07.05.1974
Efri deild: 121. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4264 í B-deild Alþingistíðinda. (3877)

324. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur þegar hlotið afgreiðslu í hv. Nd., og þar varð fullkomin samstaða um afgreiðslu þess. Ég vil vænta þess, að hér geti einnig orðið góð samstaða um afgreiðslu frv. og eining geti skapast um að afgreiða það út úr þessari d. á þessu kvöldi.

Eins og fram kemur í grg, frv., er hér um að ræða breyt. á l. um Aflatryggingasjóð sjávarútvegsins í samræmi við samkomulag, sem fulltrúar útvegsmanna og sjómanna hafa gert með sér í síðustu kjarasamningum. Segir m.a. í grg., með leyfi hæstv. forseta:

„Eru í frv. teknar óbreyttar óskir þessara aðila, eins og þær eru settar fram í bréfum til sjútvrh., dags. 9. mars og 3. apríl 1974, sem undirrituð eru af Kristjáni Ragnarssyni, f.h. Landssambands ísl. útvegsmanna, Ingólfi Stefánssyni, f.h. Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, og Jóni Sigurðssyni, f.h. Sjómannasambands Íslands.“

Í stuttu máli er það, sem felst í þessu frv., að verið er að breyta nokkuð greiðslum úr þeirri deild Aflatryggingasjóðs, sem nefnd er áhafnadeild. Er gert ráð fyrir því, samkv. lögum um Aflatryggingasjóð; að greidd sé úr þessari d. ákveðin greiðsla upp í fæðiskostnað sjómanna, mismunandi mikið eftir stærð þeirra báta, sem um er að ræða. A stærstu bátunum, þ.e.a.s. á þeim bátum, sem eru 150 rúmlestir að stærð og þar yfir, er grunngjaldið, sem greitt er, 120 kr. á dag í fæðiskostnað. Miðað við þá vísitölu, sem orðin var nú á s.l. vetri, hefði þessi greiðsla numið 237 kr. fyrir dagsfæði á þessum bátum. En samkv. þessu frv. er gert ráð fyrir að taka upp greiðsluna 320 kr. og gera hana síðan að grunntölu. Hér er sem sagt um nokkra hækkun að ræða frá þeim reglum, sem voru í gildi varðandi fæðisgreiðslur á þessum bátum. Á næstu bátastærð þarna fyrir neðan, þ.e.a.s. frá 12 rúmlestum upp í 150 rúmlestir, var grunngjaldið samkv. lögum, er greitt var upp í fæðiskostnað, 100 kr., var orðið með vísitölugreiðslum miðað við 1. febrúar s.l. 198 kr., en verður nú samkv. þessu frv. 240 kr. Á minnstu bátunum, þ.e.a.s. á trillubátum eða allt upp að 12 rúmlestum, var gamla grunngjaldið 85 kr. og hefði orðið núna miðað við vísitöluna 1. febr. 168 kr., en nú var gert ráð fyrir að taka upp grunngjaldið 150 kr., og er það eina bátastærðin, þar sem gert er ráð fyrir lítils háttar lækkun, en því er haldið fram af þeim aðilum, sem hér eiga hlut að máli, að þetta sé vegna samræmis samkv. þeim upplýsingum, sem liggja fyrir um fæðiskostnað.

Hér er sem sagt um að ræða breyt. á gildandi reglum um greiðslur úr þessari d. af því fé, sem aflað er í þessa d. af þeim aðilum, sem hér eiga hlut að máli, útgerðarmönnum og sjámönnum. Það hefur þótt rétt að verða við óskum þeirra og flytja þetta frv. alveg óbreytt, þar sem hér er um að ræða lið í samningagerð þeirra á milli í nýafstöðnum kjarasamningum. Mér er kunnugt um það, að sjútvrn: mönnum þessarar hv. d. er vel kunnugt um þetta mál, og í trausti þess, að þeir geti á það fallist og hv. d., geri ég ekki till. um að vísa frv. til n., en óska eftir, að því verði vísað til 2. umr. og síðan tekið fyrir áfram og það afgr. út úr d. í kvöld, ef um það gæti orðið samstaða.