07.05.1974
Efri deild: 123. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4266 í B-deild Alþingistíðinda. (3887)
9. mál, grunnskóli
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Menntmn. hefur haft til athugunar frv. til l. um grunnskóla, en þetta er einn viðamesti lagabálkur, sem Alþingi hefur í langan tíma fengið til meðferðar. Eins og öllum hv. alþm. er kunnugt, tók það hv. Nd. þrjá vetur að koma þessu frv. frá sér, og það gerðist því miður ekki fyrr en komið var fram í aprílmánuð á þessum vetri, að frv. var afgr, úr Nd. og kom þá fljótlega til menntmn. Ed. Því miður hef ég ekki l~já mér dagsetninguna, þegar frv. kom 2i1 menntmn. Ed., en að því er ég hygg, er málið búið að vera í n. um það bil þrjár vikur.
Eftir að frv. kom til n., var það fljótlega tekið fyrir, en þó aðeins stuttaralega, þar sem enn var ólokið að af greiða úr n. allmörg önnur mál. En nm, tóku að sjálfsögðu strax til óspilltra mála að átta sig á þessu frv. hver hjá sér og alveg sérstaklega að átta sig á þeim breyt., sem Nd. hafði gert á frv., þannig að ekki var hægt að taka málið til meðferðar alveg strax í n. af þessari ástæðu fyrst og fremst. Hins vegar er mér kunnugt um, að nm. allir eyddu fyrstu 10 dögunum til þess að kynna sér frv., svo sem ekki var vanþörf á, og þá sérstaklega þær fjöldamörgu breyt., sem höfðu verið gerðar á því í Nd. Síðan tók n. til að vinna að athugun frv.
Það var aðeins um tvennt að ræða, annað hvort að reyna að afgreiða þetta í flýti ellegar sjá fram á, að það yrði enn einu sinni svæft. Það varð niðurstaða n., að það væri mjög bagalegt fyrir menntamálin í landinu og forráðamenn menntamála, ef enn liði heilt ár, þar til Alþ. mótaði stefnuna í þessu máli. Þar af leiðir, að yfirferð n. gat ekki orðið jafnvönduð og við hefðum helst kosið. T.d. áttum við þess ekki kost að ræða persónulega við þá, sem samið höfðu frv., en slík persónuleg viðtöl og nánari rannsókn málsins hefði að sjálfsögðu tekið talsverðan tíma. Það varð því sameiginleg niðurstaða í n., að ekki væri um annað að gera en reyna að afgreiða þetta mál, og n. mælir einróma með því, að frv. verði samþykkt.
Hins vegar kemur fram á nál. menntmn., sem ég hef því miður ekki í höndunum, fyrirvari af hálfu hv. þm. Hildar Einarsdóttur og Auðar Auðuns, sem þær gera við afgreiðslu þessa máls, og sé ég ekki ástæðu til að rekja þann fyrirvara, þar sem hann er prentaður á þskj. 861 og nm. munu vafalaust gera grein fyrir þeim sjónarmiðum, sem í þeim fyrirvara felast, en þær mæla með frv. og áskilja sér um leið rétt til þess að flytja brtt.
Stærsta ágreiningsefnið, sem upp kom í n. varðandi þetta mál, var um það, hvort skólaskyldan skyldi lengd um eitt ár. Um þetta atriði varð ekki samkomulag í n., og sex nm. flytja því brtt. á sérstöku þskj, þess efnis, að skólaskyldan nái aðeins til 15 ára aldurs, og mun ég gera grein fyrir þeirri till. síðar, þegar ég hef gert grein fyrir till. meiri hl.
Ég vil nú víkja að brtt. n. og gera örstutta grein fyrir hverri og einni, þannig að ljóst megi vera, hvaða rök liggja að baki þessum breytingum.
Sný mér þá að 1. lið, sem er við 8. gr., en þar er um að ræða að fella niður orðin „hluta úr skólaári.“ N. sýnist, að eðlilegra sé, að gr. sé þannig orðuð, að heimilt sé að gera tímabundna undanþágu frá skólasókn, ef knýjandi ástæður eru taldar vera fyrir hendi og bæði skólastjóri og skólanefnd mæla samhljóða með umsókninni. Okkur sýnist, að það sé þá ekki ástæða til að slá því föstu að hér megi aðeins vera um hluta úr skólaári að ræða, heldur gæti í einstökum undantekningatilvikum staðið þannig á, að hér yrði að vera um heilt skólaár að ræða.
