, þótt við kaupum nýja togara til landsins og fáum allmikil lán með þessum skipum, vegna þess að þessi skip eiga vitanlega að þýða það og þau eiga að bæta aðstöðu í okkar framleiðslukerfi. Það er því mjög villandi að tala um það í þessu sambandi, að hin bætta afkoma okkar stafi af því, að við höfum aukið lántökur okkar erlendis. Sannleikurinn er sá, að á hvaða mælikvarða sem mælt er var afkoma þjóðarbúsins mjög hagstæð á s.l. ári, og af þeim ástæðum ættum við ekki að þurfa að kvarta undan því, þó að við þyrftum að stöðva nokkuð um skeið frekari kauphækkanir hjá þeim, sem eru betur launaðir, og þótt við þyrftum að draga nokkuð úr framkvæmdahraðanum frá því, sem verið hefur, á meðan við svipumst um, athugum okkar mál og sjáum betur, hver verður þróunin varðandi stöðu okkar útflutningsatvinnugreina. Við vitum ekki nú nema það eigi eftir að' snúast okkur í hag, að útflutningsverðið eigi aftur eftir að hækka í staðinn fyrir þá lækkun, sem nú hefur gert vart við sig, og er því ekki ástæða til þess að gripa til slíkra ráðstafana sem helst er að heyra á talsmönnum Sjálfstfl., að nú ætti að gripa til stórfelldra ráðstafana, mikillar gengislækkunar og almennrar kauplækkunar. Til þess eru að mínum dómi ekki ástæður. En nái það frv. fram að ganga, sem hér liggur fyrir, tel ég, að samkv. því sé auðvelt að veita það viðnám í sambandi við verðbólguvandann og í sambandi við rekstraraðstöðu atvinnuveganna, sem nauðsynlegt er að veita, og það sé hægt að gera það á þann hátt, að launastéttirnar í landinu geti vel við unað.