06.05.1974
Sameinað þing: 84. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4228 í B-deild Alþingistíðinda. (3803)
Umræður utan dagskrár
Benóný Arnórsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að lýsa því yfir vegna orða hæstv. forsrh., að undirrót þess, að ég greiddi því atkv. að slíta stjórnarsamstarfinu, er ekki sameiningardraumur við Alþfl., eins og hann vildi halda fram. Ég er hissa á því, að maður í þessari stöðu skyldi fara svo fram hjá sannleikanum.
Nei, það er atburðarás síðustu viku, sem varð til þess, að ég tók þessa ákvörðun. Ég kom hér í þingið fyrir viku. Þá voru þessi mál komin að suðumarki, og ég þóttist sjá og raunar vita eftir yfirlýsingar formanna stjórnarandstöðunnar, ef virkilega á að taka mark á því, — en mér skilst, að það sé mjög hæpið, að menn eigi að trúa því, sem forustumenn íslensku þjóðarinnar segja í fjölmiðlum, og ég trúi því ekki, að íslenska þjóðin sé komin á það stig, að hún taki mark á því, nei, þannig stóðu mál, að það var ekki um það að ræða, hvort þessi ríkisstj. kæmi fram málum. Það var farið að tefla innbyrðis meðal stjórnarflokkanna um það, hver kæmist best frá hildarleiknum. Þetta var mitt mat eftir sólarhringsveru hér í þinginu. Síðan hefur atburðarásin orðið svo hröð, að það er varla fyrir óþjálfaðan stjórnmálamann að fylgjast með. Og ég varð alveg undrandi yfir því, þegar hæstv. forsrh. taldi þá einu leið fyrir forseta Alþýðusambandsins að segja sig úr ríkisstj. En það er hans mál.
Ég ber engan kinnroða fyrir að taka afstöðu með málefnum verkalýðshreyfingar, þó að í veði séu ráðherrastólar. Ég hef alist upp meðal verkalýðshreyfingar og vona, að ég geti staðið með henni í hennar baráttumálum. En nú er þessu stjórnarsamstarfi lokið, og ákvörðun mín var tekin vegna þess, að traust mitt á hæstv. forsrh. og efnahagsmálaráðh. Íslands var þorrið. Það var þorrið.