Við 10. gr. frv. hefur n. gert brtt. í 4 liðum þess efnis, að 5 kaupstaðir, sem tilnefndir eru í brtt. n., verði teknir inn í 10. gr., og er það að sjálfsögðu einungis breyt. til samræmis við ríkjandi aðstæður, eftir að samþ. hafa verið hér í þinginu allmörg frv. um kaupstaðarréttindi.
Við 17. gr. frv. hefur n, gert lítils háttar brtt., en till., sem þó á fyllsta rétt á sér. Hin er við 3. málsgr., þess efnis, að þegar skólanefnd eða fleiri skólanefndir nota sér heimild ákvæðisins til að ráða sér sameiginlegan starfsmann eða skólafulltrúa, þá þurfi það að sjálfsögðu að vera með samþykki hlutaðeigandi sveitarstjórnar. Kannske hafa þeir, sem sömdu frv., gert ráð fyrir því, að þetta lægi í hlutarins eðli, en n. fannst eðlilegra að taka þetta ljóslega fram.
Við 19, gr. hefur n. gert till. um, að felldur verði niður svigi og í þessum sviga er orðið „skólanefnd“. Hér er einungis um breyt. að ræða, sem felur í sér að gera alveg ljóst, að það sé sveitarstjórn, sem hafi endanlegt vald í þessum efnum, og að skólanefnd sé að sjálfsögðu henni einungis til ráðuneytis. Það gildir sama um þetta og seinustu brtt., sem ég nefndi áðan, að sjálfsagt hefur þetta verið í huga þeirra, sem sömdu frv., en rétt þykir að taka það skýrt fram.
Við 20. gr. frv. hefur verið gerð brtt. við 2. málsgr., sem fjallar um kennararáð, sem er skólastjóra til ráðuneytis um stjórn skólans. Brtt. er þess efnis, að inn í setninguna verði skotið orðinu „daglega“, sem felur það í sér, að kennararáðið fjallar að sjálfsögðu aðeins um daglega stjórn skólans, en ekki um önnur þau verkefni, sem ekki geta flokkast undir það heiti.
Við 20. gr. 3. málsgr. hefur verið gerð lítilsháttar breyt., sem er einungis til að gera alveg ljóst, hvernig gangur málsins hlýtur að vera, ef skólastjóra og kennararáð greinir á um meðferð tiltekins máls, þá beri fyrst að vísa málinu til skólanefndar og reyna að ná þar sáttum í málinu, en ef það takist ekki, þá skuli málinu vísað til fræðslustjóra. Í frvgr. var í raun og veru gert ráð fyrir, að málinu væri vísað samtímis til skólanefndar og fræðslustjóra, en mönnum þótti eðlilegra, að fyrst gengi málið til skólanefndar, sem reyndi til fullnustu að ná samkomulagi um málið.
Við 23. gr. hefur verið gerð svolítil breyt., sem er einungis til að slá því föstu, að sveitarstjórn hafi seinasta orðið, þegar gerð skólamannvirkja er undirbúin heima í héraði, og að verkefni skólanefndar og fræðsluráðs í þessu efni sé einungis að vera til ráðuneytis.
Við 24. gr. hefur n. gert brtt., sem snertir það tilvik, er sveitarfélag óskar, að gert sé ráð fyrir aðstöðu til félagsstarfsemi eða annars slíks í skólahúsi eða í tengslum við það, og þá skuli það heimilt, ef fyrir liggi umsögn skólanefndar og samþykki menntmrn. Hér er dregið úr valdi skólanefndar í þessum efnum, talið eðlilegt, að sveitarfélagið hafi seinasta orðið og að afstaða skólanefndar sé aðeins ráðgefandi, en að:skólanefnd geti ekki haft neitt neitunarvald í þessum efnum, Sveitarstjórnarmönnum þykir eðlilegra, að samskipti skólanefndar og sveitarstjórnar séu með þessum hætti, og á það féllst nefndin.
Við 26. gr. frv. hefur n. gert samsvarandi breyt., sem einnig snertir samskipti skólanefndar og sveitarstjórna. Í stað þess að segja, að skólanefnd ákveði í samráði við hlutaðeigandi sveitarstjórnir, hvaða sérfræðingar skuli annast hönnun skólabygginga, er þessu snúið við og því slegið föstu, að það séu sveitarstjórnirnar, sem ákveði þetta atriði, en skólanefnd sé til ráðuneytis og gefi sina umsögn.
