08.11.1973
Sameinað þing: 16. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (401)

92. mál, bráðabirgðasamkomulag við Bretland um veiðar breskra togara

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég hef við þessa umr. orðið eins vísari, sem ég vissi ekki áður í náttúrufræði. Það er það, að nú veit ég, hvernig blástursselur lítur út.

Hér er mikið og alvarlegt mál á ferðinni, og mun ég samt hafa þann hátt á, sem formenn stjórnmálaflokkanna hafa haft við þessa umr., að tala stutt um málið, en aðeins, og það er tilgangur þessarar umr., lýsa afstöðu þingflokks míns til þess.

Ég tel það til mikilla kosta við það samkomulag, sem okkur stendur nú til boða og hér er verið að ræða, að framkvæmdin á þessu samkomulagi verður í höndum Íslendinga sjálfra. Í annan stað tel ég það mikilsvert, að hér er um tímabundið bráðabirgðasamkomulag að ræða, sem gildir aðeins í tvö ár. Í þriðja lagi, og það skiptir mestu, er um það að ræða í samkomulaginu, sem nú skal greina, nefnilega að með því fáum við meiri veiðitakmörkun breskra togara en ég tel nokkrar líkur til. að við hefðum fengið með áframhaldandi þrotlausu stríði, og þar með slæ ég því föstu, að þessi friðsamlega lausn samkomulagsins sé hinn betri kostur, sem íslenska þjóðin eigi völ á, og því sé einsætt að velja þann kostinn heldur en áframhaldandi stríð með minni vernd fyrir okkar aðþrengda þorskstofn og með meiri ágengni á íslandsmiðum af breskum veiðiskipum. Stríð vill þingflokkur SF ekki heyja stríðsins eins vegna, síst ef um verri kost er að ræða heldur en með annarri lausn málsins. Þm. SF greiða því atkv. með því samkomulagi, sem hér liggur fyrir.