07.05.1974
Sameinað þing: 85. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4233 í B-deild Alþingistíðinda. (3814)

430. mál, endurskoðun sveitarstjórnarlaga

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Svar mitt við fsp. hv. 9. landsk, þm. er á þessa leið:

20 sept. s.l. skipaði þáv. félmrh. n. til endurskoðunar á sveitarstjórnarlögum, nr. 58 1961. Ráðist var sérstaklega í þessa endurskoðun með tilliti til ákvæða í málefnasamningi ríkisstj, um, að endurskoða beri skiptingu verkefna og valds milli ríkis og sveitarfélaga í því skyni að auka sjálfsforræði byggðarlaga. Þá skal það teljast til verkefna n. að gera till. um stöðu landshlutasamtakanna gagnvart sveitarstjórnum, sýslunefndum og rn., svo og annað, sem n. telur ástæðu til að mæla með, að breytt verði frá gildandi l. og meðferð sveitarstjórnarmála varðar. Í n. eiga sæti Hjálmar Vilhjálmsson, fyrrv. ráðuneytisstjóri formaður, Geir Gunnarsson alþm., Páll Líndal borgarlögmaður, Þorsteinn Ólafsson deildarstjóri í fjmrn, og Ölver Karlsson oddviti. N. hefur á þessu tímabili haldið 11 fundi og hafa fundarhöld einkum snúist um stöðu landshlutasamtaka sveitarfélaga í stjórnkerfi landsins. Rætt hefur verið um að skipta landinu í fylki, og skal hvert kjördæmi vera fylki fyrir sig. Reiknað er með, að ríkisstj., sýslunefndir og sveitarstjórnir geti falið fylkisstjórnum sérstök verkefni eða nánar tiltekinn þátt þeirra. Liggur þessi hugmynd nú fyrir n. sem vinnuplagg og hefur verið kynnt landshlutasamtökum sveitarfélaga. Fundur hefur verið boðaður með framkvæmdastjórum og stjórnarformönnum landshlutasamtakanna til umr. og skoðanaskipta um hugmyndir þessar.