Við 27. gr. frv. er hins vegar gerð öllu meiri efnisbreyting en fólgin er í þeim brtt., sem ég hef nú gert grein fyrir. Þessi brtt. snertir það ákvæði frv., að verja megi ákveðinni fjárhæð, er nemi allt að 2% af áætluðum stofnkostnaði skólamannvirkis, til listskreytinga skólamannvirkja, og er upphæðin bundin við 600 þús. kr. til hvers einstaks skóla. N. gerði till. um, að þessu ákvæði sé breytt í það horf, að það sé sveitarstjórn, sem hafi frumkvæði að því, hvort um listskreytingu skólamannvirkis verði að ræða, en samþykki menntmrn. þurfi til. Er þessu þar með snúið við, að sveitarstjórnin hefur frumkvæðið, en í frv., eins og það lá fyrir, var það menntmrn., sem þurfti að hafa frumkvæðið. Í öðru lagi er felld úr hámarksupphæðin 500 þús. kr., vegna þess að n. var kunnugt um, að þessi upphæð hafði staðið í frv. um alllangt skeið og hafði ekki verið breytt, og liggur því í augum uppi, að þegar frv. var samið, gerðu menn ráð fyrir miklu hærri upphæð, því að hækkun byggingarvísitölu hefur ekki komið á þessa upphæð og kemur ekki á hana, fyrr en frv. hefur verið samþykkt. N. fannst því eðlilegast að strika út þetta ákvæði og hafa ekkert hámark á þessum stað, enda á menntmrn. að hafa það í hendi sér að setja eitthvert þak á þessar upphæðir umfram það, sem sett er í gr. með tölunni 2%. N. leggur svo til, að seinni málsgr. verði felld niður, og þarfnast það ekki skýringar, því að þar er um að ræða atriði, sem rn. getur ákveðið án þess að til þess þurfi lagaákvæði.
Við 29. gr. hefur verið gerð lítils háttar breyt. Hún er sama eðlis og margar þær, sem áður hafa verið nefndar, að þar er um samskipti skólanefndar og sveitarstjórnar að ræða. Í frv. stóð, að skólanefnd gæti heimilað, að skólahúsnæði væri notað til gistinga- og veitingarekstrar að fegnu samþykki menntmrn. En rétt þykir að bæta því við, að samþykki sveitarstjórnar þurfi einnig til.
Við 31. gr. frv. hefur n. gert brtt., sem snertir ráðningu yfirkennara til starfa, en í frvgr. er gert ráð fyrir, að þeir verði ráðnir til 5 ára í senn, sem er óvenjulegt ákvæði í lögum, eins og mönnum er kunnugt. Þessu ákvæði hafa kennarasamtökin mótmælt mjög eindregið, og m.a. hafa n. borist mótmæli frá Sambandi ísl. barnakennara, þar sem þessu ákvæði er alveg sérstaklega mótmælt og bent á, að engin gild rök hafi verið færð fyrir því, að yfirkennarar fái ekki notið sömu réttinda um setningu og skipun í stöður eins og skólastjórar og kennarar grunnskóla. Mér er óhætt að segja, að í n. ríkti það sjónarmið hjá a.m.k. mörgum nm., að æviráðningarstefnan, sem hefur verið í gildi lengi hvað snertir opinbera starfsmenn, kunni að þurfa nánari athugunar við og eigi kannske ekki jafnmikinn rétt á sér í nútíma þjóðfélagi og hún þótti eiga fyrir allmörgum árum. En hvað sem slíkum vangaveltum líður, fannst nm, óeðlilegt, að eitthvert sérákvæði væri sett í sambandi við yfirkennara, þessi mál yrði að skoða í heild, ef þau á annað borð yrðu endurskoðuð. Því leggur n. til, að þetta ákvæði um yfirkennara og ráðningu þeirra til 5 ára verði fellt niður. Er þar farið sérstaklega eftir tilmælum Sambands ísl. barnakennara.
34. gr. frv. fjallar um ráðningu svonefndra skólabryta, sem er nýtt starfsheiti fyrir þær ágætu konur, sem hingað til hafa heitið skólaráðskonur. Í frv. er gert ráð fyrir, að rn. setji eða skipi starfsmenn af þessu tagi til forstöðu í mötuneytum heimavistarskóla og eftir tveggja ára setningartíma eigi bryti rétt á skipun í starf sitt, enda hafi hann meðmæli skólastjóra um skipun í starfið. Þessi frvgr. hefur tekið allmiklum breyt., frá því að frv. var lagt fram í Nd., en þar var gert ráð fyrir því, að ráðningu bryta gæti verið misjafnlega hagað eftir því, hvort um væri að ræða skóla með yfir 30 nemendur í heimavist eða færri. Án þess að rekja þessa sögu alla, er skemmst frá að segja, að n. þykir eðlilegra, að ráðning bryta fari fram með þeim hætti, að allir möguleikar séu opnir, ráðning, setning og skipun, og rn. eigi þar frjálst val. N. hefur því gert breyt. í þá átt. Í öðru lagi er gerð breyt. um að fella niður, að eftir tveggja ára setningartíma eigi bryti rétt á skipun í starf sitt. Nm. vildu út af fyrir sig ekki útiloka, að skólabrytar væru settir og skipaðir til starfa, en þótti ástæðulaust í þessu tilviki að taka fram þetta ákvæði, þar sem mjög misjafnlega getur staðið á í skólum landsins hvað snertir þessi störf og skólar eru bæði stórir og litlir.
