08.05.1974
Efri deild: 124. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4329 í B-deild Alþingistíðinda. (3910)

9. mál, grunnskóli

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs hér í þessari d. í tilefni af ummælum síðasta ræðumanns, hv. 1. þm. Vestf., Steingríms Hermannssonar, þar sem hann lýsti undrun sinni yfir því, að þm. Sjálfstfl. hefðu leyft sér að ræða þetta mál, sem hér er nú á dagskrá, grunnskólafrv., vegna þess að í nótt hefðu átt sér stað samningar um það, að um þetta frv. yrði ekki málþóf.

Ég vil í fyrsta lagi mótmæla því, að umr. hér í d. hafi einkennst af málþófi. En í öðru lagi hlýt ég að taka undir þá gagnrýni, sem flokkssystkini mín hafa borið hér fram vegna málsmeðferðar þessa máls, og beini ég þar ekki síst orðum mínum til hæstv. menntmrh., þar sem frv. er afgr. úr nefnd deildarinnar að morgni dags, tekið til umr. síðla dags, um kvöld raunar, og 2. umr. því ekki lokið fyrr en kl. 3.30 í nótt.

Ég skal segja frá því hér, að ég tilkynnti forseta þessarar d., að ef ætlunin væri að afgr. þetta frv. við 2. og 3. umr. í skjóli myrkursins, þá munum við fulltrúar Sjálfstfl. mótmæla slíkri málsmeðferð og óvirðingu við þdm. og ganga úr fundarsal. Í kjölfar þessa var rætt um það og hafði raunar áður verið gert og skildi ég það þá þannig, að það væri tilboð af hálfu hæstv. menntmrh., að frv. yrði til 3. umr. nú í dag. Ég sagði þá í umboði minna flokkssystkina, að við mundum ekki beita málþófi og við mundum ræða málið efnislega. Ef ekki væri um nein sérstök ný málefnaleg ágreiningsmál að ræða, væri vissulega líklegt, að málinu lyki við 3. umr. um hádegisbil. Síðan á það sér stað við afgreiðslu till. við 2. umr., að gerðar eru veigamiklar breytingar á frv. frá sjónarmiði okkar sjálfstæðismanna, þær breytingar vorn gerðar með tilstilli hæstv. menntmrh. sjálfs, sem þannig stofnaði málinu í hættu með því að breyta því frá því, sem Nd. hafði gengið frá frv. Það er ósköp eðlilegt, að við áskiljum okkur rétt til þess að ræða þær breytingar, sem á frv. hafa verið gerðar við 2. umr.

Ég vil því enn á ný mótmæla því, að nokkru málþófi hafi verið heitt, og enn fremur benda á, að ef einhver hefur brotið samninga eða samkomulag eða stofnað slíku í hættu, þá er það hæstv. menntmrh. sjálfur. Þetta vildi ég láta koma skýrt fram í tilefni þeirra ómaklegu ummæla, sem hv. 1. þm. Vestf. viðhafði hér áðan, um leið og ég gagnrýni mjög þá meðferð, sem þetta frv. hefur hlotið hér í d., og þá óvirðingu, sem okkur þdm. er sýnd með slíkri meðferð frv.