36. gr. fjallar um starfsskyldu kennara. Þessi gr. hefur einnig tekið allmiklum breyt. í Nd., en við 3. umr, var orðalagi gr. breytt þannig, að í staðinn fyrir, að sagt var, að starfsskylda kennara skyldi minnka um 1/6, þegar hann næði 55 ára aldri, og samsvarandi varðandi 60 ára aldur, þá er gr. orðuð svo, að kennsluskylda hans skuli minnka um sama hlutfall, og í stað þess, að menn öðlist framangreindan afslátt eftir 20 ára kennsluferil, þurfa menn nú 28 ára kennsluferil samkv. frv., eins og það liggur nú fyrir, til þess að geta öðlast þessi réttindi. Hér er að sjálfsögðu um mjög veigamikla breyt. að ræða, sem snertir starfskjör kennara, og kemur engum á óvart, að Samband ísl. barnakennara hefur mótmælt þessu ákvæði alveg sérstaklega, en í bréfi samtakanna segir, að Sambandið mótmæli ákveðið þeirri skoðun, sem fram kom í umr. í Nd. um þessa gr. frv., að styttingu kennsluskyldu ætti að fylgja tilsvarandi aukning starfa á öðrum sviðum í skólanum. Stjórnin er sammála þeirri túlkun gr., sem fram kemur í grg. með frv. Þá er því harðlega mótmælt, að 28 ára kennsluferil þurfi til að öðlast umræddan rétt.
Menntmn. Ed. tók þá afstöðu að gera ekki till. til breyt. um orðið „kennsluskyldu“, heldur halda sig við það orð. Það gerir n. í fyrsta lagi með þeim rökum, að í núgildandi lögum er talað um kennsluskyldu í þessu sambandi, en ekki starfsskyldu, og virðist því hafa verið gengið út frá því, að þó að kennsluskylda kennara minnkaði við það, að hann næði þessum aldri, þá væri hugsanlegt að fela honum einhver önnur störf í staðinn í þágu skólans. Það er þetta sjónarmið, sem virðist hafa ráðið stefnunni hjá menntmn. Nd., og miðað við það, að orðið „kennsluskylda“ er notað í núgildandi lögum, þykir menntmn. Ed, ekki rétt, einkum og sér í lagi af því, að ekki hefur verið aðstaða til að kanna málið frekar, að gera neinar brtt. við þetta atriði. Hins vegar fannst n. fráleitt að hækka árafjöldann, sem kennari þyrfti að hafa verið í störfum til að öðlast framangreindan afslátt, fannst alveg nægilegt, að 20 ár lægju að baki, þegar kennari fengi þessi réttindi. N. flytur því brtt. um að árafjöldinn færist í það horf, sem hann var, þegar frv. var upphaflega flutt.
Við 37. gr. er gerð örlítil brtt. við 5, málsgr., sem felur það fyrst og fremst í sér, að fóstrur eða fóstrar og aðrir starfsmenn með uppeldismenntun geti sótt um skipun í starf sitt eftir tveggja ára starfsreynslu, en því sé ekki endilega slegið föstu, að þeir eigi algeran rétt á skipun í starf sitt að loknum þessum tíma. N. þótti eðlilegra að orða þetta á þennan veg.
Við 44. gr. frv. hefur n. gert brtt. við það ákvæði, að starfsskylda nemenda í 8.–9, bekk grunnskóla markist af 40 klst. á viku, en þetta ákvæði kom inn í frv. við meðferð þess í Nd. Við meðferð málsins í Nd. var einnig gerð breyt. á þeim ákvæðum frv., sem ákveða, hver vikulegur kennslutími á hvern nemanda megi vera mestur. Í stuttu máli sagt taldi menntmn. Ed., að þau ákvæði væru alveg fullnægjandi og nægileg vörn fyrir nemendur, þannig að ekki þyrfti að fara að taka það fram, að starfsskylda nemenda skyldi markast af 40 klst. vinnuviku, því að þetta kynni að verða ærið mikið mistúlkað, ef það stæði eins og það stendur hér, og kynni að geta komið niður á námi nemenda. Ef þeir t.d. tækju þátt í félagsstarfssemi innan skólans eða væru í einhverjum þeim störfum innan skólans, sem tækju einhvern tíma, þá yrði það flokkað hugsanlega til starfsskyldna nemendanna og kennsla ætti þá að minnka að sama skapi. Það taldi n. óeðlilegt og leggur til, að þessi setning falli niður, enda virðist engin þörf vera á henni, heldur skuli miðað við þá stefnumörkun, sem felst í upphafi þessarar málsgr., þar sem því er slegið föstu, að daglegur og vikulegur starfstími eigi og megi ekki fara fram yfir hæfilegt vinnuálag miðað við aldur nemenda og þroska.
Í 45. gr. eru ákvæði um leyfisdaga í grunnskóla. Er þar skemmst frá að segja, að samkv. frvgr. verður frídögum í skólum allt frá 7 ára aldri fækkað mjög verulega. Ég hef því miður ekki haft aðstöðu til að taka nákvæmlega saman hve fækkunin er mikil, (Gripið fram í: Hver segir þetta?) Ég er að segja það. Ég sé ekki betur en að frvgr, feli það í sér, að t.d. fyrir 7, 8 og 9 ára börn sé um að ræða mjög verulega fækkun á frídögum. Mánaðarfrí eru öll felld niður, jólafrí er stytt um allmarga daga, páskafrí er stytt um a.m.k. 3 daga, þannig að í heildina tekið er um að ræða, að frídögum barna í skólum er fækkað um líklega meira en helming, ef frv. yrði að lögum eins og það nú er. Þetta gat menntmn. Ed. ekki sætt sig við, og því gerir hún þá brtt., að í fyrsta lagi skuli jólaleyfi veitt, eins og sagði í frv., frá 21. des. til og með 3. jan., en að páskaleyfi skuli byrja á pálmasunnudegi og standa út alla páskaviku, en að öðru leyti skuli þessum málum ráðstafað með reglugerð. Virðist ástæðulaust að tiltaka nákvæmlega í lögum, hvenær leyfisdagar í skólum skuli vera.
Við 48. gr. er gerð brtt. við 1. málsgr., en sú brtt. er aðeins til þess að leiðrétta setningu, sem er vanhugsuð, og skýrir brtt, sig því sjálf, en felur ekki í sér neina efnislega breyt. En við 2. málsgr. þessarar sömu gr. er aftur á móti gerð brtt., sem er talsvert þýðingarmikil. Hún felur það í sér, að í 8. og 3, bekk grunnskóla megi nemendafjöldi í deild vera allt niður í 12 nemendur, en frv. gerði ráð fyrir því, að þeir mættu ekki vera færri en 15. Þetta er töluvert veigamikil efnisbreyt., sem leynir býsna mikið á sér og mun vafalaust kosta samfélagið dálítið. En nm. gátu ekki sætt sig við það, að þar sem t.d. 13-14 nemendur væru, þar væri ekki hægt að halda uppi kennslu í ákveðinni bekkjardeild, og eðlilegra væri að set,ja lágmarkið við töluna 12.
Við 51. gr. frv. er gerð lítils háttar breyt., við e-lið upptalningarinnar í þeirri gr., en rétt er að taka fram, að sú breyt, er einungis eðli leg lagfæring og felur ekki í sér neitt efnisatriði, sem máli skiptir.
N. gerir brtt. við 54. gr., sem fjallar um það, þegar nemendur hlíta ekki fyrirmælum kennara og verður að tugta þá eitthvað til, en þá er samkv. 1, málsgr. heimilt að víkja nemanda úr kennslustund, Samkv. 4. málsgr. er hins vegar heimilt að víkja nemanda úr skóla um stundarsakir, og samkv. 5, málsgr. á fræðslustjóri að taka málið til meðferðar og senda það til sálfræðideildar. Þetta fannst n. dálítið kynlegt ákvæði, að kröfumál af þessu tagi gengju frá Heródesi til Pílatusar, án þess að fyrir lægi, hver ætti hið endanlega úrskurðarvald í málinu, og leggur því til, að orðalagið varðandi hinn endanlega úrskurðaraðila sé þannig: „Fræðslustjóri tekur þá málið til meðferðar í samráði við skólanefnd og sálfræðiþjónustu, sbr. 67. gr.“
Við 57, gr. gerir n. orðalagsbreyt., þar sem rætt er um einkunnir, en þessari gr. var breytt við 3, umr. málsins, og í gr. er nú einungis talað um einkunnir. Þetta er eitt af þeim atriðum, sem Samband ísl. barnakennara hefur gert athugasemdir við og telur, að orðalag gr. sé hættulega þröngt, ef aðeins megi gefa umsögn um árangur nemanda með gamalkunnum hætti, þ.e.a.s. í tölulegum einkunnum. Á bak við þetta liggur að sjálfsögðu það, að hvað varðar einkunnagjöf eru að verða miklar breyt, og ýmsar aðferðir hafa verið upp teknar. Samband ísl. barnakennara leggur því til. að í staðinn fyrir, að rætt er um einkunnir í þessari gr., skuli rætt um vitnisburði, sem feli að sjálfsögðu í sér, að það sé leyfilegt að gefa einkunnir með venjulegum hætti, en það geti falið í sér fleiri tegundir umsagnar um árangur nemenda. N. féllst á þessa aths. Sambands ísl. barnakennara og flytur um þetta atriði brtt. Hins vegar taldi n. ekki ástæðu til að breyta nafni hinna gamalkunnu einkunnabóka. Við 65. gr. frv. hefur n. gert brtt., þar sem hugmyndin er komin til n. eftir ábendingu frá Wolfgang Edelstein, starfsmanni við menntmrn., en í þessari gr. er heimild til menntmrn. að veita einstökum fræðsluumdæmum leyfi til að starfrækja tilraunaskóla með undanþágu frá ákvæðum laga og reglugerðar. Wolfgang Edelstein benti okkur á, að hyggilegra væri að bæta því við, að gera mætti tilraunir með ákveðna þætti skólastarfs í venjulegum skólum með samþykki menntmrn., án þess að þar væri um sérstaka tilraunaskóla að ræða. Það væri óhyggilegt að binda þetta við svo sérgreinda skóla. Það væri hægt að koma slíkri tilraunastarfsemi fyrir í skólakerfinu með venjulegum hætti. N. féllst á þessa aths. og brtt. 21 við 65. gr. stefnir að þessu marki.
Við 67. gr. hefur n. gert till. um nokkrar breyt., sem eru þó einungis til samræmingar við það, sem áður hefur breyst í frv., og felur því ekki í sér neina efnisbreytingu.
Við 74. gr. frv. hefur n. gert brtt. um, að óheimilt sé einkaaðila að reka skóla fyrir börn undir skólaskyldualdri nema með leyfi fræðslustjóra. Það er skemmst frá að segja, að í frv., eins og það var lagt fyrir Alþ., var ákvæði um þetta efni, en ákvæðið var þess efnis, að kennsla óskólaskyldra barna umfram það, sem segir í gr. þessari, væri háð leyfi fræðslustjóra. Í Nd. þótti mönnum varasamt, ef ekki mætti kenna óskólaskyldum börnum án leyfis fræðslustjóra, þetta kynni að verða misskilið og rangtúlkað, og því var þetta ákvæði fellt niður, en með breyttu orðalagi má að sjálfsögðu ná tilgangi þessa ákvæðis, og það er hugsunin á bak við brtt, nefndarinnar.
Við 76. gr. frv. hefur n. gert þá breyt., að í stað orðanna „samkvæmt hámarki 44. gr.“ í 5. málsgr. komi: 32.2 kennslustundir (40 mín.), og þarf ég ekki að hafa aðrar aths. um þessa brtt. en þær, að hér er um að ræða ábendingu, sem fjmrn. lét berast til n. og á að vera til samræmingar við þær breyt., sem áður hafa verið gerðar á frv. Þykir því n. rétt að mæla með þessari brtt.
Sama máli gildir um 25, brtt, n. við 85. gr. N. tók það ekki upp hjá sjálfri sér að gera till. til breyt. um það, að c-liðurinn yrði felldur niður, sem fjallar um það, að heimilt sé að verja allt að 12 kennslustundum á viku á hverja 1000 nemendur í grunnskólum umdæmisins til námseftirlits og leiðbeininga, eftir því sem nánar væri ákveðið í reglugerð. Það barst til n. frá starfsmönnum fjmrn., að þetta ákvæði væri sjálffallið, vegna þess að 39, gr. frv. hefur verið felld niður. N. tók þessa aths. góða og gilda og ber hana fram í trausti þess, að hér sé rétt frá skýrt og eðlilegt sé að fella þessa gr. niður. Ég verð hins vegar að játa, að ég hef orðið var við þá gagnfullyrðingu, að hér sé um einhvern misskilning að ræða og þetta ákvæði þurfi ekki endilega að vera sjálffallið, þó að hin gr. hafi verið felld niður. En með því að ekki liggja fyrir betri upplýsingar en þær, sem ég hef nú greint frá, er haldið fast við þessa brtt, af minni hálfu. — Það er síðasta brtt., við 85, gr.
Ég hef lokið við að gera grein fyrir brtt. n. og vil þá víkja að brtt., sem við hv. 1, þm. Vestf., Steingrímur Hermannsson, flytjum og snertir hverfisnefndir í kaupstöðum, sem hafa fleiri en 10 000 íbúa. Í till. er gert ráð fyrir því, að bæjar- eða borgarstjórn geti ákveðið að skipta kaupstað í hverfi og að hverfisnefndir skipaðar 5 mönnum fari þá með hlutverk skólanefndar undir stjórn fræðsluráðs. Í Reykjavík eru 80 þús. íbúar, og þó eru allir skólar þessa fjölmenna sveitarfélags undirlagðir einni skólanefnd. Okkur nm., sem flytjum þessa till., sýnist, að þetta sé mjög óeðlilegt og finnst satt að segja einkennilegt, að sama skipulag skuli vera, þar sem 80 þús. íbúar eru, og þar sem kannske 300–400 íbúar eru — að þar skuli vera í báðum tilvikum aðeins um eina skólanefnd að ræða. Það fer ekki milli mála, að það er ekki stefna tímans að dreifa valdinu, það er stefna tímans að auka samráð manna á milli, og till. þessi, sem hér er flutt, stefnir einmitt í þá átt að auka samráð og lýðræði í stjórnkerfi kaupstaðanna. En ég tek það fram, að hér er einungis um heimildarákvæði að ræða og sé viðkomandi kaupstöðum illa við að breyta skipulagi sínu í þessa átt, er þeim í lófa lagið að gera það ekki.
Ég vík þá að lokum að aðalágreiningsefninu, sem er um þetta frv., en það er till. frv. um, að skólaskylda sé lengd um eitt ár.
Eins og mönnum er kunnugt, gegna skólarnir margþættu hlutverki. Eitt hlutverk skólanna er að yfirfæra þekkingu og þjálfun. Annað hlutverk skólanna er að raða mönnum inn í þjóðfélagið með misjafnlega sanngjörnum hætti. Og þriðji tilgangurinn er sá að vista börn og unglinga með sómasamlegum hætti. Það frv., sem hér liggur fyrir, á að sjálfsögðu að stefna að þessum markmiðum öllum í senn, og það gerir það með mjög misjöfnum hætti. Má segja, að í því séu tvenns konar stefnumörk: annars vegar að reyna að bæta gæði kennslunnar, hins vegar að reyna að auka magn kennslunnar, reyna að auka það magn, sem treðst inn í hvern og einn nemanda skólakerfisins.
Mjög mörg ákvæði frv. snerta það atriði að auka gæði kennslunnar, í fyrsta lagi ákvæðið um hjálparkennslu fyrir tornæm börn, um ráðgjafarþjónustu, sálfræðiþjónustu. Nefna má ákvæðin um bættan búnað skólanna varðandi kennslutæki, skólabókasöfn, aukið félagsstarf í skólum, valgreinar o.s.frv. Allt eru þetta atriði, sem stefna í þá átt að auka gæði kennslunnar. En til viðbótar þessu eru allmörg ákvæði, sem virðast einungis stefna að því marki að auka magnið, sem innbyrt er af hverjum nemanda. Þar ber að nefna einkum lengingu árlegs skólatíma, lengingu skólaskyldunnar og afnám flestra frídaga, eins og ég hef áður vikið að. Ég vil lýsa því yfir sem minni skoðun, að ég er mjög samþykkur þeim efnisþáttum frv., sem stefna í þá átt að auka gæði kennslunnar, en ég tel það mjög hættulega stefnu hins vegar að stefna mjög einhliða að því að ná fram sem mestu efnismagni, og ég tel, að viðbrögð Alþ. gagnvart þessu frv. hafi verið mjög í samræmi við skoðanir mínar á þessu efni.
Í Nd. voru gerðar breyt. á frv., sem stefna í þá átt að hafa meina svigrúm um lengd árlegs skólatíma, og þar voru gerðar mjög mikilvægar breyt. einmitt í þessa átt. Í brtt. menntmn. er enn frekar raskað við þessum ákvæðum með því að losa um hin ströngu ákvæði frv. varðandi afnám frídaga. En til viðbótar er svo frá því að skýra, að mikill meiri hl. nm. var hreinlega andvígur lengingu skólaskyldunnar, eins og hún kemur fram í frv. Ég get upplýst það hér, að nú munu 82% af skólanemendum í 3. bekk sækja skóla, eða sú var talan fyrir 5 árum, og kannske hefur hún ekki mikið breyst, en hún hefur þá frekar hækkað. Ef öll héruð og allar byggðir verða skyld til að halda uppi fræðslu, má reikna með, að þessi tala hækki mjög verulega, sennilega upp í a.m.k. 93–94%. Ég vil hins vegar benda á, að þó að frv. verði að lögum óbreytt, verður aldrei hægt að koma þessari tölu hærra en upp í 97–98%, því að alltaf verður um það að ræða, að einhverjir komi sér hjá því að sækja skóla, og það er aldrei hægt að elta unglinga á þessum aldri svo á röndum, að þeir geti ekki einhverjir komið sér undan því að sækja skóla, þannig að hér er aðeins um að ræða að reyna að pína inn í skólana kannske 3–4% af hverjum árgangi. Ég er algjörlega andvígur því, að þetta verði gert. Ég tel í fyrsta lagi, að það sé rangt að breyta frjálsu námi 95% nemenda í skyldunám, — námi, sem þeir í dag eru reiðubúnir að stunda af fúsum og frjálsum vilja, en á nú að gera að skyldukvöð. Það er hættulegt og rangt og skapar ranga tilfinningu hjá þessum nemendum. Í öðru lagi tel ég mjög vafasamt að reyna að þvinga nemendur, sem ekki vilja sækja skóla og eru komnir á þennan aldur, til þess. Ég tel, að það eigi að hafa þar frjálst val, annað sé sálfræðilega rangt. Ég hef heyrt mörg gagnrök gegn þessu, og m.a. eru þau, að menn segja: Ef menn vilja ekki fallast á skólaskyldu varðandi 15 ára börn, hvers vegna vilja menn þá fallast á skólaskyldu varðandi 7–14 ára börn? — Þetta er að vísu afskaplega heimspekileg spurning, en við verðum að vita, hvað hér er að gerast. Við erum að bæta einu ári við það, sem fyrir var. Þá er auðvitað eðlilegt að taka það sérstaklega til athugunar, hvort það á að bæta við þessu eina ári, og þá er rétt að minna á, að það er alveg sérstaklega hæpið, þegar komið er á þennan aldur, að bæta við ári. Það er dálítið annað, hvort börn eru skólaskyld á aldrinum 7, 8, 9 eða 10 og allt upp í 14 ára, sem sagt fram að fermingu eða liðlega það, en börn taka út mikinn þroska einmitt á þessu ári, og þarna er skólaskyldan orðin þar afleiðandi allt annars eðlis og miklu hættulegra mál en í yngri árgöngunum.
Í öðru lagi er því haldið fram, að það sé hætta á, að nemendur missi úr, falli út úr kerfinu, ef þeir séu ekki skyldugir til að sækja skóla. Ég vil hins vegar benda í því sambandi á 49. gr. frv., sem gerir einmitt ráð fyrir því, að þeir, sem detta út af þessari ástæða, geti fengið þátttöku sína í atvinnulífinu viðurkennda sem þátt í námi, þannig að þeir eigi þá auðveldara með, ef til þess kemur seinna, að taka lokapróf frá grunnskóla. Ég vil bæta því við, að ég tel í lófa lagið, að komið verði upp forskólaprófum í framhaldsskólum fyrir þá nemendur, sem svona sérstaklega stendur á fyrir, ellegar að það séu haldin sérstök námskeið fyrir þá nemendur, sem hafa misst úr, en vilja bæta það upp. Ég tel. að þetta atriði yrði ekkert vandamál í framkvæmd.
Ég læt þessi orð nægja um skólaskylduákvæðin. Það er sem sagt mitt sjónarmið, að aðalatriðið sé, að ríki og sveitarfélög séu skyld til að tryggja fræðslu, en aftur sé vafasamara að skylda börnin til að sækja skóla.
Ég vil að lokum segja um þessa brtt., að hún er að sjálfsögðu ákaflega mikilsverð og snertir stórt atriði í frv. Ég veit, að þessi brtt. sætir allmiklum andmælum, enda var hún felld í Nd., og ég tel. að eðlilegt sé að skoða hana svolítið betur, þannig að fyrir mitt leyti dreg ég hana aftur til 3. umr. Ég vil einnig taka það fram, að ég legg á það megináherslu, að frv. nái fram að ganga, að því sé ekki sú hætta búin, að það dagi uppi í þinginu. Ég get því persónulega verið reiðubúinn til einhverrar málamiðlunar í þessum efnum, ef rök kæmu fram um það, að málinu væri hætta búin, ef brtt. yrði samþykkt og deildir Alþingis færu að berast á banaspjót, ef svo svo má segja, varðandi þetta atriði, sem Nd. er þegar búin að samþykkja. En það tel ég rétt að skoða milli 2. og 3, umr. og dreg því þessar brtt., sem ég er 1, flm. að, til baka til 3. umr.